27.11.1984
Sameinað þing: 25. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1316 í B-deild Alþingistíðinda. (882)
1. mál, fjárlög 1985
Ragnar Arnalds:
Herra forseti. Frv. til fjárlaga er spegilmynd stjórnarstefnunnar á hverjum tíma eðli sínu samkvæmt. Eitt helsta einkenni fjárlagafrv. fyrir árið 1985 er byggðafjandsamleg stefna sem felst í miklum niðurskurði á framkvæmdaframlögum til sveitarfélaga, m.a. á framlögum til hafna, heilsugæslustöðva, skóla og dagvistunarstofnana, svo og niðurskurður á ýmsum framlögum til mennta- og heilbrigðismála, t.d. til Lánasjóðs námsmanna og Framkvæmdasjóðs fatlaðra. Þessi niðurskurður á framlögum ríkissjóðs til ýmissa nauðsynjamála leiðir þó ekki til jafnvægis í ríkisfjármálum, eins og hefði þó mátt vænta, vegna þess að skattar á fyrirtæki og banka hafa samtímis verið verulega lækkaðir. Það er einmitt annað aðaleinkenni frv. að ríkissjóður er áfram rekinn með verulegum halla. Aðhaldsstefna frv., sem m.a. felur í sér fráhvarf frá byggðastefnu, vaxandi misrétti námsmanna og verulega seinkun framkvæmda í þágu fatlaðra, kemur því miður að litlu haldi því að skattaívilnanir fyrirtækja, fjárfestingaraðila, hlutabréfaeigenda og banka slétta sparnaðinn út.
Þótt prósentutölur, sem reikna má út frá þessu frv. til marks um breytingar milli ára, séu yfirleitt lágar og sumar hverjar meira að segja í mínus, eins og nánar verður vikið að síðar, á það ekki við um allar hundraðstölur frv. Hækkun rekstrarhalla frá seinustu fjárlögum og hækkun á erlendum lántökum í ríkisrekstrinum eru þær prósentur í fjárlagafrv., eins og það var lagt fram a.m.k., sem hækka hvað mest. Það segir kannske sína sögu. Rekstrarhallinn eykst skv. framlögðu fjárlagafrv. um 35% og erlendar lántökur um 62%.
Önnur helsta ástæða rekstrarhallans er miklar greiðslur af almannafé til að mæta ábyrgðum útgerðarmanna sem ekki hafa greitt skuldir sínar. Þessum greiðslum er sem sagt mætt með erlendri skuldasöfnun ríkissjóðs. Það þarf engan að undra að skuldahlutfall þjóðarbúsins út á við fari jafnt og þétt hækkandi í tíð ríkisstj. þegar þessar staðreyndir eru hafðar í huga, en þetta er staðreyndin, að skuldahlutfallið er á hraðri leið upp á við jafnt og þétt þrátt fyrir hátíðleg loforð ríkisstj. um hið gagnstæða. Þessi stefna fjárlagafrv. er í fullu samræmi við þær afleiðingar í þjóðfélagi okkar sem stjórnarstefnan hefur haft.
Áhrifin af stefnu stjórnarinnar á kjör fólks og fyrirtækja eru mjög mismunandi eftir því hverjir eiga í hlut. Ég hef þegar rætt um þau kjör sem ýmsir forgangsaðilar í þjóðfélaginu njóta hjá þessari ríkisstj., hef minnt á skattalækkanir í þágu banka, í þágu stórfyrirtækja, í þágu hlutabréfaeigenda og fjárfestingaraðila. Ég þarf ekki að minna á að allir atvinnurekendur hafa mjög notið þess að launagreiðslur hafa verið hlutfallslega mjög lágar síðan þessi stjórn tók við. En hverjir eru það sem tapa þá helst undir þessari stjórnarstefnu? Jú, það er fyrst og fremst launamenn, bændur, sjómenn og tekjulítið fólk sem orðið hefur fyrir þungum búsifjum, bæði sjúklingar, námsmenn og fleiri tekjulágir hópar. Launamenn hafa á einu ári misst um það bil fjórðu hverja krónu af launum sínum. Þeir hafa að vísu náð fram nokkurri hækkun launa á síðustu vikum, en eins og kunnugt er virðist ríkisstj. staðráðin í því að ná aftur öllum þessum launahækkunum sem orðið hafa og hefur nú sett verðbólguverksmiðju sína í fullan gang. Og verðbólguverksmiðjan malar. Hún framleiðir verðbólgu sem á að vera nógu mikil til að éta upp þær hækkanir launa sem náðst hafa fram á undanförnum vikum. Þetta er gert, eins og kunnugt er, bæði með gengisfellingum, með vaxtaokri og ýmsum fleiri ráðstöfunum.
