29.11.1984
Neðri deild: 18. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1512 í B-deild Alþingistíðinda. (964)
143. mál, álbræðsla við Straumsvík
Ellert B. Schram:
Herra forseti. Við 2. umr. þessa máls í gærkvöld gerði ég grein fyrir afstöðu minni. Að mínu mati eru ýmsir hnökrar á þessum samningum og ég hef talið æskilegra að þd. hefði verið gefinn kostur á því að greiða atkvæði um hvert einstakt ákvæði samningsins, en því er ekki að heilsa. Kjarni málsins er þó sá, að með þessum samningum hefur verið samið um stórhækkað raforkuverð, sættir hafa tekist í miklu deilumáli og skilyrði eru sköpuð til aukinnar sóknar og nýtingar á fallvötnum landsins. Með vísan til þessara raka og þessara meginsjónarmiða lýsi ég mig samþykkan staðfestingu á viðaukasamningi milli ríkisstjórnarinnar og Alusuisse um álbræðslu í Straumsvík. Ég segi já.