12.12.1985
Neðri deild: 28. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1504 í B-deild Alþingistíðinda. (1176)

173. mál, rannsóknarnefnd til að kanna viðskipti Hafskips hf.

Guðmundur Einarsson:

Herra forseti, góðir Íslendingar. Það eru margir angar á þessu Hafskipsmáli og við höfum hér heyrt, bæði á þingi og annars staðar, rakin ýmis dæmi þess. Við höfum heyrt smáatriði um að því er okkur virðist spillingu, við höfum séð dæmi um fjöldamargt sem okkur virðist mega betur fara. En eigum við ekki að skoða það í svolítið stærra samhengi vegna þess að angarnir eru svo margir?

Menn hafa rætt í fyrsta lagi um pólitísk tengsl við Sjálfstfl. Menn hafa rætt um pólitíska skipun bankaráða, menn hafa rætt um tengsl bankaráðsmanna við tiltekin fyrirtæki. Við höfum dæmið um Albert Guðmundsson sem er stjórnarformaður stærsta viðskiptavinar Útvegsbankans á sama tíma og hann er formaður bankaráðsins. Við spyrjum spurninga um bankaeftirlitið. Við spyrjum: Hvar var skattaeftirlitið? Við getum spurt: Hvar var Alþingi? Hvar var Alþingi meðan allt þetta gekk á? Og við getum spurt t.d. síðan í vor: Hvar var pressan? Hvar voru ríkisfjölmiðlar þegar fréttir af þessu fóru að berast? Og við getum síðan spurt í raun og veru: Hvar hafa allir verið vegna þess að eftir gögnum málsins að dæma á að hafa legið ljóst fyrir um áramót hvernig mundi fara.

Við getum rætt þetta mál á margan hátt. Við getum velt fyrir okkur afleiðingum þess og við getum velt fyrir okkur orsökum þess. Hvenær er þessu máli fyrst hreyft? Þann 11. júní s.l. legg ég til hæstv. þáv. viðskrh. minnisblað þar sem ég spyr spurninga um viðskipti Hafskips og Útvegsbankans vegna upplýsinga sem komu fram í ársskýrslu fyrirtækisins. Þann 18. júní spyr ég þessarar spurningar úr ræðustól á Alþingi og ráðherrann svarar með tilvísun í fréttatilkynningu bankastjóra Útvegsbankans sem hafði verið birt í Morgunblaðinu og var þar birt að því er virðist til þess að vísa á bug fullyrðingum Helgarpóstsins um að fyrirtækið ætti ekki veð fyrir skuldum.

Menn þekkja nú orðið þá sögu. Þá yfirlýsingu mátti ekki skilja á annan hátt en þann að þetta væri allt í stakasta lagi, enda taldi ráðherrann ekki neina ástæðu til að gera neinar athugsemdir. Og hver eru viðbrögð Alþingis? Ég vil t.d. vitna í fulltrúa Alþb. við þá umræðu. Hann sagði, með leyfi forseta:

„Ég lét mig hafa það að biðja um orðið undir ræðu hv. 4. landsk. þm. Ég hef ekki hugsað mér að ræða hér málefni Hafskips og hef enga heimild til þess, enda kannske óþarft að öðru leyti en því að mér fannst algjör óþarfi að draga óþverramálflutning Helgarpóstsins inn í umræður á hinu háa Alþingi. Það sem mest var áberandi í þeirri grein fyrir utan illkvittni og sóðaskap, var að birt var stór mynd af sökkvandi skipi með nafni og númeri. Það lýsir innræti viðkomandi ritstjóra betur en nokkur orð.“

Þetta var vitnisburður úr bankaráði Útvegsbankans á Alþingi.

