21.11.1984
Efri deild: 18. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1181 í B-deild Alþingistíðinda. (831)
159. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins
Magnús H. Magnússon:
Virðulegi forseti. Efni þess frv. sem hér er til umr. er auðvitað af hinu góða á margan hátt. En þó er hætt við, ef ekki verða útvegaðir peningar sérstaklega til þessa viðbótarlánaflokks, að lán til annarra þátta í starfsemi Byggingarsjóðs verkamanna skerðist. Og það má ekki ske. Í dag vantar mikið á að Byggingarsjóður verkamanna standi í skilum miðað við skuldbindingar skv. núgildandi lögum. Það er því varla á hann bætandi nema um leið að fá meira fjármagn.
Það er vissulega rétt hjá hv. flm. að mikið hefur skort á valfrelsi fólks í þessum efnum. Auðvitað ættu menn að geta valið milli þess að kaupa eða leigja húsnæði. Ég tel að ein besta leiðin að þessu marki séu svokallaðir kaupleiguskilmálar sem hafa tíðkast t.d. í Svíþjóð en þó mest í Bretlandi. Þar hefur þróunin orðið mest. Þar getur fólk valið á milli þess að kaupa eða leigja. Og það getur breytt sinni ákvörðun hvenær sem er, getur komið inn í kaup hvenær sem er þó það byrji á að leigja. Fólk borgar ákveðna grunnleigu á mánuði, síðan getur það, ef það vill, til að eignast íbúðina bætt við nokkurri viðbótargreiðslu sem er þá sem kaupverð íbúðarinnar. Það getur verið sú íbúð sem það hefur til afnota og síðan getur það gengið á milli íbúða.
Ef fólkið hættir nú við að vilja eignast íbúðina og vill halda áfram að leigja, þá hættir það við þessar greiðslur, þá borgar það bara grunnleiguna. Og þá getur það, hvort sem það vill, geymt þá inneign sína sem það hefur greitt til seinni tíma, ef það treystir sér að byrja aftur, eða fengið hana endurborgaða með verðbótinni. Það getur sem sagt á hverjum tíma valið á milli þess að bara leigja eða að vera um leið að eignast íbúðina. Og það getur breytt því ef það vill flytja á milli húsa, vill stækka við sig eða minnka, þá er það auðvelt. Ef það vill flytja á milli staða þá er það líka auðvelt, það flytur bara með sér réttindin. Þau verða svo og svo mikil, virt á svo og svo mikið.
Ég hefði haldið að það væri nauðsynlegt að reyna að koma einhverju slíku kerfi á hér. Það væri auðvitað ekki hægt nema þá í samvinnu sterkra aðila. Þá dettur mér í hug samvinna sveitarfélaga, húsnæðismálastjórnar og lífeyrissjóðanna, sem gætu þá á þann hátt tryggt rétt sinna meðlima til húsnæðis, hvort sem þeir meðlimir vilji stefna að því að eignast húsnæði eða leigja það. Ég held að það ætti að skoða þetta kerfi betur og reyna að koma því á og fá sterka aðila inn í þá mynd, sveitarfélög, húsnæðismálastjórn og lífeyrissjóði. Hugsanlega gætu einhverjir fleiri komið þar inn og þá um leið tryggt réttindi sinna meðlima þó að sveitarfélögin yrðu auðvitað að hugsa um réttindi allra og ekki síst þeirra aðila sem hv. flm. ræddi um hér sérstaklega.
Virðulegi forseti. Ég styð þetta frv. en bendi jafnframt á nauðsyn þess að aukið fjármagn komi inn í Byggingarsjóð verkamanna til til að standa undir þessum viðbótarlánum.