Fjmrh. hæstv. hefur lagt fram nýja útreikninga um hækkanir verðlags á komandi ári og eru það sannarlega mjög fróðlegar upplýsingar því þær segja okkur hversu mikil framleiðslan á að vera í verðbólguverksmiðju ríkisstj. á næsta ári. Þar er gert ráð fyrir, í útreikningum hæstv. fjmrh., að um verði að ræða 28% hækkun verðlags á árinu, enda á verð á erlendum gjaldeyri að hækka um 22–23% og er þá í báðum tilfellum átt við meðaltal, verðlag innanlands og meðaltal verðlags á erlendum gjaldeyri, á árinu 1985 miðað við meðaltal ársins 1984.
Ég vil í þessu sambandi minna á að bændur hafa ekki síður mátt þola mikla kjaraskerðingu, enda eru laun þeirra reiknuð út frá launakjörum lágtekjumanna. Þeir hafa bæði tekið á sig þá miklu kjaraskerðingu sem orðið hefur afleiðing rýrnandi lífskjara, en auk þess hafa þeir fengið á sig að lækkaðar niðurgreiðslur hafa leitt til hlutfallslega meiri hækkunar á búvöruverði en öðrum vörum án þess að meira kæmi í hlut bænda. Neysla landbúnaðarvara hefur því verið að dragast saman og það á eftir að draga enn frekar úr tekjum bænda.
Ég vík þá að tekjuhlið frv.
Tekjuhlið frv. mótast að sjálfsögðu af gildandi skattalögum og þeim breytingum sem gerðar hafa verið á þeim á undanförnum árum. Ekki þarf að segja nokkrum að afnám álags á ferðagjaldeyri á árinu 1983 eða lækkun fyrirtækja- og bankaskatta á síðasta ári hafi ekki hvort tveggja mikil áhrif á afkomu ríkissjóðs á árinu 1985. Eina nýnæmið sem nú er hins vegar á ferðinni er áform um lækkun tekjuskatts sem hæstv. fjmrh. hefur gert grein fyrir. Í fjárlagafrv. var frá því greint að á móti lækkun tekjuskatts kæmi hækkun söluskatts, en nú hefur verið ákveðið að hætta við það. Þó vil ég leggja áherslu á það og benda hv. þm. á að áframhaldandi verður að sjálfsögðu um skattaskipti að ræða frekar en raunverulega skattalækkun. Í stað 600 millj. kr. tekjuskattslækkunar, sem hæstv. ríkisstj. áformar, hefur hæstv. fjmrh. gert okkur grein fyrir að til standi að hækka ýmsa óbeina skatta, t.d. álagningu á áfengi og tóbak, sem á að veita ríkissjóði tekjur umfram tekjur vegna venjulegra verðlagsbreytinga að upphæð 150 millj. kr., og einnig eru uppi áform um hækkun ýmissa aukatekna sem virðast munu hækka um kringum 100 millj. kr. Svo kemur þar til viðbótar sérstök ný tekjuöflun, sem hæstv. fjmrh. hefur gert hér grein fyrir, upp á 320 millj. kr. Þannig er hér greinilega um samanlagða tekjuöflun að ræða sem nemur tæpum 600 millj. kr, (Fjmrh.: Það er allt inni í þessum 320 millj.) Nei, það er ekki allt inni í þessum 320 millj., hæstv. ráðh., svo mikið veit ég. Ég veit að hér er um að ræða nýja tekjuöflun upp á 320 millj. kr., eins og hæstv. ráðh. hefur ágætlega gert þegar grein fyrir, og það er misskilningur hjá ráðh. að hækkun áfengis og tóbaks sé inni í þeirri tölu. Sú hækkun er þar fyrir utan, upp á 150 millj., auk hækkunar á ýmsum aukatekjum upp á 100 millj., þannig að samanlagt eru þetta hækkanir á