12.12.1985
Neðri deild: 28. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1487 í B-deild Alþingistíðinda. (1171)

173. mál, rannsóknarnefnd til að kanna viðskipti Hafskips hf.

Flm. (Jóhanna Sigurðardóttir):

Herra forseti. Góðir áheyrendur. Tvívegis hefur Alþingi kosið rannsóknarnefnd í samræmi við ákvæði 39. gr. stjórnarskrárinnar, eins og þessi tillaga gerir ráð fyrir. Í því sambandi skal eftirfarandi rifjað upp þegar forustumenn Sjálfstfl., sem beygt hafa Framsfl. til hlýðni í þessu máli, reyna nú að koma í veg fyrir skipan rannsóknarnefndar Alþingis í Hafskipsmálinu. Þau dæmi sýna vel þá breytingu sem orðið hefur á Sjálfstfl. á undanförnum árum þar sem nú ræður ríkjum fyrst og fremst frjálshyggjan í sinni verstu mynd og hagsmunagæsla fyrir gróðaöflin í þjóðfélaginu.

Á Alþingi árið 1955 var lögð fram tillaga af sjálfstæðismönnum um að Alþingi kysi nefnd fimm sérfróðra manna til að rannsaka milliliðagróða, en ásakanir voru þá uppi um að hópur milliliða í þjóðfélaginu rakaði saman gróða á kostnað þjóðarheildarinnar. Fjvn. mælti með samþykkt þáltill. með þeirri breytingu að í stað þess að utanþingsnefnd eða nefnd sérfræðinga rannsakaði málið yrði rannsókn falin þingmannanefnd með rannsóknarvald sem valin yrði í samræmi við ákvæði 39. gr. stjórnarskrárinnar. Það var því afstaða forustumanna Sjálfstfl. og Framsfl. á þeim tíma, sem þá fóru með stjórn landsins, að skynsamlegast og vænlegast til árangurs væri að skipa rannsóknarnefnd þingsins í málið. Athyglisvert er að undir þetta álit skrifuðu m.a. þingmenn Sjálfstfl., þeir Pétur Ottesen, Jónas G. Rafnar fyrrv. bankastjóri Útvegsbankans og Magnús Jónsson, fyrrum fjármálaráðherra og bankastjóri Búnaðarbankans, sem var flm. till. um skipan utanþingsnefndar eða nefndar sérfróðra aðila, en breytti afstöðu sinni í stuðningi við rannsóknarnefnd þingsins að athuguðu máli.

Annað dæmi um þá breytingu sem orðið hefur á Sjálfstfl.:

Í Nd. Alþingis 21. mars 1956 var tekin til síðari umræðu tillaga um skipan rannsóknarnefndar samkvæmt 39. gr. stjórnarskrárinnar þar sem fimm manna þingmannanefnd var falin rannsókn á okurlánastarfsemi. Bjarni Benediktsson þáverandi dómsmrh. fagnaði þá sérstaklega skipan þingmannanefndar til að rannsaka málið og sagði, með leyfi forseta:

„Almenningur á heimtingu á því, að hér sé gengið alveg milli bols og höfuðs á spillingu, ef um spillingu er að ræða, og ef um ósannan söguburð er að ræða, þá eiga þeir, sem fyrir röngum sökum eru hafðir, einnig rétt á því að vera hreinsaðir.“

Þessi orð fyrrverandi leiðtoga Sjálfstfl., sem fagnaði sérstaklega skipun rannsóknarnefndar þingsins í málinu, eiga vissulega við um það mál sem hér er til umræðu um skipan rannsóknarnefndar þingsins í Hafskipsmálinu. Á því eru margar hliðar sem hver um sig kallar á ítarlega rannsókn þar sem brýnt er að ekkert verði undan dregið til að varpa ljósi á þetta mál.

Ýmislegt hefur verið staðhæft og fullyrt í þessu máli og ásakanir uppi sem m.a. snerta æru og heiður fjölda manna sem með réttu eða röngu hafa verið bornir sökum í þessu máli. Þeir sem hafa hreinan skjöld í þessu máli eiga á því kröfu að einskis verði látið ófreistað til að hver einasti þáttur þessa máls verði upplýstur og öllum þeim spurningum verði svarað sem nú brenna á vörum fólksins í landinu.

