29.11.1984
Neðri deild: 18. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1510 í B-deild Alþingistíðinda. (961)
143. mál, álbræðsla við Straumsvík
Kristín Halldórsdóttir:
Herra forseti. Góðir hlustendur. Á heildina litið er þessi samningur ríkisstj. við Alusuisse með öllu óviðunandi. Langtímahagsmunum okkar hefur verið fórnað fyrir stundarágóða, og fyrir þennan stundarágóða hefur ríkisstj. fallist á allar meginkröfur Alusuisse, niðurfellingu deilumála og stækkun álbræðslunnar í straumsvík. Þess vegna hafnar Kvennalistinn þessum samningi.
Rökin fyrir afstöðu okkar eru eftirfarandi:
Í fyrsta lagi. Þrátt fyrir nokkra hækkun raforkuverðsins mun ÍSAI. ekki greiða það verð fyrir orkuna sem nemur framleiðslukostnaði í núverandi virkjanakerfi landsins.
Í öðru lagi. Sú hækkun, sem þó hefur fengist á orkuverðinu, er ekki varanleg þar sem orkuverðið er ekki verðbólgutryggt.
Í þriðja lagi. Orkuverðið er tengt heimsmarkaðsverði á áli, sem þýðir að til viðbótar við velþekktar sveiflur á fiskmörkuðum okkar er hið viðkvæma íslenska hagkerfi nú einnig háð sveiflum á álmörkuðum.
Í fjórða lagi. Í ákvæði um endurskoðun samningsins er sá fyrirvari að endurskoðun sé háð því að „orðið hafi teljandi og ófyrirsjáanlegar breytingar til hins verra á aðstæðum.“ Þessi fyrirvari bindur hendur okkar þannig, að við munum vart ná fram endurskoðun á þeirri forsendu að raungildi raforkuverðsins hafi lækkað vegna dollaraverðbólgu.
Í fimmta lagi er með þessum samningi fallið frá málarekstri á hendur Alusuisse þrátt fyrir góða vinningsstöðu í þeim málum sem til meðferðar voru fyrir dómnefndum, bæði í Reykjavík og New York.
Í sjötta lagi er svo það, að meðfram þessum samningi er gefið fyrirheit um stækkun álbræðslunnar í Straumsvík með forkaupsrétti Alusuisse að orku úr nýjum virkjunum.
Þannig hefur ríkisstj. í rauninni selt allt sem seljanlegt var til þess að ná fram orkuverðshækkun sem í reynd er upp á fáein mill, og mun ég nú á þeim mínútum, sem ég hef hér til umráða, útskýra þá fullyrðingu nánar.
Í samningnum er kveðið á um að orkuverðið til ÍSALs skuli vera á bilinu 12.5–18.5 mill á kwst. og breytast í samræmi við heimsmarkaðsverð á áli. Í dag mun þetta þýða að orkuverðið er um 12.8 mill á kwst. og miðað við horfur á álmarkaðnum áætlar Landsvirkjun að meðalverð orkunnar til ÍSALs á næsta fimm ára tímabili, þ.e. fram til ársins 1989, verði 13.7 mill á kwst. Meðalkostnaðarverð hverrar kwst. af orku úr virkjanakerfi landsins miðað við orkugetu 1983 er hins vegar 16 mill skv. útreikningum Landsvirkjunar, en 18.9 mill ef kostnaður vegna ónýttrar umframorku og þeirrar orku sem Landsvirkjun kaupir af öðrum virkjunum er tekinn með í reikninginn. Það má því augljóst vera að hið dýrkeypta orkuverð til ÍSALs verður á næstu fimm árum töluvert undir því sem kostar að framleiða orkuna og er þá sama við hvora töluna er miðað. Tekið skal fram í þessu tilliti að ekki þýðir að miða við kostnaðarverð úr einstökum virkjunum eða mismunandi kostnaðarverð til stóriðju og almenningsveitna, þar sem hér er um að ræða afkomu Landsvirkjunar í heild og alls orkubúskapar landsmanna, en ekki afkomu einstakra virkjana innan fyrirtækisins. Samkvæmt þessum samningi munum við því halda áfram að afhenda Alusuisse orkuna á lægra verði en kostar að framleiða hana, Landsvirkjun mun ekki fá réttmætan arð af orkusölunni í sinn hlut og tapið á orkubúskapnum munu landsmenn áfram bera, m.a. í háu raforkuverði til almenningsveitna og til innlendra atvinnugreina.
