12.12.1985
Efri deild: 27. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1425 í B-deild Alþingistíðinda. (1080)
168. mál, Aflatryggingarsjóður sjávarútvegsins
Frsm. minni hl. (Kolbrún Jónsdóttir):
Virðulegi forseti. Ég vil fara fram á að hæstv. sjútvrh. sé viðstaddur þessa umræðu svo að hægt sé að beina til hans spurningum. (Forseti: Það er verið að ná í hæstv. sjútvrh., hann kemur væntanlega.)
Ég mæli hér fyrir nál. minni hl. sjútvn. Þar segir, með leyfi forseta:
„Hér er um að ræða útdeilingu á uppsöfnuðum söluskatti í sjávarútvegi, alls 600 millj. kr. Slík afskipti ríkisvalds af samningum milli sjómanna, útgerðar og fiskvinnslu eru ólíðandi.
Verið er að greiða niður fiskverð með uppsöfnuðum söluskatti sem að mestu er tilkominn frá fiskvinnslunni. Hér er ríkið að færa fjármagn eftir flóknum reglum frá fiskkaupanda til fiskseljanda. Eðlilegra væri að slíkar greiðslur færu beint á milli þessara aðila án afskipta steinrunnins sjóðakerfis.
Það er löngu tímabært að stjórnvöld geri sér grein fyrir að verðmæti verði ekki til við að millifæra peninga, úr einum vasa í annan. BJ hefur bent á leið út úr þessum ógöngum. Hún felst í því að leggja sjóðakerfið niður og gefa fiskverð frjálst án afskipta ríkisvalds.“
Nú nýlega hefur komið fram í blöðum að fiskvinnslan vill sækja í þennan sjóð einnig, ef svo mætti segja, vill endurheimta uppsafnaðan söluskatt. Þess vegna langar mig að beina spurningu til hæstv. sjútvrh.: Mun hann verða við kröfum fiskvinnslunnar um að hún fái þennan skatt sinn endurgreiddan og það sannist þar með að fiskvinnslan stendur ekki undir að greiða skatta til ríkisins, alla vega ekki í formi söluskatts? Eða munu verða fundnar aðrar leiðir til að bjarga fiskvinnslunni út úr þeim örðugleikum sem hún segir að hún sé nú komin í?
Í annan stað fer fiskvinnslan fram á að fá 300-400 millj. endurgreiddar vegna mismunar á dollaragengi og SDR. Fiskvinnslan telur að tapið hjá sér sé 8-9% og telur að allt fari í strand nema gengið verði fellt. Þessi umræða var ekki uppi á teningnum þegar gengi dollarans hækkaði en þá var það útgerðin sem var að rúlla yfir um vegna þess að lánin hækkuðu sem tryggð voru með dollaragengi. Þannig er alltaf verið að reyna að laga vegasaltið með því að létta öðrum megin og þyngja hinum megin eða m.ö.o. að færa á milli þessara aðila með milligöngu ríkisvaldsins.
Það hefur aldrei komið alvarlega til umræðu, a.m.k. ekki hjá hæstv. núv. ríkisstj., að gefa fiskverð frjálst, að þessir aðilar semji beint um þau verðmæti sem til eru til skiptanna. En þessir fjármunir, sem verið er að færa á milli þessara aðila, verða til í sjávarútvegi. Þarna er því einungis verið að grípa inn í og færa á milli með geðþóttaákvörðunum ríkisvaldsins.
Þá komum við að þeirri spurningu: Hvernig er þessu fjármagni varið? Hvernig getur það t.d. staðist að nú í ár er verið að borga 6% ofan á loðnuverð enda þótt þau skip sem eru á loðnuveiðum fái að veiða milljón tonn af loðnu? Ég vildi einnig fá svör við því. Á að halda þessum greiðslum áfram á næsta ári? Á að halda áfram að greiða 6% ofan á loðnu þar sem nú liggur fyrir að loðnuverð er frjálst?
