23.10.1985
Neðri deild: 6. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 128 í B-deild Alþingistíðinda. (109)

65. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Félmrh. (Alexander Stefánsson):

Herra forseti. Vegna fsp. hv. 5. þm. Austurl. að því er varðaði framlög til landshlutasamtakanna skv. eldri lögum um Framkvæmdastofnun ríkisins má geta þess að það er rétt að þetta var tekið út úr nýjum lögum um Byggðastofnun. Hins vegar er það algerlega opið að stjórn þeirrar stofnunar mun taka á því máli eftir því sem erindi um það berast frá landshlutasamtökunum. Það kom fram í umræðum og hefur oft verið gagnrýnt í sambandi við fyrri framkvæmd að landshlutasamtökin fengju ekki slík framlög sjálfkrafa án þess að gera skýra grein fyrir því verkefni sem þau eru að vinna að. Ég hef fulla ástæðu til að ætla að stjórn Byggðastofnunar muni ekki synja slíkum beiðnum, heldur taka þær til alvarlegrar athugunar þegar þær berast frá viðkomandi landshlutasamtökum. Það er eðlileg málsmeðferð. Þannig er alls ekki hægt að fullyrða hér og nú að þessi möguleiki landshlutasamtakanna til að fá styrk eða tekjuauka til að standa undir verkefnum sé úr sögunni. Svo er alls ekki.