11.12.1985
Neðri deild: 25. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1399 í B-deild Alþingistíðinda. (1058)
134. mál, álbræðsla við Straumsvík
Gunnar G. Schram:
Herra forseti. Ég mun reyna að stytta mál mitt í ljósi ummæla forseta um að hann vilji ljúka þessum fundi um hálfáttaleytið.
Herra forseti. Ég hygg að nokkurs misskilnings hafi gætt hjá ýmsum ræðumanna í þessari umræðu í dag. Hann kemur fram í því að þeir virðast hafa búist við því að hér yrði gerður samningur um skattamál, sem er 4. viðaukasamningurinn, sem hefði í för með sér verulega miklar hækkanir á skattgreiðslum ÍSALs. Ég hygg að ekki hafi nokkrum manni dottið í hug að unnt væri að tvöfalda skattana á fyrirtækinu þó vitanlega hefði það verið mjög æskilegt, og reyndar að margfalda þá. Eins og fram kemur í bráðabirgðasamkomulaginu, sem undirritað var 1983, og menn þekkja sennilega margir hverjir þann texta, var meginmarkmiðið að gera skattaskil ÍSALs einfaldari en verið hefur, setja um þau skýrari og ljósari reglur til að koma í veg fyrir deilur eins og hafa átt sér stað í fortíðinni um framleiðslugjaldið þar sem inn í hafa blandast atriði eins og hækkun í hafi og fleira sem menn muna úr fjölmiðlasögu og þingsögu liðinna ára.
Ég vildi nefna þetta strax í upphafi vegna þess að ég held ég megi fullyrða að menn bjuggust ekki við því, a.m.k. ekki þeir sem fylgst hafa allnáið með málinu, að unnt yrði að stórhækka skatttekjurnar. Hins vegar var markmiðið það sem ég nefndi. Þessa misskilnings hefur engu að síður gætt í umræðunni.
Þar með er ekki sagt að ekki hafi nokkuð áunnist og flestum þeim markmiðum sem lýst var í bráðabirgðasamkomulaginu ekki verið náð. Ég tel þvert á móti að það hafi gerst.
Ég ætla ekki að fara að rekja málið í neinum smáatriðum. Það hefur verið gert í framsögu sem hv. þm. Birgir Ísl. Gunnarsson flutti fyrir nál. 2. minni hl., en hann gaf glöggt og greinargott yfirlit yfir málið í heild. Ég vildi þó nefna nokkur atriði sem á góma hefur borið í umræðunum.
Að mínu mati er nokkur ávinningur að þessu samkomulagi þó svo að ekki hafi tekist að fá fram leiðréttingar á ýmsum þeim atriðum sem reynt var að lagfæra frá fyrra samningi. Eitt af þeim atriðum var grunngjaldið, 20 dollarar á tonnið. Ekki tókst að fá fram leiðréttingu þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir í því efni né verðtryggja grunngjaldið. Um það atriði náðist einfaldlega ekki samkomulag. Það er jafnan svo þegar tveir deila eða eru að endurskoða samninga, eins og í þessu tilviki, að hvorugur samningsaðilinn nær fram öllum þeim kröfum sem hann leggur á borðið.
Ég hygg að segja megi að þó sé ávinningurinn og hagurinn af þessu samkomulagi þrenns konar:
Í fyrsta lagi hafa náðst fram allverulega hærri skattar samkvæmt hinu nýja samkomulagi en eldra fyrirkomulagið mundi hafa gefið í aðra hönd. Skal ég renna stoðum undir þá fullyrðingu hér á eftir.
Í öðru lagi hefur verið samið um fasta verðmiðun á aðföngum álversins. Það útilokar hinar illvígu deilur sem staðið hafa í fortíðinni okkur og viðsemjendum okkar til lítillar ánægju.
Í þriðja lagi tel ég mikinn ávinning og feng að því að nú er í fyrsta skipti tekið almennt endurskoðunarákvæði inn í samninginn fyrir utan hina árlegu endurskoðun sem vitanlega heldur áfram. Það hafði ekki átt sér stað áður en að því er mikill ávinningur.