Nefna má fleiri mótsagnir sem fram hafa komið í upplýsingum um hvernig þessum fjármunum er útdeilt. T.d. ef fiskvinnsla setur fisk í gám og flytur á erlendar hafnir og selur hann þar fær hún bætur, 8%, þessa almennu uppbót. Ef þetta er ufsi fær hún 25% en 16% ef um karfa er að ræða. Aftur á móti ef áhöfnin á einhverjum bát setur sambærilegan fisk í gám og flytur út eru, eftir þeim upplýsingum sem ég kemst næst, ekki greiddar uppbætur á þann fisk. Hér erum við að tala um sömu vöruna sem er greitt eða ekki greitt ofan á eftir því hver flytur vöruna út. Fyrst ég minnist hér á 16% uppbætur á karfa langar mig til að vitna í smáklausu úr blaði sem ég sá í dag, með leyfi hæstv. forseta. Þar stendur:
„Togarinn Már SH frá Ólafsvík seldi á þriðjudag og miðvikudag 210 lestir af karfa í Bremerhaven. Heildarverð var 11 105 900 kr. eða 674 976 þýsk mörk. Er það hæsta verð í mörkum talið sem skuttogari af minni gerðinni hefur fengið á markaðnum. Már fékk að meðaltali 52,89 kr. fyrir hvert kg og er það mjög gott verð. Fyrra sölumet minni skuttogara átti Már sjálfur, sett í október s.l., 586 þús. mörk. Skipstjóri á Má er Sigurður Pétursson og er það ætlunin að koma skipinu í eina siglingu til viðbótar áður en það verður boðið upp í lok næstu viku.
Þess á geta að togarinn Viðey RE hefur fengið hæsta heildarverð allra skipa fyrir afla sinn á þýska markaðnum. 1. og 2. apríl s.l. seldi Viðey alls 338,5 lestir og fékk fyrir það 1 millj. marka.“
Hér komum við að dæmi sem sýnir okkur að þrátt fyrir að togari standi sig vel, selji fyrir metverð og fái rúmlega 52 kr. fyrir kg af karfa á hann aðeins viku eftir áður en hann lendir á uppboði. Segir þetta okkur ekki dálítið hvernig ástatt er í sjávarútvegi í dag? Það virðist ekki skipta nokkru máli hvort fyrirtæki eru vel eða illa rekin, hvernig þau standa sig. Það eru allt önnur lögmál sem ráða því hvort þessir togarar eða fyrirtæki fara á hausinn eða ekki. Segir það okkur ekki að við þurfum að taka til hendinni og leyfa því að bera sig sem getur borið sig? Segir þetta okkur ekki að afskipti ríkisvaldsins af sjávarútvegi hafa ekki leitt til góðs?
Afskipti ríkisvaldsins eru einfaldlega orðin allt of mikil. Það þarf sífellt að bjarga fiskvinnslunni með gengisfellingu sem bitnar aftur á útgerðinni sem er skuldug, eða að draga það að fella gengi til að útgerðin geti borið sig en þá kveinar fiskvinnslan. Getur ekki einfaldlega verið að fiskvinnslan sé með of mikla fjárfestingu í sínum fyrirtækjum til að hún geti borið sig við þær aðstæður sem við búum við núna? Það er á endanum alltaf markaðurinn sem ræður því hvernig vöru hann vill fá eða kaupa, hvort hún er lítið eða mikið unnin.
Upp á síðkastið hefur það aukist að við höfum flutt út ferskan fisk og sjófrystan. Markaðurinn hefur einfaldlega kallað eftir slíkri vöru. En á sama tíma verður minna að gera fyrir fiskvinnslufyrirtækin. Væri ekki ráð að þessum fyrirtækjum væri gert að nýta hluta af sinni fjárfestingu til að vinna að öðrum verkefnum en að frysta fisk?
