22.11.1984
Sameinað þing: 24. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1274 í B-deild Alþingistíðinda. (859)

Stefnuræða forseta og umræða um hana

Kristín Halldórsdóttir:

Herra forseti. Góðir áheyrendur. Hin langþráða stefnuræða forsætisráðherra, sem hér er til umræðu, er í rauninni laglegasta ræða full af góðum áformum og viljayfirlýsingum sem Kvennalistinn tekur undir — býsna margar. Auðvitað vantar líka sitt af hverju sem við leggjum áherslu á — þó nú væri.

En furðumargt lýsir framsýni og góðum vilja og mundi í framkvæmd leggja þann grundvöll að farsælu þjóðlífi sem við viljum auðvitað öll búa við í okkar góða landi. Hvað er þá að? Hvað er að þessum góðu áformum og snoturlegu viljayfirlýsingum sem við höfum hlustað á hér í kvöld? Hvaða nöldur er þetta sífellt í stjórnarandstöðunni?

Svarið er einfalt: Við vitum að hugur fylgir ekki máli. Stefna ríkisstj. birtist alls ekki í stefnuræðu forsrh. Stefnan birtist í framkvæmd og gerðum ráðherranna og hún birtist í fjárlögum.

Frv. til fjárlaga fyrir árið 1985 verður rætt hér næsta þriðjudag og þá ræðum við stefnu ríkisstj. eins og hún er í raun og veru. Ræðan, sem lesin var yfir okkur í upphafi þessarar umræðu, er marklaus. Hún er í hæsta lagi viljayfirlýsing. Kannske hafa stefnuræður alltaf verið svona, ég veit það ekki.

Ég fæ ekki að því gert að við lestur þessarar ræðu hæstv. forsrh. datt mér í hug máltækið fræga: „Vegurinn til glötunar er varðaður góðum áformum.“ Sem dæmi skulum við taka kaflann um menntamál í ræðu forsrh. sem hann að vísu las ekki allan áðan, en liggur fyrir í prentuðu máli. Niðurlag kaflans hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Sérstaklega verður hugað að gæðum menntunar. Í landi fárra auðlinda gegnir menntakerfið lykilhlutverki í nýsköpun atvinnulífs. Á það jafnt við bókgreinar og list- og verkgreinar. Skólarnir þurfa að geta miðlað nýrri þekkingu, svo að unnt sé sem fyrst að koma við nútímatækni á öllum sviðum atvinnulífsins. Stefnt er að því að nýta sem best til rannsókna og fræðslu þá sérþekkingu sem Háskóli Íslands og stofnanir hans hafa yfir að ráða.“

Þetta þykir mér góður texti. Þarna er í mjög stuttu máli sagt nokkurn veginn alveg það sama og ég sagði í blaðagrein sem birtist á s.l. sumri undir fyrirsögninni „Lykilatriðið er menntun“. Ekki má þó skilja orð mín svo að ég sé að gefa í skyn að stefnumótun ríkisstj. taki mið af greinaskrifum Kvennalistakvenna. Það væri nú skárra og því fer auðvitað víðs fjarri. Þetta sýnir aðeins að við erum sammála um þetta grundvallaratriði, að sú uppbygging atvinnulífsins sem allir vilja stefna að byggist fyrst og fremst á aukinni menntun, aukinni þekkingu og aukinni rannsókna- og tilraunastarfsemi. Ef við viðurkennum þetta ekki og breytum samkvæmt því missum við einfaldlega af lestinni. Við verðum undir í samkeppni við aðrar þjóðir um framleiðslu okkar. Við missum hæfileikafólk til annarra þjóða.

Þegar spurt er um auðlindir Íslands koma flestum fyrst í hug fiskimið okkar, jarðvarmi og fallvötn, jafnvel sérstæð fegurð landsins sem dregur að sér ferðamenn og gæti gert það í ríkari mæli ef unnið væri skipulega að því. Helsta auðlind okkar er þó fólkið sem byggir þetta land, hugvit þess og þekking, og framtíð okkar er fyrst og fremst undir því komin að við hlúum að þessari auðlind. Góð menntun uppvaxandi kynslóðar er öllu öðru mikilvægari og raunverulega það eina sem við getum ekki með nokkru móti sparað við okkur. Menntun er tvímælalaust arðbærasta fjárfesting þjóðarinnar. Einmitt nú á tímum, þegar gildi menntunar í atvinnulífinu fer sívaxandi, er sérstaklega brýnt að slaka hvergi á kröfum. Lykilatriðið í uppbyggingu atvinnulífsins er menntun.

