12.12.1985
Efri deild: 28. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1447 í B-deild Alþingistíðinda. (1119)
184. mál, verðjöfnunargjald af raforkusölu
Karl Steinar Guðnason:
Virðulegi forseti. Mér var ekki mögulegt að mæta á nefndarfundi í morgun til að afgreiða þetta mál þaðan. Sá fundur var reyndar stuttur og ekki færi á því þar að skoða málið eins og þurft hefði. Ég tek undir þá gagnrýni sem hér hefur komið fram á meðferð mála nú á síðustu dögum þingsins fyrir jólaleyfi.
Það hefði verið ástæða til að fara yfir þetta mál og skoða hvernig það er saman sett, taka fyrir að ríkisstj. hefur hvað eftir annað heitið því að fella niður þetta gjald og taka upp aðra hætti. Fyrrv. iðnrh. byrjaði á því að lækka gjaldið. Það gaf góðar vonir um að áfram yrði haldið. Einhvern veginn hefur það brugðist.
Þessi háttur á verðjöfnun kemur mjög undarlega út. Við sjáum hér á fskj. IX að raforkuverð, meðalverð 1984 með sköttum, er afskaplega mismunandi. Rafveita Húsavíkur er með 3,98 á kwst., Suðurnesin með 3,40, en Orkubú Vestfjarða með 2,23. Einmitt þetta orkubú fær 20% af öllu þessu gjaldi. Það er mjög merkilegt hvernig veita sem er mjög illa stödd getur selt rafmagn svo miklu ódýrara en aðrir. Svo er það líka rétt að þeir sem þurfa að greiða hæsta orkuverðið verða að greiða hæstu skattana. Þetta nær náttúrlega ekki nokkurri átt og þessu verður að breyta.
Það kemur fram í athugasemdum við frv. að Kjartan Jóhannsson og Sigurður Þórðarson, skrifstofustjóri í fjmrn., skiluðu báðir séráliti. Síðan er sérálit Sigurðar Þórðarsonar skrifstofustjóra tilgreint, en hvergi kemur álit Kjartans Jóhannssonar. Ég skil ekki þessi vinnubrögð. Kannske er skýring á því. En hún hefði mátt vera hér. Ég finn hana samt ekki.
Ég tel rétt að ríkisstj. beri alfarið ábyrgð á þessu máli og mun ekki greiða því atkvæði. Þarna hafa loforð verið svikin, fyrirheit brostið, og því er rétt að þeir sem að því standa beri ábyrgð á því.