Orð hafa verið látin falla um að á ferðinni sé stórfellt fjármálamisferli, blekkingar og falsanir, misnotkun á pólitísku valdi, vanræksla í störfum bankastjórnar, bankaráðs og ráðherra, að forráðamenn Hafskips hafi sjálfir hagnast á misferli í rekstri félagsins, misnotkun hafi átt sér stað á lánafyrirgreiðslu ríkisbanka, lúxuslifnaður forráðamanna Hafskips og sóun í rekstri og tortryggni um að rétt sé að málum staðið með yfirtöku Eimskips á eignum Hafskips. Allt endi þetta í miklu fjármálahneyksli og stærsta gjaldþrotamáli í sögu íslenska lýðveldisins.

Hér eru svo margar alvarlegar ásakanir á ferðinni að öllum má ljóst vera að mikið er í húfi að Alþingi sjái til þess að þannig verði að rannsókn á máli þessu staðið að öll atriði sem máli þessu tengjast verði skoðuð ofan í kjölinn og allt komi upp á borðið. Að öðrum kosti er víst að traust almennings á banka- og fjármálastofnunum þjóðarinnar bíði alvarlegan hnekki. Fólkið í landinu, sem skattlagt verður fyrir því fjárhagstjóni ríkisbankans sem af þessu leiðir, á kröfu á því að ekkert verði undan dregið í þessu máli.

Ég vil aðeins lauslega reifa nokkra þætti sem fram hafa komið og sem rannsókn málsins verður að leiða í ljós:

Hver er skýringin og hver ber ábyrgð á lánveitingum Útvegsbankans til Hafskips sem nú er sagt að nemi a.m.k. 400-500 millj. umfram tryggingar skulda og eiginfjárstöðu bankans? Hvers vegna var ekki fyrr gripið í taumana? Af hverju voru lánafyrirgreiðslur til Hafskips ekki fyrir löngu stöðvaðar? Til hvers er Alþingi að kjósa bankaráð í ríkisbanka sem ekki veit um 780 millj. kr. lánveitingu til stærsta viðskiptaaðila bankans eða hvernig tryggingum er háttað á hverjum tíma? Voru lánveitingar bankans veittar á röngum upplýsingum forráðamanna Hafskips um hag og rekstur fyrirtækisins? Voru ársskýrslur Hafskips undanfarin ár rangar og hvað er til í því að reikningsskil ársskýrslna hafi á hverjum tíma miðast við að fá fram sem hagstæðasta ársreikninga? Hvað er hæft í þeirri staðhæfingu að endurskoðendafyrirtæki í Bandaríkjunum hafi ekki treyst sér til að sjá um endurskoðun á reikningum Hafskips þar sem um sérkennilega viðskiptahætti hafi verið að ræða sem ekki stæðust venjulegar endurskoðunarreglur? Hvað er hæft í staðhæfingu um óreglu í bókhaldi Hafskips í Bandaríkjunum sem varði við bandarísk lög? Eru staðhæfingar réttar um 200 millj. kr. tap félagsins á árinu 1984, en í ársskýrslu félagsins kemur fram 95 millj. kr. tap?

Fóru forráðamenn fyrirtækisins vísvitandi með blekkingar þegar þeir á aðalfundi félagsins héldu fram velgengni félagsins á Atlantshafssiglingaleiðinni sem skilaði góðum arði og að áætlanir félagsins hafi í megindráttum staðist? Það er allsérkennileg staða að ritstjóri Helgarpóstsins hafði á þeim tíma meiri og betri vitneskju um ástand og horfur í Atlantshafssiglingunum en forráðamenn Hafskips. Hvers vegna er því enn haldið fram í bréfi til hluthafa 27. nóv. 1985 eða fyrir rúmum hálfum mánuði að í febrúarmánuði hafi verið góðar vonir um að Atlantshafssiglingar félagsins mundu leiða til árangurs? Samt lá fyrir á þeim tíma samkvæmt upplýsingum Helgarpóstsins að mörg skipafélög höfðu á stuttum tíma gefist upp á þessari siglingaleið, að flutningsgetan var meiri en þörfin, að farmgjöld höfðu lækkað gífurlega á þessari siglingaleið, að Hafskip var eitt af fjölmörgum litlum skipafélögum sem bítast um 10% af þessum markaði.

Þessum spurningum þarf m.a. að svara nú þegar gífurlegt tap Útvegsbankans blasir við, þegar þrautpíndir skattgreiðendur verða að bera byrðar vegna gjaldþrots Hafskips, þegar 300-400 starfsmenn Hafskips missa vinnu sína, þegar starfsmenn Hafskips eru ekki einungis að missa vinnu sína heldur margir hverjir fjármagnið sem þeir hafa sett í hlutafjáraukningu fyrirtækisins, kannske á forsendu þeirrar bjartsýni sem forráðamenn Hafskips kynntu þeim um Atlantshafssiglingarnar sem þó varð banabiti félagsins.

