28.11.1984
Neðri deild: 16. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1444 í B-deild Alþingistíðinda. (923)
143. mál, álbræðsla við Straumsvík
Ellert B. Schram:
Herra forseti. Það er aðeins eitt orð. Ég skal taka undir það með hv. 3. þm. Reykv. að ástæða er til þess að gera athugasemd út af 9. lið þessa samnings sem fjallar um fréttatilkynningar og ég hnaut um þetta atriði eins og hann. Hins vegar verð ég að játa að þó ég sé stundum mikill prinsipp-maður og vilji standa vörð um réttindi, málstað og sannfæringu, þá hugkvæmdist mér ekki að taka þá afstöðu að greiða atkvæði gegn þessum álsamningi vegna minni háttar ákvæða um fréttatilkynningar. Hins vegar stóð ég aðallega upp til þess að þakka hv. 3. þm. Reykv. fyrir þann heiður sem hann sýnir mér með því að ávarpa mig sérstaklega þegar tjáningarfrelsið ber á góma. Hann lítur greinilega á mig sem sérstakan oddvita þeirra mannréttinda sem felast í tjáningar- og skoðanafrelsinu. Ég er ánægður með þá viðurkenningu og þakka honum fyrir þann heiður og vonast til að við getum þá, ég og 3. þm. Reykv. staðið saman vörð um tjáningarfrelsið á öðrum sviðum og það síðar á þessu þingi.
Það hefur sem sagt komið í ljós að hæstv. iðnrh. hefur útskýrt þetta atriði með fréttatilkynninguna og tekið þann kaleik frá okkur. Við þurfum ekki að hafa frekari áhyggjur af því eða láta það þvælast fyrir okkur þegar við greiðum að lokum atkvæði um þetta mál.