29.11.1984
Sameinað þing: 27. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1459 í B-deild Alþingistíðinda. (941)
160. mál, átak í byggingu leiguhúsnæðis
Flm. (Kristín Ástgeirsdóttir):
Herra forseti. Á þskj. 165 leyfi ég mér að flytja svohljóðandi till. til þál.: „Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að beita sér þegar í stað fyrir átaki í byggingu leiguhúsnæðis. Verði varið 200 milljónum króna í núgildandi verðlagi til þessa verkefnis á ári þar til þörfinni hefur verið fullnægt. Fjárins verði aflað með sérstökum hátekjuskatti.“
Þessi till. er fram sett vegna hins mikla vanda sem leigjendur eiga við að glíma, einkum hér á höfuðborgarsvæðinu. Í fréttum sjónvarpsins fyrir nokkrum vikum kom fram að það borgar sig engan veginn fyrir fólk að fjárfesta í húsnæði til að leigja út. Leigan þarf að vera himinhá til að standa undir öllum kostnaði. Af þessu svo og öðru leiðir að leigumarkaðurinn þrengist stöðugt. Íbúðum til leigu fækkar og leigan hækkar ár frá ári. Þær íbúðir sem um er að ræða eru húsnæði sem fjárfest hefur verið í og ætlaðar eru til leigu, gamalt húsnæði, t.d. í eigu dánarbúa, og síðast en ekki síst íbúðir sem kaupendur eða íbúðabyggjendur leigja dýru verði til að geta staðið undir vöxtum og afborgunum. Hin kröppu kjör íbúðakaupenda koma þannig niður á leigjendum sem í neyð sinni verða að taka nánast hverju sem er ef þeir eiga ekki að tjalda í Laugardalnum eða flytja aftur til foreldra sinna sem reyndar er sú lausn sem margir grípa til.
Því er við að bæta að afar lítið hefur verið byggt af leiguhúsnæði á vegum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu undanfarin ár, sem veldur því að það fólk, sem leitar aðstoðar félagsmálastofnana, er á hrakhólum. Hvaða skoðun sem menn annars hafa á húsnæðismálum og því hvaða stefnu hið opinbera eigi að reka í þeim málum, er það staðreynd að hér á landi eru fjölmennir hópar fólks sem þurfa á leiguhúsnæði að halda, auk þeirra fjölmörgu sem gjarnan vilja leigja og eyða tíma sínum í annað en það þrælahald sem fylgir kapphlaupinu við víxla og afborganir.
Í hópi leigjenda er einkum um að ræða einstæða foreldra, námsmenn sem margir hverjir hafa fyrir fjölskyldu að sjá, aldraða, öryrkja og fólk sem t.d. er nýkomið heim úr námi eða nýflutt í bæinn, hvaða bær sem það nú er. Þar við bætast allir þeir sem engan veginn hafa bolmagn til að kaupa eigið húsnæði. Þá má nefna þá sem fara út á land til að stunda vinnu, t.d. kennara, lækna og presta sem að vísu fá margir hverjir embættisbústaði, en skv. þeim upplýsingum, sem ég hef aflað mér, eru margir þessara bústaða mjög óhentugir og kyndingarkostnaður að sliga embættismennina. Þess eru mörg dæmi að kennurum er holað niður við alls ófullnægjandi aðstæður sem valda því að þeir haldast ekki við á staðnum. Auðveldasta lausnin væri auðvitað sú að byggja ódýrt og hentugt leiguhúsnæði.
Hér á Reykjavíkursvæðinu er ástandið á leigumarkaðnum þannig að leiga fer stöðugt hækkandi, svo sem áður segir, og er nú komin langt upp fyrir greiðslugetu láglaunafólks þó vissulega séu undantekningar þar á. Ég get nefnt dæmi um einstæða móður sem vinnur hjá ríkinu. Hún fær 14 700 kr. útborgaðar þegar öll gjöld hafa verið dregin frá en eina húsnæðið, sem hún átti kost á að fá nú í haust eftir mikla leit, auglýsingar og umsóknir, var 3ja herbergja íbúð fyrir 13 000 kr. á mánuði. Hún á sem sagt að láta 1700 kr. plús meðlag duga fyrir mat, klæðum, barnapössun, hita, rafmagni og síma. Hvað gat hún gert? Þessi kona í fullu starfi hjá ríkinu átti ekki annars kost en að leita til Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar til að fá hjálp.
