12.12.1985
Efri deild: 28. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1449 í B-deild Alþingistíðinda. (1121)
184. mál, verðjöfnunargjald af raforkusölu
Frsm. meiri hl. (Þorv. Garðar Kristjánsson):
Hæstv. forseti. Ég stend upp í tilefni af því að hv. 8. þm. Reykv. vitnaði til orða sem ég sagði sem forseti Sþ. fyrr á þessu þingi varðandi vinnubrögð ríkisstj. við framlagningu stjfrv. og dreifingu þeirra á þingtíma.
Mér þykir af þessu tilefni rétt að skýra frá því hér að á þessu þingi hafa komið fram 32 stjfrv. og af þessum 32 stjfrv. hafa 10 verið lögð fram í desembermánuði. Ég hygg, þó ég hafi ekki tölur á reiðum höndum, að þetta sýni að okkur miðar nokkuð í framfaraátt í þessu efni. Hins vegar er ekki nóg að gert, vinnubrögðin eru enn ekki orðin nógu góð í þessu efni. Með tilliti til þess átti ég sérstakar viðræður við forsrh. einmitt í dag um þetta efni og lagði áherslu á að ríkisstj. þyrfti að gera betur í þessu efni en gert hefur verið. Hæstv. forsrh. tjáði mér að hann mundi beita sér fyrir því að svo yrði gert. Við skulum þess vegna vænta að allt horfi til hins betra í þessum efnum.