29.11.1984
Neðri deild: 18. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1470 í B-deild Alþingistíðinda. (948)
143. mál, álbræðsla við Straumsvík
Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Góðir áheyrendur. Það er sagt að fjarlægðin geri fjöllin blá og mennina mikla og þannig er það í reynd, jafnt um myndir náttúrunnar sem ýmis mannanna verk, að hvoru tveggja lítur oft betur út úr fjarlægð.
Einn slíkur mannlegur gjörningur er hér til umr. í kvöld. Hjúpað leynd og þagnarskyldu virtist það samkomulag, sem í burðarliðum var milli íslenskra stjórnvalda og Alusuisse í véfréttarlegum frásögnum ábúðarmikilla samningamanna, vera hin fegursta mynd. Og gylltir salir glæsihótelanna í Evrópu mynduðu gullinn ramma um sköpunarverkið.
En sá tími er liðinn og hér er nærmyndin til meðhöndlunar. Og í stuttu máli sagt er hið glæsilega listaverk orðið að óbermi. Enn og aftur hafa hnjáliðirnir svikið íslenska samningamenn frammi fyrir auðhringnum Alusuisse sem væri þar deig í stað beina og bráðið smér í stað sina. Sterkri samningsstöðu Íslendinga hefur verið glutrað svo niður að gegn alls ónógri hækkun raforkuverðs fær auðhringurinn allt sitt fram.
Í fyrsta lagi er samið um raforkuverð til 20 ára sem er langt undir framleiðslukostnaðarverði og án verðtryggingar, þannig að raungildi raforkuverðsins mun rýrna jafnt og þétt á samningstímanum. Endurskoðunarákvæði rafmagnssamningsins eru íslenskum hagsmunum engin trygging og að líkindum verri en engin.
Þrátt fyrir að viðræður um breytt skattakerfi fyrir ÍSAL eru sagðar á byrjunarstigi er nú í þessum samningi breytt mörgum þýðingarmiklum skattaákvæðum gildandi samninga, öllum, hverju einu og einasta, til hagsbóta fyrir Alusuisse. Auðhringurinn fær sem sagt í forgjöf fyrir væntanlegar viðræður um breytt skattakerfi lagfæringar á þeim atriðum sem hann hefur talið sér óhagstæð.
Þá er í samningi þessum fallist á að Alusuisse megi framselja eigin dótturfélögum hlutafé í ÍSAI. eða framselja til óskylds þriðja aðila 50% hlutafjárins, en vitað er að það er auðhringnum mikið hagsmunamál.
Þá veitir ríkisstj. með samningi þessum Alusuisse ótímabundið loforð um forgang að raforku til að stækka álverið í Straumsvík um helming ef samkomulag næst um raforkuverð o.fl., en ekkert liggur fyrir um hvaða skilmálar þetta verða. Hér er því um óútfyllta ávísun til Alusuisse að ræða og sporin hræða, því miður.
Það er ofvaxið mínum skilningi að í ljósi framkomu Alusuisse við okkur Íslendinga á liðnum árum, í ljósi gífurlegra skattsvika fyrirtækisins og svíðingsháttar í öllum samskiptum skuli ákveðið að veita þeim sérstaklega forgang umfram aðra að orkuauðlindum landsins. Og þá er það sá þáttur þessara samninga og málsmeðferðar allrar sem mér svíður einna mest, herra forseti, af málefnalegum, þjóðlegum og síðast en ekki síst af siðferðilegum ástæðum, en það er að fallið skuli frá öllum kröfum íslenska ríkisins á hendur Alusuisse um viðbótarskatta vegna skattsvika ÍSALs sem að mati alþjóðlegra endurskoðenda nema a.m.k. tæpum 60 millj. Bandaríkjadala eða 2300 millj. ísl. kr. á árunum 1976–1983. Alusuisse er með samningi þessum veitt ein allsherjar og fortakslaus syndaaflausn gegn greiðslu 3 millj. Bandaríkjadala eða um 120 millj. ísl. kr. sem koma til lækkunar á skuldainneign Alusuisse hjá ríkissjóði. Og hér, verð ég að segja, finnst mér einna lægst lotið í annars óburðugri frammistöðu iðnrh. og samninganefndarmanna hans. Með það skjalfest fyrir dómnefndum að Alusuisse hafi stundað „hækkun í hafi“ og að kröfur íslensku ríkisstjórnarinnar á hendur auðhringnum voru síst ofáætlaðar lætur samninganefndin narra sig til þess að taka málið úr þeim farvegi og selja Alusuisse, eins og áður sagði, slíkan allsherjarsyndaþvott að annað eins mun fátítt.