tekjupóstum upp á tæpar 600 millj. kr. Ég er undrandi á því að hæstv. ráðh. skuli nú hrista höfuðið vegna þess að þetta stendur alveg skýrt og greinilega á yfirlitsblaðinu, sem hæstv. ráðh. hefur afhent okkur í stjórnarandstöðu, þar sem sérstaklega eru teknir til þessir tveir tekjupóstar, annar upp á 300 millj. og ný tekjuöflun upp á 320 millj. Er því greinilega um einhvern misskilning að ræða hjá hæstv. ráðh. Það vantar hins vegar á að hann hafi upplýst hver þessi nýja tekjuöflun verði. Það er það eina sem vantar. Hann hefur upplýst okkur um að til standi að hækka ýmsar aukatekjur ríkissjóðs og hann hefur sagt okkur að til standi að hækka áfengi og tóbak sérstaklega um 150 millj., en við höfum ekki fengið að vita hvernig þessara 320 millj. kr. verður aflað. Ég verð að segja alveg eins og er að auðvitað er það mjög forkastanlegt af hæstv. ríkisstj. að gera hér ekki fulla grein fyrir því hvernig þessara tekna verður aflað. Ég er ekki sérstaklega að ásaka hæstv. fjmrh. um það, vegna þess að ég hygg að hann hljóti nú þegar að hafa gert einhverjar tillögur í þessum efnum. Sennilega stendur á ríkisstj. að samþykkja þær og afgreiða þær en ríkisstj. hefur haft nægan tíma til umfjöllunar um þessi mál. Það er forkastanlegur trassaskapur að geta ekki gengið frá því og skýrt Alþingi frá því um hverja tekjuöflun verður hér að ræða og í stað þess þurfi að vera um óúttyllta ávísun á skattgreiðendur að ræða þegar fjallað er um fjárlög við 1. umr.
Það þarf ekki að taka það fram að ýmsir aðrir lausir endar eru í tekjuhlið frv. Hæstv. ráðh. gat þess sérstaklega að við mundum hugsanlega eiga von á stórfelldum breytingum á tollalöggjöf og þá er hugsanlegt að þar komi einhver önnur tekjuöflun á móti. Auðvitað hefði verið eðlilegast að þetta lægi nú þegar fyrir. Eins er ýmislegt óljóst varðandi innlenda lánsfjáröflun. En það er ekki annað að gera á þessu stigi en vona að þetta eigi eftir að skýrast áður en afgreiðsla fjárlaganna á sér stað svo að þessi fjárlög hljóti ekki sömu örlög og þau hin seinustu að vera til umfjöllunar hjá ríkisstj. og Alþingi fram á vordaga.
Sé litið á gjaldahlið frv. er um mikinn niðurskurð á framkvæmdaframlögum að ræða, eins og ég hef þegar rakið. Mér virðist að framkvæmdir á vegum sveitarfélaga fari einna verst út úr þessum niðurskurði ríkisstj. Tölurnar sem segja til um framkvæmdaframlög voru sannarlega ljótar í fjárlagafrv. eins og það var lagt fram, en enn þá ljótari verða þessar till. eftir að upplýsingar hafa fengist um væntanlegt endurskoðað frv. Hæstv. ráðh. upplýsti okkur stjórnarandstæðinga um það í gær að til þess að vega upp á móti þeim verðlagsbreytingum sem áformaðar væru á næsta ári þyrftu framkvæmdaframlög, fyrir utan vegaframkvæmdir, að hækka um 200 millj. kr., en nú mun áformað að hækka þessi framlög um aðeins 75 millj. kr. og er það svo lítil upphæð að hætt er við að margir mikilvægir útgjaldapóstar verði algerlega út undan.