Spyrja má líka: Af hverju hefur ekki í marga mánuði verið haldinn hluthafafundur hjá Hafskipi þó í langan tíma hafi verið ljóst hvert stefndi? Kom hluthöfunum það ekkert við hvað var að gerast? Starfsmennirnir eiga heimtingu á því að vita hvort þeim hafi verið seld hlutabréf á fölskum forsendum, eins og fullyrt er af fyrrverandi framkvæmdastjóra dótturfyrirtækis Hafskips í Bandaríkjunum, sem ofbauð sviðsetning og framsetning mála á hluthafafundi félagsins fyrr á árinu. Og fleira má nefna sem rannsaka þarf. Hvað er hæft í þeirri staðhæfingu að Hafskip hafi greitt ólögleg umboðslaun í stórum stíl frá því um það leyti sem Norður-Atlantshafssiglingarnar hófust til að tryggja sér farmflutninga frá Evrópu, en þar er talað um 400-500 þús. kr. aukagreiðslur í hverri ferð? Með því hafi Hafskip framið lögbrot á siglingaleiðinni og keypt flutninga dýru verði.

Á sú fullyrðing við rök að styðjast að brotin hafi verið bandarísk tollalög þar sem Hafskip hafi flutt inn gáma án leyfis frá bandarískum tollayfirvöldum?

Hvað er hæft í því að forstjóri Hafskips í Bandaríkjunum hafi staðið í einkainnflutningi bíla frá Evrópu til Bandaríkjanna fyrir sjálfan sig og aðra og andvirði þeirra og flutningur hafi verið kostaður af Hafskipi, eins og upplýst er af fyrrverandi framkvæmdastjóra dótturfyrirtækis Hafskips í Bandaríkjunum? Hvað er hæft í því að pappírsfyrirtæki forstjórans í Bandaríkjunum, Georgia Export Import, hafi mjólkað fé út úr Hafskipi fyrir þjónustu sem aldrei var veitt, eins og starfsmenn Hafskips í Bandaríkjunum halda fram? Hvað er hæft í þeirri fullyrðingu starfsmanna Hafskips í Bandaríkjunum að þetta hafi viðgengist með fullri vitneskju stjórnar félagsins og forráðamanna Hafskips sem hafi sjálfir hagnast á þessu svindli og lögleysu?

Þetta eru spurningar og staðhæfingar, sem uppi eru í umræðunni, sem nauðsynlegt er að staðreyna og upplýsa. Það kemur nefnilega fólkinu í landinu við, sem borga þarf brúsann af þessu fjármálahneyksli, og það kemur Alþingi við ef fjármagn hefur verið flutt úr ríkisbanka til pappírsfyrirtækja Hafskips erlendis til að standa undir þvílíku bruðli, sóun og spillingu.

Hér á vissulega einkafyrirtæki hlut að máli, en það kemur okkur öllum við ef rekstri fyrirtækisins hefur í langan tíma verið haldið gangandi með fjármagni úr ríkisbanka sem notað hafi verið m.a. til að fjármagna einkaneyslu og lúxuslifnað forráðamanna félagsins.

Þess vegna er það ekkert einkamál þessara aðila, ef satt er sem haldið hefur verið fram í fjölmiðlum, að heildarlaun tveggja forráðamanna Hafskips hafi numið allt að 800 þús. kr. á mánuði eða nálægt fjórföldum árslaunum láglaunafólks sem lifa þarf af strípuðum launatöxtum - þess fólks sem nú fær sendan reikninginn af Hafskipsævintýrinu. Þetta fólk á kröfu á því að öll kurl komi til grafar um lúxuslíf og lystireisur forráðamanna Hafskips.

Það er ekkert einkamál forráðamanna Hafskips, þegar ríkisbanki hefur dælt fjármagni inn í rekstur félagsins langt umfram veð og tryggingar, hvort sóun eða misferli hafi átt sér stað með þá fjármuni. Spurningin er því þessi: Hagnast forráðamenn Hafskips á öllu ævintýrinu meðan þjóðin stendur uppi með reikninginn? Okkur kemur það við ef einn hótelreikningur forráðamanna Hafskips samsvarar fernum árslaunum láglaunafólks í dagvinnu sem lifa þarf af kauptöxtunum.

Það er ekkert einkamál forstjóra skúffufyrirtækis í Bandaríkjunum ef hann þiggur fjármagn úr rekstri Hafskips til að fjármagna lengdan kádilják með sjónvarpi, bar og einkabílstjóra til að aka sér út á flugvöll, í golfferðalög með sérsmíðaðar golfkúlur í skottinu sem bera einkennismerki Hafskips. Það er ekkert einkamál þessara manna ef fjármagn Hafskips, sem að verulegu leyti er lánsfé úr banka þjóðarinnar án fullnægjandi veða, er notað með þessum hætti.