Fulltrúi Alþfl. hafði um þetta mál að segja:

„Ég kom hér inn áðan þegar hv. 8. þm. Reykv. var að flytja sína ræðu. Hann var að tala hér um ákveðið fyrirtæki, Hafskip, og gerðist þar býsna stórorður. Ég heyrði ekki betur en hann væri að éta upp úr vikublaði sem hér er gefið út og heitir Helgarpósturinn og hefur verið að skrifa um þessi mál með býsna einkennilegum hætti. Það hefur lítið verið staðfest af hæpnum fullyrðingum. Ég skil satt að segja ekki hvað slíkar fullyrðingar og umræður eiga að þýða þegar Alþingi Íslendinga er að ræða um viðskiptabanka.“

Svona var nú það. Þetta voru móttökur hæstv. Alþingis þegar málinu var hreyft í júní s.l. Alþingi vildi ekki sjá, ráðuneytið sá ekki neitt og að því er virðist blekkti bankinn. Bankinn gaf upplýsingar sem blekktu ráðherra, blekktu þm., a.m.k. vildi enginn hreyfa sig. Og allir fjölmiðlar nema Helgarpósturinn þögðu. Hvers vegna ríkti þessi grafarþögn? Hvers vegna ríkti þetta samsæri þagnarinnar?

Athugum nú aðeins þessi mál. Hvernig er t.d. að einum ríkisbanka staðið? það er kosið bankaráð fyrir ríkisbanka á Alþingi Íslendinga og þar skipta stjórnmálaflokkarnir bróðurlega með sér bankaráðunum. Allir fá sinn mann. Það er gengið svo hart eftir því að allir fái sinn mann að m.a.s. stjórnmálaflokkur sem ekki hefur fylgi á Alþingi til þess að koma að manni í kosningu fær gefinn mann. Þannig vildi það til í síðustu bankaráðskosningum hér að Sjálfstfl. hjálpaði Alþfl. til að koma mönnum í bankaráð. Hvers vegna skyldi það vera? Var það af því að Sjálfstfl. er svo annt um Alþfl.? Var það af því að Sjálfstfl. vildi geyma Alþfl. á góðum stað fram yfir kosningar þegar þeir ætla að mynda með honum stjórn? Var það kannske ekki af því að þeim líður illa ef þeir eru ekki allir inni? Það er ekkert víst að það hefði verið gott að hafa bara Framsfl., Sjálfstfl. og Alþb. í bankaráði. Það hefði getað orðið vont að skilja Alþfl. eftir fyrir utan vegna þess að það er aldrei að vita hvað sá gerir sem stendur utan samtryggingarinnar.

Hvers vegna vilja þeir svo allir fara í bankaráðin? Þeir segjast vera þar til að hafa eftirlit. Þetta er skjalfest. Þeir hafa sagt þetta hér í ræðum. Þetta er býsna fróðlegt í ljósi þess hvernig eftirlitið hefur tekist, a.m.k. í einum bankanna.

BJ hefur nú lagt fram till. þar sem í fyrsta lagi er lagt til að alþm. fari út úr bankaráðum. Alþm. eru kosnir til að setja landinu lög en ekki til að stjórna bönkum. Menn verða að velja hvort þeir vilja vera bankastarfsmenn eða alþm. Við höfum líka lagt til að viðskrh. skipi bankaráð ríkisbankanna þar til þeirri skipan verður komið á, sem víð leggjum mikla áherslu á, að ríkisbankarnir verði gerðir að almenningshlutafélögum. Það er eina lausnin á þessu. Þjóðin hefur ekki efni á að leyfa alþm. að leika sér með banka. Það hefur komið í ljós.

Ýmsir andmæla þessu og munu vafalaust gera hér á eftir. En þetta er í fyrsta lagi stjórnarfarslega rétt. Og þeir sem skyndilega bera svo mikla umhyggju fyrir valdþáttunum, fyrir sjálfstæði þeirra, ættu að huga að þessu máli.