Ef við lítum fyrst á skattamálin fer það ekki milli mála að hér er um verulega bót að ræða frá núgildandi ástandi. Hv. þm. Kjartan Jóhannsson var áðan að velta því fyrir sér hvernig stæði á ósamræminu á milli töflunnar sem birtist í lok frv. og er útreikningur iðnrn., á bls. 36 í frv., og þeirra útreikninga sem liggja fyrir og eru birtir sem fskj. bæði í áliti 1. og 2. minni hl., þ. e. taflan dagsett 10. des. 1985, en það er alveg rétt að mikill mismunur er á skattatölunum þar. Í skattyfirlitinu 10. des. 1985 kemur í ljós að skattar eru verulega hærri en í útreikningi iðnrn. Það liggur í augum uppi að byggt er á mismunandi forsendum. Ástæðan er einfaldlega sú, að ég hygg. Ég hef ekki haft ráðrúm, þar sem þm. var að ljúka máli sínu, til þess að ná mér í nauðsynleg gögn svo að ég geti fullyrt það óyggjandi, að í töflu iðnrn. er ekki reiknað með hinum hækkaða skattstofni sem nýja samkomulagið gefur, en með hinum hækkaða skattstofni er reiknað í töflunni sem er dagsett í gær. Þannig skýrist munurinn á eðlilegan og auðskiljanlegan hátt ef litið er til forsendnanna sem liggja hér til grundvallar.
Það hefur í þessu efni gerst, og það hefur viljað gleymast í þessum umræðum, að skattstofninn er ekki sá sami samkvæmt nýja samkomulaginu og samkvæmt gamla samkomulaginu. Skattstofninn hækkar verulega. Það er sýnt glögglega á yfirlitinu frá 10. desember. Þar að auki er einnig um að ræða töflu sem birt er í áliti 2. minni hl., þ.e. fskj. Il. Þar hefur Stefán Svavarsson löggiltur endurskoðandi og dósent við viðskiptadeild reiknað út skattstofnshækkunina að beiðni hv. þm. Hjörleifs Guttormssonar í framhaldi af umræðunum í iðnn. Nd. Þá kemur í ljós að skattstofninn undir hinu nýja fyrirkomulagi hækkar um 6 millj. 514 þús. dollara á þessu ári. Hann hækkaði árið 1984 um 8 millj. 767 þús. dollara og árið 1983 um 13 millj. 818 dollara. Ég rek ekki tölurnar lengra aftur. Þær eru í þessu fskj.
Af þessu leiðir einfaldlega að hærri skattar greiðast. Það er sýnt á fskj. IV, sem birt er með þessu sama nál. Þar erum við raunverulega komin að kjarna málsins vegna þess að þessir útreikningar eru að minni hyggju óvefengjanlegir og þýðir ekki að bera á þá brigður.
Þar eru sett upp tvö dæmi. Annað er um skatt samkvæmt gamla samningnum. Þá er um að ræða í fyrsta lagi annan skattstofn, en það hefur ruglað menn í umræðunum og reyndar einnig í nefndinni. Hér er um að ræða allt annan skattstofn, þann sem ég var að lýsa og fyrir liggur í fskj. II. Hann er miklu hærri en skattstofninn eftir gamla fyrirkomulaginu. Einnig er um að ræða nýjar reglur þar sem horfið er frá tonnaskattinum, en nýi skatturinn leggst á hreinan hagnað, og skattstiginn er 35-55%.
Ef dæmið er reiknað eftir þessum forsendum, sem eru mismunandi sitt í hvoru tilvikinu, kemur í ljós hver hagurinn er af hinu nýja skattasamkomulagi. Skattarnir eru þeir sömu upp að 60 sentum álverðs á pund. Álverið hefur iðulega verið yfir 60 sentum og það er engin ástæða til að halda að það fari ekki upp fyrir 60 sent aftur. Það er svo að bestu manna yfirsýn - m.a., eins og hv. þm. Birgir Ísl. Gunnarsson rakti áðan, hins alþekkta fyrirtækis Chase Econometrics, sem fyrrv. iðnrh. studdist mjög við í sínum spádómum, og annarra breskra og bandarískra sérfræðinga, mikilla spámanna. Þeirra álit kemur þar niður að álverðið muni á næstu árum vera milli 65 og 90 sent.
