11.12.1985
Efri deild: 25. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1350 í B-deild Alþingistíðinda. (1038)
119. mál, Hitaveita Suðurnesja
Skúli Alexandersson:
Virðulegi forseti. Ég hef skrifað undir þetta nefndarálit með fyrirvara. Sá fyrirvari kom til af því að vegna þess annríkis sem nú er orðið hér á hv. þingi hafði ég ekki aðstöðu til að vera á síðari fundi iðnn. þar sem fjallað var um þetta mál. Ég hafði ekki getað kynnt mér þá till. sem ég vissi að var í farveginum frá þm. Karli Steinari en bjóst þó frekast við því að ég mundi styðja hana. Ég lýsi því yfir að ég er alveg fullkomlega sammála þeirri brtt. sem hann hefur lagt fram.
Í annan stað vildi ég einnig láta það koma fram, sem ég nefndi reyndar í 1. umr. að hér er á ferðinni þannig lagað mál að verið er að færa ákveðinn hluta af rekstrarhluta Rafmagnsveitna ríkisins eða skipta Rafmagnsveitum ríkisins upp í minni einingar. Það er verið að taka ákveðinn hluta frá Rafmagnsveitunum og færa til Hitaveitu Suðurnesja og ég tel það vafasama þróun. Ég ætla mér ekki að greiða atkvæði gegn þessu máli vegna þess að það er þegar orðið að veruleika, það er þegar búið að ganga frá samningum, en mun sitja hjá.
En í sambandi við vinnu nefndarinnar var á fyrri fundi um málið ákveðið að vísa þessu máli heim í hérað og óska eftir umsögnum sveitarstjórna um það, en svo var horfið frá því á síðari fundi vegna þess að menn voru sammála um að það þyrfti nauðsynlega að klára þetta fyrir áramót. En ástæða þess að menn töldu að nauðsynlegt væri að vísa þessu heim í hérað aftur var sú að það var nokkurn veginn vitað að umræða um málið hafði verið í nokkuð þröngum hóp. Uppbygging samstarfsins á Suðurnesjum er þannig, að mér er tjáð, að næststærsti flokkurinn - og fer ég nú að halda vörnum uppi fyrir annan flokk en minn eigin - mun ekki hafa haft neinn mann í undirbúningsviðræðum um þetta mál, þ.e. Alþfl., næststærsti flokkur á Suðurnesjum og þar af leiðandi er náttúrlega ekki minn flokkur sem er frekar lítill þar, þó að í síðustu skoðanakönnun hafi hann komið allgildur þar fram. Við töldum því eðlilegt að um þetta væri fjallað í sveitarstjórnum. Hin varð raunin á og menn féllust á það að ganga frá þessu máli hér enda, eins og ég sagði áður, þegar fullfrágengnir samningar og breytti sjálfsagt ekki mjög miklu þó að umræða ætti sér stað í hverri sveitarstjórn um þetta að nýju.
Uppbygging félagsins eða stjórnar félagsins er, eins og hv. þm. Karl Steinar benti á, óeðlileg. Ríkið, sem á ekki nema 20%, skipar tvo stjórnarmenn á meðan Keflavík, sem er með 40% eignarhlut, er með einn. Ég tel því mjög eðlilegt að sú breyting eigi sér stað, sem kemur fram í tillögu Karls Steinars, að Keflavíkurbær skipi tvo í stjórnina og tvo til vara og aðrar breytingar verði sem þar fram kemur.