21.11.1984
Efri deild: 18. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1169 í B-deild Alþingistíðinda. (820)
165. mál, sláturafurðir
Helgi Seljan:
Virðulegi forseti. Örfá orð um þetta mál og raunar önnur því tengd sem hæstv. landbrh. kom reyndar inn á síðast í sínu máli. Ég fagna því sem fram kom í hans máli að verið væri að vinna að þessum málum. Ég hef komið nokkuð nálægt þeim vanda sem hér er að vikið, m.a. verið í nefnd sem gerði allróttækar tillögur um sláturhúsamálið í landinu öllu. Vandamálin felast m.a. í þessum litlu húsum og ófullkomnu sem hér var vikið að og glöggt má þó gera þannig úr garði að heilbrigðisskilyrðum sé fullnægt og vinnuaðstaða viðunandi. Þau eru ekkert höfuðvandamál í þessu að mínu viti. Ég dreg hins vegar ekkert úr nauðsyn þess að slíkar lagfæringar séu gerðar og eins því að þar sem þetta er illkleift þá verði að veita mjög stuttan frest til úrbóta og leggja síðan sláturhúsin af að öðrum kosti þar sem það er ekki gert.
Viðkvæmnisatriði eru þarna vissulega ærin á ferð. Hrepparígur með atvinnusjónarmiðum kemur ríkulega inn í myndina. Sums staðar skiptir þetta verulegu máli fyrir byggðina og er t.d. sláturhúsið á Fagurhólsmýri í Öræfum glöggt dæmi um þetta. Það er alveg óhætt að segja að það er mikil lyftistöng fyrir þessa byggð að hafa þessa atvinnu á haustin, verulegt öryggisatriði varðandi byggðina þar og tekjuaukning fyrir byggðarlagið. En annars staðar eru það nánast marklaus rök að þessi sláturhús, sem eru mjög ófullkomin og í raun og veru ekki hægt að lappa upp á þau, þurfi endilega að vera í viðkomandi byggðarlögum. Ég nefni byggðarlag hið næsta mér eins og t.d. á Eskifirði þar sem er gott dæmi um það að sjálfsagt var að leggja slátrun af. Þó var það býsna erfitt.
Hins vegar eru önnur vandamál miklu stærri en undanþágumálin og inn á þau kom hæstv. landbrh. Ég flutti um þessi vandamál till. til þál. í fyrra og tvö meginatriði hennar voru samþykkt, eins og hæstv. ráðh. gat hér um. Þau horfa bæði til framtíðarskipunar. Ég leyfi mér að lesa upp, með leyfi virðulegs forseta, þál. eins og hún var samþykkt:
„Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að láta athuga hvernig bæta megi rekstrargrundvöll sláturhúsa, m.a. með því að tryggja sláturhúsunum önnur verkefni svo að lengja megi nýtingartíma þeirra. Enn fremur verði kannað hvort hagkvæmt sé að endurbyggja eldri sláturhús svo að viðunandi sé eða ráðast í nýbyggingar.“
Hæstv. ráðh. upplýsti að nokkur hreyfing væri á þessum málum í hans rn. í tengslum við þessa samþykkt Alþingis og ber að fagna því. Það veltur á miklu að hér verði eins skipulega að staðið og unnt er.
Menn verða að gera sér ljósa grein fyrir notkunartíma þessara dýru bygginga og leita allra leiða til að lengja þennan notkunartíma og koma öðrum verkefnum inn í þessi hús. Það verður að setjast eins og er að miðað við notkunartíma er víða um hreina offjárfestingu að ræða þrátt fyrir það að fjárfækkun hafi orðið. Ég segi það hiklaust hér að stærðarkröfur og aðrar kröfur varðandi þessar byggingar hafa í raun og veru verið í öfgafyllstu köntum og undarlegar, svo að ekki sé fastar að orði kveðið. Ég deili ekki á það að sláturhús séu góður vinnustaður og þau eru vitanlega nauðsynleg til síns brúks. En ég held að skynsamleg fjárfestingarstefna hafi verið víðs fjarri varðandi þessi hús, einkanlega í ýmsu sem snertir stærð þeirra. Vænst skal réttra viðbragða rn. við samþykkt Alþingis sem er býsna ótvíræð hvað þetta varðar.