Við skulum byrja á 60 sentunum. Þá mundi nýja skattkerfið, eins og menn sjá á þessu fskj., gefa í skatt 2,1 millj. dollara. Skattur samkvæmt gamla samningnum er 1,7 millj. dollara. Hvað gefa 65 sent? 3,4 millj. dollara samkvæmt nýja samkomulaginu, 1,7 millj. samkvæmt því gamla. 70 sent gefa 4 millj. og 700 þús. dollara samkvæmt nýja samkomulaginu, en 2 millj. og 600 þús. samkvæmt því gamla. Þannig er hægt að halda áfram upp listann í öllum tilvikum. Við getum farið upp í 200 sent þó engum detti í hug að á næstunni fari álverðið svo hátt upp. Við erum að tala um bilið frá 60 sentum upp í 90 sent sem raunhæfa verðviðmiðun.
Það er sama á hvaða tölu er litið. Alls staðar gefur nýja samkomulagið miklum mun hærri skatta en það gamla. Hér er einfaldlega reiknað með þessu samkomulagi þegar ég tala um skatt samkvæmt hinum nýja samningi, hinum nýja skattstofni og hinni nýju skattaformúlu. Þegar talað er um skatt samkvæmt gömlum samningi í fskj. er átt við það sem hefur gilt og allir þekkja. Ruglingurinn hefur hins vegar skapast þegar menn yfirfæra gömlu forsendurnar á nýja samninginn.
Nóg um það. Ég held að þetta ætti að vera nægilegt til að sýna fram á að hér er um verulegar skattahækkanir að ræða þrátt fyrir fullyrðingar um hið gagnstæða hér í deildinni í dag. Eru þær fullyrðingar engum til sóma né heldur þær röngu töflur sem ég kem að rétt á eftir og hv. 5. þm. Austurl. vitnaði ítrekað í fyrr í dag og byggja á sandi, eins og hv. þm. Birgir Ísl. Gunnarsson hefur vissulega sýnt fram á. Þar að auki bið ég þm. að líta á fskj. III í nál. 2. minni hl. þar sem Stefán Svavarsson setur það sama upp sem ég hef verið að rekja en kannske á öllu skýrari máta og er það þó erfitt. En við skulum reikna sama dæmið aftur í tímann því að þar höfum við staðreyndirnar. Við vitum hvernig málin stóðu. Hér gerir Stefán Svavarsson, löggiltur endurskoðandi, það einmitt á fskj. III með áliti 2. minni hl. Hann tekur tímabilið 1980-1984.
Og hvað kemur í ljós? Mismunurinn, þ.e. skattar sem mundu hafa verið greiddir samkvæmt nýja samkomulaginu á þessu fimm ára tímabili, eru hvorki meira né minna en 38,4% hærri miðað við gamla skattgrunninn. Það er þetta sem hið nýja samkomulag hefði gefið okkur ef það hefði verið í gildi síðustu fimm árin. Þetta er óvéfengjanlegt og þýðir ekkert að standa hér í ræðustól og bera á þetta brigður, eins og reynt hefur verið að gera í dag.
Hvað þýðir þetta í tölum? Það þýðir 3,3 millj. dollara. Er það eitthvert hænsnafóður í augum hv. 5. þm. Austurl.? Munar ekkert um það? Það hefði verið betur að þetta samkomulag hefði verið í gildi ekki aðeins frá 1980, eins og Stefán Svavarsson reiknaði út, heldur þegar hv. 5. þm. Austurl. fór að skipta sér af iðnaðarmálum og stóriðjumálum 1978. Sú tala væri þá ekki þessar 3 millj. og 300 þús. dollarar, heldur miklu hærri tala. Þetta er tapið sem við höfum þolað vegna þess að um þetta var ekki samið fyrr, en það er eins og það virðist vera ákaflega erfitt fyrir suma menn að átta sig á því sem tekið hafa til máls í deildinni í dag.
