16.10.1984
Sameinað þing: 5. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 246 í B-deild Alþingistíðinda. (87)
42. mál, aflamark á smábáta
Fyrirspyrjandi (Hjörleifur Guttormsson):
Herra forseti. Ég hef á þskj. 42 leyft mér að bera fram fsp. til hæstv. sjútvrh. um aflamark á smábáta. Með lögum um breyt. á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, kvótalögunum svonefndu sem samþykkt voru hér á hv. Alþingi 20. des. 1983, var sjútvrh. veitt heimild til að ákveða skiptingu hámarksafla milli ákveðinna gerða veiðarfæra, gerða fiskiskipa og einstakra skipa, allt frá stærstu togurum til lítilla handfærabáta. Brtt. frá okkur Alþb.-mönnum um að undanskilja handfæra- og línubáta aflamarki eða kvóta var felld af stjórnarliðinu eins og aðrar brtt. okkar við þetta frv.
Með stoð í þessum lögum gaf sjútvrh. út reglugerð þann 8. febr. 1984 um stjórn botnfiskveiða á yfirstandandi ári. Í þessari reglugerð eru sérstök ákvæði um botnfiskveiðar minni báta þar sem sameiginlegt heildaraflamark er sett á báta undir 10 brúttórúmlestum sem stunda botnfiskveiðar. Sameiginlegu aflamarki þeirra yfir landið er skipt niður á fjögur tímabil og skv. þeirri skiptingu gert ráð fyrir heimild fyrir þessa báta til að veiða samtals 8300 tonn af óslægðum þorski, mest á þriðja tímabili, mánuðina júlí og ágúst, en mun minna síðan af öðrum tegundum eins og nánar er tilgreint í þessari reglugerð.
Hér var um mjög verulega skerðingu að ræða á heildarafla þessara báta af þorski miðað við árin á undan. Þeir mörgu, sem stunda smábátaútgerð víða á landinu, urðu kvíðnir og spurðu fljótlega hvort það gæti verið að beita ætti ákvæðum þessarar reglugerðar um hámarksaflamark sem þannig væri útbúin. Meðal þeirra sem mótmæltu þessari reglugerð voru um 40 smábátaeigendur í Neskaupstað sem í aprílmánuði sendu hæstv. sjútvrh. bréf þar sem þeir óskuðu eftir því að ákvæði þessarar nefndu reglugerðar yrðu úr gildi felld varðandi minni báta og tekin yrði til endurskoðunar, ef ekki yrði á það fallist, tilhögun þessara veiða og tekinn upp í staðinn fyrir sameiginlegt heildaraflamark kvóti miðaður við landshluta eða einstök byggðarlög. Við þessu erindi frá smábátaeigendum í Neskaupstað var ekki orðið og ég hygg að hliðstæðar óskir hafi borist víðar að af landinu.
Ég kannaði það við embættismenn í sjútvrn. í lok maí eða byrjun júní hvort líkur væru á því að á ákvæði reglugerðar varðandi smábáta mundi reyna á þessu ári. Þá taldi viðkomandi embættismaður að svo mundi tæpast verða og átti ekki von á því að beita þyrfti þessum ákvæðum. Svo hefur þó farið að það hefur verið gert í tvígang og veiðar handfærabáta verið bannaðar tvívegis í viku í senn að ég hygg á liðnu sumri, í kringum verslunarmannahelgi og síðustu viku ágústmánaðar, með tilheyrandi röskun á útgerð og sókn þessarar gerðar báta.
Nú kann mönnum að þykja að ekki sé óeðlilegt að skerðing gangi yfir smábáta eins og önnur fiskiskip fyrst á annað borð var horfið að því ráði að setja aflamark á skip. En það er mitt sjónarmið og okkar Alþb.-manna, eins og fram kom við umr. um þetta frv. og í brtt. okkar, að alveg sérstaklega hagi til um útgerð smábáta og eðlilegt hefði verið að undanþiggja þessa gerð skipa, þessa smábáta, aflamarki. Þannig hagar til á ýmsum útgerðarstöðum — (Forseti hringir.) Herra forseti. Ég er að ljúka máli mínu. Það verður þá dreginn frá sá tími fyrir seinni þátt umr. Þannig hagar til á ýmsum útgerðarstöðum þar sem smábátaútgerð er stunduð að ekki er hægt að stunda hana nema mjög takmarkaðan tíma úr árinu og þá fyrst og fremst yfir sumartímann. Ég nefni sem dæmi byggðarlög sem eru háð slíkri útgerð, eins og Bakkafjörð og Borgarfjörð eystri. Einkum á minni stöðum er smábátaútgerðin verulegur þáttur í útgerð frá viðkomandi byggðarlagi og jafnvel eingöngu á henni byggt.
Það er því ljóst að tilhögun og fyrirkomulag á aflamarki, eins og hér var upp tekið, getur bitnað afar óþyrmilega á viðkomandi byggðarlögum og inn í það kemur veðrátta og aðrar aðstæður sem hamlað geta veiðum og útgerð þessara báta um lengri tíma.
Ég hef af þessum sökum borið fram þá fsp., sem ég mæli hér fyrir til hæstv. sjútvrh., svohljóðandi:
1. Hvernig hefur verið staðið að framkvæmd takmarkana á veiðum báta undir 10 brúttórúmlestum að stærð það sem af er þessu ári?
2. Hvaða áform hefur ráðh. um breytingar á stjórn botnfiskveiða hjá sömu bátum á árinu 1985?