28.11.1984
Neðri deild: 16. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1409 í B-deild Alþingistíðinda. (913)
143. mál, álbræðsla við Straumsvík
Frsm. 4. minni hl. (Guðrún Agnarsdóttir):
Herra forseti. Hér höfum við heyrt þrjú minnihlutaálit frá iðnn. þessarar deildar um það mál sem til umr. er og nú mæli ég fyrir því fjórða. Hafa þá öll stjórnmálasamtök sem eiga fulltrúa í nefndinni skilað séráliti. Það er í sjálfu sér athygli vert og víst er að sínum augum lítur hver á silfrið — eða ætti ég kannske heldur að segja álið.
Hér er um að ræða áfanga í samningagerð núv. ríkisstj. við fjölþjóðafyrirtækið Sviss Aluminium Ltd., Alusuisse. Samningum er alls ekki lokið og mikilvægur þáttur þeirra bíður enn umfjöllunar þar sem eru skattamálin.
Sú leynd, sem hvílt hefur yfir samningagerð þessari og sá skortur á upplýsingum til stjórnarandstöðu sem hefur ríkt allan samningstímann, er mjög gagnrýniverð.
Við undirbúning þessa samnings hefði verið eðlilegt og réttlátt að fulltrúar allra stjórnmálasamtaka, sem sæti eiga á Alþingi, hefðu verið hafðir með í ráðum, ekki síst þar sem hér er um að ræða mál sem snertir svo mjög hag allra landsmanna. Þess í stað er samningurinn fyrst sýndur Alþingi þegar hann er fullfrágenginn og undirritaður og engin leið að hafa þar áhrif til breytinga. Þó kastar fyrst tólfunum þegar gjaldmælir er settur á þm. og þeim sagt að hver dagur, sem líði frá undirritun samningsins, kosti Landsvirkjun um 400 þús. kr. Er þá alúð og samviskusemi þm. í jafnmikilvægu máli orðin Íslendingum dýrkeypt.
Það er ekki auðvelt að hafa svo stuttan tíma til að kynna sér jafnflókið og margslungið mál eins og þetta álmál Íslendinga er og með þá pólitísku fortíð sem það hefur þar að auki. Ekki er það gert auðveldara ef litið er til þess hve alvarlegt og afdrifaríkt þetta mál er fyrir efnahags- og atvinnulíf þjóðarinnar í nútíð og um ófyrirséða framtíð.
Það verð ég að segja að því þykir mér málið ógeðfelldara og óhugnanlegra eftir því sem ég kynnist því meir og óttast ég um hinn íslenska Davíð gagnvart hinum ófyrirleitna Golíat fjölþjóðanna. Það hefur löngum þótt vera aðalsmerki á Íslendingum að vera göfuglyndir og leysa gesti sína út með gjöfum, en fyrr má nú rota en dauðrota, því að undirtónninn við alla samningagerðina fannst mér vera, þó að orðin væru ósögð, aumingja Alusuisse, aumingja Alusuisse. Ja, sér er nú hver auminginn.
Það sem einkennt hefur alla samningagerð milli Íslendinga og Alusuisse á liðnum árum setur einnig sterkan og afgerandi svip á þennan síðasta samningsáfanga sem nú bíður samþykkis Alþingis. Enn sem fyrr hefur Alusuisse tekist að ná þeim undirtökum sem það virðist hafa í hverri samningalotu og hefur sveigt samningagerðina í þá átt að tryggja hagsmuni sína langt umfram hagsmuni Íslendinga. Það er ekki ofsögum sagt af Alusuisse að það sé erfiður samningsaðili og er með ólíkindum að ríkisstj. skuli hafa skrifað undir það að taka þátt í samningaviðræðum við fyrirtækið í framtíðinni „í góðri trú“ eins og segir í samningnum.
Ýmis ákvæði samningsins lúta fyrst og fremst að því að treysta stöðu Alusuisse og greiða götu þess án þess að tekist hafi að gæta íslenskra hagsmuna í sama mæli. Má þar t.d. nefna ákvæði um breyttar afskriftareglur svo og rýmkun á rétti ÍSALs til að leggja fé í varasjóð til að sleppa við skattlagningu.
Sömuleiðis gefst mjög litið svigrúm til endurskoðunar á reikningum ÍSALs og engin ákvæði eru í samningum sem veita aðgang að bókhaldi Alusuisse eins og nauðsynlegt gæti orðið vegna tengsla þessara tveggja fyrirtækja.
