29.11.1984
Sameinað þing: 27. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1457 í B-deild Alþingistíðinda. (938)
137. mál, fjárframlög til níunda bekkjar grunnskóla
Flm. (Stefán Benediktsson):
Herra forseti. Ég vil minna á það, sem ég sagði í upphafi orða minna, að ég teldi það hlutverk ríkisvaldsins fyrst og fremst að hámarka kjör hinna verst settu í þjóðfélaginu. Ég verð að viðurkenna að ég furða mig á áhuga Alþb.-manna á rekstri Síldarverksmiðjanna. Ég get vel skilið að menn finni til einhvers sögulegs skyldleika við þessa starfsemi. Flestallir hafa trúlega einhvern tíma komið nálægt henni og hafa þannig séð einhverjar taugar til hennar. En að sá flokkur hér á þingi sem telur sig bera hagsmuni verkafólks hvað mest fyrir brjósti skuli ekki gera sér grein fyrir afleiðingum af þessum rekstri og þróun þessa rekstrar. Fyrirtæki sem ekki getur borgað eðlilegt hráefnisverð getur auðvitað ekki heldur borgað eðlileg laun. Það að halda í rekstur þessara verksmiðja er að halda niðri launakjörum hér á Íslandi og það hefur áhrif miklu víðar en bara í starfsemi Síldarverksmiðja ríkisins.
Hv. 2. þm. Austurl. fannst gæta misræmis í gagnrýni okkar Bandalagsmanna á fjárframlögum til þróunar atvinnustarfsemi og þeirrar till. að leggja beri niður starfsemi sem þessa. Svo ekkert fari á milli mála, þá teljum við að það sé hlutverk samfélagsins eða ríkisins að ábyrgjast öryggi í aðstæðum en ekki að það fari fram þannig að ríkið haldi úti framleiðslustarfsemi.
Menn tala hér af mjög mikilli fyrirlitningu um einkaframtak. Fyrir mitt leyti vil ég ekki og mun ekki skilyrða það með einum eða öðrum hætti hvernig rekstri þessarar starfsemi og annarrar, sem við höfum lagt til að ríkið hætti afskiptum af, verður fyrir komið. Vitanlega eru margir möguleikar til í því, hvort sem þar er um að ræða einstaklinga, samtök einstaklinga, svo sem samvinnufélög, samtök einstaklinga í stærri hópum, sveitarfélög og þar fram eftir götunum, sem tekið gætu við þessum og öðrum rekstri. En allt eru það einstaklingar í samanburði við ríkiseignina. Ef og þar sem þessar verksmiðjur eru svona mikilvægar fyrir byggðarlög og sannanlegt er að þær séu svona mikilvægar og ekki sé hægt að bjóða fólki þar önnur atvinnutækifæri, ef þær standa undir byggðarlaginu, þá er ekkert eðlilegra en að byggðarlagið eignist þessar verksmiðjur og reki þær sjálft. Þá er ábyrgðin þar sem mest er nauðsyn fyrir hana og ekki ástæða til að sækja neitt til ríkisins í þeim málum.
Séu borin saman afrek einstaklinga eða samtaka þeirra og afrek ríkisins í þessum efnum finnst mér kannske farið út fyrir hugmyndafræðilegan grundvöll þessarar umr. því ég lagði áherslu á það áðan í mínum orðum að ég tel hér fyrst og fremst vera spurt um hvar og hvernig maður getur gert aðila ábyrga fyrir rekstri og þróun atvinnustarfsemi. Ég bendi á það, af því að ég hef einhvers staðar rekist á það, að Krossanesverksmiðjan sem hér var aðeins nefnd borgar 10% ofan á ákveðið verð (Gripið fram í: Gerir enn.) og gerir enn og hefur nægilegt hráefni á meðan mjög margir sigla með aflann til Danmerkur í staðinn fyrir að landa honum hjá aðilum innanlands sem vel geta tekið á móti honum. Þessu verður ekki breytt nema að þau fyrirtæki, önnur en Krossanesverksmiðjan, geti boðið sama verð eða hærra, en eins og upplýst var í ræðu hv. 5. þm. Norðurl. e. geta fyrirtækin það ekki og þar af leiðandi verður því ekki breytt nema með einhverjum aðgerðum, hverjar sem þær yrðu.
Ég held að menn blandi allt of mikið saman við þessa umr. tilfinningum sínum til þeirra fyrirtækja sem nefnd eru. Þetta eru fyrirtæki sem stofnað var til með ákveðnum hætti fyrir mjög löngu margra hverra og menn hafa til þeirra grónar og kannske eðlilegar mannlegar tilfinningar. En það þýðir ekki að eðlilegt og nauðsynlegt sé að ríkið haldi úti starfsemi sem þessari sem nokkurs konar minjasafni.
Í sambandi við hvernig hefur verið staðið að þessum rekstri í fortíðinni ætla ég ekki að fara að vera neitt rótarlegur, en tilfellið er að Síldarverksmiðjur ríkisins hafa verið einkabarn ákveðinna stjórnmálaafla hér á landi og notaðar sem nokkurs konar uppspretta atvinnutækifæra fyrir vissa stjórnmálaflokka. Ég nefni þar engan einn fremur en aðra. (HS: Þú mátt nú til með það.) Sá stjórnmálaflokkur er reyndar sá sem ég hef gjarnan nefnt stærstan kerfisflokk á þessu landi, en það er Sjálfstfl. Það væri þess vegna ástæða til, ef menn vildu, að fara nánar út í þá sálma. (Gripið fram í.) Ég vil ekki ræða það miklu nánar því margir þeirra sem þar komu mest við sögu eru nú komnir undir græna torfu og mér finnst ekki viðurkvæmilegt að vera að tína þeirra nöfn upp. Mér finnst umr. enn óeðlilegri fyrir þær sakir að það skuli vera þm. Alþb. sem nú stendur upp og ver þessa starfsemi.