Vissulega eru þetta alvarlegar ásakanir sem ég hef nú lýst og fram hafa komið um lúxuslíf og laun forráðamanna Hafskips. En þegar senda á þjóðinni reikning upp á a.m.k. 500 millj. kr. vegna Hafskipsævintýrisins verður líka að upplýsa þessa þætti. Og spyrja má: Af hverju hafa forráðamenn Hafskips ekki borið af sér svo alvarlegar ásakanir ef þær hafa ekki við rök að styðjast? Af hverju fara þeir ekki að fordæmi Alberts Guðmundssonar, ef þeir hafa hreinan skjöld, og óska eftir að ríkissaksóknari kanni þær ásakanir sem á þá hafa verið bornar um sóun og bruðl í rekstri? Ekkert hefur verið borið til baka af forráðamönnum Hafskips í þessu efni.

Mér dettur ekki í hug að setjast í dómarasætið og ásaka forráðamenn Hafskips varðandi þennan alvarlega þátt málsins. Ég hef hér einungis lýst því sem fram hefur komið og nauðsynlegt er að staðreyna og upplýsa í rannsókn málsins. Þeirri spurningu verður þá svarað t.d. hvort við höfum hér skýrt dæmi um það, sem Alþfl. hefur haldið fram, að hér búi tvær þjóðir í einu landi og að hér þrífist neðanjarðarstarfsemi, sukk og spilling sem verður að uppræta. Spurningin sem þjóðin á kröfu á að fá svar við er sú hvort hér hafi aðeins verið opnuð glufa inn í hyldjúpt neðanjarðarhagkerfi spillingarinnar sem þrífst á kostnað skattborgaranna í þessu landi.

Ein röksemdin sem stjórnarflokkarnir færa fyrir því að ekki sé heppilegt að skipa rannsóknarnefnd þingsins í þessu máli er sú að óheppilegt sé að fundirnir séu haldnir fyrir opnum tjöldum. Þessi röksemd stenst ekki gagnvart þeirri tillögu sem ég hér mæli fyrir því ekki er gert ráð fyrir því í tillögunni þó krafa sé um það gerð af hálfu Alþýðubandalagsmanna. Hvað stendur þá eftir af röksemdafærslu frjálshyggjuforustunnar hjá íhaldinu að meina rannsóknarnefnd Alþingis að rannsaka málið, eins og leiðtogar Sjálfstfl. töldu best fyrir 30 árum þegar rannsaka átti mikilvægt mál sem varðaði hagsmuni almennings í landinu? Lítum nánar á það.

Ráðherrar eru æðstu handhafar framkvæmdavaldsins í landinu. Eru það ekki hagsmunaárekstrar þegar nefnd í umboði framkvæmdavaldsins á að rannsaka málið, sér í lagi þar sem ýmsar aðdróttanir eru uppi um hlut einstakra ráðherra í þessu máli og vanrækslu í störfum embættismanna? Á að meina Alþingi með þessum hætti að gegna sínum skyldum sem eru að halda uppi ströngu eftirliti og aðhaldi með framkvæmdavaldinu? Er það ekki einkennilega að staðið að fela Hæstarétti að tilnefna menn í rannsóknarnefnd - Hæstarétti sem ef til vill á síðari stigum málsins þyrfti að taka málið til dómsmeðferðar?

Nei, hér er í hæsta máta einkennilega að hlutunum staðið af hálfu stjórnarflokkanna. Ég tel að skynsamlegra væri fyrir núverandi forustu íhaldsins að liggja ekki undir grun um að láta stjórnast af hagsmunum gróðaaflanna í þjóðfélaginu. Ég hvet þá til að fylgja þess í stað fordæmi virtra fyrrverandi leiðtoga Sjálfstfl. sem töldu á sínum tíma að með skipan rannsóknarnefndar þingsins í mikilvægu máli væru hagsmunir fólksins í landinu best tryggðir. En ásjóna íhaldsins hefur breyst í tímanna rás. Frjálshyggjan ræður ríkjum og hagsmunir gróðaaflanna eru í fyrirrúmi.

