11.12.1985
Neðri deild: 25. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1395 í B-deild Alþingistíðinda. (1057)
134. mál, álbræðsla við Straumsvík
Kjartan Jóhannsson:
Herra forseti. Þegar þessi mál voru seinast til umræðu, þ.e. þau sem varða álbræðsluna í Straumsvík, varaði ég við því að menn gerðu sér spár um feikilega hækkun á álverði sem síðan ætti að birtast í háu raforkuverði. Ég tók svo til orða að að mínu mati mundi raunvirði raforkuverðsins verða í kringum 13,5 mill hvað svo sem liði þeim spám sem menn hefðu um sérstaka hækkun á álverðinu. Ég varaði þá líka við því að menn hefðu í þessari atlögu, þegar gengið var frá 3. áfanganum, fórnað sínu helsta trompi í meðferð þessa máls með því að falla frá ákvæðinu um bestu kjör í viðskiptum Alusuisse við ÍSAL. Ég tel að þar hafi í rauninni átt sér stað meiri háttar slys og í ljósi þessa verða menn að skoða þann samning sem nú er gerður.
Þegar trompunum hefur verið fórnað er vitaskuld erfitt að gera góðan samning. Ég ætla samt ekki að telja þennan samning, sem hér liggur fyrir, að öllu leyti illan. Að mínu áliti hefur náðst sá áfangi að tæknilega séð sé hér að ýmsu leyti um framfaraspor að ræða. Menn hafa náð fram einföldunaratriðum, menn hafa fastara land undir fótum að því er varðar viðmiðanir um ýmis atriði. Það er í samræmi við þá stefnu sem við Alþýðuflokksmenn höfum talað fyrir í þessu máli.
En þegar litið er á ýmis gögn, sem fram eru lögð í þessu máli, koma í ljós tvö atriði sem gölluð verða að teljast alveg sérstaklega.
Það er þá í fyrsta lagi að ekki skyldi nást fram verðtrygging, ef svo mætti orða það, eða hækkun á lágmarksgjaldinu eins og hér var mjög uppi haft í umræðum á þinginu fyrir ári. Þetta hafa menn harmað hver um annan þveran. Þetta er að mínum dómi í raun og sannleika óviðunandi vegna þess að sú fjárhæð sem hér um ræðir hefur helmingast eða því sem næst á s.l. tíu árum.
Í annan stað er mér stórlega til efs og tel reyndar ekki að heildarskattar verði eins háir og gert er ráð fyrir í ýmsum þeim áætlunum sem fram hafa verið lagðar af hálfu talsmanna iðnrn. og stjórnarflokkanna.
Í þriðja lagi get ég ekki stillt mig um að benda á að þau gögn sem fram hafa verið lögð vekja ekki traust. Upplýsingarnar eru ekki þannig frá gengnar að það geti vakið traust á þeim vinnubrögðum sem viðhöfð hafa verið. Hér hefur áður verið gert að umtalsefni að tafla sem fylgdi upphaflegri greinargerð hafi verið vitlaust reiknuð. Alþm. hljóta að spyrja hvort hér fari sú tafla, vitlausa taflan, sem samninganefndin hafði í rauninni til hliðsjónar við að gera upp hug sinn um það hvort hér væri um viðunandi samning að ræða. Manni liggur nærri að ætla að á þeim grundvelli hafi nefnd og ráðherra tekið ákvarðanir sínar. Það vekur náttúrlega í fyrsta lagi ekki traust.
Á grundvelli þess útreiknings og reyndar endurskoðaðs útreiknings sem birtist nú í greinargerð með endurprentuðu frv. er sú staðhæfing uppi höfð að skattar muni í engu tilviki lækka. Ég held að hér fari menn að ýmsu leyti villir vegar. Og svo mikið er víst að ekki hafa þeir iðnaðarráðuneytismenn fyrir því að upplýsa á hvaða grundvelli þessi tafla er reiknuð, hverjar eru hinar eiginlegu forsendur þessarar töflu. Á sama tíma leyfir Birgir Ísl. Gunnarsson alþm. sér að gagnrýna aðra töflu sem birtist í öðru nál., nefnilega nál. 1. minni hl., vegna þess að hann telur að þær forsendur sem þar eru birtar séu hæpnar og rangar. Það er auðvelt að skjóta úr skjólinu, birta ekki sínar eigin forsendur en gagnrýna síðan forsendur þeirra sem þær birta.
