11.12.1985
Efri deild: 25. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1336 í B-deild Alþingistíðinda. (1028)
2. mál, lánsfjárlög 1986
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir:
Virðulegi forseti. Mér þykir eðlilegt að hæstv. fjmrh. sé viðstaddur þessa umræðu um frv. til lánsfjárlaga. (Forseti: Fjmrh. mun vera rétt ókominn. Ef ræðumaður vill hinkra við, þá held ég að það þurfi ekki að líða löng stund.)
Í umræðum utan dagskrár um málefni Útvegsbankans og Hafskips í sameinuðu þingi í gær bar margt á góma og víða var leitað fanga. En eitt var það sem velflestir þv. ræðumenn, sem þá tóku til máls, gerðu að umtalsefni og það var hversu þungbært, sumir sögðu óréttlátt, aðrir siðlaust - hversu þungbært, óréttlátt eða siðlaust það væri að íslenska þjóðin yrði að taka það á sínar herðar að greiða þann skuldabagga sem stjórnendur Hafskips og Útvegsbankans nú leggja á þessa margpíndu þjóð. Og víst er það siðlaust, þungbært og óréttlátt að svo skuli vera. Ég nefni þetta við upphaf orða minna um það lánsfjárlagafrv. sem hér er nú til 2. umr. í hv. Ed. vegna þess að það sem við erum að fjalla um í lánsfjárlögum er m.a. hvernig skuli fjármagna öll fjárfestingarmistökin sem ríkisstjórnir undanfarinna áratuga eru ábyrgar fyrir og sem landsmenn pínast nú undan. Þar vil ég einkum nefna óhóflegar og óarðbærar fjárfestingar í stórvirkjunum þar sem stærstu fjárhæðirnar í fjárfestingarbúi ríkisins hafa löngum verið. En fleira má nefna eins og t.d. óseljanlega og ónýtanlega togara. Það er undan þessum skuldabagga sem íslenska þjóðarbúið stynur nú og það er hans vegna sem menn komast upp með það að borga fólki ekki mannsæmandi laun hér á landi. Auðvitað er þetta líka óréttlátt og siðlaust, fyrir utan það að vera þungbært.
Við skyldum þess vegna ætla að allt kapp væri lagt á það hjá núv. hæstv. ríkisstj. að draga úr erlendum lántökum, enda slíkt iðulega haft á orði hjá þeim aðilum. En hver er reyndin? Eins og fram kemur í nefndaráliti minni hl. hv. fjh.- og viðskn., sem ég stend að ásamt hv. þm. Eiði Guðnasyni og Ragnari Arnalds og sem hv. þm. Ragnar Arnalds hefur þegar gert grein fyrir, kemur í ljós að á síðasta ári var ekki um samdrátt í erlendum lántökum að ræða. Hv. þm. Ragnar Arnalds, sem gerði grein fyrir minnihlutaáliti hv. fjh.- og viðskn. hér áðan, gerði einnig grein fyrir því að nú fæst ekki með góðu móti reiknað hvort um hækkun á erlendum lánum sé að ræða milli ára vegna þess að nú hefur verið tekin upp ný reikningsaðferð við reiknum lánshlutfalls miðað við landsframleiðslu og þessi tala fæst því ekki upp gefin. Vitaskuld er það mjög slæmt og má með ólíkindum heita að menn geti stjórnað fjárreiðum ríkisins frá ári til árs án þess að fá slíkar tölur upp gefnar. Því hlýt ég að gera ráð fyrir því að hæstv. fjmrh. hafi þessar tölur og beini því til hans, ef hann kemur hér í stólinn á eftir, að uppfræða hv. þingdeildarmenn um það hvernig útlitið sé með þessa hlutfallstölu í ár. Hana hlýtur hann að hafa.
En hvað sem kemur á daginn í þeim efnum við þessa umræðu eða þá við 3. umr., því að þegar hefur verið upplýst að það vantar töluvert af þeim stærðum sem eiga að vera í þessu fjárlagadæmi, langar mig til að spyrja hv. þingdeildarmenn hvort þeir hafi gert sér grein fyrir því t.d. að á næsta ári ætlum við að taka 300 millj. kr. erlent lán til flugstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli. Finnst ykkur þetta virkilega vera nokkurt vit og það þegar nýlegar upplýsingar benda til þess að erlendar lántökur verði, hvort sem mönnum líkar betur eða verr, öllu meiri á næsta ári en gert er ráð fyrir í þeim drögum að lánsfjárfrv. sem eru hér til umræðu?
