11.12.1985
Efri deild: 25. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1319 í B-deild Alþingistíðinda. (1006)

184. mál, verðjöfnunargjald af raforkusölu

Kolbrún Jónsdóttir:

Virðulegi forseti. Aðeins örfá orð um þetta frv. Í niðurstöðu nefndarinnar, sem fjallaði um þetta mál, var lagt til að þetta verðjöfnunargjald yrði fellt niður nú um næstu áramót en í stað þess mundi ríkissjóður taka yfir skuldir. Það er vert að velta því fyrir sér: Hvað eru þessar skuldir sem ríkissjóður hefði tekið yfir háar? Hjá Rafmagnsveitum ríkisins eru þetta 2 975 000 000. Og hjá Orkubúi Vestfjarða eru þetta 816 000 000 kr. Þetta yrði því ansi þungur baggi á ríkissjóð í viðbót við allt annað sem nægilega hefur verið fjallað um að undanförnu og ég ætla ekki að fara meira út í. Það er aðeins ein sönnunin enn um að óráðsía sú sem gengið hefur á undanförnum árum, óráðsía sem felst í því að fjárfesta í óarðbærum fyrirtækjum (EgJ: Það er búið að taka...) Það er verið að framkvæma, Egill Jónsson, hluti víðs vegar um land, setja upp orkuver sem við getum ekki einu sinni nýtt orkuna frá vegna þess að við þurfum ekki á svo mikilli orku að halda eins og framleiðslugetan segir til um.

Ég vil aðeins nefna eitt dæmi: Rafmagnsveitur ríkisins borga nú á næsta ári yfir 400 millj. í vexti. Rafmagnsveitur ríkisins hafa þurft að taka lán. Þeir taka ekki sjálfir ákvörðun um hvenær þeir taka lán eða á hvaða kjörum því að þá ákvörðun tekur ríkissjóður. Og þeir hafa þurft að taka við lánum mun fyrr en þeir hafa þurft að nýta þessi lán og á mjög óhagstæðum kjörum.

Mér er kunnugt um að það er verið að reyna núna að lagfæra þetta að einhverju leyti. Dollaralán t.d. á 13% vöxtum er mjög óhagstætt. En hér er aðeins verið að gefa ársfrest til þess að endurskoða þessa hluti einu sinni enn. Ég vil endilega að þetta komi fram. Það er ekki verið að styrkja fólkið í landinu. Hér er aðeins verið að flytja til fjármagn frá ríkissjóði en á endanum verður ríkissjóður að taka við þessum lánum - yfir 3 milljarðar í viðbót.