Ég vil, með leyfi þínu, herra forseti, vitna í texta sáttargerðarsamningsins, en þar segir m.a.:
„Ríkisstj. samþykkir að leysa Alusuisse og ÍSAL, og leysir þau hér með, frá öllum kröfum hverju nafni sem nefnast, að lögum, eðli málsins eða í öðru tilliti, þar á meðal öllum kröfum þegar gerðum fyrir dómnefndunum, án þess að tæmandi sé talið, sem ríkisstj. hefur nokkru sinni átt, á nú eða getur hér eftir átt eða mundi eiga gegn Alusuisse eða ÍSAL af hvaða atvikum eða orsökum sem er, sem nú eru fyrir hendi eða hafa gerst fram á þann dag“ o.s.frv.
Það vantar ekki annað í þennan texta, herra forseti, en það að við Íslendingar skulum frá og með undirskrift og staðfestingu þessa samnings og um aldur og ævi síðan þéra embættismenn Alusuisse jafnt á almannafæri sem í heimahúsum. Þá væri sköpunarverkið fullkomnað.
Það má svo hins vegar velta því fyrir sér hverju eða hverjum er verið að bjarga með því að taka deilumálin út úr dómi þegar staðan þar er okkur til vinnings. Áhugi Alusuisse er auðskilinn. En það skyldi þó aldrei vera að fleiri hefðu átt hér einhvers konar hagsmuna að gæta. Er það hugsanlegt að pólitískir andstæðingar Alþb. og Hjörleifs Guttormssonar hafi ekki getað, þrátt fyrir ótvíræða hagsmuni Íslands, unnt honum þess að dómur gengi okkur Íslendingum í hag og málafylgja hans og vinnubrögð sönnuðu sig þannig fyrir dómi eftir það sem á undan var gengið? Er það hugsanlegt, hv. þm. Páll Pétursson, og hlæðu svo. (Gripið fram í: Það er ekki hugsanlegt.)
Að síðustu vil ég svo nefna það af efnisatriðum samningsins, að hafandi fengið syndakvittun súrraða saman í bak og fyrir og þannig með mun sterkari stöðu en fyrr tekst Alusuisse að undanskilja í þessu samkomulagi nokkra mjög mikilsverða þætti, svo sem breytt skattakerfi og stækkun álversins. Um þetta ætlar Alusuisse að semja síðar í ró og næði þegar það hefur ekki lengur yfir sér svipuna um áfellisdóm og alþjóðlega kaghýðingu. Þannig verður með staðfestingu þessa samnings það vopn, sem við Íslendingar áttum einna sterkast í deilunni, að engu orðið og má nærri geta að gammarnir í Sviss hugsa gott til glóðarinnar.
Fleiri orð þarf ég í sjálfu sér ekki að hafa um þennan samning. Niðurstaðan er sú að ávinningarnir, þ.e. raforkuverðshækkunin fyrst og fremst, eru alls ónógir og allt of dýru verði keyptir. Og þegar ég hugsa, herra forseti, um hinar mörgu og löngu ferðir samningamanna, einmanalegar nætur þeirra á hótelherbergjum í ókunnum stórborgum og horfi á þessa rýru eftirtekju, þá dettur mér í hug gömul vísa um aðra menn sem einnig lögðu mikið á sig höfðu lítið upp úr krafsinu. Mér finnst hún eiga vel við hér:
Það má segja um þessa menn,
að þeir eru ekki latir,
tölta dægrin tvenn og þrenn
til að liggja flatir.
Því miður, því miður, hnjáliðirnir sviku íslensku samninganefndina og hún lá flöt.
Herra forseti. Það er annars margt í tengslum við þetta mál sem gaman hefði verið að fara hér um nokkrum orðum. Um yfirlýsingagleði hæstv. núv. iðnrh. og um orðheldni hans mætti sitthvað segja. Guðmundar þátt Þórarinssonar hins sterka mætti rekja. Málflutning Morgunblaðsins í þágu auðhringsins væri fróðlegt að fjalla um og svo mætti lengi telja, en ég mun láta mér nægja að nefna hér tvennt til viðbótar.