Athyglisvert er að þessi orkusölusamningur er gerður á sama tíma og önnur lönd hafa — samkvæmt gerðardómi — fengið fram mun hærra orkuverð til álvera en hér er á ferðinni. Og við vitum að Alusuisse þarf að greiða töluvert hærra orkuverð annars staðar í heiminum eða 16.5 mill að meðaltali á kwst. samkvæmt upplýsingum hæstv. iðnrh. á Alþingi 25. okt. s.l. Skyldi því engan undra að á sama tíma og Alusuisse er að leggja niður álbræðslur sínar annars staðar í heiminum, t.d. í Bandaríkjunum, leggja þeir kapp á að stækka álbræðslu sína hér.
Og lítið stoðar okkur að bera nýja raforkuverðið til ÍSALs saman við meðalorkuverð til álvera annars staðar í Evrópu. Samkvæmt útreikningum Landsvirkjunar mun það nú vera um 14.6 mill. á kwst. Sumir telja að hér sé um óraunhæft mat að ræða þar sem í þessari tölu sé ekki gerður greinarmunur á orkuviðskiptum skyldra og óskyldra aðila og að sambærileg orkuverðstala sé ekki 14.6 mill, heldur 25.6 mill. Hvora töluna sem menn vilja sannari hafa fer ekki hjá því að orkuverðið til ÍSALs nær ekki lægra matinu á meðalorkuverði til álvera í Evrópu. Því er oft haldið fram að það sé eðlilegt vegna lakari samkeppnisaðstöðu okkar í álframleiðslu, en þá má spyrja á móti hvers vegna í ósköpunum lagt er kapp á að byggja upp áliðnað hér á landi ef hann er ekki samkeppnishæfur við sambærilegan iðnað í nágrannalöndunum.
Um deilumálin mætti hafa langt mál, en ég vil aðeins nefna hér tvö atriði. Ljóst er að þegar sú ákvörðun var tekin að falla frá málarekstri á hendur Alusuisse, þá höfum við góða vinningsstöðu í þeim málum sem til meðferðar voru fyrir dómnefndum, bæði í Reykjavík og New York. Um það er engum blöðum að fletta að þessum málum var fórnað fyrir þá orkuverðshækkun sem ég hef hér fjallað um. Ef til vill hefur þar eitthvað fleira verið á ferðinni, svo sem óþægindi þess að Alusuisse yrði berlega uppvíst að svikum í okkar garð. Óþægindi fyrir hvern er svo aftur önnur spurning sem hver og einn getur dundað sér við að svara, en víst er að svarið við þeirri spurningu tekur til þess hver hafi verið að gæta hagsmuna hverra í þessu máli.
Einnig er ljóst að í framtíðinni munum við ekki hafa sama lagagrundvöll gagnvart Alusuisse hvað varðar verð á aðföngum til álbræðslunnar því það ákvæði aðalsamningsins sem kveður á um að álbræðslunni skuli útveguð aðföng „með bestu skilmálum og skilyrðum sem fyrir hendi eru“ er nú fellt brott. Þar með er farið það ákvæði sem einna haldbest reyndist í málarekstri okkar fyrir dómnefndum og það er fellt burtu á sama tíma og upplýst er á Alþingi að Alusuisse haldi áfram uppteknum hætti gagnvart okkur í sínu margfalda bókhaldi. M.ö.o.: þegar við vitum að Alusuisse hefur á undanförnum árum hlunnfarið okkur og heldur því áfram, þá er fallið frá öllum kærumálum okkar á þeirra hendur, þeim er gefið skinandi hreint siðgæðisvottorð hvað fortíðina varðar og um leið er kippt burt mikilvægri stoð þess að við getum í framtíðinni sótt rétt okkar á þeirra hendur í þessum málum. Þessi málatilbúnaður er með svo miklum ólíkindum að menn hljóta að velta fyrir sér hvort íslensku samningamönnunum hafi verið sjálfrátt.
Herra forseti. Góðir hlustendur. Samningur ríkisstj. við Alusuisse er gjörsamlega óviðunandi og ber að fella þetta frv. Það flokkast ekki undir lúxus, eins og hv. þm. Guðmundur Einarsson orðaði það hér áðan. Reisn og sæmd í viðskiptum við erlendan auðhring má aldrei flokkast undir lúxus. Við eigum sjálf að byggja upp atvinnulífið í landinu — atvinnulíf sem tekur mið af framtíðinni og er í sátt við náttúru þessa lands og fólkið sem það byggir. — Ég þakka þeim sem hlýddu og býð góða nótt.