Samkvæmt upplýsingum sem fjvn. fékk hjá Þjóðhagsstofnun í fyrradag er nú útlit fyrir að kostnaðarhlið fjárlagafrv. muni hækka mun meira en tekjuhliðin og mismunurinn því verða meiri en ráð var gert fyrir. Halli á fjárlögum í ár verður því meiri en búist var við. Tala menn um að hann muni geta orðið 2-21/2 milljarður kr. og þá frekar nær 21/2 milljarði en 2.
Það eru aðeins þrjár leiðir til að eiga við þennan halla: það er frekari niðurskurður, það eru auknir skattar eða auknar erlendar lántökur. Ég er því ekki í nokkrum vafa um, þótt stærðir séu á reiki þessa stundina í fjárlagadæmi ríkisins, að hlutfall erlendrar lántöku í lok ársins 1986 verður öllu hærra en gert er ráð fyrir í þessu lánsfjárfrv. Það er því augljóst að núv. ríkisstjórn, rétt eins og sú á undan og sú þar á undan, safnar enn skuldum handa afkomendum sínam að pínast undir.
Virðulegi forseti. Ég vil aðeins ræða einstakar greinar frv. og þá fyrst 3. gr. þess. Meiri hl. hv. fjh.- og viðskn. leggur til á þskj. 228 að sú breyting verði gerð á 3. gr. frv. að lækka lánveitingar til Landsvirkjunar um 250 millj. kr., úr 740 millj. í 490 millj. Þetta er ágætis tillaga þótt betra hefði verið ef lengra hefði verið gengið því að það má með sanni segja að við höfum lítið við frekari framkvæmdir Landsvirkjunar að gera þessa stundina. Hún er ágæt svo langt sem hún nær og mun ég greiða henni atkvæði mitt á eftir. Það hefur verið frá upphafi eitt af baráttumálum Kvennalistans að draga úr þeim óhóflegu virkjanaframkvæmdum sem mér liggur við að segja að hafi geisað hér á landi um árabil. Ég ræddi áðan um afborganir af erlendum skuldum sem okkur hefur þegar verið steypt í. Þar er virkjanaþátturinn ekki smár. Ég fagna því þeirri stefnubreytingu í virkjanamálum sem þessi brtt. virðist fela í sér og vil í leiðinni minna á að fyrir u.þ.b. ári varði Morgunblaðið heilum leiðara í að hneykslast á þeim þm. Kvennalistans sem hér stendur fyrir að leyfa sér að mæla á móti áframhaldandi virkjanaframkvæmdum hér á landi og með því að Blönduvirkjun yrði frestað enn um sinn. Fyrir ári náði Morgunblaðið ekki upp í nefið á sér yfir þvílíku afturhaldi, eins og leiðarahöfundur kallaði það þá. Nú er hæstv. iðnrh. hins vegar búinn að fresta Blönduvirkjun og hæstv. fjmrh. sker enn við nögl til Landsvirkjunar. Auðvitað fagna ég því að þessir hæstv. ráðherrar Sjálfstfl. skuli hafa séð ljósið í þessum efnum, eins og stundum er sagt, og þeim sinnaskiptum sem ég hef orðið vör við hjá fleirum en þeim í þessum málum.
Nátengd þeirri stefnu sem rekin er í virkjanamálum á hverjum tíma hlýtur að vera sú stefna sem rekin er í iðnaðarmálum. Þótt virkjanastefna núv. ríkisstj. hafi tekið breytingum er greinilegt að það hefur iðnaðarstefnan ekki gert því í seinni hluta 3. gr. lánsfjárlagafrv. er gert ráð fyrir að heimila Landsvirkjun að taka lán allt að 200 millj. kr. ef semst um stækkun álversins í Straumsvík á árinu 1986. Það er því ljóst að gamli stóriðjudraumurinn er engan veginn dauður úr öllum æðum hjá ríkisstj. Og ekki er sú hugmynd heldur af baki dottin að eiga aukin samskipti við auðhringinn Alusuisse í þeim efnum því eins og allir hv. þingdeildarmenn vita: Ef af stækkun álversins við Straumsvík yrði, þá yrði það í samstarfi við þennan viðsjárverða auðhring á einn eða annan hátt. Ég hef hér oftsinnis varað við slíkum áformum, ekki síst vegna þess að þar með yrði þessi raforkukaupandi enn stærri en hann þegar er í íslensku efnahagslífi og þeir sem kynnt hafa sér viðskipti okkar við þennan aðila og sögu þeirra vita að slíkt væri glapræði. Við 3. umr. um þetta frv. mun ég því bera fram brtt. þess efnis að þessi heimild Landsvirkjunar falli niður. Geymi ég mér frekari umræðu um það þar til þá.
