22.11.1984
Sameinað þing: 24. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1263 í B-deild Alþingistíðinda. (854)

Stefnuræða forseta og umræða um hana

Guðrún Helgadóttir:

Virðulegi forseti. Háttvirtu áheyrendur. Til hvers er stefnuræða flutt? Hún er flutt í alþjóðaráheyrn til þess að landsmenn fái að heyra að hvers konar mannlífi ríkisstj. stefni og hvaða leiðir hún hafi valið sér að því marki. Hún er flutt til þess að íslenska fjölskyldan fái að vita við hvaða kjör hún á að búa í nánustu framtíð.

Sú stefnuræða, sem hér var flutt í dag, er innihaldslaus orðavaðall um vanda atvinnuveganna, röskun á efnahagsjafnvægi, viðureignina við verðbólgubálið og þess háttar, skrifuð á tungumáli kerfiskarla í glæstum sölum Seðlabankans og ráðuneytanna sem hafa ekki hugmynd um hvað stendur á bak við dálkana í doðröntum þeirra, sem er þrældómur og strit fólksins í landinu. Eina skiljanlega niðurstaðan í 27 síðna vélritaðri ræðu, sem lögð var fram í gær, er að efnahagsstefna ríkisstj. hafi beðið skipbrot vegna óhóflegra launakrafna fólksins í landinu.

Og til þess að bjarga atvinnuvegunum í bili varð að lækka gengið um 12% til viðbótar við það gengissig sem þegar er orðið. Launahækkanir fólksins voru teknar aftur, af sumum áður en þær höfðu komið til greiðslu, t.d. af elli- og örorkulífeyrisþegum landsins sem enn þá hafa enga hækkun fengið.

Þjóðfélag, sem býður þegnum sínum mannsæmandi líf, byggir á þrem meginatriðum: Réttlátri skiptingu þjóðartekna, stöðugleika í uppbyggingu framleiðslutækja og frjóu og blómlegu menningarlífi sem allir eiga aðgang að. Flestar ríkisstj. hafa a.m.k. þóst stefna að þessu marki. En núv. ríkisstj. hefur gert aðför að öllum þessum meginatriðum. Skiptin þjóðartekna er nú óréttlátari en um áratugaskeið. Ég hef áður haldið því fram og ýmsir tekið undir að hér í landi búi tvær þjóðir við mjög ólík lífskjör. Önnur — sú hin minni — ber hitann og þungann af rekstri samfélagsins og tekur laun skv. gerðum kjarasamningum, hin skammtar sér laun sjálf og svíkst undan að borga það sem henni ber til samfélagsins. Meðan launþegar greiða fyrir þetta fólk skólagöngu barnanna þess, heilbrigðisþjónustu þess, vegagerð og annað sem við þurfum til að lifa í þessu landi, viðheldur þetta fólk taumlausri eyðslu og sóun í þjóðfélaginu og safnar fasteignum.

„Lögfræðingar kjaradeilunefndar,“ segir í einu dagblaðanna í dag, „tóku 200 þús. kr. hver á einum mánuði,“ eða 14 mánaða laun þorra þess fólks sem verið var að semja fyrir. Fulltrúi fjmrn. staðfesti að víst hafi orðið að tryggja það að þeir færu ekki verr út úr þessari vinnu en sínum venjulegu störfum. En mánaðarlangt verkfall tryggði á engan hátt að það fólk sem hefur 1/4 af þessum mánaðarlaunum geti hugsanlega lifað af sínum launum. Það er þessi grimmilegi tekjumismunur sem er hinn raunverulegi efnahagsvandi þessarar þjóðar.

Það er ekki vegna skorts á fjármagni að ekki er hægt að greiða launþegum laun, heldur vegna þess að fjármagn þjóðarinnar er á of fárra höndum. Ríkisstj. hefur breikkað bilið milli ríkra og fátækra og hæstv. ráðh. láta sem þeir viti það ekki. Þeir hljóta þó að vita að enginn getur framfleytt sér á 13–15 þús. kr. á mánuði. Ein laun duga engri fjölskyldu til framfærslu, ekki einu sinni tvenn í mörgum tilvikum, jafnvel ekki fleiri. Sex þúsund íslensk börn búa á heimilum einstæðra mæðra sem flestar eru með laun af þessari stærðargráðu. Vitanlega vinna þær því tvöfalda vinnu og heimilisstörfin eru sú þriðja.

Finnst hæstv. ráðh. þetta mannsæmandi líf? Er þeim alvara þegar þeir tala um óhóflegar launakröfur þessa fólks, svo mikil alvara að þeir hafa tekið góðan þriðjung af þeim launahækkunum sem fólkið var að fá í nýgerðum kjarasamningum — í sumum tilvikum án þess að það væri búið að fá þessar launahækkanir greiddar?