Ég vil benda á það að eins og frv. liggur nú fyrir er raunverulega um að ræða niðurskurð á framlögum til bygginga grunnskóla eða bygginga heilsugæslustöðva víðs vegar um land um ein 26% frá því sem var á liðnu ári ef tekið er tillit til áætlaðra verðbreytinga milli ára. Þó er niðurskurðurinn hvergi rosalegri en þegar kemur að hafnargerð víðs vegar um land, en það er sá framkvæmdaþáttur sem er hvað mikilvægastur víða og er þess eðlis að hann kemur fyrst og fremst landsbyggðinni að notum. Það fer heim og saman að þar sem landsbyggðin er annars vegar og framkvæmdir þar er niðurskurðurinn langmestur. Eins og ég hef sagt er niðurskurðurinn á framkvæmdaframlögum til hafna hvorki meiri né minni en 58% á þessum fjárl. hvað svo sem síðar kann að verða.
Greinilega er mikill niðurskurður á framlögum til vegagerðar þrátt fyrir áformaða viðbót upp á 192 millj. kr. til vegamála, eins og hæstv. ráðh. hefur þegar gert grein fyrir, og hlutfall vegagerðarframkvæmda af þjóðarframleiðslu mun því verulega falla. Við höfðum stefnt á að þetta hlutfall yrði allt að 2.3% af þjóðarframleiðslu skv. samþykkt Alþingis fyrir tveimur árum og við vorum komnar með það upp í 2.2%, en nú á það að falla niður í 1.9%. Við hófum mikla sókn í vegaframkvæmdum á árinu 1980 skv. þeirri vegáætlun sem samþykki var á árinu 1979. Sú sókn hefur skilað feikilegum árangri víðs vegar um land, en því miður virðist nú vera veruleg hætta á því að úr þessari sókn verði dregið mjög verulega.
Eins má nefna sem dæmi ýmsa aðra framkvæmdaliði sem lækka ískyggilega mikið að framkvæmdagildi frá því sem var á s.l. ári. Vil ég alveg sérstaklega nefna framlög til dagvistunarstofnana, sem auðvitað eru allt of lág og hafa rýrnað mjög verulega í tíð þessarar stjórnar. Framlög til Framkvæmdasjóðs fatlaðra eru langt fyrir neðan það sem á að vera skv. lögum um þann sjóð, sennilega rétt aðeins um helmingur af því sem á að vera lögum skv., og sama gildir um Lánasjóð ísl. námsmanna svo að annað dæmi sé nefnt. Þar var um verulegar þrengingar að ræða á þessu ári og er bersýnilegt að þær þrengingar halda áfram að vaxa. Eitt dæmi um niðurskurð á nauðsynjamálum þrátt fyrir nýleg áform Alþingis um hið gagnstæða eru framlögin til Kvikmyndasjóðs. Við vorum á s.l. vori að samþykkja ný lög um Kvikmyndasjóð þar sem gert var ráð fyrir að framlög til hans yrðu í nokkru hlutfalli við söluandvirði aðgöngumiða að kvikmyndahúsum og söluskattstekjur ríkissjóðs af þeim. Menn höfðu gert ráð fyrir að tekjur Kvikmyndasjóðs yrðu um 30 millj. kr. skv. því á árinu 1985. Þetta var Alþingi að samþykkja s.l. vor. en það er í þessu frv. skorið niður í 8 millj. kr. Sama gildir um landverndaráætlunina sem samkomulag hafði tekist um að fengi ákveðin framlög í hlutfalli við samninga þar að lútandi fyrir tveimur árum, en þar er um verulegan niðurskurð að ræða. Enn má nefna Erfðafjársjóð, sem aðeins fær hluta af erfðafjárskatti, 20 millj. af 25 millj., og skemmtanaskattinn sem ekki skilar sér nema að sáralitlu leyti til þeirra verkefna sem honum eru sérstaklega tileinkuð, þ.e. aðeins 10 millj. ganga til menningarstarfsemi af þeim 26 millj. sem eiga að gera það lögum skv. Þetta hef ég aðeins nefnt hér sem dæmi og læt þar við sitja.
Ég vil svo að lokum fara nokkrum orðum um afkomu ríkissjóðs á liðnum árum og þá sérstaklega á seinasta ári, en hæstv. ráðh. vék nokkuð að því í ræðu sinni áðan.