Samkvæmt venju er II. kafli lánsfjárlagafrv. helgaður skerðingum á lögbundnum framlögum til hinna ýmsu málefna og er hin versta lesning. Þar er af mörgu að taka, en einkum vil ég minna á framlög til Kvikmyndasjóðs. Í því frv. sem fyrir okkur var lagt í haust og hér er til umræðu er hvergi að finna eitt orð um Kvikmyndasjóð þannig að upphaflega virðist honum ekki hafa verið ætlað neitt fé. Nú er hins vegar komin brtt. frá meiri hl. fjh.- og viðskn. þess efnis að framlög til Kvikmyndasjóðs nemi 16 millj. kr. sem mun vera helmingur þess sem honum er ætlað samkvæmt lögum. Það er einstaklega nöturlegt að þessi sjóður skuli enn á ný lenda undir niðurskurðarhnífnum þar sem lögin um þennan sjóð voru samþykkt í tíð þessarar hæstv. ríkisstj. eða vorið 1984. Menn hljóta að spyrja enn á ný: Til hvers er verið að setja lög ef ekki á að fara eftir þeim? Einnig er það nöturlegt í ljósi þess hversu lífvænleg þessi listgrein er hér á landi og vænleg til árangurs og jafnvel til þess að skila tekjum í þjóðarbúið ef vel er á málum haldið. En þetta er ekki síður nöturlegt vegna þeirrar menningarstefnu sem rekin er af þessari ríkisstjórn - eða menningarstefnuleysi ætti ég e.t.v. frekar að segja því að það er bókstaflega engum peningum varið til menningarmála hér á landi og sést það glöggt ef fjárlagafrv. er skoðað.
Ef menningarmáladæmið, eins og það er stundum kallað, yrði gert upp, ef það yrði gert upp hversu miklar tekjur ríkið hefur af menningarstarfsemi hér á landi og þær settar upp á móti þeim styrkjum sem veittir eru til þessara mála kæmi mér ekki á óvart að það hallaði heldur á ríkissjóð, þ.e. að ríkissjóður fengi meira í sinn hlut en þeir sem skapandi listir stunda. Formaður Rithöfundasambandsins, Sigurður Pálsson, hefur nýlega gert þetta dæmi upp fyrir rithöfunda og hann komst að því að á meðan innan við 10 millj. er veitt í Launasjóð rithöfunda skilar vinna rithöfunda yfir 100 millj. kr. í söluskatti til ríkissjóðs, svo ekki sé minnst á annan arð sem fylgir sköpunarstarfi rithöfunda og sem skilar sér með einum eða öðrum hætti í ríkissjóð, eins og skattar og skyldur prentsmiðjueigenda, bókaútgefenda og annarra.
Á sama tíma og þetta er ástandið í fjármálum menningarmála hér á landi heldur núv. hæstv. menntmrh. hátíðarsamkomur um verndun íslenskrar tungu og flytur þar merkar þjóðhátíðarræður um að snúa vörn í sókn gegn þeirri holskeflu erlends afþreyingarefnis, þar á meðal kvikmynda, ég er enn að tala um Kvikmyndasjóð, sem skellur á okkur eftir áramót þegar frv. fyrrv. hæstv. menntmrh. til útvarpslaga tekur gildi. Í ljósi þess að umrædd útvarpslög voru borin fram af núverandi ríkisstjórn og í ljósi fjárframlaga þessarar ríkisstj. til menningarmála er ljóst að hátíðaræður hæstv. menntmrh. duga skammt til að breiða yfir að stefna þessarar ríkisstj. í menningarmálum er í raun og veru menningu þessa lands fjandsamleg. Meðferðin á Kvikmyndasjóði í lánsfjárlögum er lítið dæmi um það.
Mig langar til að segja fáein fleiri orð um þennan skerðingarkafla, sem er í frv., þótt ég ætli ekki að gera neina tilraun til að fjalla tæmandi um hann.
