12.12.1985
Efri deild: 27. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1436 í B-deild Alþingistíðinda. (1091)
178. mál, jarðræktarlög
Helgi Seljan:
Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að fara út í almenna landbúnaðarumræðu í tengslum við þetta litla mál sem mér finnst reyndar svo sjálfsagt að styðja og að nái hér í gegn á eðlilegum tíma. Ég kem hér aðallega upp vegna þess að hv. 8. landsk. þm. benti á að ekki hefði verið staðið nógu vel að uppbyggingu fóðurstöðva, m.a. að lánveitingar hefðu verið í lágmarki og styrkir til þeirra. Það mun vera rétt.
Ég held að þegar menn fóru að huga að loðdýrarækt hér á landi hafi menn í raun og veru ekki horft nógu mikið til þessa nauðsynlega þáttar sem eru fóðurstöðvarnar, þeir hafi að miklu leyti gleymt þeim, því miður. Þær hafa þess vegna komið á eftir og ekki verið hugað nægilega að því að styðja þær. Eins og oft gerist þegar menn byrja á einhverju nýju huga þeir ekki að öllum þáttum í einu og byrja kannske ekki á réttum enda. Hins vegar held ég að á þessu hafi orðið virkileg breyting. Ég kom hér kannske fyrst og fremst upp til að segja að nú nýlega samþykkti stofnlánadeild landbúnaðarins að hækka verulega lánveitingar til fóðurstöðva, eða upp í 60% af kostnaði við húsin og 50% áfram út á vélar og tæki. Lánsfyrirgreiðsla í sambandi við fóðurstöðvarnar af hálfu stofnlánadeildar landbúnaðarins er því nú eins og hún gerist best í landbúnaðinum yfirleitt.
Ég ætla ekki að fara út í almennar umræður hér um þetta enda þótt vissulega sé ástæða til þess enda skildi ég umræðuna þannig á s.l. vori að til stæði að færa styrkina í íslenskum landbúnaði enn frekar yfir á nýju búgreinarnar. Ég treysti því að bæði hæstv. landbrh. og aðrir þeir, sem að þeim málum starfa, vinni að því að færa þær styrkveitingar enn frekar í þá átt vegna þeirra erfiðleika sem eru í hinum hefðbundna búskap. Hins vegar vara ég við því að hægt sé að afskrifa framkvæmdir og fjárfestingar í hinum hefðbundna búskap með öllu eins og stundum heyrist á ræðumönnum hér og annars staðar. Vissulega þarf þar eðlilega endurnýjun, bara rétt aðeins til að halda í horfinu þó að ekki sé annað gert. Ég vara þess vegna við því, þó að við leggjum áherslu á nýjar búgreinar, að við göngum út frá því sem vísum hlut að við þurfum engu fjármagni að verja til hins hefðbundna búskapar, hvorki til framkvæmda, ræktunar eða neins annars, því að í því sem öðru þarf eðlilega endurnýjun og því megum við ekki gleyma.