Það liggja nú fyrir reikningar um afkomu ríkissjóðs þau fjögur ár sem tengdust ríkisstjórn dr. Gunnars Thoroddsens. Þrjú af þessum árum, árin 1980–1982, voru mjög hagstæð. Afkoma ríkissjóðs var þá jákvæð um 3.7% fyrsta árið, 2.9% annað árið og 9% þriðja árið. Hitt er flestum kunnugt, að fjórða árið skar sig verulega úr, það var stjórnarskiptaárið 1983, en þá var afkoman miklu lakari en áður hafði verið. Hún var neikvæð um 2.1% ef miðað er við regluleg útgjöld ríkissjóðs, eins og ég vík að síðar. Meðaltal þessara ára er þó jákvætt sem nemur 3.4%.
Við fjárlagaumr. á s.l. ári benti ég á að eftir að núv. ríkisstj. hefði komið til valda hefðu ýmsar ákvarðanir verið teknar sem ýmist fólu í sér minnkaðar tekjur ríkissjóðs eða aukin útgjöld ríkissjóðs án þess að nokkrar ráðstafanir væru gerðar til að afla tekna á móti eða til að skera önnur útgjöld niður á móti minnkandi tekjum. Ég benti á að vegna vegamála væri um að ræða fjárvöntun, þ.e. vöntun á tekjuöflun, upp á 120 millj. — ellegar þá vöntun á niðurskurði ef menn vilja hafa það svo. Í öðru lagi kostuðu mildandi aðgerðir á því ári 405 millj. án þess að nokkurt fé kæmi þar á móti. Álag á ferðagjaldeyri var afnumið sem nam 50 millj. kr., tollalækkanir námu 30 millj. kr. og niðurgreiðslur umfram það sem fjárlög gerðu ráð fyrir námu 194 millj. Alls var þarna um að ræða upphæð sem nam 800 millj. kr.
Við 1. umr. fjárlaga tók ég svo til orða um þetta mál. með leyfi forseta:
„Ég hef alltaf dregið í efa að þegar upp yrði staðið í lok þessa árs yrði rekstrarafkoman neikvæðari um hærri upphæð en ég nefndi nú. Ég hef talið að í ríkisreikningi fyrir árið 1983 yrði halli ársins, miðað við útlitið eins og það er, minni en nemur þessari tölu, þegar haft er í huga að afgangur ársins 1982 var hvorki meira né minna en 850 millj. Því er ljóst að ef tekna hefði verið aflað í stað þeirra tekna og tekjupósta sem lagðir voru niður eða útgjöld lækkuð þar á móti, þá hefði ríkissjóður komið nokkuð örugglega út á sléttu á þessu ári, jafnvel skilað einhverjum afgangi. En allt kemur þetta í ljós síðar meir.“
Ég vil leyfa mér nú við 1. umr. fjárlaga fyrir árið 1985 að benda á að þessi orð mín um afkomuna 1983 hafa reynst rétt. Raunverulegur rekstrarhalli ríkissjóðs á árinu 1983, þ.e. munur á raunverulegum tekjum og gjöldum, nam um 369 millj. kr. og ef afkoma ríkissjóðs á þessu ári hefði ekki verið rýrð um áðurnefndar 800 millj., sem ég hef þegar gert grein fyrir, hefði orðið afgangur á því ári sem numið hefði yfir 400 millj. kr. Hitt er svo allt annað mál að í ríkisreikningi fyrir árið 1983 er hallinn talinn meiri vegna þess að í bókhaldi ársins 1983 eru færð nokkur stór útgjöld sem ekki koma rekstri ársins við hið minnsta, útgjöld sem nema rúmum 1000 millj. kr., og því verður útkoman 1983 neikvæð sem nemur rúmum 1400 millj. kr., þ.e. sem nemur þeim 369 sem ég nefndi áðan plús rúmum 1000 millj. til viðbótar.