Ég hef þegar greint frá þeim mun sem er á þeirri tillögu sem ég hér mæli fyrir og tillögu Alþb. að því er varðar að rannsóknarnefnd þingsins starfi fyrir opnum tjöldum. Á tillögum okkar Ólafs Þ. Þórðarsonar, Guðrúnar Agnarsdóttur og Guðmundar Einarssonar er einnig sá munur, sem hvorki tillaga Alþb. eða ríkisstj. gerir ráð fyrir, að rannsökuð verði sérstaklega samningatilboð um yfirtöku eigna Hafskips eins og er lagt til í þessari tillögu. Þetta er mikilvægt atriði því að með slíkri könnun kæmi ótvírætt í ljós hvort yfirtaka Eimskipafélagsins á eignum Hafskips sé hagkvæmasti kosturinn til að tryggja hagsmuni Útvegsbanka Íslands og ríkissjóðs, samkeppni í flutningum til og frá landinu og atvinnuöryggi þeirra sem starfa við flutninga skipafélaga.

Það er mikilvægt í þeirri stöðu sem uppi er að kannaðir verði ofan í kjölinn allir kostir sem fyrir hendi eru í þessu máli, bæði út frá því sjónarmiði að Útvegsbankinn verði fyrir sem minnstu fjárhagstjóni svo og með tilliti til að tryggð sé eðlileg samkeppni og hagkvæmni í skipaflutningum til og frá landinu. Ég fæ ekki betur séð en hvorugur þessara þátta sé tryggður eins og haldið hefur verið á málum.

Af hverju eru ekki allir kostir í stöðunni kannaðir og látið fara fram útboð á eignum Hafskips? Eimskip er fært allt upp í hendurnar og enginn annar virðist hafa minnstu möguleika á að koma þar nálægt. Endahnúturinn er síðan riðinn á einokunaraðstöðu Eimskips með því að tryggja fyrirtækinu hafnaraðstöðu Hafskips einnig. Á ekkert að virða beiðni, sem liggur fyrir frá tólf fyrirtækjum, um að hafnaraðstaðan fylgi ekki með eignum Hafskips? Ætla þingmenn Reykvíkinga, íhaldsmennirnir Birgir Ísl. Gunnarsson og Friðrik Sophusson og framsóknarþingmaðurinn Haraldur Ólafsson, að láta það óátalið að Eimskip einoki hafnaraðstöðu í Reykjavík? Hvar eru nú einkunnarorð íhaldsins og stefna um að hagkvæmni sé best tryggð með samkeppni en ekki einokun?

Spyrja má: Hvað er til í því að eignir Hafskips séu seldar Eimskipi langt undir sannvirði og með vildarkjörum, bæði skip og tækjakostur, m.a. með því að kaupverðið sé að stórum hluta vaxtalaust? Óttast íhaldið ekki að í skjóli einokunaraðstöðu sinnar hækki Eimskip farmgjöldin svo um munar? Verður þjóðin þannig látin greiða á skömmum tíma fyrir Eimskip yfirtöku þess á eignum Hafskips með auknum farmgjöldum í skjóli einokunaraðstöðu sem íhaldið vinnur nú að að færa þeim á silfurdiski? Er samtrygging skipafélaga um 20% hækkun nú á flutningsgjaldi á mjöli frá Íslandi, sem sumir segja að sé 50% hækkun, einungis byrjunin á því sem koma skal?

Stærsti kröfuhafinn í þrotabú Hafskips, Útvegsbanki Íslands, sem og yfirmaður bankamála á Íslandi, sjálfstæðismaðurinn Matthías Bjarnason, talsmaður frjálsrar samkeppni og andstæðingur einokunar, geta haft áhrif á að Eimskip verði ekki tryggð einokunaraðstaða án þess að aðrir kostir séu kannaðir, án þess að útboð fari fram.

Spyrja má líka: Á að treysta Útvegsbankanum einum til að meta hvað rétt er um sölu eigna Hafskips? Spyrja má: Er hann traustsins verður?

Varla verða þessir þættir mála kannaðir af utanþingsnefndinni sem íhaldið beitir sér fyrir að skipuð verði. Við skulum líka átta okkur á því að Hafskipsmálið getur orðið alvarlegt áfall fyrir einkareksturinn í landinu sem nýtur lánafyrirgreiðslu og styrkja í einu eða öðru formi af opinberu fé. Þess vegna er best fyrir alla aðila að eytt verði allri tortryggni í þessu máli. Öll spilin verður að leggja á borðið svo af hljótist ekki óbætanlegur og alvarlegur trúnaðarbrestur milli fólksins í landinu og valdhafa og mikill álitshnekkir fyrir fjármálastofnanir þjóðarinnar.

Herra forseti. Ég legg til að að lokinni þessari umræðu verði málinu vísað til hv. allshn.

Ég þakka þeim sem hlýddu.