Ég vil tíunda hér aðra sögu einstæðrar móður sem líka er í fullu starfi, vinnur vaktavinnu. Frásögn hennar birtist í Kvennablaðinu Veru nú í október. Hún segir með leyfi forseta:
„Ég hélt áfram leit minni og það eina sem bauðst voru samningar frá tveimur og upp í sex mánuði, en ég stefndi a.m.k. að árs samningi, búin að fá nóg af flakkinu. En það tókst mér engan veginn svo ég lenti að lokum á Grundarstígnum á sex mánaða samningi. Það var góður eigandi því ég slapp við fyrirframgreiðslu. Að sex mánuðum liðnum var aftur flutt inn á saumastofu frænku minnar, næst var það Kópavogurinn hjá vini í sjö mánuði og í mars s.l. fluttum við í tólfta sinnið, nú á Framnesveginn í eitt niðurgrafið kjallaraherbergi með aðgangi að baði, engri eldunaraðstöðu og hvorki skápum né geymslu, kostaði 3 þús. krónur á mánuði og sex mánuði fyrir fram. Þetta var ekki mannabústaður og við héldumst ekki lengi við þarna. Þrautalendingin var þá hús Félags einstæðra foreldra í Skeljanesi og þar búum við sem sagt í dag.“
Þessi saga er ekkert einsdæmi, enda sýndi skýrsla sú, sem unnin var á vegum félmrn. um hagi einstæðra foreldra, að húsnæðismálin eru þeirra stærsti vandi. Þar segir m.a., með leyfi forseta:
„Það hefur vakið töluverða athygli að meðal þátttakenda í greindri könnun telja langflestir að tryggt húsnæði sé eitt brýnasta mál einstæðra foreldra. Athuganir á húsnæðismálum einstæðra foreldra renna einnig stoð undir þá nauðsyn að tryggja möguleika á hæfilegu húsnæði til lengri tíma. Helmingur einstæðra foreldra býr í leiguhúsnæði en að jafnaði búa níu af hverjum tíu fjölskyldum á Íslandi í eigin húsnæði. Aðeins 6% einstæðra foreldra í leiguhúsnæði á almennum leigumarkaði hafa leigusamning til meira en eins árs og helmingurinn hefur engan leigusamning. Til samanburðar er bent á niðurstöður könnunar sem gerð var í Svíþjóð árið 1980, en þar kemur fram að 90% einstæðra foreldra í leiguhúsnæði hafa langtímasamning og eru taldir búa í mjög tryggu húsnæði. Það verður einnig að teljast athyglisvert að 27% einstæðra foreldra, sem búa í eigin húsnæði, hafa eignast það á félagslegum grundvelli í gegnum verkamannabústaðakerfið. Þar að auki hafa jafnmargir til viðbótar, eða þriðjungur allra þátttakenda í könnuninni, sótt um íbúðir í verkamannabústöðunum en ekki fengið. Það er einnig athyglisvert í þessu sambandi að fjórðungur einstæðra foreldra, sem leigja, bjuggu áður í eigin húsnæði.“
Það spyr kannske einhver: Hvers vegna kaupir þetta fólk sér ekki íbúð, þ.e. leigjendur? Því er til að svara að hér er einmitt um að ræða þann hóp í þjóðfélaginu sem ekki á þess nokkurn kost að festa sér húsnæði til kaups nema hjá verkamannabústöðunum vegna lágra launa. Skv. upplýsingum frá ríkisskattstjóra um tekjuskiptingu þjóðarinnar árið 1983 skiluðu 5857 einstæðir foreldrar með 4062 börn á framfæri skattaskýrslum. Af þessum hópi eru um 60% með brúttótekjur undir 230 þús. krónum og, ég endurtek, allt er þetta fólk sem hefur börn á sínu framfæri. Verkamannabústaðirnir geta engan veginn annað eftirspurninni eftir íbúðum til handa láglaunafólki. Síðast þegar úthlutað var komu 900 umsóknir en aðeins 300 fengu íbúð til kaups. Hjá Reykjavíkurborg eru nú á milli 600 og 700 fjölskyldur á biðlista eftir leiguíbúðum á vegum borgarinnar.
