23.10.1985
Neðri deild: 6. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 125 í B-deild Alþingistíðinda. (103)

61. mál, kosningar til Alþingis

Landbrh. (Jón Helgason):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um breyting á lögum um kosningar til Alþingis. Frv. þetta var lagt fyrir Alþingi á s.l. vori en hlaut þá eigi afgreiðslu og er frv. nú því endurflutt.

Í framsögu með frv. á síðasta þingi var gerð grein fyrir helstu breytingum er í því felast. Eru þær flestar lagfæringar til samræmis við breytingar sem gerðar voru á kosningalögunum vorið 1984 samfara stjórnarskrárbreytingunni þá. Voru tillögur þessar undirbúnar í tengslum við meðferð þess frv. í nefnd en eigi vannst tími til að afgreiða þær þá, og var gert ráð fyrir því að þær yrðu lagðar fyrir næsta Alþingi. Frv. fjallar hins vegar ekki um reiknireglur kosningalaganna, né heldur reglur um tilhögun persónukjörs, en umfjöllun um þau atriði varð ekki lokið á þinginu 1984 og var gert ráð fyrir að áfram yrði unnið að því máli milli þinga.

Eins og ég hef þegar sagt var þetta frv. lagt fram á síðasta þingi og tókst eigi að ljúka meðferð þess þá. Ég tel ekki þörf á því nú að endurtaka framsögu mína frá því í vor, og leyfi mér að vísa til hennar og athugasemda frv.

Herra forseti. Er frv. þetta var til meðferðar á síðasta Alþingi var kosin sérstök nefnd til að fjalla um efni þess. Var það gert með hliðsjón af því að líklegt þótti að við athugun frv. kæmu til skoðunar önnur atriði kosningalaganna, þar á meðal reiknireglurnar. Tel ég rétt að sama tilhögun verði nú viðhöfð, og kosin verði sérstök þingnefnd til að fjalla um efni frv. og önnur atriði kosningalaganna sem þá kunna að koma til álita. Jafnframt legg ég til að frv. verði að þessari umr. lokinni vísað til 2. umr. og þeirrar nefndar.