Menn geta líka spurt: Hvers vegna snerust þm. allra flokka til varnar Hafskipi og Útvegsbankanaum þegar þessu máli var hreyft hér í júní? Þeir voru allir samstiga. Ósjálfrátt litu þeir á þetta sem árás á sameign sína. Þannig er hin pólitíska samábyrgð augljós. Við getum t.d. spurt nú: Hvað er það í þessu kerfi sem kemur í veg fyrir að Alþb. stæði ekki í sömu sporum og Sjálfstfl. gerir nú? Ef Alþb. yrði svo gæfusamt og þjóðin svo ógæfusöm að Alþb. fengi kannske 40-50% fylgi, hvað er það þá sem kemur í veg fyrir með núverandi fyrirkomulagi að Alþb. standi þar sem Sjálfstfl. stendur núna og Alþb. standi uppi með fyrirtæki í sama ásigkomulagi sem Hafskip er nú? Það er ekkert sem kemur í veg fyrir það. Það eina sem kemur í veg fyrir það eins og málin standa núna er að Alþb. hefur ekki nóg kjörfylgi til þess.

Tökum áfram dæmi um Alþb. Það gildir fyrir hvern sem er þessara flokka. Alþb. á alþm. í bankaráði Útvegsbankans. Höldum áfram og tökum dæmi sem hafa verið rakin hér: Að svo miklu leyti sem Albert Guðmundsson tengist þessu máli var hann formaður bankaráðs Útvegsbankans á samábyrgð Alþb. og annarra flokka sem stóðu að síðustu ríkisstj. Hann var þar í fullri sátt og fullu samlyndi við t.d. Ólaf Ragnar Grímsson. Þá hafði Ólafur Ragnar Grímsson ekki eins miklar áhyggjur af hagsmunaárekstrum og hann hefur nú. Það hentaði stundarhagsmunum síðustu ríkisstj. að leysa ákveðin mál á þennan hátt og þá var það gert. Þetta var líka gert í stjórn Framkvæmdastofnunar. Þannig gekk upp taflið.

Hér leiðir nefnilega haltur blindan. Menn bera ábyrgð hver á öðrum. Þeir kjósa hver annan í bankaráð og síðan sitja þeir í bakherbergjunum og útdeila góssinu. Það kom fram fyrr við umræður um Hafskipsmál þegar hæstv. Matthías Bjarnason kom hér í stól og játaði á valdakerfið allar skammirnar, játaði á sig að allt væri komið í klúður. Hann sagði: En þú líka, hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson, þú líka. Þú varst í þessu með mér. Við erum saman í þessu.

Það datt líka út úr hv. þm. Páli Péturssyni um daginn þegar verið var að ræða um þessi mál að hann sagði af sínu alkunna glensi að þetta mál væri ekki mál Framsfl. Það væri annar flokkur sem þyrfti að hafa meiri áhyggjur af þessu en Framsfl. Þetta þótti nokkuð skemmtilegt. En hvað var hv. þm. Páll Pétursson að viðurkenna? Hann var að viðurkenna þennan leik. Hann var að koma þeim skilaboðum til Sjálfstfl.: Ég vorkenni ykkur núna. Ég veit hvernig er að standa í þessu. En þið hafið þá samúðina með mér þegar ég lendi í þessu. - Þetta er nefnilega málið.

En hver er það sem borgar brúsann? Hver er það sem borgar vandræðin í sambandi við Hafskip? Er það Sjálfstfl. eða er það Framsfl.? Nei, það er fólkið í landinu. Það fær reikning. Og hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson er búinn að búa þennan reikning til. Hann ber yfirskriftina Hafskipsskattur og er 10 þús. kr. á hverja fjölskyldu í landinu. En það eru fleiri skattar sem koma undan teppinu þegar því er lyft. Hvernig verður með raðsmíðaskipaskattinn? Það er fyrirsjáanlegt að vesalings fólkið í landinu, sem allir eru að tala um, þurfi að taka á sig jafnvel 200 millj. þegar að því kemur að raðsmíðagóssinu verður úthlutað. Ætlar Ólafur Ragnar Grímsson að senda þá raðsmíðaskipaskatt inn á öll heimili í landinu og hver leggur þann skatt á? Er það þessi ríkisstj.? Það var nefnilega síðasta ríkisstj., ríkisstjórn Alþb., sem lagði grunninn að raðsmíðaskipaskattinum sem allir fá sendan bráðum.

