11.12.1985
Efri deild: 25. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1347 í B-deild Alþingistíðinda. (1034)
2. mál, lánsfjárlög 1986
Fjmrh. (Þorsteinn Pálsson):
Frú forseti. Fyrst vegna þeirrar spurningar um halla á þessu ári þá er ekki útséð um það enn hver hann verður en að hluta til a.m.k. hefur verið tekið tillit til þess í lánsfjárlagafrv. hvernig honum verður mætt. Það verður svo auðvitað að koma á daginn hver endanleg tala verður í þessu efni. En það hefur verið ljóst um allmargra mánaða skeið að hallinn yrði meiri en fjárlagafrv., sem samþykkt var í fyrra, gerði ráð fyrir og tekið hefur verið tillit til þess.
Að því er varðar þær umræður sem hér hafa orðið um húsnæðisstjórnina og viðbótarfjáröflun, sem ákveðin var í vor sem leið og hér hefur verið réttilega minnst á, þá er ljóst að til þess að standa undir nauðsynlegum útgjöldum á þessu sviði, sem menn voru sammála um að gera þyrfti, þurfti viðbótarfjáröflun miðað við þær aðstæður sem fyrir hendi voru í fyrravor. M.ö.o. vantaði fjármagn á þessu ári til að fullnægja þeim verkefnum sem menn töldu að þeir gætu minnst komist af með á þessu ári. Fyrir því var þessi sérstaka fjáröflun ákveðin og það var ákveðið að hún skyldi standa á næsta ári. Í athugasemdum með frv. segir svo, með leyfi forseta:
„Ekki hefur verið tekin ákvörðun um ráðstöfun fjárins á því ári“, þ.e. á árinu 1986. „Það verður ekki gert fyrr en að höfðu samráði við þá milliþinganefnd í húsnæðismálum sem stjórnarflokkarnir hafa ákveðið að koma á fót eftir viðræður við stjórnarandstöðuflokkana.“
Ekki þarf að eyða mörgum orðum að þessu atriði. Það kemur hvergi fram í þessu frv. að þessi sérstaka fjáröflun hafi átt að koma að öllu leyti til viðbótar því 40% framlagi úr ríkissjóði sem lög gera ráð fyrir. En eins og sakir standa og miðað við þá útlánaáætlun, sem stuðst hefur verið við, er gert ráð fyrir að framlag ríkissjóðs sé yfir 60% af heildarútlánaáætlun sjóðsins á næsta ári. Verði lántaka á innlendum markaði aukin til að standa undir meiri verkefnum sjóðsins, þar á meðal því nauðsynlega verkefni að skuldbreyta lánum þeirra sem verst standa, kann þetta hlutfall eitthvað að lækka. En það er nokkuð ljóst að það verður vel yfir 50%, allmikið umfram það sem lögin um Húsnæðisstofnun gera ráð fyrir.
Því verður því ekki á móti mælt að þessi sérstaka fjáröflun hefur á þann veg skilað sér til Byggingarsjóðsins til að styrkja stöðu hans, en það skiptir mjög miklu máli að byggja upp stöðu Byggingarsjóðsins. Byggingarsjóðirnir höfðu verið brotnir niður því að framlag ríkissjóðs til þeirra hafði dregist mjög saman og var orðið mjög lítið hlutfall af heildarútlánum sjóðanna. Það hefur kostað mikið átak að byggja þessa sjóði upp aftur þannig að framlög ríkissjóðs yrðu stærra hlutfall af heildarútlánum sjóðanna en áður var. Þetta hefur tekið nokkurn tíma en skilað verulegum árangri og umbótum á þessu sviði þó að mikið sé ógert í þessu efni.
Hv. 8. landsk. þm. vék hér að aukafjárveitingum og spurði hvort þær ákvarðanir, sem teknar eru eða verða með fjárlögum og lánsfjárlögum, yrðu ónýttar gerðar á næsta ári með aukafjárveifingum. Um það efni er þetta að segja: Það er óhjákvæmilegt að beita valdi framkvæmdavaldsins til að ákveða aukafjárveitingar á óvissum tímum þegar verðlag er ekki stöðugt. Þær ákvarðanir hljóta hins vegar að miðast við þá stefnumörkun sem Alþingi sjálft hefur tekið, miðast við að mæta ófyrirséðum verðlagshækkunum fyrst og fremst og kostnaðarhækkunum í verkefnum og þjónustu sem Alþingi hefur sjálft ákveðið.
Hitt hygg ég að menn séu sammála um að sé ekki góður siður, að taka ákvarðanir um aukafjárveitingar til verkefna eða þjónustu sem Alþingi hefur sjálft ákveðið að ekki skuli ná fram að ganga á því ári sem fjárlögin taka til.
Þó að þannig sé óhjákvæmilegt að nota aukafjárveitingar verður þeim beitt á þann veg að þær séu í fullu samræmi við ákvarðanir Alþingis sjálfs og breyti þeim ekki.