12.12.1985
Neðri deild: 28. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1487 í B-deild Alþingistíðinda. (1170)

173. mál, rannsóknarnefnd til að kanna viðskipti Hafskips hf.

Forseti (Ingvar Gíslason):

Umferðir í útvarpsumræðunni verða tvær, 20 mínútur í fyrri umferð og 10 mínútur í þeirri síðari. Auk þess talar Kristín S. Kvaran 1. landsk. þm. í 15 mínútur og talar hún næst á eftir Samtökum um kvennalista í fyrri umferð. Röð flokkanna í útvarpsumræðunni verður þessi í báðum umferðum: Alþfl., Sjálfstfl., Alþb., BJ, SK, Framsfl.

Ræðumenn verða: Af hálfu Alþfl. talar í fyrri umferð Jóhanna Sigurðardóttir, 2. landsk. þm., og Jón Baldvin Hannibalsson, 5. þm. Reykv., í síðari umferð. Fyrir Sjálfstfl. tala Þorsteinn Pálsson fjmrh. og Birgir Ísl. Gunnarsson, 4. þm. Reykv., í fyrri umferð og Halldór Blöndal, 2. þm. Norðurl. e., í síðari umferð. Ræðumenn Alþb. í fyrri umferð verða Ólafur Ragnar Grímsson, 7. þm. Reykv. og Guðrún Helgadóttir, 10. landsk. þm., en Steingrímur J. Sigfússon, 4. þm. Norðurl. e., í síðari umferð. Af hálfu BJ talar Guðmundur Einarsson, 4. landsk. þm., og talar hann í báðum umferðum. Fyrir SK talar Guðrún Agnarsdóttir, 3. landsk. þm., í fyrri umferð og Kristín Halldórsdóttir, 7. landsk. þm., í síðari umferð. Ræðumenn Framsfl. verða Steingrímur Hermannsson forsrh. í fyrri umferð og Páll Pétursson, 2. þm. Norðurl. v., í þeirri síðari.

Nú hefst umræðan og tekur fyrst til máls Jóhanna Sigurðardóttir og talar af hálfu Alþfl.