21.11.1984
Neðri deild: 14. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1216 í B-deild Alþingistíðinda. (838)
143. mál, álbræðsla við Straumsvík
Guðmundur Einarsson:
Herra forseti. Þessi samningur er að mörgu leyti hið versta mál, ekki síst vegna þess að með einu atkvæði, jái eða neii, þurfa menn að taka afstöðu til gerólíkra þátta, þar sem er rafmagnsverð, skattamál og svo óumdeilanleg stefnumörkun til langs tíma í orkumálum hvað sem menn vilja síðan segja um það hversu mikilvægt bréf það sé sem þessu fylgir.
Við Bandalagsmenn höfum ýmislegt alvarlegt við þennan samning að athuga eins og þegar hefur komið fram í Ed. Hann er ávöxtur margra ára skotgrafahernaðar þar sem hagsmunir annarra en þjóðarinnar virðast oft og einatt hafa verið settir á oddinn. Við höfum tekið þá afstöðu að styðja samninginn vegna þess að hann færir umtalsverða fjármuni til landsins með hækkun orkuverðs og að okkar mati er ekki sýnt að núverandi pólitískar aðstæður séu þess megnugar að ná þar betri árangri. Það er sá lærdómur sem við með þungum huga verðum að draga af sögu þessa máls frá byrjun. Hvorki fyrrv. stjórn né núv. stjórn megnaði að ná hér betri árangri. Það er hin bitra staðreynd sem við stöndum frammi fyrir.
Athugasemdir okkar eru eins og ég sagði í byrjun af ýmsum toga. Í fyrsta lagi get ég tekið undir gagnrýni sem fram hefur komið um það hvernig staðið hefur verið að sjálfri samningsgerðinni. Í fyrsta lagi hve upplýsingar til Alþingis hafa verið af skornum skammti og raunar engar á síðasta sprettinum. Í öðru lagi tel ég að formennska seðlabankastjóra í samninganefndinni orki mjög tvímælis, svo að ekki sé sterkar að orði komist, vegna þeirrar margföldu aðstöðu sem hann hefur umsvifa sinna vegna. Hann situr miklu víðar við þetta sama borð íslenskra þjóðmála en góðu hófi gegnir. Þarna er á ferðinni valdþjöppun sem við teljum alls ekki viðunandi.
Eins og ég sagði áðan er hér á ferðinni mál sem er af mörgum og ólíkum toga. Þar höfum við í fyrsta lagi samninginn um rafmagnið. Vegna hans hækkar orkuverðið óumdeilanlega verulega mikið. Hundruð milljóna króna munu fást til Íslands vegna ákvæða hans á næstu árum. Um það er ekki deilt. Það sem hins vegar er varhugavert og umræðuvert í sambandi við rafmagnssamninginn er endurskoðunarákvæðið. Ýmsar augljósar upplýsingar virðast benda til þess að óbreyttur muni samningurinn valda því að raunverð orkunnar lækki verulega á komandi árum. Það er eiginlega það mikilvægasta í sambandi við rafmagnsverðið sjálft.
1 nefnd þar sem ég átti þess kost að sitja sem áheyrnarfulltrúi í fyrstu kom fram að staðhæfingar þeirra sem að samningnum stæðu um að orkuverð lægi við aðfellur samningsins, 18.5 mill eða 12.5 mill, tímum saman sýndu augljóslega að forsendur samningsins væru brostnar vegna þess að þar með væri brott fallinn sá sveigjanleiki sem augljóslega er ætlunin að fá fram með vísitöluformúlunni. Þetta eru rök sem út af fyrir sig eru gild.
Einnig kom fram í þessum umr. að annars staðar í gögnum þessara samninga, þ.e. í bráðabirgðasamningnum og svo í samningunum þessum sjálfum, er vikið að atriðum sem menn telja að hafa verði í huga í sambandi við orkuverð samninga. T.d. ef til framhaldssamninga kæmi eða endurnýjunar á þessum samningum séu tiltekin atriði úr hinu almenna pólitíska og orkufræðilega umhverfi sem verði að hafa til hliðsjónar við gerð nýrra samninga.
Á sama hátt megi leiða að því sterk rök að þessi sömu atriði verði að hafa í huga við endurskoðun á fimm ára fresti á þessum samningum hér. Þetta eru þau rök sem hafa komið fram í málinu.