Það er líka fróðlegt að bera saman annars vegar niðurstöðu iðnrn. sem birtast á bls. 36 í grg. undir lok frv. og hins vegar það sem 2. minni hl. iðnn. virðist leggja til grundvallar við sína ákvarðanatöku. Ef litið er á matið á hinu nýja samkomulagi má t.d. sjá að við 10 millj. kr. hagnað gerir iðnrn. áætlun upp á að hið nýja samkomulag muni skila á einhverjum forsendum, sem óþekktar eru, 2,9 millj. dollara. Ef leitað er í töflunni sem er viðbótarupplýsing eftir nefndarstarfið núna og 2. minni hl. dreifir og leitað eftir því hver sé útreikningurinn á skattinum samkvæmt nýjum samningi þegar hagnaður er um 10 millj. dollara reynist hann ekki vera 2,9 millj., eins og iðnrn. hefur nýlega endurskoðað áætlun sína upp á, heldur 6,2 millj. Hér ber ekki lítið á milli í gögnum frá þeim aðilum sem eru þó að gagnrýna aðra fyrir útreikning.
Ef reynt er að meta hvernig þetta komi út miðað við 5 millj. kr. hagnað segir útreikningur iðnrn. að hið nýja samkomulag muni gefa 1,7 millj. kr. í skatta, en útreikningur samninganefndar um stóriðju, sem ég er að vitna til og er fskj. IV með nál. 2. minni hl., þ.e. fulltrúa Sjálfstfl., er þetta í kringum 4,5 millj. kr. Hér skeikar hvorki meira né minna en 3 millj. í hvoru tilviki, 3 millj. dollara. Ég verð að segja það, herra forseti, að þegar meiri hl. stendur þannig að sínum vinnubrögðum að birta svo misvísandi tölur, tölur sem stangast svo illilega á sem raun ber vitni, getur það ekki vakið traust. Þá finnst mér að gagnrýni á aðra, sem birta þó forsendur sínar, sé á veikum grunni reist.
Það er kannske eins gott að hafa það eins og 3. minni hl. að segja sem svo að þegar verið er að taka ákvarðanir um þessi efni verði oft að byggja á framtíðarspám, en þess beri að geta að raforkuverðsspá ÍSALs, sem iðnn. var kynnt á s.l. ári, hafi ekki staðist og klykkja svo út með því að á þessum forsendum mæli menn með því að frv. verði samþykkt. Þetta er kannske eins góð afgreiðsla og sú sem hér er lögð upp í áliti 2. minni hl. iðnn.
Það er ekki laust við að manni finnist líka að í aðdróttunum og árásum hv. þm. Birgis Ísl. Gunnarssonar varðandi útreikninga Ragnars Arnasonar birtist aðdróttun að Ríkisendurskoðun því að Ríkisendurskoðun hefur yfirfarið þá úfreikninga, eins og kemur fram í fskj. með nál. 1. minni hl., og ekki gert við þá athugasemdir.
