12.12.1985
Efri deild: 27. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1418 í B-deild Alþingistíðinda. (1066)
121. mál, sala Kröfluvirkjunar
Karl Steinar Guðnason:
Virðulegi forseti. Í tilefni af ræðu hv. 3. þm. Norðurl. v. þykir mér rétt að spyrja hvort hann var að gefa í skyn að rétt væri að hætta við Blönduvirkjun á meðan ráðstafanir yrðu gerðar til þess að koma annarri vélasamstæðu Kröflu í gang. Það liggur fyrir að við eigum allt of mikla virkjaða orku í dag, orku sem ekki er hægt að selja. Þegar menn hugleiða hvernig skuli koma annarri vélasamstæðu Kröflu í gang hlýtur það að kalla fram spurningu um það hvort menn vilja alfarið hætta við Blönduvirkjun eða fresta henni um ótiltekinn tíma.
Um það var rætt líka áðan að óskynsamlegt væri að ríkissjóður tæki að sér að greiða þær byrðar sem hér er talað um. Hver er það í raun og veru sem greiðir þessar byrðar? Er það ekki fólkið í landinu undir hvaða formerki sem það er? Er það ekki kjarni málsins að skattgreiðendur þurfa hvort sem er að greiða þetta. Ég tel að það sé hreinsun að þessari viðurkenningu staðreynda að klippt er á. Ég er þeirrar skoðunar að það eigi eitt orkuöflunarfyrirtæki að vera í landinu, Landsvirkjun, og þess vegna sé þessi sala skynsamleg.
Ég bendi líka á að þegar Krafla var byggð var það álit fjölmargra vísindamanna að illa hefði verið staðið að verki. Rannsóknir hefðu hvergi nærri verið nógar og þess vegna hefði verið farið í þessar framkvæmdir af meira offorsi en efni stóðu til. Það var ekki eldgosið eitt sem truflaði þessar aðgerðir heldur líka það hvernig staðið var að verki.
Í þeim viðtölum sem áttu sér stað í hv. iðnn. voru „efin“ afskaplega mörg. Þau voru það mörg að ekki er hægt að byggja haldgóðan málflutning á þeim að mínu mati. Það var ekki að heyra á þeim sem við fengum til viðræðu að menn vissu nokkurn skapaðan hlut um það hvort nokkur gufa fengist ef borað yrði á næstunni. Það væri vissulega hægt að eyða tugum milljóna í að prófa það nú á þeim tímum þegar við höfum allt of mikla orku virkjaða. En það er þá spurningin hvort við viljum eyða þessum peningum skattgreiðenda í slíka tilraunastarfsemi.