Hver voru þá þessi gífurlegu útgjöld upp á 1066 millj. sem færð voru á árinu 1983 og urðu þess valdandi að svo mikill halli varð á því ári? Jú, þessi gjaldfærsla stafaði af því að á árinu 1983 tók Landsvirkjun yfir byggðalínurnar og við yfirfærsluna varð ríkissjóður að yfirtaka skuldir og auka eigið framlag til Landsvirkjunar svo nam tæpum 1000 millj. kr. En það er rétt að vekja á því athygli í þessu sambandi að ekki ein einasta króna rann úr ríkissjóði á árinu 1983 þess vegna. Öll þessi upphæð er uppgjör vegna liðins tíma. Sumt af henni rekur sig aftur í fjármálaráðherratíð Tómasar Árnasonar, annað og raunar miklu stærri partur upphæðarinnar rekur sig aftur í fjármálaráðherratíð Matthíasar Mathiesen og stórar fjárhæðir í þessu sambandi rekja sig jafnvel allt aftur í fjármálaráðherratíð Halldórs E. Sigurðssonar. En öll var þessi upphæð gerð upp á einu bretti með því að Landsvirkjun tók við línunum og ríkissjóður og Landsvirkjun skiptu á milli sín skuldunum og það sem féll á ríkissjóð var allt fært sem gjöld, tæpar 1000 millj., rétt eins og á að giska 4000 ríkisstarfsmenn hefðu verið ráðnir í vinnu snögglega þetta árið og hætt svo vinnu í lok ársins. En staðreyndin var sú að hér var ekki um raunveruleg útgjöld að ræða, eins og þegar menn eru ráðnir í vinnu og til þess þarf að kosta tæpum 1 milljarði, heldur var hér fyrst og fremst um bókfærsluatriði að ræða. Í fjárlögum var ekki heldur reiknað með þessum færslum til gjalda á árinu. Ég vil hins vegar taka það fram að ég er alls ekki að vefengja rétt hæstv. fjmrh., eftirmanns síns, til að færa alla þessa upphæð til gjalda á þessu tiltekna ári. En ég vona bara að öllum sé ljóst sem hlýða á mitt mál hér, að þessar 1000 millj., sem færðar voru til gjalda þótt þær eigi ekkert skylt við raunveruleg útgjöld þessa árs, gerbreyta afkomu ríkissjóðs á árinu og valda því að sú mynd sem við fáum af afkomu ríkissjóðs á þessu ári er vægast sagt mjög villandi.
Í skýrslu fjmrh., sem dags. var 29. júní 1984, var hins vegar gerð grein fyrir þessari sérstöku útgjaldafærslu og áhrifum hennar á afkomu ríkissjóðs. Í þessari skýrslu eru þessar færslur nefndar óregluleg gjöld og er þá átt við færslur til gjalda vegna afhendingar byggðalína til Landsvirkjunar að upphæð 984 millj. svo og uppgjör vegna skulda Vestmannaeyjakaupstaðar síðan í gosi þar um slóðir, en þar var um að ræða hliðstæða bókfærslu upp á 82 millj. Samanlangt eru þessi svonefndu óreglulegu gjöld talin nema 1066 millj. kr.
Ég vil taka það alveg skýrt fram að í þessari skýrslu fjmrh. frá því í sumar, sem ekki hefur verið birt alþm., gera menn sér að sjálfsögðu fulla grein fyrir að það verður að halda þessum óreglulegu gjöldum aðskildum ef menn ætla að geta lesið eitthvað af viti út úr ríkisreikningi um afkomu ársins 1983. Þess vegna segir í þessari skýrslu, með leyfi forseta:
„Án óreglulegra gjalda, sem færð hafa verið í rekstrarreikningi A-hluta á árinu 1983, varð rekstrarafkoma ríkissjóðs neikvæð um 369 millj. kr.“
Ég harma hins vegar að hvorki í ræðu hæstv. fjmrh. hér áðan, þar sem hann fjallaði um afkomu ríkissjóðs á árinu 1983, né í ríkisreikningi fyrir árið 1983 var að finna nokkra vísbendingu um það gífurlega misræmi sem skapast í reikningnum vegna þessara sérstöku gjaldfærslna á sama hátt og gert var þó í skýrslu fjmrh. til stjórnarandstæðinga sem gefin var í júnímánuði s.l., en eins og ég tók fram áðan hefur sú skýrsla ekki verið opinberlega birt. Þess vegna eru það væntanlega nýjar fréttir fyrir flesta alþm. en engu að síður réttar fréttir að raunveruleg afkoma ríkissjóðs á þessu ári var 369 millj. í halla en ekki um 1400 millj. eins og er hin opinbera tala. Það þarf því enginn lengur að efast um að árið 1984 hefði komið jákvætt út rekstrarlega séð ef sú stjórn sem við tók vorið 1983 hefði ekki ákveðið við stjórnarskiptin að eyða 800 millj. kr. ýmist með auknum útgjöldum eða minnkaðri tekjuöflun.