Ungir íhaldsmenn hafa gefið út reikning og sent okkur í Alþb. Reikningur sá gengur út á það að raforkuverðið hefði getað verið hærra til álversins í Straumsvík meðan Hjörleifur Guttormsson var iðnrh. Og þetta er alveg rétt, aldrei þessu vant, hjá stuttbuxnadeildinni. Auðvitað hefði raforkuverðið getað verið hærra allan þennan tíma ef móðurskip þessara ungu íhaldsmanna, Sjálfstfl., hefði ekki samið svona illa árið 1966 og staðið svona forkostulega að endurskoðun samninganna 1975 með aðstoð framsóknar og ef þessir sömu aðilar hefðu ekki setið sem fastast á óæðri endanum öll þau ár sem völdin voru í þeirra höndum. Það var hins vegar með komu Alþb. í iðnrn. sem hafist var handa um að fá þessu ófremdarástandi breytt. Núv. hæstv. iðnrh. t.a.m. sat við lestur Víga-Glúms sögu og hafði ekki hugmynd um að nokkuð væri athugavert við raforkuverðið, hvað þá við skattamál, fyrr en Alþb. benti honum og öðrum slíkum á það.
Mér segir svo hugur um að þessar bókhaldskúnstir ungra íhaldsmanna verði þeim lítt til framdráttar frekar en annað sem þeir hafa gert undanfarið. Hitt þætti mér maklegt, að íslensk alþýðuheimili, ekki síst á landsbyggðinni þar sem niðurgreiðslur til stóriðjunnar koma hvað harðast niður, og að íslenskur sjávarútvegur t.d. settu saman reikning og hann nokkuð háan og sendu honum Sjálfstæðisflokki og öðrum þeim sem með þeim flokki hafa borið íslenska hagsmuni fyrir borð um áratugaskeið erlendum auðhring til þóknunar.
Annað vil ég nefna og það eru ritstörf og fjölmiðlaframganga íslensku samninganefndarmannanna á undanförnum misserum. Mitt í samningaviðræðunum komu menn úr hópi samninganefndar fram í fjölmiðlum og skrifa greinar í blöð þar sem styrkur samningsstöðu okkar var mjög dreginn í efa, Alusuisse varið og kröfur þess réttlættar og gert lítið úr árangri annarra þjóða í hliðstæðum málum. Ég vil um þessi endemi segja það eitt að það var gæfa íslensku þjóðinni að eigi voru uppi meðal hennar slíkir rithöfundar meðan hún stóð í sinni landhelgisdeilu.
Það er mjög til siðs í dag að aldraðir stjórnmálaforingjar riti eða láti aðra skrá endurminningar sínar og sögu og ýmis önnur söguritun stendur með nokkrum blóma. Því er ekki óhugsandi að einhvern tíma verði saga álmálsins, þ.e. viðskipta Íslendinga við auðhringinn Alusuisse, skráð. Og þá verður í þeirri sögu alveg sérstakur kafli — kaflinn um Framsóknarflokkinn. Þar verður sá grimmi vefur, sem örlaganornir hafa spunnið einstökum mönnum í þeim flokki og honum í heild, rakin. Til þess gefst ekki tími hér, enda — mér liggur við að segja því miður — ekki víst að enn sé drukkinn í botn sá eiturbikar sem gegnir lykilhlutverki í síðasta þætti þess harmleiks.
Að lokum þetta: Víglínan í baráttunni um efnahagslegt og stjórnmálalegt sjálfstæði Íslands hefur í þessu máli verið að færast til. Hún er ekki lengur við hafsbrún. Hún liggur um þvera garða og mitt á meðal vor. Hún liggur langsum og þversum gegnum stjórnmálaflokka sem hér á hinu háa Alþingi eiga fulltrúa sína. Framsfl. hefur nú gengið í lið með íhaldinu þótt einstakir þm. séu með böggum hildar við að sáldra moði yfir mykjuna. Í sameiningu ætla þessir flokkar nú að hengja jólastjörnu fyrirgefningar og syndaaflausnar á flórkálfinn Alusuisse.
Í glímunni um efnahagslegt og stjórnmálalegt sjálfstæði og fullveldi íslensku þjóðarinnar hefur orrusta tapast, en baráttan heldur áfram. — Góðar stundir.