10.12.1985
Sameinað þing: 28. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1317 í B-deild Alþingistíðinda. (1003)
Viðskipti Hafskips og Útvegsbankans
Matthías Á. Mathiesen:
Herra forseti. Ég skal ekki lengja þessar umræður. Það er aðeins út af því sem fram kom í ræðu hv. síðasta ræðumanns, 7. þm. Reykv., varðandi dagsetningar til þess að menn geti betur gert sér grein fyrir aðgerðarleysi eða aðgerðum þess sem sat í stól viðskrh. á s.l. sumri.
Í grg. hæstv. viðskrh. fyrr í dag sagði hann, með leyfi forseta: „Síðari hluta júnímánaðar voru þessi mál enn rædd við bankastjóra Útvegsbankans“ - og er þá verið að miða við að fyrri umræður höfðu farið fram árið 1984 - „og fékk Seðlabankinn þá í hendur yfirlit um skulda-og tryggingastöðu Hafskips við Útvegsbankann“, þ.e. það yfirlit sem hér hefur verið um talað 3. júní. Á grundvelli þessa yfirlits og viðræðna síðan síðari hluta júnímánaðar og fyrri hluta júlímánaðar er viðskrn. svo send sú skýrsla sem hér hefur verið til umræðu, dagsett 30. júlí.
Ég gat þess, og það kom einnig fram í ræðu hæstv. viðskrh., að viðskrh. ræddi í ágústbyrjun við bankastjóra Útvegsbankans þessa skýrslu og þá niðurstöðu sem hún gaf. Þá var viðskrh. tjáð það samkomulag sem gert hafði verið á milli stjórnar Hafskips og stjórnar Útvegsbankans. Það er svo í byrjun september sem ný skýrsla kemur, 9. september, og 13. september er haldinn fundur bankastjórnar Seðlabankans og Útvegsbankans ásamt og með viðskrh. sem beitti sér fyrir þeim fundi. Á þeim fundi kemur fram að það eru hafnar viðræður á milli Hafskips og Eimskips um yfirtöku eða kaup á eignum og viðskiptavild fyrirtækisins. 16. september átti ég svo viðræður við formann bankaráðsins. Það er haldinn fundur í bankaráðinu 17. september, það er haldinn fundur þar 27. september.
Þegar fundurinn er haldinn 13. september kom fram að hafnar eru viðræður milli Eimskips og Hafskips um kaup á eignum og/eða viðskiptavild fyrirtækisins. Var nokkuð eðlilegra en að þessar viðræður gætu haldið áfram? Ég er viss um að hefðu þær ekki verið truflaðar, eins og raun bar vitni, værum við ekki hér í kvöld að ræða um niðurstöðu þá sem varð. Það hefði að mínum dómi ekki orðið jafnmikill skaði og raun varð á. Ég tel þess vegna að allt sem gert var á þessum tíma, sem ég hef um getið, hafi verið gert út frá því sjónarmiði að sem allra minnstur skaði hlytist af því sem þarna var að gerast.