Lítum næst á þær töflur sem við höfum heyrt útbásúnaðar sem hálfgert guðspjall af hv. 5. þm. Austurl., þ.e. töflur sem Ragnar Árnason, sérstakur trúnaðarmaður hans, hefur reiknað út. Ég gæti haldið um þær langa ræðu, en tímans vegna kemst ég sennilega ekki upp með það, verð að stytta mál mitt að tilmælum forseta. Ég vil þó minna á það sem hv. þm. Birgir Ísl. Gunnarsson nefndi varðandi forsendur Ragnars. Þar liggur nefnilega hundurinn grafinn. Maðurinn gefur sér algerlega rangar forsendur og afleiðingin er sú að hann fær ranga útkomu. Hann hefur kannske líka notað bilaða vasatölvu, en það er þó enn þá verra að gefa sér rangar forsendur en að lenda í því slysi að tölvan bilar.
Ég ætla ekki að rekja það sama sem hv. þm. Birgir Ísl. Gunnarsson nefndi, að hann gerir allar forsendur óhagstæðari til að fá út fyrir fram gefna útkomu fyrir hv. þm. Hjörleif Guttormsson eftir pöntun. Ég ætla þó aðeins að nefna eitt dæmi, vegna þess að það var lauslega að því vikið í ræðu frsm. fyrir nál., og það eru afskriftirnar. Með hvaða afskriftum reiknar reiknimeistarinn Ragnar Árnason í þessum töflum sem sýna hina alröngu niðurstöðu? Það stendur á bls. 31 í nál. 1. minni hl. Þar eru afskriftir liður 7. Nýja skattakerfið: 8,9 millj. bandaríkjadala, gildandi skattakerfi: 6,4 millj. bandaríkjadala. Hann reiknar sem sagt með afskriftum í þessum töflum upp á 6,4 millj. bandaríkjadala skv. gamla kerfinu. Hvernig kemur það heim og saman við afskriftir eins og þær voru í raun, það fjármagn sem var afskrifað, þær upphæðir sem þar er um að ræða? Það vill svo til að við höfum það útreiknað af Stefáni Svavarssyni í fskj. II í nál. 2. minni hl. Þar kemur nefnilega í ljós að bakfærð afskrift fyrir árið 1984 var ekki forsendan sem Ragnar Árnason gefur sér, 6,4 millj., heldur 16 millj. 83 þús.! Afskriftin 1983 er 20 millj. 918 þús., árið 1982 19 millj. 802 þús., 1981 11 millj. 281 þús., en 11 millj. 1980. Þetta eru sem sagt margfaldar afskriftir miðað við forsendur reiknimeistarans Ragnars Árnasonar!
Þar af leiðandi er sú forsenda hans vitanlega kolröng. Afskriftirnar voru miklum mun hærri. Niðurstaðan er: röng tafla. (KJóh: Það hefur áður verið tilgreint að þessi afskriftastofn er að verða búinn sem gefur þessar háu afskriftir.) Ég er að tala um forsendur töflunnar í þessu tilviki. Hér rekur sig hvað á annars horn. Þess vegna vil ég aðeins ítreka það að taflan sem þm. hafa og er birt sem fskj. IV er sú tafla sem gefur rétta og raunsanna mynd.
Ég hef ekki tíma til að nefna haginn af því að nú verður föst verðmiðun á aðföngum álbræðslunnar í Straumsvík. Reyndar gerði ég það í ræðu minni við 1. umr. um þetta mál. Hins vegar ætla ég að segja nokkur orð um þær fullyrðingar sem hafa verið frammi hafðar um rafskautin.