Samkvæmt frv. og þeim brtt. sem fram hafa komið við það er áættað að Byggingarsjóður ríkisins fái í sinn hlut í ár 1 milljarð og 300 millj. kr., en samkvæmt lögum á hann að fá 760 millj. kr. Þetta virðist í fyrstu mjög glæsilegt. Þarna virðist vera nánast um tvöföldun að ræða. Í erindi frá Fjárlaga- og hagsýslustofnun til fjh.- og viðskn., þar sem þessar tölur eru settar fram, kemur hins vegar fram neðanmáls að af þessum 1300 millj. eru 600 millj. til sérstakrar fjáröflunar í húsnæðismálum. Þessar 600 millj. komu til ríkissjóðs samkvæmt lögum um hækkun söluskatts sem samþykkt voru hér á s.l. vori og samkomulag var um milli ríkisstj. og stjórnarandstöðu að ættu að fara til sérstakrar aðstoðar við þá sem illa væru staddir í sínum fjármálum vegna húsbygginga eða íbúðakaupa. Eftir stendur að þegar búið er að draga þessar 600 millj. kr. frá, sem eru ekki í þeim lögum sem gilda um aðra aðstoð við húsbyggjendur, vantar 60 millj. kr. upp á að Byggingarsjóði ríkisins sé áætlað nægt fé.
Einnig vil ég segja fáein orð um að Byggingarsjóði ríkisins sé ætlað það sem honum ber samkvæmt lögum. Ég er ekki að segja að það sé nóg, en það sem honum ber samkvæmt lögum.
Eins langar mig til að segja fáein orð um ferðamálin því að ljóst er að sá liður er skertur um nánast helming. Það finnst mér slæmt því að ég tel að í þeim málum sé töluverð von um auknar tekjur fyrir ríkið ef vel er á haldið og minni á tillögu Kvennalistans frá því í fyrra um eflingu ferðaþjónustu, en þar kemur fram, í grg. við þá tillögu, að á árinu 1984 er talið að ferðaþjónusta hafi skilað rúmlega 2 milljörðum kr. í þjóðarbúið. Þar af eru um 1100 millj. kr. gjaldeyrir sem ferðamenn skiptu hérlendis og um 930 millj. kr. skiluðu sér um flugfélögin. Þetta voru þá um 8% af útflutningsverðmætum þjóðarbúsins og fyrir þessum verðmætum unnu 5-6% af mannafla þjóðarinnar. Það er ljóst að þarna eru stórar fjárhæðir á ferðinni. Það er líka ljóst að ef við höfum vit á að varðveita okkar land og verja það ágangi manna og véla, liggur mér við að segja, gætum við haft af þessu drjúgan tekjustofn. Því þykir mér slæmt að sjá að framlög til þessara mála skuli vera skorin niður.
Frá hv. þm. Helga Seljan liggur hér ein brtt. við þetta frv. til lánsfjárlaga, um mengunarvarnir í fiskimjölsverksmiðjum. Sýnist mér að þar muni vera skynsamleg till. á ferðinni. Það kom fram á fundum fjh.- og viðskn., sem ræddi þessa till., að þær mengunarvarnir, sem hér um ræðir, mundu stuðla að betri nýtingu hráefnis og vera orkusparandi þar að auki og að með þessu móti gætu fiskimjölsverksmiðjur framleitt mjöl sem er það próteinríkt að hægt er að nota það til fiskeldis. Þetta tel ég ákaflega vænlegt vegna þess að ég er sannfærð um að fiskeldi er atvinnugrein eða bústofn - við getum nefnt hana bústofn líka - sem við megum vænta okkur mikils af í framtíðinni. Ég mun því styðja þessa brtt. þegar hún kemur til atkvæða á eftir.
Virðulegi forseti. Við 1. umr. þessa frv. gerði ég athugasemdir við þann hringlandahátt sem verið hefur í tillögugerð í fjármálum ríkisins á þessu hausti. Lánsfjárlög verður nú að afgreiða með fjárlögum fyrir áramót vegna hins nýja fyrirkomulags í þessum málum, en nú á síðustu dögum þingsins fyrir jólaleyfi þingmanna eru stærðir þessara mála enn ekki ljósar. Þeir nefndarmenn í hv. fjh.- og viðskn. Ed. sem hér hafa talað á undan mér hafa bent á að engin leið sé að leggja mat á þetta frv. né fjárreiður ríkisins við þessar aðstæður. Og nú er það stóra spurningin: Skyldi hæstv. fjmrh. hafa nokkur tök á því sjálfur?