11.12.1985
Efri deild: 25. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1325 í B-deild Alþingistíðinda. (1016)

185. mál, iðnráðgjafar

Helgi Seljan:

Virðulegi forseti. Ég skal ekki hafa mörg orð hér um og vonast til þess að það að ég komi hér upp verði ekki til þess að hér hefjist allsherjar umræða og það sérstaklega af hálfu þeirra stjórnarliða sem virðast vera í essinu sínu í dag að ræða hér mál. Ekki harma ég það, síður en svo. Ég fagna því hins vegar að hæstv. ríkisstj. hefur þó vaknað af værum blundi og áttað sig á því að fjöldi frumvarpa þarf að fara hér í gegn síðustu 8-10 starfsdaga þingsins auk stórmála eins og álsamnings og fiskveiðistjórnunar. (Gripið fram í.) Álsamningur er ekki stórmál, segir hv. þm.? Nei, ég býst við því að hann sé það ekki í hans augum en ég tel hann nú býsna mikilvægan engu að síður. Ég er ekki viss um að allir flokksbræður hv. þm. séu sammála um það - að ekki sé minnst á fjárlög og afgreiðslu þeirra.

En jafnframt því sem ég fagna því að þarna hefur ríkisstj. rankað við sér held ég að það beri að átelja það alveg sérstaklega hversu seint þessi mörgu einföldu mál, hrein framlengingarmál sum hver, eru hér á ferðinni, svo sem þetta mál hér er gott dæmi um. Mál hrúgast hér enn einu sinni inn á borð okkar þm. - ekki kannske mjög flókin en mál sem þarf að afgreiða, þurfa ákveðinn tíma í nefndum og m.a., eins og málið sem hæstv. iðnrh. var að mæla fyrir áðan, mál sem greinilega eru skiptar skoðanir um jafnvel meðal stjórnarliða hér inni. Þeir hafa ekki einu sinni náð fullri einingu um það innan ríkisstj.

Ég segi þetta hér vegna þess að hér er um mál að ræða sem geta ekki hafa þurft að bíða svo lengi framlagningar og ég held að margfrægur stólasirkus í haust geti ekki réttlætt þetta heldur. Ég sé að hér eru fjögur ný mál á ferð í dag, það eru tvö eða þrjú í Nd. Ég sé ekki nokkra afsökun fyrir því að öll skuli þau ekki a.m.k. hafa komið fram í byrjun mánaðarins og raunar miklu fyrr.

Ég vil taka það fram að ég er ekkert frekar að tala þetta til hæstv. iðnrh. nema síður væri því að ýmislegt sækir að honum nú um stundir. En fyrir ríkisstj. og gagnvart Alþingi eru þetta hin verstu vinnubrögð. Þau eru ekki ný að vísu, eins og ég sagði áðan, en þau versna stöðugt og ég veit þó að ekki hafa forsetar þingsins frekar en oft áður legið á liði sínu við að ýta á eftir og hreyfa við þessari ráðlausu ríkisstj. En ráðleysið og það sem hér var kallað áðan „hringlandahátturinn“ þarf ekki endilega að endurspeglast hér inni í þingsölum í öllum málum, eins og gerist nú æ ofan í æ.

Ég mun ekki ræða þetta frv. efnislega nú þó að ærin ástæða væri til. Ég segi það aðeins að ég fagna því að þessi löggjöf verður framlengd þó að ég hefði viljað sjá hana nokkuð öðruvísi en í því formi sem þarna er kynnt. Ég fullyrði að hér er eitt þeirra mála sem skipta mjög miklu fyrir landsbyggðina og færa þarf í enn styrkari og betri farveg með eflingu iðnþróunarfélaga heima fyrir, með enn frekari ráðgjöf og þjónustu og með fjárhagslegri aðstoð þar sem um skynsamlegar og arðbærar framkvæmdir yrði að ræða.

Það er miklu miður, eins og ég sagði áðan, að ekki hefur náðst samkomulag um ágætar tillögur sem hér fylgja með og greinilegt að ekki stendur til nú síðar á þessu þingi að gera út um það mál vegna þess að í athugasemdum með frv. stendur: „Stefnt er að því að frv. um framtíðarskipan iðnráðgjafar í landshlutunum verði lagt fyrir Alþingi í október 1986“ - þ.e. eftir tæpt ár. Ég hefði miklu frekar kosið að þetta frv. yrði lagt fram nú á þessu þingi og treysti reyndar hæstv. iðnrh. til að sjá til þess að svo verði.

Iðnráðgjafalöggjöf sú, sem Hjörleifur Guttormsson kom á og fleira sem því tengdist, var einn liður af mörgum í því framtíðarplani sem hann lagði um virka innlenda iðnaðarstefnu sem hann setti fram og barðist fyrir. Um það skulu heldur ekki höfð orð hér.

Ég treysti hæstv. iðnrh. til að fullvinna framhaldsstarf og nauðsynlegar breytingar svo sem hér eru lagðar til. Ég bendi hæstv. iðnrh. sérstaklega á að í þessu efni er honum áreiðanlega óhætt að taka ríkt tillit til sjónarmiða Austfirðingsins í nefndinni, flokksbróður hans

Theodórs Blöndals, sem þekkir þessi mál flestum betur heima í héraði, hefur gert sér grein fyrir því hvernig iðnþróunarfélögin eiga sérstaklega að koma inn í þetta mál og hvernig þetta er unnið og hefur fastmótaðar hugmyndir um það sem gera skal, eins og hér kemur reyndar glögglega fram. Þess vegna hefði ég vænst þess að um þetta gæti náðst samstaða innan ríkisstj., a.m.k. að hægt væri að leggja þetta frv. fram nú á þessu þingi þannig að við værum örugg um að ný, fullkomnari og betri löggjöf um þetta efni kæmi til framkvæmda um þarnæstu áramót.