Ég lagði til á þessum sameiginlegu nefndarfundum sem ég sat að aflað væri óháðrar álitsgerðar á styrkleika þessa ákvæðis frá fagmönnum í lögfræði og samningagerð, öðrum fagmönnum en þeim sem viðriðnir væru gerð þessa samnings. Ég legg þetta til enn. Ef ég fæ tækifæri til að fylgjast með nefndarstörfum í Nd. mun ég leggja til að svo verði gert því að augljóst er að endurskoðunarákvæðið er umdeilanlegt og styrkur þess þarf í raun og veru nánari skilgreiningar við.
Annað atriði vil ég gera að umræðuefni hér í kvöld varðandi stækkun álversins. Það er óumdeilanlegt að bréf iðnrh., sem er fylgiskjal með þessum samningi, markar ákveðna framtíðarstefnu í sambandi við íslenska orku og atvinnupólitík. Ef bréfið gerði það ekki þá væri það ekki innlegg í þessum samningi. Það er einfaldlega í þessum samningi vegna þess að það hefur vægi og mun hafa í framtíðinni. Þess vegna er það þarna. Menn hefðu ekki sett einskisverða, ónýta stefnuyfirlýsingu þarna. Það er verið að stíga þarna ákveðið skref. Það er þetta atriði sem ég lýsi eindreginni andstöðu við af ýmsum ástæðum.
Í fyrsta lagi hefur ekki farið fram umræða hér á Alþingi um framtíðarstefnu í íslenskri orku- og iðnaðarpólitík. Við höfum bitra reynslu í þessum málum. Við höfum lent í því að virkjunarframkvæmdir hafa reynst margfalt dýrari en efni stóðu til. Við höfum lent í ýmsum örlagaríkum slysum í okkar orkumálum. Við höfum lent í gufulausum virkjunum. Við höfum lent í lekum lónum. Allt eru þetta uppákomur sem kosta okkur hundruð millj. kr. Á fundum iðnaðarnefndanna, sameiginlegu fundunum, komu fram útreikningar þar sem leitast var við að reikna raunverulegt kostnaðarverð orku út úr okkar orkuframleiðslukerfi, m.a. reiknaðir inn í dæmið vextir af eigin fjármunum sem þegar höfðu verið lagði fram. Menn nefndu þær tölur að raunverulegt kostnaðarverð í þessum samanburði væri jafnvel á bilinu 30–40 mill ef tekið væri mið af því að hægt hefði verið að setja þessa peninga í aðra hluti og arðbærari. Þetta leiðir allt saman hugann að því sem ég sagði áðan að væri framtíðarstefna, framtíðarmál í íslenskri orkupólitík, í íslenskri atvinnumálapólitík. Um þetta hefur ekki farið fram sú þinglega umræða sem er nauðsynleg né sú almenna gagnasöfnun sem hlýtur að verða að fara á undan stefnumótun í slíkum málum. Það hefur t.d. ekki mér vitanlega verið aflað upplýsinga frá Þjóðhagsstofnun um gildi eða fýsileika þeirra atriða sem hér er fjallað um.
Þetta, í fyrsta lagi um hlutverk þingsins, í öðru lagi um framtíðarstefnumál í íslenskri orkupólitík, er mjög mikilvægt.
Í þriðja lagi vildi ég nefna það að ég tel ekki að það sé íslensku efnahagslífi hollt að hafa einn svo stóran aðila eins og ÍSAL er og yrði enn þá stærra með stækkun. Við höfum séð á undanförnum árum að fyrirferð ÍSALs og Alusuisse og alls sem því fylgir í íslenskum stjórnmálum er einfaldlega svo mikil að það skaðar okkur á öðrum sviðum. Við erum með hellar stofnanir — við erum með Landsvirkjun, við erum með iðnrn. og við erum með fleiri stofnanir — sem eru meira og minna undirlagðar af ÍSAL og orkumálum ár eftir ár og við höfum ekki getað sinnt á viðunandi hátt öðrum kostum í atvinnumálum.
Það voru birtar gagnlegar upplýsingar um daginn um útkomu úr mjög athyglisverðu verkefni sem hafið var í iðnrn. í tíð fyrrv. iðnrh. sem varðaði kynningu á smáfyrirtækjarekstri. Niðurstaða þessa verkefnis er mjög jákvæð. Hins vegar er þetta eins og dropi í hafið. Þetta er svo lítið, þetta er svo veikt og þetta er svo smár vísir að það er hörmulegt. Þarna er bæði of lítið og of seint unnið og maður spyr: Hvað hefði gerst í þessu iðnrn. og iðnrn. fortíðarinnar ef þau hefðu ekki verið undirlögð af stóriðjumálunum, ÍSAL og orkunni?