Fólk hefur nú tekið sig saman og stofnað húsnæðissamvinnufélagið Búseta, sem nú telur um 2700 félagsmenn, til að finna leið til lausnar húsnæðisvanda leigjenda. En svo sem kunnugt er fékk Búseti enga úrlausn sinna mála s.l. vor þegar ný lög um Húsnæðisstofnun ríkisins voru afgreidd og nú liggur umsókn frá Búseta óafgreidd hjá Húsnæðisstofnun. Allar þessar tölur sýna og sanna hversu mikil þörfin er.
En hvað gerir fólk, hvernig fær það þak yfir höfuðið? Margir fá lánað fyrir fyrirframgreiðslum. Bankakerfið, pabbi og mamma eða afi og amma hlaupa undir bagga. Og þeir eru ófáir sem fá að vera í kjallaranum eða risinu hjá ættingjum og vinum, einhvern veginn bjargast þetta. En það breytir ekki því að margir búa við neyðarástand og há leiga er að sliga fjölda heimila, því það er nú einmitt það sem fólk er að reyna — að koma sér upp heimili. Hér er um mikinn og brýnan vanda að ræða sem ber að leysa á félagslegan hátt.
Sú lausn, sem hér er lögð til, er að veitt verði fjármagni að upphæð 200 millj. kr. til byggingar leiguhúsnæðis ár hvert þar til þörfinni hefur verið fullnægt. Ekki er nú beðið um mikið. Þessi upphæð mundi kannske duga til að byggja u.þ.b. 100 íbúðir eftir því hve ódýrt er byggt. Það verður að segjast eins og er að 200 millj. eru varla upp í nös á ketti miðað við þann mikla vanda sem við er að glíma. En sökum þess hve fast er haldið um ríkispyngjuna þessi árin er farið vægt í sakirnar í von um að vilji sé til staðar hjá ráðamönnum til að fara nýjar leiðir í húsnæðismálum.
Ekki þykir mér stætt á því að klípa af naumum fjárveitingum til Húsnæðisstofnunar ríkisins, heldur ætti þessi sérstaka fjárveiting að verða sveitarfélögum og félagasamtökum hvatning til að hefjast nú handa. Lagt er til að þessara 200 millj. til byggingar leiguhúsnæðis verði aflað með sérstökum hátekjuskatti þeirra sem meira mega sín í þjóðfélaginu, þeirra sem hafa séð til þess að ekkert hefur dregið úr neyslu eða innflutningi þrátt fyrir mikla kjaraskerðingu. Þar með er breiðu bökunum gefinn kostur á að axla hluta af þeim byrðum sem hæstv. ríkisstj. hefur lagt á herðar almennings.
Skv. upplýsingum ríkisskattstjóra hafa 15 180 einstaklingar, skattgreiðendur, gefið upp til skatts tekjur sem eru 527 þús. kr. árið 1983 eða þaðan af meira sé miðað við brúttótekjur. Ef miðað er við vergar tekjur er um 13 318 skattgreiðendur að ræða. Til fróðleiks skal þess getið að skiptingin milli hjóna er með þeim hætti að 12 573 kvæntir karlar eru með tekjur yfir 527 þús. en aðeins 260 konur. Segir þetta nokkuð um launamisréttið á voru landi, Íslandi. Ef miðað er við brúttótekjur yrði hátekjuskatturinn 13 175 kr. á skattgreiðanda en ef miðað er við vergar tekjur 15 180 kr. Þetta getur ekki talist há upphæð fyrir þá sem hafa sæmilega mikið umleikis jafnvel þótt þeir hinir sömu hafi börn á framfæri. Að öllum líkindum eru flestir í þessum hópi búnir að koma sér upp húsnæði, sjálfsagt margir á þeim tímum er verðbólgan hjálpaði upp á sakirnar. Er það nokkuð ósanngjarnt að ætlast til þess að þeir skili örlitlu broti af verðbólgugróðanum aftur til samfélagsins?