Við getum líka spurt: Hvað er búið að eyða mörg hundruð milljónum í að reikna og teikna einhverja virkjun á Austurlandi? Þar eru gulir hælar uppi um öll fjöll og allt tilbúið til að byggja virkjun. Og það hefur sést reikningur, hann hefur flogið hér fyrir, reikningur upp á einhvers staðar milli 400 og 600 millj. kr., bara til þess að eiga tilbúna útreikninga og teikningar uppi í hillu til að vera tilbúinn að virkja. Hvað skyldi Austurlandsvirkjunarskatturinn verða hár? Hann gæti verið einar 20 þús. kr. á hverja fjölskyldu ef hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson hefur reiknað rétt í upphafi.

Við getum haldið áfram með þessa skattlagningu. Hvað lendir mikið á fólkinu í landinu vegna Fiskveiðasjóðs? Það skiptir hundruðum milljóna. Hvað er með Byggðasjóð? Þar eru einhvers staðar milli 70 og 80 millj. líklega. Og þannig getum við haldið áfram.

En af hverju þarf blessað fólkið í landinu, sem allir eru að tala um, að blæða á þennan hátt? Við getum tekið saman stuttan reikning. Ef við segjum að Hafskip sé upp á 400 millj., raðsmíðaskipin verði upp á kannske 200 millj., Fiskveiðasjóður upp á 400 millj., Austurlandsvirkjun, reikningar og teikningar, upp á 500-600 millj., erum við komin með 1,5 milljarða. Hver á svo sökótt við fólkið í landinu? Af hverju eru stjórnmálamenn að gera fólkinu í landinu þetta?

En þeir eru allir í þessu saman og svo eru þeir hissa á að lífskjör í landinu séu naum. Með slíkri skattlagningu þarf enginn að verða hissa á því að lífskjör í landinu séu naum. Fólk er nefnilega að vinna fyrir raðsmíðaverkefnum, Fiskveiðasjóðsskuldum og draumóravirkjunum hér og þar um landið. Hæstv. ráðh. Matthías Bjarnason lýsti þessu þegar hann sagði um daginn: Við erum sekir, það er rétt, en við erum allir jafnsekir. Svo verið ekkert að þessu þrasi.

Á síðasta þingi í maí s.l. spurði ég hæstv. þáv. viðskrh. hvort ástæða væri til að rannsaka tryggingar fyrir skuldum við ríkisbankana. Þá var því svarað að engin ástæða væri til að rannsaka, það væri ekkert að óttast. Ég held að það gæti verið skynsamlegt að fletta upp aftur í þessum gögnum og spyrja hvort ekki sé rétt að fara að athuga þessa reikninga.

Það er augljóst að stóru viðskiptavinirnir eru bönkunum verulega hættulegir. Maður getur velt því fyrir sér. Nýverið ábyrgðist Landsbankinn 100 millj. kr. skuldabréfaútboð fyrir SÍS. Samkvæmt venjulegum viðskiptavenjum ætti að setja allt að 200 millj. kr. veð fyrir því. Ekki mundi veita af eins og veðin eru um þessar mundir. Þarna eru líka stórar tölur. Þetta er helmingurinn af því sem við erum að tala um í sambandi við Hafskip. Þarna eru miklir peningar. Ég held að það sé full ástæða til að athuga starfsemi bankanna.

