21.11.1984
Neðri deild: 14. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1221 í B-deild Alþingistíðinda. (840)
143. mál, álbræðsla við Straumsvík
Iðnrh. (Sverrir Hermannsson):
Herra forseti. Það væri auðvitað ástæða til þess að ræða og setja á lengri tölu vegna ýmislegs þess sem fram hefur komið í máli hv. þdm., sem talað hafa, en fæst var nú nýtt af því sem fram kom til að mynda í máli hv. 5. þm. Austurl. og ætla ég að geyma mér það til 2. umr. að svara ýmsu því sem þar kom fram. Ég tel enda ekki örvænt um að afstaða hans kunni í einhverju að breytast við það að fá þær upplýsingar í iðnn. sem þar liggja fyrir eftir vinnslu málsins í nefndunum og vildi þess vegna gjarnan fá að sjá nál. hans, sem ég tel víst að hann muni standa fyrir, og veit raunar, þar sem hann er eini fulltrúi síns flokks í nefndinni, áður en ég sé ástæðu til þess að orðlengja þetta meir líka tímans vegna. Ef gott samkomulag næst um það að koma þessu máli til nefndar vænti ég þess fastlega að nefndin sjái sér fært að 2. umr. um málið verði á mánudag.
En það er eitt atriði í máli hv. 5. þm. Austurl. sem ég get auðvitað ekki látið liggja í þagnargildi, heldur óska eftir því að það atriði verði sérstaklega rannsakað af iðnn., og það eru fullyrðingar hans og áburður um að ég hafi vísvitandi farið með rangt mál í svörum mínum við fsp. frá honum sem hann varpaði fram í utandagskrárumr. hinn 25. okt. s.l. En þar var 4. spurning í fyrirspurnalista hans á þessa leið:
Hefur í núverandi samningsdrögum Alusuisse verið gefinn einhver ádráttur um breytta túlkun á ákvæðum núgildandi samninga hvað skattareglur snertir, t.d. ákvæða aðstoðarsamnings um að Alusuisse sjái ÍSAI. fyrir aðföngum á bestu fáanlegum kjörum?
Ég svaraði þessu neitandi. Það hafði engin breyting verið lögð fram við aðstoðarsamninginn 25. okt. Ég bið hv. þm. að nótera það hjá sér hvort það hafi ekki fyrst komið fram aðfaranótt hins 3. nóv. að breyting væri gerð á aðstoðarsamningi um þetta efni. Þetta er það fyrsta og ég óska eftir því sérstaklega að nefndin kalli Hjört Torfason hrl. á sinn fund til þess að útskýra þessi ákvæði nákvæmlega vegna þess að auðvitað get ég ekki stundinni lengur legið undir áburði um það að ég hafi farið með rangt mál. Og ég bið nú hv. þdm. að hugleiða hvernig það má vera að ég hefði hagað mér þannig vísvitandi hafandi það alveg fyrir augum að slík sviksemi í orðum og athöfnum mundi upp koma á borð manna innan tíðar þar sem ég átti það auðvitað fyrir höndum að leggja alla samningsgerðina fyrir hið háa Alþingi.
En ég vil enn fremur minna á að þessi breyting á aðstoðarsamningum er málsútlistun og skilningur, lagaleg túlkun okkar lögfræðinga á umræddu ákvæði í aðalsamningi, 27.03, og ég ítreka og endurtek: það er túlkun Hjartar Torfasonar og lögfræðilegra ráðunauta okkar á ákvæðinu í aðalsamningi sem þarna er tekið fram í breytingunni á aðstoðarsamningnum. Þess vegna er það heldur ekki breyting á honum, sem þarna er komin fram, heldur lagaleg útlistun okkar manna — um þetta var þrætt af miklum móð á sínum tíma — og skilningur á þessari grein. Með þessari breytingu, sem ekki er efnisbreyting, er það gert ótvírætt að umrætt ákvæði 2.03 (c), um bestu skilmála, eigi við í þeim tilvikum þegar Alusuisse veitir ÍSAL aðstoð sem ráðgjafi við innkaup hjá þriðja aðila, en ekki þegar það er sjálft að selja ÍSAL hráefni frá fyrirtækjum innan samsteypunnar. Gamla aðalsamninginn skilja okkar lögfræðiráðunautar og túlka á þessa vísu. Þetta er auðvitað ekki breyting, heldur útlistun, tekin af tvímæli. En ég endurtek: Þetta var ekki þegar ég svaraði hv. þm. (Gripið fram í: Hver fór fram á breytinguna á þessu, hæstv. ráðh.?) Ég fer fram á að nefndin rannsaki þetta mál gaumgæfilega og fái þær upplýsingar og kalli á samninganefndarmennina, að vísu á einn hv. þm. sæti í þeirri nefnd, formanninn og Hjört Torfason. Ég vænti nú þess að Hjörtur Torfason verði ekki talinn það pólitískt skyldur þessu máli að menn trúi og treysti orðum hans. Ég vil þess vegna engar frekari fullyrðingar hafa í frammi í þessu máli, en hlýt að óska þess eindregið og mun reyndar fylgja því eftir. Ég veit að ég get treyst hv. 5. þm. Austurl. í því efni að hann muni vilja fá það fram og hafa það sem sannara reynist í þessu máli.
Þetta er það sem ég vildi láta koma fram núna vegna þess hvernig á stendur að öðru leyti fyrir okkur um tíma og annað sem að framgangi málsins lýtur.