Ég vil, með leyfi forseta, vitna í grein sem ég ljósritaði úr Morgunblaðinu í dag. Þetta er grein eftir Sigurð Tómas Garðarsson þar sem hann er að tala um sjávarútveginn. Þar segir, með leyfi forseta:
„Hlutverk stjórnvalda. Stjórnvöldum ber að leggja áherslu á nútímalega viðskiptahætti, fjölbreytta framleiðslu og sem víðtækasta markaðsstarfsemi til að minnka líkur á þeim markaðsþrengingum sem reglulega hrjá okkur við óbreytt ástand.
Með núverandi kerfi eru möguleikar til verðhækkana, aukinnar fjölbreytni og nýrra markaða að mestu takmarkaðir við fáa menn sem eru við stjórnvölinn í sölusamtökunum.“
Er ekki kominn tími til að það verði einhverjum hömlum létt af sölu og útflutningi á sjávarafurðum? Er það eðlilegt að stjórnvöld haldi þar svo fast um taumana að mönnum, sem sjá kannske möguleika á því að selja fisk fyrir hærra verð en sölusamtökin, sé að einhverju leyti meinuð slík sala? Áfram ætla ég að vitna í þessa grein, með leyfi hæstv. forseta:
„Mestar framfarir og mesta aukning fiskafurðasölu síðustu ára hefur orðið í ferskum fiski og rækju, en þessar tvær greinar útflutnings eru nokkuð opnar og ekki eins bundnar við sölusamtökin og freðfiskur, saltfiskur og skreið. Auðvitað eru vandamál því samfara að margir fái að selja sama vöruflokk úr landi. Menn verða fyrir verðlækkunum, birgðasöfnun og öðrum áföllum sem fylgja markaðsstarfi. Þessi vandamál fylgja eins þó aðeins einn útflytjandi sé og verða jafnvel enn erfiðari þar sem aðeins einn aðili fæst við úrlausn þeirra. Sannast þar málshátturinn „margar hendur vinna létt verk“.“
Það er sem sagt fleira sem við þurfum að líta á í þessum sjávarútvegi okkar. Það er ekki nóg að það sé vinnslan, eða útgerðin, heldur er það líka hvernig við komum þessari vöru í sem hæst verð. Það má efalítið halda því fram að með því að opna öðrum möguleika á því að selja íslenskar sjávarafurðir getum við fundið markaði fyrir okkar vöru sem gæfu hærra verð. Við getum lært það af þeirri reynslu sem við höfum af sölu á ferskum fiski og þeirri reynslu sem við höfum af framleiðslu frystitogaranna á sjófrystum fiski. Á frystitogurunum stendur aflaverðmætið á bak við hvern mann í um 7 millj. kr. þannig að sá rekstur er í dag alla vega mjög hagkvæmur.
Ekki er ég þó að segja að með því að allir okkar togarar yrðu frystitogarar væru þessi mál leyst og frystihúsunum yrði þar með lokað. Við þurfum að fara fleiri en eina leið í þessu, en fyrst og fremst að nýta fjárfestinguna sem best. Það á ekki að vera hægt, hvorki hjá útgerð né fiskvinnslunni, að hrópa ætíð á ríkisvaldið og segja: Við erum komnir í ógöngur. Þið verðið að bjarga okkur út úr þessu. - En þeir verða að gera þetta á meðan stjórnvöld hafa allt um það að segja hvernig afkoma þeirra er, á meðan stjórnvöld fara inn í samninga um fiskverð og segja: Ef þið fáið 4% hér og ef þið fáið 4% þar, getið þið þá ekki sætt ykkur við þetta lága fiskverð? Við verðum einfaldlega að gera þá kröfu til fiskvinnslu á Íslandi að hún borgi sambærilegt verð fyrir fiskinn hér eins og gert er í okkar nágrannaríkjum. Við þurfum á öllu því fjármagni að halda sem fiskvinnslan og framleiðslan aflar til þess að geta bætt lífskjör í landinu og þá þýðir ekkert að færa fjármuni úr einum vasanum í annan til þess að bjarga öllu til bráðabirgða.
