12.12.1985
Efri deild: 27. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1421 í B-deild Alþingistíðinda. (1072)
121. mál, sala Kröfluvirkjunar
Eiður Guðnason:
Virðulegi forseti. Í því frv. sem hér er til afgreiðslu felst viðurkenning með vissum hætti á þeim mistökum sem voru gerð í þessu máli og þeirri mistakakeðju sem hefur átt sér stað. Áður var þetta alfarið í eigu ríkisins, nú er verið að flytja þetta yfir til ríkisfyrirtækis. Það var alveg ljóst frá upphafi að almenningur í landinu mundi þurfa að standa straum af kostnaðinum við þetta með einhverjum hætti. Það var alveg ljóst. Þess vegna eru mér óskiljanlegar þær röksemdir sem hv. þm. BJ hafa haft hér uppi í þessu máli. Þetta er fyrirkomulagsbreyting. Það var ljóst að þjóðin yrði að standa undir þessum kostnaði og borga þennan reikning. Það hefur aldrei verið neinn vafi á því. Við höfum gagnrýnt þetta mál harkalega, Alþýðuflokksmenn, frá upphafi, allar götur síðan þetta hófst. (Gripið fram í.) Löngu áður, hv. þm. Ragnar Arnalds. Ég segi já.