Menn kunna nú að spyrja hvers vegna ég eyði svona löngu máli til að ræða þessa staðreynd. Menn kunna kannske að spyrja: Skiptir máli þegar allt kemur til alls hvernig þessari bókfærslu er háttað? Ja, skiptir bókfærsla máli? Áreiðanlega finnst fjölmiðlum bókfærsluatriði af þessu tagi skipta litlu máli. Þegar fjárlagafrv. er í smíðum er löngum eytt miklu rúmi í fjölmiðlum til að rökræða um hvort gat sé í fjárl., hvort væntanlega sé mikill halli á þeim. En þegar svo aftur á móti útkoman liggur fyrir er ekki áhugi lengur til staðar og lítið um það rætt á hvern veg útkoman var. Satt best að segja hefur mér fundist að það væri trúarsetning fjölmiðla hér á Íslandi að það sé halli á öllum fjárl., það sé bara regla. Ég vil minna í þessu sambandi á að fréttamenn útvarpsins fullyrtu í fyrravetur blákaldir, þegar rætt var um svonefnt fjárlagagat, að alltaf hefði verið halli á fjárlögum og þetta væri auðvitað engin undantekning á því ástandi sem löngum hefði verið. Skýringin væri ósköp einfaldlega sú að menn hefðu verið iðnir við það á liðnum árum að jafna hallann út með aukafjárveitingum. Mér þótti þetta nú heldur aum speki þegar ég heyrði hana í útvarpinu á sínum tíma og óskaði eftir að fá að koma á framfæri leiðréttingu, benti á að afkoma ríkissjóðs hefði verið mjög jákvæð á árunum 1980–1982, en sú sérstaka leiðrétting fékkst nú ekki birt. Ég vildi benda á að það hefði verið afgangur á þessum árum þrátt fyrir þær aukafjárveitingar sem veittar voru.
Í þessu sambandi er kannske rétt að nefna að minn ágæti eftirmaður, hæstv. fjmrh. Albert Guðmundsson er vanur að segja, þegar þessi mál ber á góma, að ekki þurfi nú vitnanna við um rekstur ríkissjóðs, skuldasöfnun þjóðarinnar í útlöndum segi sína sögu. Hann er sem sagt orðinn nokkuð vanur því að blanda saman annars vegar aukningu langra lána þjóðarinnar allrar út á við í viðskiptum við aðrar þjóðir og hins vegar afkomu ríkissjóðs. Þó þarf auðvitað ekki að segja neinum að aukning erlendra lána, sem mest er talað um, stafar bæði af erlendum lántökum einkaaðila, erlendum lántökum Landsvirkjunar, erlendum lántökum sveitarfélaga vegna hitaveituframkvæmda og þó er aukningin ekki síst vegna breytinga á raungengi ákveðinna mynta og þá fyrst og fremst vegna hækkunar á dollar. Auk þess stafar breytingin á þessu skuldahlutfalli í prósentum talið bæði af hækkandi raungengi dollarans, eins og ég nefndi, og um leið af minnkandi þjóðarframleiðslu og útflutningsframleiðslu sem eru deilitölurnar í slíkum útreikningum. Ekkert af þessu, sem ég nú hef nefnt, skiptir máli varðandi afkomu ríkissjóðs undanfarin ár. En auðvitað er ósköp auðvelt að hræra þessu öllu saman í huga fólks ef vilji er fyrir hendi.