Ég lagði fram fsp. ekki alls fyrir löngu til sjútvrh. um uppsafnaðan söluskatt í sjávarútvegi. Þar segir orðrétt, með leyfi forseta:
„Rétt er að geta þess að með væntanlegri tilkomu virðisaukaskatts mun endurgreiðsla á uppsöfnuðum söluskatti falla niður.“
Við erum að tala hér um tímabundnar tilfærslur. En hvað tekur við þegar ekki er hægt að kalla þessar 600 millj. uppsafnaðan söluskatt í sjávarútvegi? Hvað tekur þá við? Verða þessar 600 millj. teknar úr ríkissjóði og nefnd þá einhver önnur tilfærsla? - Það er nú svolítið erfitt að reyna að beina spurningum til hæstv. sjútvrh., en ég skil það mætavel, þar sem mál eru á dagskrá í Nd. og hann þarf að fylgjast með á báðum stöðum í einu, að það er einum manni mjög erfitt, nema hann sitji hér í dyrunum og reyni að hlusta á deildirnar með sitt hvoru eyranu. - En hæstv. ráðh. Ég vildi bera þá spurningu fram á ný hvað taki við. Á þetta að vera síðasta árið sem þessum uppsafnaða söluskatti verður deilt út ef virðisaukaskattur verður upp tekinn? Á hæstv. ráðh. von á því að nefnd sú, sem situr nú við störf og er að endurskoða sjóðakerfi sjávarútvegsins, komist að einhverju samkomulagi og skili áliti á þessu ári? Á hæstv. ráðh. von á því að jafnvel verði felld niður þessi prósenta hér og hin prósentan þar til þess að endurgreiða þetta svo í formi þeirra útdeilinga sem nú er gert? Að þessar millifærslur verði einfaldlega felldar niður og sjóðirnir niður felldir á næsta ári, þannig að þetta verði þá í síðasta skipti sem við þurfum að samþykkja slíkt lagafrv.? Enn fremur vil ég benda á, eins og fram kemur hérna í frv., að frá því 31. ágúst s.l. og fram á þennan dag hefur hluti af þessu komið til framkvæmda þótt engin lagafyrirmæli hafi verið til staðar. Sem sagt 3% eins og segir hér í 3. gr. frv. Þetta er ákvæði sem gildir frá 1. september s.l. og fram til þar næstu áramóta.
Það virðist því ekki vera nein sérstök þörf fyrir það að við séum að samþykkja slík frv. hér á hv. Alþingi. Það er hægt að millifæra fjármagn án þess að Alþingi segi sitt álit á þeim málum, enda væri ekkert við það að athuga ef þetta væru frjálsir samningar á milli fiskkaupenda og fiskseljenda um að mynda sjóð sem þeir síðan deili út sín á milli eftir þeim reglum sem þeir sjálfir setja. Það er ekkert því til fyrirstöðu að menn komi sér upp einhverjum tryggingarsjóði, hvort sem menn vilja kalla hann Aflatryggingasjóð eða eitthvað annað, án afskipta ríkisvalds.
En varðandi uppsafnaðan söluskatt langar mig til að nefna að það koma oft einstaklingar fyrir hönd félagasamtaka að máli við hv. fjvn. og segja: Við greiðum svo og svo mikið í ríkissjóð og okkur finnst nú alveg sjálfsagt að við fáum þetta til baka. Hér gefum við m.ö.o. fordæmi fyrir því að þeir sem greiða skatt til ríkisins geti farið fram á að fá hann endurgreiddan.
Eins vil ég nefna það að inni í þessu frv. eru samningar varðandi lífeyrissjóðsgreiðslur. Nú er ekki hægt að beina spurningum til hæstv. ráðh. þannig að ég held að ég komi frekar hér í stól aftur seinna ef hann hefur þá tíma til að vera í deildinni. Ég sé ekki ástæðu til þess að kalla hann sérstaklega hingað nú, en mér leikur forvitni á að vita um lífeyrissjóðsgreiðslurnar.