12.12.1985
Neðri deild: 27. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1479 í B-deild Alþingistíðinda. (1158)

134. mál, álbræðsla við Straumsvík

Steingrímur J. Sigfússon:

Herra forseti. Það situr nú síst á mér að lengja hér umræður sem hef sjálfur kvartað yfir því að fundi skuli vera haldið hér fram við þessar aðstæður og mun ég ekki gera það. Ég kemst þó ekki hjá því að segja að með einhverju móti hefur hæstv. sjútvrh. með öllu misskilið spurningu mína, þá spurningu sem sneri að útreikningum varðandi 7. og 8. gr. frv. og hvort í þeim greinum og ákvæðum þeirra fælust hugsanlega möguleikar um tilfærslur á aflamarki milli verstöðva, milli landshluta, vegna þess að þær aukningar, sem hann hér nefndi og væntanlega geta átt sér stað á árinu 1986 og ekki síður á árinu 1987, þurfa að mínu viti ekki endilega að dreifast jafnt eftir svæðum. Þá er spurningin: Hvert fer þá sú aukning sem einstakir aðilar ná sér í í gegnum ákvæði þessara greina? Og þá sérstaklega þeir sem eru að vinna sig upp, eins og það er kallað, með sóknarmarkinu.

Ef við erum að skipta hér köku af ákveðinni stærð þá eykur væntanlega enginn hlutdeild sína nema það sé á kostnað einhvers annars. Það var nú fyrst og fremst þetta sem ég vildi spyrja um. En ég sætti mig í sjálfu sér alveg við það þó ekki komi hér mikil svör við því ef engir útreikningar liggja fyrir um þetta, að menn hafi ekki velt þessu sérstaklega fyrir sér út frá þessum sjónarhóli enda treysti ég á hv. Ed. að fá þá svör fram í þessu efni.

Síðan vil ég aðeins segja að þau orð sem ég lét hér falla um þann almannaróm sem ég vitnaði til og hermir að á því sé verulegur misbrestur að allt sé rétt skráð og allt sé rétt fært inn á skýrslur, sem upp úr fiskiskipum landsmanna kemur, bæði heima og erlendis, þau orð lét ég falla viljandi til að vekja á því athygli hér vegna þess að ég tel að menn eigi ekki að halda slíkri umræðu héðan út úr þingsölum með því einu að segja að það sé alvarlegur hlutur og menn eigi nú ekki að taka sér slíkt í munn nema þeir geti sannað allt saman. Hvað oft hafa menn staðið hér í þessum virðulega ræðustóli og rætt um skattsvik, rætt um undandrátt frá söluskatti og tekjuskatti og ýmislegt annað sem miður fer án þess að geta staðið hér og sannað það, q.e.d., á staðnum. Það gerist einfaldlega ekki. En eiga menn þá að þegja yfir öllu og láta sem það sé ekki til, snúa blinda auganu að því ár eftir ár þegar annar hver maður í flotanum talar um þetta sem nánast viðtekna staðreynd þar? Satt best að segja skil ég ekki að menn skuli ætla að halda þessu algerlega út úr umræðunni með svo einföldu móti því ég hef enga ástæðu til að ætla, eins og ég sagði, að sjómenn séu það miklu lygnari en aðrar stéttir í landinu að ekki sé einhver fótur fyrir því þegar sannorðir menn víða að, úr mörgum áhöfnum, segja manni slíkt.

Ég ætla ekki að hafa fleiri orð um þetta, en ég skammast mín ekki fyrir að vekja á þessu athygli vegna þess að ég veit að það er svo altalað og svo víða. Ég teldi það öllu meiri skömm fyrir Alþingi ef enginn þm. hefði kjark í sér til að nefna þetta í umræðunni.

Umr. (atkvgr.) frestað.