Því hefur verið haldið fram að hér sé um einhliða verðákvörðun að ræða á rafskautum af hálfu Alusuisse og endurskoðun sé ekki möguleg af okkar hálfu. Allt eru þetta gersamlega órökstuddar fullyrðingar sem eiga sér enga stoð í raunveruleikanum. Það kemur fram í samningnum að verðið á rafskautunum er ekki verð sem Alusuisse ákveður einhliða, heldur verð til þriðja aðila. Það er verð milli óskyldra aðila eða „arm's length dealings“ sem hefur verið ítarlega skýrt hér í dag. Kostnaðarverðið verður ákveðið til skatts samkvæmt slíku samningsbundnu verði Alusuisse og ÍSALs með þeim fyrirvara að það verð sé ekki hærra en meðalverð í sölu Alusuisse á rafskautum til þriðja aðila á sama ári. Það liggur sem sé fyrir hlutlæg viðmiðun, viðskipti óskyldra aðila. Þess vegna er það vitanlega hin mesta firra að hér sé um einhliða verðákvörðun Alusuisse að ræða.
Því hefur verið haldið fram, í öðru lagi, að við höfum enga möguleika á að endurskoða þetta. Það kom fram í iðnn. að meiri hluti lögfræðinga þeirra sem um málið höfðu fjallað taldi að þetta verð væri hluti af skattuppgjöri ÍSALs fyrir árið og þess vegna hefði það endurskoðunarfyrirtæki sem íslenska ríkisstjórnin skipar til endurskoðunar fulla heimild til að endurskoða þetta atriði, þ.e. verð á rafskautum. Eins og ég sagði í framsögu minni við 1. umr. um þetta mál, og hv. 5. þm. Austurl. hefur gert mér þann greiða að endurtaka oftar en einu sinni hafa þeir samningar legið á lausu hvað snertir endurskoðunarfyrirtæki íslensku ríkisstjórnarinnar. Þeir endurskoðendur hafa haft tækifæri til að kynna sér efni þeirra, fyrst og fremst verðin sem þar er um að ræða, og vita þess vegna og hafa staðreynt hvaða verð er þarna um að ræða. Þess vegna er það gersamlega út í bláinn að halda því fram að hér sé ekki unnt að koma við athugun eða að verðið sé einhliða ákveðið.
Ég skal fara að stytta mál mitt, herra forseti. Það hefur mikið verið úr því gert hér, að ég hygg af þremur ræðumönnum, að þessu máli hafi verið skipt eins og það er orðað. Það er eins og menn hafi ekki áttað sig á því af hverju það var. Það hefði út af fyrir sig verið mjög æskilegt að semja um alla þessa hluti í einum áfanga. Ugglaust hefði það verið ágæt niðurstaða. En svo vandasamur og flókinn samningur sem hér er um að ræða tekur langan tíma. Það var einfaldlega ekki unnt á síðasta ári að ná samkomulagi um annað en þá þætti í 3. viðauka, fyrst og fremst rafmagnsverðið, sem þá var samið um. Það gafst ekki ráðrúm eða tími til að semja um skattana. Þess vegna var ákveðið að fresta þeim. En ramminn hafði þó verið lagður í bráðabirgðasamkomulaginu 1983.
Að með því hafi einhver réttur glatast eru fullyrðingar sem ég vísa algerlega á bug, eða að þá hafi menn verið búnir að spila út trompunum. Því er fáránlegt að halda fram. Það var ekki gert. Það var einfaldlega vegna þess hversu málið var umfangsmikið að á einu ári gafst ekki tækifæri til að semja um það til hlítar.
Annað kom einnig tvímælalaust inn í myndina. Ég minni á að tvöföldun á orkuverðinu færði Íslandi eða Landsvirkjun fleiri hundruð milljónir króna á einu ári, væntanlega milli 300 og 400 millj. kr. Ef sá samningur, sem gerður var um raforkuverðið fyrir ári, hefði ekki þá verið látinn taka gildi, heldur beðið eftir því að skattasamningurinn hefði verið gerður, hefðu menn einfaldlega orðið af þessum tekjum upp á hundruð milljóna króna. Það var ugglaust einnig, a.m.k. í hugum sumra, innlegg í það mál að láta rafmagnssamninginn taka gildi áður en frá skattasamningnum var endanlega gengið.
Ég vildi að lokum víkja að þessu atriði varðandi skiptingu málsins því að það hefur mjög borið hér á góma. En að öðru leyti ætla ég ekki að fjölyrða frekar um þau atriði sem hér hafa komið fram í dag.