27.11.1984
Sameinað þing: 25. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1359 í B-deild Alþingistíðinda. (889)

1. mál, fjárlög 1985

Kjartan Jóhannsson:

Herra forseti. Hv. formaður fjvn. Pálmi Jónsson, 1. þm. Norðurl. v., gerði hér fáein atriði að umtalsefni sem fram kom í ræðu minni. Veit ég nú ekki hvort hv. formaður fjvn. heyrir mál mitt en sýnist þó svo vera.

Hann gerði það fyrst að umtalsefni að ég hefði bent á að skv. því yfirliti, sem hæstv. fjmrh. teldi gleggra og skýrara en það sem tíðkast hefði, væri greiðsluhalli á ríkissjóði sem næmi 3.2 milljörðum kr. Þennan halla bar ég í rauninni aldrei saman við þann halla sem menn hafa búið sér til eftir þeim reiknikúnstum að skipta fjárlögum í A- og B-hluta, enda hef ég gagnrýnt það á undanförnum árum — hver sem fjmrh. hefur verið, hvort heldur hann hefur heitið Albert Guðmundsson, sem ég held að hafi þó gert það í minna mæli en aðrir, eða Ragnar Arnalds, sem var hvað ötulastur við það, eða Tómas Árnason — að verið væri að gefa ranga mynd af atkomu ríkissjóðs og hvernig hann kæmi út milli ára með því að flytja milli pósta, flytja milli A- og B-hluta.

Hér er hins vegar í þessu yfirliti í töflu um samræmt mat að ræða, bæði að því er varðar fjárlögin 1984 og 1985. Skv. því mati hækkar greiðsluhallinn úr 1875 millj. kr. í 3183 millj. kr., eða um 70%. Það er alveg glöggt skv. þessu, það er verri afkoma. Það er líka alveg ljóst að erlendar lántökur ríkissjóðs vaxa um 75% milli áranna og að lán, sem tekin eru skv. þessu mati umfram afborganir, eru 3.3 milljarðar kr. Þar með er ríkissjóður vitaskuld að sökkva sér dýpra sem því nemur í erlendar skuldir. Hann hefur líka skv. þessu mati verið að sökkva sér dýpra í erlendar skuldir á því ári sem nú er liðið sem nemur u.þ.b. 2 milljörðum kr. Ríkissjóður sekkur því stig af stigi dýpra og dýpra í þetta fen skv. þessum mælikvarða, sem hæstv. fjmrh. réttilega sagði að væri bæði skýrari og gleggri en þær aðferðir sem tíðkast hefðu við framsetningu í fjárlögum. Þetta stendur óhaggað.

Hitt geta menn svo haldið áfram að pexa um hvernig þeir hafi fengið út núllið sitt í liðinni tíð, greiðsluafgang, jafnvel með því að möndla með hlutina og setja þá stundum á A-hluta og stundum á B-hluta og víxla því frá ári til árs, þannig að A-ið kæmi út einhvers staðar nálægt núlli og gefa svo skít í B-ið.

Hæstv. ráðh. hefur ekki komist til að svara spurningum mínum enn þá. En í máli hv. þm. Pálma Jónssonar var talað um að ég færi frjálslega með það að hér yrði skattahækkun. Í minnisatriðum, sem ráðh. hefur afhent stjórnarandstöðunni, dags. 17. nóv. 1984, og heitir Endurskoðun fjárlagafrv. 1985 og getur ekki verið neitt sérstakt trúnaðarmál, enda komu efnisatriði þess fram í ræðu ráðh. sjálfs hér áðan, er þess getið að gert sé ráð fyrir sérstakri hækkun á áfengi og tóbaki upp á 150 millj. kr., upp á 10% nefnilega umfram verðlagshækkanir. Gert er ráð fyrir sérstakri hækkun á ýmsum öðrum tekjuliðum, vöxtum o.fl. eins og það heitir í ræðu ráðh., þar sem „o.fl.“ hefur verið skilgreint fyrir stjórnarandstöðunni sem ýmiss konar gjöld. Hvers konar gjöld? Leyfisgjöld af ýmsu tagi, skoðunargjöld, alls konar gjöld sem ríkið leggur á. Auðvitað er það aukin skattheimta. Það var tekið fram að þessar tölur væru umfram verðlagsþróun, þær væru sem sagt umfram það sem gerðist miðað við verðlagsforsendur. Almennar verðlagsforsendur eru teknar fram hér í forsendum fjárlaganna og virðist vel í aðra liði látið en þar eru sérstaklega tíundaðir vegna þess að tekjuhliðin hækkar hlutfallslega meira en verðlagsforsendur gera ráð fyrir á útgjaldahliðinni í frv. eins og það liggur fyrir.

En látum það allt gott heita. Eftir er að gera grein fyrir 320 millj. þó að við segjum að áfengi og tóbak megi gjarnan hækka um 10% umfram verðlagsþróun eru þarna 150 millj. plús 320 sem eru 470 og eiga að koma inn í auknum tekjum til ríkissjóðs, sem sagt í aukinni skattlagningu eða gjaldlagningu á fólkið í landinu með einum eða öðrum hætti.

Hv. þm. Pálmi Jónsson talaði líka um útflutningsbótaþörfina og sagði að ég hefði talað frjálslega um hana. Sannleikurinn væri nefnilega sá að þetta hefði verið að dragast saman. Ég gerði þó ekki annað en vitna í ræðu hæstv. fjmrh. Hv. þm. gæti gert það sjálfur að fletta því upp ef því er að skipta, þar sem hæstv. fjmrh. sagði að útflutningsbótaþörfin væri líklega um 450 millj. á þessu ári og 500 millj. á árinu 1985. Þetta heitir ekki samdráttur á mínu máli, þetta heitir aukning. Það sem ég sagði um það hef ég því beint eftir hæstv. fjmrh.

En hitt er gott að vita að hv. þm, skuli telja að sú reikniformúla, sem í rauninni hefur lagagildi um hver sé útflutningsbótarétturinn, sé ekki brúkleg og hann hafi þess vegna aldrei látið fara eftir henni meðan hann var landbrh. Þá er fyllsta ástæða til að endurskoða lögin og reglurnar. Það var það sem var meginatriði málsins að því er þetta varðar.

Að næstsíðustu, herra forseti, viðurkenndi hv. þm. Pálmi Jónsson að leigugjöld af ríkisjörðum væru nú í ólestri. (Gripið fram í: Hefðu verið.) — hefðu verið. En líklega væru þau komin í gott lag núna. Skv. upplýsingum, sem ég hef fengið síðan hv. þm, tók til máls og hann mun að líkindum hafa undir höndum, eru leigutekjur ríkisins af öllum ríkisjörðum áætlaðar 900 þús. kr. á árinu 1985. Þetta munu vera um 1000 jarðir svo það að koma þessu úr ólestri og í það ágæta ástand, sem hv. þm. telur greinilega að það sé í núna, þýðir að meðalleigugjald fyrir jörð með hlunnindum og öllu saman er áætlað fyrir árið 1985 900 kr. á ári, segi og skrifa 900 kr. á ári.