Elli- og örorkulífeyrisþegar hafa enn enga hækkun fengið, hæstv. heilbrmrh., einungis enn frekari kjaraskerðingu eftir að búið var að bæta ofan á þá skatti, mörg hundruð prósenta hækkun á lyfjakostnaði. Vita hæstv. ráðh. að elli- og örorkulífeyrisþegi hefur nú 10 900 kr. á mánuði í ellilífeyri, tekjutryggingu og heimilisuppbót. (Félmrh.: Þetta er allt þvaður.) Vogar ráðh. sér að rengja þetta? (Félmrh.: Já. Hlustar ekki þm. á fréttir?) — Á þetta fólk að bjarga atvinnuvegum þjóðarinnar? Þetta er grimmileg aðför að fólkinu í landinu og leysir engan vanda.

Hefur svo kjaraskerðing launamanna farið í að efla og byggja upp framleiðslufyrirtækin? Nei, öðru nær. Þar hefur ríkt nær stöðnun. Tekjur launamanna hafa verið fluttar til milliliðanna, til fyrirtækja sem nota þá í óarðbærar fjárfestingar og sjóðir landsmanna eru notaðir til sjálfvirkrar lánafyrirgreiðslu. Sáralítið af þessu fé hefur farið í nýjar atvinnugreinar. Útgerðarfyrirtækin hafa vanrækt að greiða í Verðjöfnunarsjóð svo að hann hefur verið gagnslítill þegar sveiflur verða í afla. Gengisfelling leysir ekki vanda sem skapast af aflarýrnun. Þvert á móti hækkar hún afborganir og eykur kostnað og það fé er tekið af launþegum.

Þriðja aðförin að lífi þessarar þjóðar hefur ekki farið fram hjá neinum. Ótrúleg aðför hæstv. ráðh. að menntun og menningu í landinu er alþjóð kunn. Við Íslendingar höfum verið stoltir af því að eiga gott skólakerfi fyrir alla þá sem það vilja nýta, góðar bækur og góða list sem íslenskur almenningur á betri möguleika á að njóta vegna þess að allur þorri manna er á svipuðu menningarstigi og hefur sömu getu til að njóta góðra bóka og góðra lista. Lánasjóður íslenskra námsmanna átti að tryggja öllum ungmennum landsins sama rétt. til náms, sem er undirstöðuatriði jafnréttisþjóðfélags, Að öllu þessu er nú vegið. En peningar landsmanna skulu þess í stað fara til þess að greiða raforkuverð auðhringsins í Straumsvík.

En þess skulu menn minnast að þær bækur, sem átti að skrifa núna, verða ekki skrifaðar seinna. Það verða aðrar bækur um aðra tíma. En vegina, sem átti að leggja í dag, má e.t.v. leggja seinna án þess að meiri háttar skaði sé skeður. Íslensk menning er ekkert sparigagn. Hún er lífsgrundvöllur þessarar þjóðar. „Alþingi er sá landsins partur sem þenkir og ályktar,“ sagði Konráð Gíslason. Þess eru lítil merki að svo sé nú. Þó rofar til. Mitt í álviðræðunum efndi seðlabankastjóri til könnunar á því hvort Íslendingar séu hamingjusamir og lagði að sjálfsögðu fram til þess fé. Niðurstaðan er fengin. Þeir eru hamingjusamir. Þeir eru hægri sinnaðir og hamingjusamir. Að vísu hafa þeir nokkrar áhyggjur af afkomu sinni, en það ku vera tímabundið. En þessar áhyggjur getur hinn mikilvirki seðlabankastjóri auðveldlega létt mönnum svo þeir verði alsælir.

Fyrir er séð að Seðlabankinn mun skila umtalsverðum arði á næsta ári þar sem helstu skuldunautar hans eru nú bankar landsins og þeir greiða hærri vexti en ríkissjóður. Þennan arð er seðlabankastjóra nú í lófa lagið að leggja til þjóðarinnar allrar og gera þannig kleift að borga henni laun. Seðlabankabygginguna er ég viss um að hann lætur bíða.

Að lokum, herra forseti, ætla ég að leyfa mér að skila kveðju til ráðherra ríkisstj. sem gömul kona bað mig fyrir í morgun. Hún ól upp sjö börn einsömul, sagði hún, af því að maðurinn hennar fór í sjóinn. Og hún var ekkert sérlega hamingjusöm, ein af fáum. Svo sagði hún orðrétt, með leyfi forseta:

„Ég skil ekki þetta tal um efnahagsvanda. Ég veit bara að þó ég eigi 27 barnabörn hef ég alltaf potað á greyin háleista og vettlinga. Nú á ég ekki lengur fyrir bandspotta. Segðu þeim það.“

Svei slíkri ríkisstjórn, hæstv. ráðherrar. — Ég þakka áheyrnina og hef lokið máli mínu.