12.12.1985
Neðri deild: 26. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1452 í B-deild Alþingistíðinda. (1136)
151. mál, geislavarnir
Hjörleifur Guttormsson:
Herra forseti. Vinnubrögðin að baki frv. og samningnum við Alusuisse, sem að baki því liggur, eru með miklum fádæmum. Rangar tölur og rangar staðhæfingar um eðli og kjarna þessa samnings, sem iðnrh. undirritaði fyrir hönd ríkisstj. 11. nóv. s.l., fylgdu frv. inn í Alþingi. Fjölmargir fleiri alvarlegir brestir í málsmeðferð og ákvæðum samningsins komu í ljós við athugun í iðnn. deildarinnar. Það segir sína sögu að framsóknarmenn þorðu ekki að skrifa upp á nál. í málinu með Sjálfstfl. en styðja samt frv. Það segir sína sögu að málgögn ríkisstj., Morgunblaðið og NT, hafa ekki skrifað orð um þetta mál eftir að það kom inn á vettvang Alþingis. Stjórnarandstaðan kom hvergi nærri undirbúningi þessa máls. Samningurinn er niðurstaða úr leynimakki ríkisstj. við Alusuisse. Alþb. mótmælir þessari samningsgerð sem er enn eitt skrefið í undanhaldi ríkisstj. gagnvart Alusuisse. Ég segi nei.