Auk þessara ívilnana hefur Alusuisse tekist að ná þeirri stöðu í samningsmálunum sem kann að verða Íslendingum einna afdrifaríkust. Fyrirtækinu hefur tekist að kljúfa tvö nátengd atriði þessa máls í aðskilda þætti sem samið verði um hvorn í sínu lagi og er hér átt við megintekjustofna Íslendinga í viðskiptum við Alusuisse, þ.e. raforkuverð annars vegar og skattlagningu hins vegar. Þó eru þessir þættir í órjúfanlegum tengslum hvor við annan og virðist ótækt að semja um annan án tillits til hins.
Hv. þm. Gunnar G. Schram kom hér upp áðan og hafði yfir tölur um skattatekjur og raforkutekjur af viðskiptum okkar við Alusuisse. Hann er líklega ekki staddur hér enn sem komið er, en ég hefði gjarnan viljað spyrja hann hvort þetta hlutfall sem hann fékk út, 1.6 millj. í skattatekjur miðað við 20.6 millj. af raforkusölu, hvort þetta hlutfall skattatekna miðað við raforku sé fengið ef frá eru reiknaðar þær tekjur sem fengist hefðu ef Alusuisse hefði greitt skatt af þeim hagnaði sem fyrirtækið kom undan með svokallaðri „hækkun í hafi“.
Með því að fallast á hækkun á raforkuverði hafa Alusuisse og ÍSAL fengið uppgefnar sakir og hreint siðgæðisvottorð þar sem ríkisstj. „leysir þau hér með frá öllum kröfum, hverju nafni sem nefnast“. Syndakvittun þessari fylgir svo greiðsla frá Alusuisse upp á 3 millj. dollara. Það ber að fagna því að einhver árangur hefur náðst í því að leiðrétta hið allt of lága raforkuverð sem viðgengist hefur í viðskiptum við Alusuisse hingað til. Þó er því ekki að heilsa að meðalsöluverð orkunnar til Alusuisse muni fyrirsjáanlega ná kostnaðarverði hennar í núverandi virkjanakerfi landsins. Jafnframt er þessi hækkun of dýru verði keypt þar sem fórnað hefur verið einni sterkustu málsástæðu okkar til leiðréttingar á skattamálum. Þau mál lágu fyrir dómi og var staða okkar þar talin sigurstrangleg en málflutningi að mestu lokið og stutt í dómsúrskurð. Nú stöndum við mun verr að vígi hvað snertir skattamálin. Þeim þætti, sem hefði getað knúið Alusuisse til að virða hagsmuni Íslendinga, hefur verið afsalað og samið hefur verið um raforkuverðið án tillits til skattamála.
Hv. þm. Gunnar G. Schram talaði einnig um skattamál, sérstaklega þrjú skattamál og þau samningsatriði málsins sem lúta að íslenskum lögum. En þá er mér spurn: Væri ekki eðlilegra að öll. skattamál ÍSALs eða Alusuisse lytu íslenskum lögum frekar en einungis þau sem koma því fyrirtæki best?
Í ofanálag hefur svo verið fellt niður ákvæði í grein sem hefur númerið 2.03(c) í aðstoðarsamningi og varðar rekstur um að Alusuisse eigi að leitast við að „tryggja ÍSAL áframhaldandi og jafnt framboð á hráefnum með bestu skilmálum og skilyrðum sem fyrir hendi eru“. Er Alusuisse þarna gert einrátt um verð á aðföngum til ÍSALs og tekið upp í staðinn ákvæði „um hlutlægan mælikvarða á viðskiptaháttum milli ólíkra aðila“ eins og segir í grein 27.03 í aðalsamningi.
Er þarna gengið þvert á hagsmuni Íslendinga. Við ákvörðun söluverðs raforkunnar er miðað við meðalverð í heiminum, bæði milli skyldra og óskyldra aðila. Sú ráðstöfun verður að teljast í ósamræmi við það ákvæði sem gildir um kaup á aðföngum, en þar gildir nú ákvæði um viðskipti milli óskyldra aðila, eins og áður segir, og er sú breyting komin í samninginn núna. Þykir eðlilegt að sami háttur sé hafður á um kaup á aðföngum og kaup á raforku, þegar verið er að meta meðalverð á raforku milli óskyldra eða skyldra aðila.
