12.12.1985
Efri deild: 28. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1446 í B-deild Alþingistíðinda. (1118)
184. mál, verðjöfnunargjald af raforkusölu
Skúli Alexandersson:
Virðulegi forseti. Það er full ástæða til að ítreka það sem hv. 8. þm. Reykv. sagði um vinnubrögð á þinginu. Ég nefndi reyndar á þingfundi í gær að nú hrúgast upp mál ríkisstj. á síðustu dögum þingsins fyrir jólaleyfi og ætlast er til þess að þau séu afgreidd á skömmum tíma. Það mál sem við vorum að afgreiða fyrir stundu, þ.e. frv. um Aflatryggingasjóðinn, á fyrri fundi, hefði verið mjög auðvelt að fjalla um mun fyrr á þinginu. Alveg sömu sögu er að segja um það mál sem við erum að fjalla um nú. Ég sé enga haldbæra ástæðu til þess að það hefur dregist svo lengi að leggja þessi mál fyrir Ed. Það er ámælisvert að það skuli ekki hafa verið gert fyrr.
Hvað snertir það frv. sem við erum að fjalla um held ég að við stöndum frammi fyrir því að ekki sé um annað að gera en að afgreiða það á þeim fundi sem við erum nú á. Þetta er frv. sem byggir á verðjöfnun á orku. Það má lengi deila um hvort sú leið sé rétt eða röng, en ef annað hefur ekki verið gert, annað undirbúið, er ekki um að ræða að fella niður þetta gjald.
Hitt er rétt að fyrir ári lýsti hæstv. fyrrv. iðnrh. því yfir að það sem við vorum að samþykkja þá, sú lækkun sem þá var samþykkt á verðjöfnunargjaldinu, væri áfangi að því að fella þetta gjald niður. Við það hefur ekki verið staðið. Frammi fyrir því stöndum við nú að ríkisstj. hefur í engu undirbúið verðjöfnun á orku á einhvern annan máta með tilfærslu skulda eða yfirtöku skulda orkufyrirtækjanna þannig að um jöfnun geti orðið að ræða.
Á fund iðnn. kom, eins og hv. 8. þm. Reykv. nefndi, Sigurgeir Jónsson aðstoðarbankastjóri Seðlabankans, ekki fyrst og fremst til að fjalla um þetta frv. í sjálfu sér, heldur fyrst og fremst til að ræða um vandamál Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar. Hann gaf okkur þar ýmsar upplýsingar um það mál og reyndar tengdust því þær upplýsingar sem hv. 8. þm. Reykv. var að gefa um útreikning hans á verðmismun, hverjir væru að borga undir verði og hverjir væru að borga yfir verði. Ég held að sú umræða tengist ekki þeirri vinnu sem við erum að vinna núna. Það gæti tengst aðgerðum til að fella þetta gjald niður eða breyta um orkujöfnunarkerfið, en alls ekki væri hægt með því að taka afstöðu til þess hvort við ættum að samþykkja þetta frv. nú, standandi frammi fyrir því að ríkisstj. hefur ekki gert eitt eða neitt af því sem hún ætlaði sér að gera og lofaði að gera. Ég sé ekki annað og legg því eindregið til að við göngum í að samþykkja þetta frv. þannig að hv. Nd. hafi möguleika til að afgreiða frv. á tilskildum tíma.