Áður en ég lít á þá útreikninga finnst mér þó rétt að líta eilítið nánar á yfirlit frá samninganefnd um stóriðju. Það er að ýmsu leyti athyglisvert. Hér reikna menn sér hagnað, tekjur og skatta fyrir álverð allt upp í 200 sent á pund meðan við vitum að álverðið núna er kannske 45-55, ef ég man rétt. Það er þá væntanlega langt frammi í framtíðinni að menn verði komnir upp í 200 sent á pund. En það sem er athyglisverðast við þessa töflu, ef við skoðum hana, og virðist vera einkenni á ýmsum útreikningum sem sérfræðingar láta frá sér fara því að væntanlega er þetta sérfræðingavinna, er það að ýmsir töluliðir breytast í beinu hlutfalli við álverð, eins og við er að búast, en aðrir liðir breytast ekki. Ég held að menn ættu að gera sér grein fyrir því, þegar þeir fara að reikna töflur af þessu tagi, að þegar þeir eru komnir upp fyrir eðlilegt jafnaðarverð á álinu, það verð sem miðar við sæmilega afkomu fyrirtækisins, fara að gilda allt aðrar forsendur en þær sem menn geta notfært sér þegar þeir eru að reikna á þeim verðslóðum sem menn eru nú á.
Mér dettur ekki í hug að þegar álverð verði komið upp í 100-200 mill muni afskriftir sitja kyrrar sem föst tala eins og hér er gert. Mér dettur ekki í hug að launakostnaður muni sitja kyrr sem föst tala eins og hér virðist vera gert. Mér dettur ekki í hug annað en önnur hráefni, sem notuð eru, en álið muni nokkurn veginn fylgja verðinu á álinu sem selt er. Þegar menn eru komnir upp að þessu bili eru menn að tala um alþjóðlega verðbólgu. Þá eru menn komnir upp á bil alþjóðlegrar verðbólgu og um leið og farinn væri að verða verulegur hagnaður í greininni geta menn verið við því búnir að þá aukist afköstin og verðið falli. Sá hluti töflunnar sem er aftan við u.þ.b.75 mill er þess vegna della að mínu dómi og misvísandi að bera slíkt á borð fyrir alþm.
Því miður eru fleiri töflur hér, m.a. í fskj. með áliti 1. minni hl., sem eru með svipuðu marki brenndar. En hættan er sú að menn fari í ævintýraljóma að líta á þann hluta töflunnar sem er vissulega ómark, alveg hreint eins og menn gerðu í umræðunum um raforkuverðið í fyrra með stjörnurnar í augunum um allan þann gróða sem væri rétt handan við hornið, en sem 3. minni hl. segir núna um: allar þær spár reyndust rangar - og sem ég varaði við í fyrra að menn skyldu líta á. Ósamræmið er þannig í fyrsta lagi himinhrópandi milli þeirra gagna sem berast frá stjórnarflokkunum, annars vegar frá iðnrn. og hins vegar frá samninganefndinni, og engin grein gerð fyrir því í hverju mismunurinn liggur, á hvaða forsendum þetta er reiknað og á sama tíma leyfa menn sér að gagnrýna forsendur hjá öðrum sem leggja þær á borðið.
Í nál. 1. minni hl. hefur verið safnað saman margvíslegum útreikningum og upplýsingum. Ég vil segja fyrst að þetta er að ýmsu leyti fróðlegt, en til viðbótar því sem ég segi og hef sagt um forsendurnar og þann galla sem er líka í útreikningum Ragnars Árnasonar að því leyfi sem ég hef hér verið að gera að umtalsefni um hinn hærri kantinn í þessu vil ég segja nokkur orð um þær forsendur sem þar eru lagðar til grundvallar og hv. þm. Birgir Ísl. Gunnarsson gerði að umtalsefni. Ég get að vísu ekki fullyrt neitt um þessi 40,5-41,5% í hráefniskostnaði og skal ekkert um það segja. Það er ekki rökstutt hér nánar en að vísa því til þess sem hefur verið á undanförnum árum og kannske erfitt að sjá þessu stað rétt eins og kom fram í ræðu Birgis Ísleifs. En hér kvartaði Birgir Ísl. Gunnarsson m.a. yfir því að annar framleiðslukostnaður væri metinn á 11 millj. dollara og sagði að engin rök væru fyrir því færð. En hann færði eiginlega heldur engin rök fyrir því að þetta gæti ekki verið eðlileg viðmiðunartala ef menn ætla að nota eina tölu yfir langt bil. Ég held að þessi tala sé ekki fjær sanni en t.d. 9,8, ef það er það sem menn vilja frekar miða við, ellegar 12 þess vegna.