Við lifum á tímum örrar tækniþróunar þar sem sífellt er krafist meiri sérþekkingar. Aukin tækni og sjálfvirkni minnkar þörf fyrir ófaglært vinnuafl. Okkur er lífsnauðsyn að gera fólki kleift að tileinka sér þá þekkingu sem þarf til að mæta þessum nýju aðstæðum í atvinnumálum. Það er því fullkomið glapræði að þrengja að menntakerfinu eins og nú er gert, markvisst að því er virðist, þrátt fyrir fögur orð í stefnuræðu.

Það er sama hvert litið er, alls staðar blasir við fjársvelti, til bygginga, til tækjakaupa, til þjálfunar kennara. Lánasjóður námsmanna er sveltur og kjaramál kennara eru í ólestri, eins og ýmsir hafa bent á hér á undan mér í kvöld.

Metnaðarfull yfirlýsing í stefnuræðu forsrh. um að skólar þurfi að geta miðlað nýrri þekkingu, svo að unnt sé sem fyrst að koma við nútíma tækni á öllum sviðum atvinnulífsins, er í hrópandi ósamræmi við þann veruleika sem t.d. Tækniskóli Íslands og Fiskvinnsluskólinn búa við. Versta dæmið er þó líklega hvernig búið er að Háskóla Íslands og rannsóknarstofnunum í tengslum við hann. Með stöðugu fjársvelti er Háskólanum gert illmögulegt að gegna hlutverki sínu, og rannsóknarstofnanir hans verða að byggja starfsemi sína æ meira á þjónusturannsóknum í stað grundvallarrannsókna.

Hér er ekki tími til að fara frekar út í málefni Háskólans. Nægja verður að vísa til þess að allar þær greinar sem líklegastar þykja sem atvinnugreinar framtíðarinnar, svo sem rafeindaiðnaður, fiskeldi og líftækni, krefjast menntunar á háskólastigi, mikillar sér hæfðrar kunnáttu og rannsókna. Sérstakt þróunarfélag til eflingar nýsköpunar í atvinnulífi virðist því miður ótrúverðugt framtak með tilliti til alls þessa. Því hvað gagna okkur félög og sjóðir án vel menntaðs fólks með hugvit og þekkingu til að nýta þau tækifæri sem stjórnvöld eiga réttilega að hafa í boði?

Ég heiti á alla sem skilning og áhuga hafa á þessum málum að beita öllum sínum áhrifamætti til að hindra hrun í menntakerfi okkar. Markmiðið hlýtur að vera meiri og betri aðstæður til náms og rannsókna. Lágmarkskrafan er að aðstæður versni a.m.k. ekki. Afturför er glapræði.

Góðir hlustendur. Mér hefur orðið tíðrætt um aðeins einn þáttinn í stefnuræðu hæstv. forsrh. En sá þáttur er svo mikilvægt atriði í mótun þeirrar framtíðar sem við viljum búa börnum okkar að mér finnst réttlætanlegt að leggja á það áherslu umfram allt annað. Ég skelfist það andvaraleysi sem virðist ríkja í þessum málum. En ráðherrar telja sig áreiðanlega ekki bera ábyrgð á því frekar en öðru. Þeirra háttur er að setja upp hryggðarsvip og kenna vondu fólki um allt sem miður fer. Þeir vilja ekki einu sinni axla ábyrgðina af nýgerðri gengisfellingu, heldur varpa þeir allri ábyrgð á herðar fólksins sem er nýbúið að standa í löngu örvæntingarfullu verkfalli, fólksins sem er nýbúið að semja um kauphækkanir og ekki einu sinni búið að fá þær í budduna sína. Enn einu sinni hefur ríkisstj. brugðist trausti fólksins og enn einu sinni þvær hún hendur sínar og neitar ábyrgð. Hvernig getur ríkisstj. vænst þess að fólk taki oftar mark á viljayfirlýsingum? Það eru verkin sem tala. — Ég þakka þeim sem hlýddu.