En þá er komið að þeim hluta till. sem felldur var út og ég tel að menn hafi ekki treyst sér til að taka á þó að hæstv. ráðh. kæmi inn á það áðan að nú væri einnig unnið að þeim málum. Þar er um það að ræða að tryggður verði sem bestur rekstrargrundvöllur þeirra sláturhúsa sem nú standa lakast. Sum mál þola þar orðið enga bið. Eins og hæstv. ráðh. veit og menn vita kannske almennt hér, þá skera tvö sláturhús sig þar úr, þ.e. á Patreksfirði og á Breiðdalsvík. Þar hefur vissulega verið fjárfest í of dýrum byggingum. Ég man að nógu erfitt var á sínum tíma að fá að minnka sláturhúsið á Breiðdalsvík um ríflegan fjórðung frá upphaflegum teikningum að því húsi. Ég man eftir að við gengum í það í stjórn Stofnlánadeildar landbúnaðarins með atfylgi Framleiðsluráðs að minnka þetta hús. Sú barátta var ærið harðsótt. Mín trú og vissa er sú að tillögur okkar um ríflega helmingsstærð af því sem varð hafi verið skynsamlegar. Allir viðurkenna það nú, jafnt heimamenn sem aðrir sem þar að málum komu. Þá hefði trúlega ekki staðið eins illa um allan rekstur og nú gerir þar. Vissulega — og það skal skýrt tekið fram hafa síðar komið inn atriði sem skipta sköpum og voru óséð þá. Það gildir um bæði húsin. Fækkun fjár almennt kemur þar inn í eins og hæstv. ráðh. minnti á varðandi sláturhúsin í heild sinni. En mestu skiptir þó að á báðum þessum svæðum hefur riðuveikin herjað á óvægilega. Ég hygg að einsýnt sé að á Patreksfirði verði húsið hreinlega nýtt til annars og það muni vera kleift.
Í Breiðdal hefur sláturfé fækkað úr u.þ.b. 16 þús. þegar sláturhúsið var byggt niður í tæp 10 þús. og rekstrargrundvöllurinn eðlilega skekkst að því sama marki, svo að ekki sé meira sagt. Staða þessa sláturhúss er afleit og í raun er það á algeru uppboðsstigi. Hins vegar er slátrun á þessum stað nauðsyn vegna aðstæðna en erfitt um aðra nýtingu hússins. Athuganir hafa farið fram á möguleikum þar að lútandi en út úr því hefur ekkert komið að svo stöddu. Við höfum átt að því hlut, ég og hv. 4. þm. Austurl. sem framkvæmdastjóri Framkvæmdastofnunar ríkisins, að koma á athugun af þessu tagi. Hún hefur því miður ekki leitt neitt í ljós sem gæti leyst þetta mál. Hins vegar er hér um einkennandi byggðamál að ræða og því hefur verið reynt að fá Byggðasjóð inn í dæmið. En eins og hv. 4. þm. Austurl. veit best um sem framkvæmdastjóri þar munu ekki allir á þeim bæ vera sáttir við að þar verði veitt bein aðstoð. Það munu einhverjir vera býsna neikvæðir þótt hér sé um ótvírætt byggðamál að ræða. Ég lýsi því hins vegar yfir að frá Stofnlánadeildarinnar hálfu er sjálfsagt að liðka þar til svo sem unnt er, en það nægir þó engan veginn. Vandamálið verður að leysa. Þar verða allir að leggjast á eitt, heimamenn, fjárfestingarsjóðir og stjórnvöld.
Ég hlýt, úr því að sláturhúsin koma inn í þessa umr., að minnast stuttlega á þetta sérstaklega í tengslum við þetta frv., svo mjög sem málin eru skyld. Hér er úrlausnarefni einkum og sér í lagi varðandi húsið á Breiðdalsvík sem ég bið hæstv. landbrh. að huga sérstaklega að.
Um sláturhúsamálin í heild mætti hafa langt mál. Sú saga er ekki allra besta dæmið um skynsamlega og arðbæra fjárfestingu. Vandamálin eru víða en hins vegar er engin einföld lausn á því heldur hvernig á þeim eigi að taka svo að úr megi bæta. Ég rakti þessi mál hins vegar almennt í fyrra í ræðu og skal ekki endurtaka neitt af því en vildi aðeins koma þessu á framfæri við hæstv. ráðh. Hann vék að því áðan hvað liði framkvæmd þál. Í framhaldi af því er nauðsynlegt að spyrja hvað stjórnvöld hyggist gera varðandi þau sláturhús sem í allra mestum vanda eiga og hvort þar sé eitthvað á döfinni annað en það sem við vitum um sem erum að vinna að þessum málum í fjárfestingarsjóðunum.