16.10.1984
Sameinað þing: 5. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 249 í B-deild Alþingistíðinda. (90)

42. mál, aflamark á smábáta

Sjútvrh. (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Það liggja að sjálfsögðu fyrir nákvæmar tölur frá Fiskifélagi Íslands um afla þessara báta fyrir mánuðina janúar til ágúst. Ég ætla ekki að fara að lesa upp allar þær tölur en að sjálfsögðu getur hv. þm. fengið afrit af þeim upplýsingum. Ef við lítum á þá tvo mánuði sem hann minntist hér á, þ.e. júlí og ágúst, þá var aflinn samtals í júlímánuði 3103 lestir, þar af á Suður- og Suðvesturlandi 7781/2 lest, á Vestfjörðum 7631/2, á Norðurlandi 663.2 og á Austurlandi 898. Í ágústmánuði var aflinn aftur á móti á Suður- og suðvesturlandi 255.7, á Vestfjörðum 516.5, Norðurlandi 398 og á Austurlandi 590.

Þegar um takmarkanir er að ræða halda menn oft að skerðingin komi mest við þá sjálfa enda finna menn alltaf mest fyrir því eins og eðlilegt er og hafa oft á tíðum ekki nákvæmar upplýsingar um aflabrögð á öðrum stöðum. Ég tel mig geta fullyrt að þær fullyrðingar sem menn höfðu í frammi m.a. á Austfjörðum í sumar hafi ekki haft við rök að styðjast. En það er mjög eðlilegt að slík umræða sé í gangi, sérstaklega þegar fullnægjandi upplýsingar hafa ekki borist.

Það finnst að sjálfsögðu öllum slæmt að geta ekki róið í góðum veðrum en það er nú svo að bátar sem voru 10 rúmlestir og stærri bjuggu við það að vera með sérstakan aflakvóta. Það er afar lítill munur á annars vegar 10 rúmlesta bát og hins vegar bát sem er 9.5 rúmlestir. Ef þeir bátar sem eru undir þessu marki búa ekki við neinar takmarkanir en hinir hins vegar verður þar um óeðlilegan mismun að ræða. Hins vegar virðist það koma mjög til álita að þeir bátar sem stærri eru, t.d milli 10 og 20 tonn og jafnvel eitthvað stærri, veiði einnig úr sameiginlegum kvóta.

Það er ekkert launungarmál að ýmsir þeir bátar sem voru rétt yfir 10 rúmlestir lentu fremur illa út úr þessum takmörkunum og að mínu mati verr en bátar sem voru rétt undir 10 rúmlestum. Þetta þarf að sjálfsögðu að hafa í huga við ákvörðun á reglum sem þessum. Í ljósi reynslunnar sýnist mér að meiri ástæða sé til að huga betur að þeim sem voru yfir 10 rúmlestum en þeim sem voru rétt undir þessum mörkum. Það mun verða viðfangsefni nú á haustmánuðum að setja slíkar reglur í samráði við hagsmunaaðila og þm. í sjútvn. og í ljósi þeirrar reynslu sem menn hafa nú öðlast á þessu ári.