Ég fékk ekki heldur skilið þá gagnrýni sem kom fram á afskriftaforsendurnar sem hér eru gefnar og tel ekki að sú gagnrýni hafi verið marktæk sem hv. þm. Birgir Ísl. Gunnarsson lagði fram í þeim efnum.
Í þessu nál. er hins vegar litið sérstaklega, eða a.m.k. unnt að líta sérstaklega á þann part hagnaðarbils sem máli skiptir. Í fskj. II er yfirlitstafla sem sýnir útreikninga á þeim forsendum sem ég geri ráð fyrir að séu þær sömu og ég var að vitna til aftast í þessu nál. Þessar töflur eru að ýmsu leyti athyglisverðar vegna þess að þær gefa heildarmynd og eru að því leytinu til fyrirmyndar. Þessar töflur birtast líka annars staðar í nál. ef ég hef skilið þetta rétt, en herra forseti verður að afsaka að ég hef því miður ekki haft eins mikinn tíma til að líta á þetta eins og ýmsir aðrir þm. því ég hef verið fjarstaddur undanfarnar vikur eins og kunnugt er. En ef við lítum t.d. á töflu I, sem er á bls. 8 og sem ég geri ráð fyrir að sé á hinum sömu forsendum og ég var að vitna til áðan, sjáum við af henni að fyrir þau bil sem skipta máli, verð upp í 80 mill og hagnað sem er á bilinu 4-10 millj. bandaríkjadollarar, er veikleiki greinilegur í hinu nýja skattkerfi. Hvort sem menn telja forsendurnar að öllu leyti nákvæmlega réttar eða ekki sýnir sig að á þessu bili er einmitt veikleiki í skattkerfinu, þar koma fram negatívar tölur. Ef forsendurnar eru ekki að öllu leyti réttar í þeim útreikningi sem hér er um að ræða mundi það væntanlega þýða að þessar tölur ættu að vera ívið skárri, en þetta sýnir okkur engu að síður að á þessu bili er mesti veikleikinn í kerfinu. Hér er mesta tilhneigingin til þess að skatturinn, sem greiddur verður samkvæmt nýja kerfinu, verði minni en samkvæmt hinu gamla. Það verður einmitt á því bili sem okkur varðar um, af því að það er á því bili sem raunveruleikinn mun liggja á komandi árum.
Herra forseti. Það gæti verið ástæða til að fara um þetta langtum fleiri orðum og ýmislegt fleira gæti ég tínt til úr þeim gögnum sem hér hafa verið fram lögð, en meginpunktana tel ég mig hafa rakið hér. Og ég segi: Ég tel það framfaraspor að sú tæknilega einföldun skuli hafa átt sér stað sem hér er gert ráð fyrir og að dregnar eru skýrari línur. En agnúarnir eru m.a. þeir að það eru verulegar líkur á því að við fáum lægri skattgreiðslur að mínum dómi samkvæmt hinu nýja kerfi á því bili sem skiptir máli í þeim raunveruleika sem við lifum í, á því bili sem skiptir máli varðandi verð á áli og varðandi hagnað.
Í annan stað er ótækt að það skyldi ekki nást fram hækkun á lágmarksgjaldinu eða réttara sagt verðtrygging á lágmarksgjaldinu. Þetta eru mjög veigamiklir agnúar á því samkomulagi sem hér hefur verið lagt fram til staðfestingar á Alþingi. Þessir agnúar eru svo alvarlegir og þau vinnubrögð sem hér hafa verið viðhöfð, eins og ég hef lýst í mínu máli, eru svo gölluð að það vekur ekki næga tiltrú til þess að unnt sé að taka ábyrgð á því sem hér er lagt til að verði samþykkt á Alþingi. Þetta er ekki hægt að samþykkja eins og það liggur hér fyrir.