Enn fremur verður að teljast furðulegt að það raforkuverð sem um er samið skuli vera óverðtryggt. Þó er fyrirsjáanleg verðbólga í alþjóðlegu efnahagslífi áætluð um 5% á ári. Því má búast við að raungildi Bandaríkjadollars minnki um 5% á ári. Það leiðir svo aftur til þess að raungildi umsamins raforkuverðs til ÍSALs nær efri mörkum sínum eða 18.5 millum kwst. eftir u.þ.b. fimm ár og getur ekki hækkað, fer síðan lækkandi að raungildi. Trygging raforkuverðsins er því engin þegar til lengri tíma er litið.
Jafnframt er söluverð raforkunnar tengt heimsmarkaðsverði á áli sem gerir það enn ótryggara og háðara sveiflum.
Með því að sækja svo ákaft eftir hækkuðu raforkuverði sem meginárangri í samningagerð án nægilegs tillits til annarra þátta, þykir Samtökum um kvennalista að sjónarmið stundargróða hafi verið látin ráða fremur en að leitast hafi verið við að styrkja stöðu Íslendinga í viðskiptum við Alusuisse til frambúðar.
Nú hefur málið verið klofið og við sitjum eftir með skattamálin óleyst og nánast enga viðspyrnu. Þau endurskoðunarákvæði sem í samningnum eru telja sumir verri en engin þar sem þau leyfa einungis endurskoðun á fimm ára fresti og einungis ef um er að ræða „ófyrirsjáanlega breytingu til hins verra á aðstæðum, að frátöldum breytingum á valdi Landsvirkjunar eða ÍSALs, er hafi haft í för með sér alvarleg áhrif á efnahagsstöðu Landsvirkjunar eða ÍSALs, hvors sem í hlut á, þannig að hún raski bæði jafnvæginu í samningi þessum og valdi óeðlilegu harðrétti fyrir þann aðila sem í hlut á“ eins og segir í samningnum, með leyfi forseta:
Ef endurskoðun fæst skulu aðilar „eiga með sér samningaviðræður í góðri trú“ — og það er ekki ólíklegt að þá þurfi einmitt góða trú — „og reyna að ná samkomulagi um breytingu á samningi þessum“.
Ef það næst ekki er heimilt að vísa málinu til gerðardóms, en þess er skemmst að minnast að núverandi ríkisstj. þótti slíkt ekki fýsilegur kostur á s.l. hausti.
Samtökum um kvennalista þykja þessi endurskoðunarákvæði óljós, einkum hvað varðar efnisástæður sem leiða mættu til endurskoðunar. Enn fremur að ótryggt og langsótt gæti orðið fyrir Íslendinga að leita réttar síns eftir þessum ákvæðum.
Fyrirætlanir um stækkun álbræðslu í Straumsvík með forkaupsrétti Alusuisse að orku úr nýjum virkjunum eru ekki vænlegar þegar litið er til fyrri viðskipta okkar við þetta fyrirtæki. Það er ekkert sem bendir til þess að það sé æskilegt fyrir Íslendinga að verða enn þá háðari fyrirtækinu um orkunýtingu hér á landi en þegar er orðið né að takast muni að semja um að það kaupi orkuna á því verði sem kostar að framleiða hana. Enn fremur hafa Samtök um kvennalista frá upphafi bent á að stóriðja er ekki fýsilegur atvinnukostur fyrir Íslendinga og stækkun álbræðslunnar í Straumsvík þá ekki heldur. Reynsla okkar hefur sýnt að stóriðja er lítið atvinnuskapandi miðað við þann mikla fjármagnskostnað sem henni fylgir. Við hana eru einungis bundin mjög fá en óheyrilega dýr störf og gildir það ekki síst um þá stóriðju sem hér um ræðir, þ.e. álbræðslu, auk þess sem stóriðju getur fylgt byggðarleg og félagsleg röskun og mengun af ýmsu tagi, en þessar ástæður eru þeim mun alvarlegri þar sem Íslendingar eru fámenn þjóð sem býr í viðkvæmu landi. Ekki bætir svo úr skák að margir telja þessa tegund orkunýtingar til atvinnukosta gærdagsins.
Við megum ekki heldur gleyma því að erlendar skuldir Íslendinga stafa af langstærstum hluta af stórvirkjanaframkvæmdum vegna stóriðju. Ekki virðist okkur ganga sundið í þeirri skuldasúpu of vel og virðist mál að linni slíkri skuldasöfnun. Það virðist því þurfa mikið af „góðri trú“ til að samþykkja þennan samning.
Ef gætt er að hagsmunum Íslendinga þá er þessi samningur ríkisstj. við Sviss Aluminium Ltd. í heildlina tekið óviðunandi og því leggja Samtök um kvennalista til að frv. þetta verði fellt.