11.12.1985
Efri deild: 25. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1353 í B-deild Alþingistíðinda. (1043)

119. mál, Hitaveita Suðurnesja

Frsm. (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Hæstv. forseti. Ég stend enn upp og byrja mál mitt á sama veg og áður. Ég hef ekkert að athuga við það sem hv. 6. landsk. þm. sagði um hver á að vera afstaða Alþingis til þess sem gerist utan sala Alþingis. Alþingi á að fara sínu fram hvað sem hver segir. Þetta er hin almenna regla.

En þetta mál sem hér um ræðir er komið fyrir vilja þeirra aðila sem frv. fjallar um og annars væri Alþingi ekki að fjalla um þetta mál. Alþingi væri ekki að fjalla um þetta mál nema vegna þess að þessir aðilar, sem eru eignaraðilar að Hitaveitu Suðurnesja, hafa gert samkomulag sem krefst þess að gildandi lögum sé breytt um fyrirtækið í samræmi við það samkomulag sem þeir hafa gert.