Ef við lítum aðeins á Hafskipsmálið aftur virðist vera að siglingar yfir Norður-Atlantshaf hafi verið banabitinn. Menn geta spurt: Hvernig stendur á því að svo fór? Vissi virkilega enginn hvað var á seyði? Voru menn með lokuð augun, var einhver búinn að binda fyrir augun á þeim eða voru þeir í myrkri? Maður getur spurt: Var enginn sérfræðingur í siglingum hjá banka sem heitir Útvegsbankinn og átti siglingafyrirtæki fyrir stærsta viðskiptavin? Það eru nefnilega ýmsar vísbendingar um hvernig fara mátti. Í blaðaviðtali við forstjóra Hafskips þann 10. nóv. 1984 er sagt að Hafskip sé að leggja út í gífurlega erfitt og gífurlega áhættusamt mál og það sé feiknaleg samkeppni. Það er sagt: „Þetta er tilraun einungis til fjögurra mánaða. Og ef við töpum á þessari tilraun verðum við reynslunni ríkari.“

Þetta var í nóvember á síðasta ári. 30. janúar s.l. er grein í ensku viðskiptariti, sem hlýtur að vera lesið í Útvegsbanka, og þar er sagt: Það eru stórkostlegir erfiðleikar á siglingum á Norður-Atlantshafi og það er gífurlegur samdráttur. - Þetta er sagt 30. janúar 1985. 20. maí er grein í sama blaði, ítarleg grein, um Norður-Atlantshafssiglingar og þar er sagt að litlu skipafélögin séu öll að fara á hausinn. Um líkt leyti segir amerískur forstjóri í frétt í þessu blaði: Það er blóðbað á Norður-Atlantshafi. Það er blóðbað. Öll litlu fyrirtækin eru að drepast. - Þetta var augljóst hjá öllum sem vildu vita um ástand siglinga á Norður-Atlantshafi.

En hvað gerist á Íslandi á sama tíma? Í þessu fyrirtæki, í febrúar, er ákveðið að auka hlutafé um 80 millj. og á aðalfundi í júní er blásið í herlúðra og þar eru fluttar 17. júní ræður. Ég get vitnað í ræðu eins forustumannsins. Hann segir:

„Það er gjarnan haft á orði að þegar mikið liggur við geti Íslendingar komið fram sem ein þjóð, sem einn maður. Spyrja má: Jafnast ekki hættan á landflótta á við náttúruhamfarir og landhelgisstríð? Er stóri sáttmáli þjóðfélagshópanna ekki löngu orðinn tímabær? Atvinnustarfsemi, verkalýðsbarátta, stjórnmál og lífskjör eru samofnir, óaðskiljanlegir þættir. Í þeim efnum er engin atvinnugrein, enginn einstaklingur undanskilinn í því sameiginlega átaki, sem fyrir höndum er, að tryggja Íslandi 21. aldarinnar annan og veigameiri sess en Hornstrandir og aðrir sambærilegir afskekktir sumarheimsóknastaðir hafa í dag.“

Þetta er ekki 17. júní ræða þó menn gætu haldið svo. Þetta er ræða sem verið er að flytja á aðalfundi í fallít fyrirtæki í júní s.l. þegar allir með opin augu - allra helst þeir sem hafa atvinnu af þessu - hefðu átt að vita að allt var ónýtt. En blekkingarnar héldu áfram.

Því segi ég: Það er greinilega ekkert bankaeftirlit á Íslandi, hvort sem það er hið opinbera bankaeftirlit, eftirlit stjórnmálaflokkanna eða hvaða eftirlit sem er. Það er ekkert eftirlit. Menn eru augljóslega með augun lokuð.

Ég er meðflm. að till. sem hér um ræðir og ég styð hana, en ég geri mér fullkomlega grein fyrir því að þetta verður erfitt. Þetta verður sérstaklega erfitt vegna þess að við höfum enga hefð og engar venjur í að rannsaka mál eftir þessum leiðum, eins og hér er farið fram á. Það samkrull sem nú þegar er milli Alþingis og þess framkvæmdavalds sem á að fara að rannsaka mun gera málið mjög erfitt. Það má ekki fara svo, ef af þessu verður, ef Alþingi ætlar nú að gera tilraun til slíkrar rannsóknar, að hún verði fórnarlamb og bitbein hallærislegra pólitískra átaka.