22.11.1984
Sameinað þing: 24. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1229 í B-deild Alþingistíðinda. (843)

Stefnuræða forseta og umræða um hana

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Umræðan skiptist í tvær umferðir. Í fyrri umferð hefur forsrh. til umráða allt að hálfri klukkustund og fulltrúar annarra þingflokka 20 mínútur hver. Í síðari umferð hefur hver þingflokkur 10 mínútur til umráða. Röðin verður þessi: Framsfl., Alþfl., Bandalag jafnaðarmanna, Sjálfstfl., Samtök um kvennalista og Alþb.

Af hálfu Framsfl. talar auk forsrh. í fyrri umferð Halldór Ásgrímsson sjútvrh. í síðari umferð. Af hálfu Alþfl. tala í fyrri umferð Jón Baldvin Hannibalsson, 5. þm. Reykv., og Jóhanna sigurðardóttir, 2. landsk. þm., og í seinni umferð Magnús H. Magnússon, 6. landsk. þm. Fyrir Bandalag jafnaðarmanna tala í fyrri umferð Kolbrún Jónsdóttir, 8. landsk., þm., og Kristófer Már Kristinsson, 1. landsk. þm. Í síðari umferð Guðmundur Einarsson, 4. landsk. þm. Ræðumenn Sjálfstfl. verða í fyrri umferð Þorsteinn Pálsson, 1. þm. Suðurl., og Eyjólfur Konráð Jónsson, 4. þm. Norðurl. v., og Matthías Á. Mathiesen viðskrh. í þeirri síðari. Af hálfu Samtaka um kvennalista tala í fyrri umferð Guðrún Agnarsdóttir, 3. landsk. þm., og Kristín Ástgeirsdóttir, 11. þm. Reykv., og í þeirri seinni Kristín Halldórsdóttir, 7. landsk. þm. Fyrir Alþb. talar Ragnar Arnalds, 3. þm. Norðurl. v., og Guðrún Helgadóttir, 10. landsk. þm., í fyrri umferð og Geir Gunnarsson, 5. þm. Reykn., í þeirri síðari.