Nú er sá galli á gjöf Njarðar að enn einu sinni sleppa skattsvikararnir. En við því er ekki annað að gera en að skora á hæstv. fjmrh. að gerast nú djarfur og dugandi og gera gangskör að því að uppræta skattsvikin með ráðstöfunum og stórauknu eftirliti. Þá mundi hátekjuskatturinn að sjálfsögðu lækka til muna, en við mundum væntanlega horfa á bak vandamáli sem nágrannaþjóðir okkar á Norðurlöndunum hafa svo til leyst að fullu með byggingu leiguhúsnæðis.
Ég vil geta hér sérstaklega húsnæðisvanda námsmanna sem ekki er hvað síst brýnt að leysa. Sú stefna hefur verið rekin í menntamálum hér á landi að stefna nánast öllum nemendum á framhaldsskólastigi til Reykjavíkur. Úti um allt land hafa risið menntaskólar og fjölbrautaskólar og er það vel, en það er eins og alveg hafi gleymst að gera ráð fyrir öllum þessum nemendum eftir að stúdentsprófi er lokið. Á hverju hausti streyma hundruð nemenda til borgarinnar auk þeirra sem yfirgefa foreldrahús og stofna sitt eigið heimili. Allt þetta unga fólk þarf að finna sér húsnæði og það fær svo sannarlega að finna fyrir leiguokrinu sem hér viðgengst. Félagsstofnun stúdenta sem m.a. gegnir því hlutverki að byggja húsnæði yfir námsmenn við Háskóla Íslands, getur aðeins leigt um 4% stúdenta húsnæði. Þá eru eftir allir hinir. Skráðir nemendur við Háskóla Íslands munu vera yfir fjögur þúsund. Þá eru eftir nemendur við aðra skóla. Mér vitanlega hefur ekki verið reist neitt heimavistarhúsnæði við skóla hér í borg ef frá er talinn Hjúkrunarskólinn. Stjórn Félagsstofnunar stúdenta hefur samþykkt að hefja byggingu stúdentagarða á grundvelli þeirra laga sem samþykkt voru s.l. vor um Húsnæðisstofnun ríkisins. Vonandi rísa þeir garðar fljótt, en þeir leysa aðeins lítinn hluta þess vanda sem hér um ræðir.
Aðeins skipuleg bygging leiguhúsnæðis á vegum sveitarfélaga og félagasamtaka megnar að draga úr þeirri miklu spennu sem ríkir á leigumarkaðinum og létta þar með þungu fargi af fjölda kvenna og karla sem býr við öryggisleysi og fátækt, ég segi og skrifa fátækt. Fátt væri betri kjarabót fyrir láglaunafólk en nægilegt framboð á ódýru og hentugu húsnæði. Það er skylda samfélagsins að jafna kjör þegnanna og það ætti að vera stefnan í húsnæðismálum sem og öðrum málum að gefa fólki kost á að velja, velja um það hvernig það vill haga lífi sínu í stað þess að þröngva því inn á ákveðnar brautir eins og nú er gert, t.d. í húsnæðismálum.
Hvort sem mönnum líkar það betur eða verr hafa orðið miklar og örar þjóðfélagsbreytingar hér á landi á undanförnum áratugum. Ein þeirra er sú að þeim heimilum fjölgar stöðugt þar sem aðeins er að finna einn einstakling eða eitt foreldri með barn eða börn. Fjölskyldan á undir högg að sækja af ýmsum orsökum, hjónaskilnuðum fjölgar og þeim fjölgar einnig sem búa einir. Allt kallar þetta á nýja tegund húsnæðis og nýjar lausnir í húsnæðismálum. Þar sem aðeins er einn fullorðinn, sem vinnur fyrir rekstri heimilis, verður lítið afgangs til að leggja til hliðar eða til að greiða fyrstu útborgun í íbúð. Það gleymist oft að þar sem einn er um hituna eiga ein laun að standa undir kostnaði sem í öðrum tilvikum deilist á tvo.
Herra forseti. Sú till., sem hér er flutt, er hugsuð sem spor í átt að nýjum lausnum í húsnæðismálum, lausnum sem þola enga bið. Að lokum legg ég til að till. verði vísað til hv. allshn.