Við sjáum þessi áhrif stærðarinnar líka ef við lítum á útkomu samningaferilsins við auðhringinn frá byrjun. Það er kannske auðvelt að segja þetta eftir á og menn læra af reynslunni, en það er ýmislegt sem bendir til að við höfum kannske aldrei og munum hugsanlega aldrei eiga í fullu tré við þennan risa vegna yfirburðaaðstöðu í sambandi við upplýsingaöflun, í sambandi við alþjóðlega lögfræðikunnáttu og fleira og fleira. Ýmislegt bendir því til að við eigum ekki að hyggja á það að róa af meiri krafti á þessi mið í framtíðinni.
Í fjórða lagi varðandi stækkun má spyrja hvort reynslan af Alusuisse sýni að það sé góður félagi til þess að ganga með inn í framtíðina. Mér sýnist nú raunar að svo sé ekki, því miður.
Í fimmta og sjötta lagi mætti líka spyrja hvort áliðnaður sé til þess að veðja á í framtíðinni í sambandi við það að ætla okkur vöxt, auknar þjóðartekjur og aukna velmegun. Þær upplýsingar, sem hafa komið fram um áætlaðan vöxt í áliðnaði í framtíðinni, eru ekki þess eðlis að það sé beinlínis feitan gölt að flá. Það er spáð fram til aldamóta, ef ég man rétt, 2–4% vexti og það virðist ekki vera að áliðnaðurinn sé sá göltur sem við gætum feitastan fengið til flánings.
Af þessum ástæðum, sem ég hef talið hérna upp varðandi stækkunarmálin, tel ég illa farið ef við, vegna þeirrar nauðungar að verða að fá fram hækkun á orkuverði til verksmiðjunnar sem fyrir er, verðum að stíga fyrstu skrefin inn á braut aukinna umsvifa stóriðju og áliðju á Íslandi. Þá tel ég illa farið. Og þótt hæstv. ráðh. hafi margítrekað í umr. og þeir samningamenn hafi ítrekað sömuleiðis að engu sé lofað um framtíðina, menn séu ekki bundnir af þessu á neinn hátt, er þó augljóst að bréfið markar stefnu og þess vegna er það til og það mun hafa vægi. Þess vegna vill Alusuisse fá þetta bréf. Þess vegna er það partur af þessum heildarpakka. Ég er andvígur þessari málsmeðferð. Ég er andvígur þessum stækkunaráformum, sem verið er að stíga fyrstu skrefin til, vegna þess að ég hef um það svo ríkar efasemdir að stóriðja eigi að verða okkar framtíð. Ef við lítum í kringum okkur er hún á undanhaldi mjög víða á Vesturlöndum. Í Bandaríkjunum og í Vestur-Evrópu er allt annars konar atvinnurekstur, allt annars konar iðnaður að skjóta rótum sem menn verða ríkir af og menn verða hamingjusamir af að vinna við. Það er, eins og margoft hefur komið fram í þessum stól, alls kyns iðja í kringum þekkingu og í kringum þróun og stóriðjuhugmyndirnar eiga þar hvergi heima.
Ég lýsi mig sem sagt andvígan þeim stækkunaráformum sem mér sýnist vera verið að læða inn með þessum margslungna samningi þar sem þm. eru settir í þá óviðunandi aðstöðu að þurfa með einu atkv. sínu að taka afstöðu til svo margra og ólíkra þátta. En vegna hins bráða vanda, eins og mönnum er tíðrætt um í þessum stól, hef ég tekið þá ákvörðun að greiða atkv. með þessum samningi vegna þess að hann leysir hið áragamla vandamál um orkuverðið frá Búrfelli til álversins í Straumsvík. Það mál hefur allt of lengi verið óleyst. Við verðum og eigum að stíga þetta skref sem pólitíkin á Íslandi er megnug um að stíga í dag. En ég vil ekki að við setjum fleiri egg í þessa körfu ÍSALs. Ég tel að við höfum haft af þessu nóg ónæði á undanförnum árum og að íslensk pólitík verði að finna sér einhver uppbyggilegri verkefni að fást við á sviði atvinnumála.