Ég tel hins vegar að það skipti verulegu máli hvort ríkissjóður reynist rekinn með miklum halla eða ekki og hvort menn viðurkenna og þekkja staðreyndir í því sambandi eða ekki. Það er ekki aðeins nauðsynlegt vegna skattgreiðenda í framtíðinni. Ástæðan er líka sú að ef menn fara að ganga út frá halla á ríkissjóði sem sjálfsögðum hlut, ef menn fara að trúa því að það sé alltaf halli á ríkissjóði hvort sem svo er eða ekki, ef menn snúa vísvitandi öllum staðreyndum á hvolf svo að fólkið í landinu veit aldrei annað en að alltaf sé allt í mínus hjá ríkissjóði þótt allt annað sé staðreynd, þá er hætt við því að fjmrh. framtíðarinnar og Alþingi sjálft hafi harla lítinn metnað fyrir hönd ríkissjóðs, þá er hætt við að sígi fljótt á ógæfuhliðina. Þá keppast menn við að lækka skatta án þess að nokkuð komi á móti og auka útgjöld án þess að afla tekna á móti, eins og þessi stjórn hefur ástundað af sem mestu kappi. En staðreyndin um afkomu ríkissjóðs á árinu 1983 liggur fyrir og er, eins og ég hef nú gert grein fyrir, að halli ársins var þá ekki nema 369 millj. kr. sem sýnir að það hefði verið unnt að ná hallalausri afkomu á þessu ári ef ríkisstj. hefði ekki ákveðið þegar hún kom til valda að stefna á halla hjá ríkissjóði með þeim 800 millj. kr. tekjumissi og útgjaldaauka sem hún stóð fyrir án þess að nokkuð kæmi á móti.
Ég vil svo að endingu eindregið vara við því að ríkissjóði verði stefnt í mikinn hallarekstur á komandi ári. Viðskiptahalli sem verður til við það að fyrirtæki taka lán, að skip eru keypt til landsins eða Landsvirkjun byggir virkjanir eða sveitarfélög byggja hitaveitur er ekki ýkjahættulegur fyrir þjóðarbúið. Það er auðvitað alltaf erfitt að fjármagna alla fjárfestingu af tekjum líðandi árs og erlendar lántökur geta því verið fullkomlega réttlætanlegar og raunar óhjákvæmilegar og þær eru ekki hættulegar meðan um er að ræða fyrirtæki sem standa í skilum eða eru líkleg til að geta fullkomlega staðið undir þeim lánum sem er verið að taka. En lántökur ríkissjóðs til A-hluta reksturs, þ.e. í almennan rekstur ríkissjóðs, eru auðvitað ekkert annað en ávísun á skattgreiðendur framtíðarinnar. Á þessu tvennu er reginmunur.
Með lántökum í almennan rekstur er ríkisstj. sannarlega komin út á mjög hálan ís og það er einmitt þess vegna mjög óheppilegt þegar stjórnmálamenn og fjölmiðlar rugla þessu öllu saman, hræra þessu öllu saman og sjá ekki mun á því hvort um er að ræða lántökur til sjálfstæðra fyrirtækja annars vegar eða lántökur í almennan rekstur ríkissjóðs. Þessa dagana er ríkissjóður t.d. að taka fullverðtryggð lán með 7–8% vöxtum. Vextirnir eiga eftir að tvöfalda þessi lán á aðeins tíu árum. Ef skattgreiðendur í dag geta ekki staðið undir þeim útgjöldum sem út af standa í A-hluta fjárlaganna er þá líklegt að skattgreiðendur geti staðið undir tvöfaldri upphæðinni að tíu árum liðnum ofan á þau vandamál sem þá verða við lýði? Það er óábyrg stefna að afgreiða fjárlagafrv. vísvitandi með halla og ætti aldrei að þekkjast.
Menn kunna kannske að segja að Reagan hinn bandaríski, forseti bandarísku þjóðarinnar, hafi svo sannarlega gefið hægri sinnuðum skoðanabræðrum sínum víða um heim þetta fordæmi. En ég vil minna á að ábyrgðarleysið sem þarna er á ferðinni minnkar ekki við það þótt bent sé á útlend fordæmi. Ég segi því að lokum: Ríkisstj. ber skylda til að tryggja hallalaus fjárlög á árinu 1985. Hún á ekki að draga úr tekjum ríkissjóðs eða auka útgjöld verulega án þess að þar komi örugglega eitthvað annað á móti. Núverandi stefna, sem fylgt hefur verið frá því að þessi stjórn kom til valda, getur ekki gengið og hlýtur að valda ómældum erfiðleikum í stjórn ríkisfjármála á komandi árum.