12.12.1985
Neðri deild: 28. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1525 í B-deild Alþingistíðinda. (1182)

173. mál, rannsóknarnefnd til að kanna viðskipti Hafskips hf.

Steingrímur J. Sigfússon:

Herra forseti, góðir áheyrendur. Það er ekki ýkja langt síðan áhrifamaður úr forustuliði Sjálfstfl. lýsti frammámönnum fyrirtækisins Hafskips hf. sem duglegustu ungum bissnessmönnum þjóðarinnar. Slíkar og þvílíkar einkunnir voru nær daglegt brauð hér áður því um fá fyrirtæki hafa verið haldnar jafnmargar lofræður né notuð jafnhástemmd lýsingarorð og um þessa skrautfjöður íhaldsins og einkaframtaksins, Hafskip hf. Þar skyldu hugsjónirnar sannaðar svo frjálshyggju- og íhaldshaukar gætu í nútíð og framtíð þanið hvítan og fyrirferðarmikinn belginn framan í íslensku þjóðina og sagt: Sjá blessun hins frjálsa markaðar, sjá aðhald samkeppninnar, sjá ráðdeildarsemi einkaframtaksins, sjá nægjusemi hugsjónamannanna.

En hvað reyndist á bak við hina gylltu mynd? Hvað kemur í ljós þegar hugsjónaglamrinu hefur verið sópað burtu? Þá standa þessir flokksforkólfar íhaldsins eftir berstrípaðir, verr klæddir en keisarinn var forðum í nýju fötunum sínum, því það liggur ekkert fyrir um það í ævintýrinu að keisarinn hafi verið neitt sérlega ósjálega vaxinn þó ber væri. Sukk og óráðsía, lúxusferðir yfirmanna og ekki síst sérlega vafasamar - svo ekki sé sagt beinlínis heimskulegar - ákvarðanir um rekstur fyrirtækisins. Það er hinn nakti veruleiki á bak við glansmyndina.

Ég er hræddur um að þetta þætti ekki par góður rekstur félagslegra eða opinberra aðila. Ég er hræddur um að íhaldinu yrði ekki lýsingarorða vant ef þetta væri Sementsverksmiðja ríkisins eða Síldarvinnslan hf. sem svona hefði farið að ráði sínu. Nei, staðreyndin er að íhaldsmenn fara illa með opinbert fé. Ef þeir komast yfir það eru þeir eins og minkur í hænsnahópi.

Það sem gerst hefur er að landsmenn hafa augnabliksstund fengið innsýn í þann lúxuslifnað og óhóf peningastéttarinnar í þessu landi sem þeim var auðvitað aldrei ætlað að sjá. Auðvitað var það og er það slys hjá íhaldinu að þetta skyldi koma upp á yfirborðið. Þeim vannst einfaldlega ekki ráðrúm til að bjarga þessu við, til að kaupa það út fyrir kaffibaunir eða með einhverjum öðrum ráðum að sópa skítnum undir teppið. Þess vegna hefur íslenska þjóðin - hvað sem síðar verður - fengið örlitla innsýn í líf lúxushirðarinnar. Þess vegna veit verkafólk á Íslandi með 20 þúsund í mánaðarlaun að forstjórar Hafskips hafa tekið sér að sögn allt að 800 þús. kr. í mánaðarlaun eða fertugföld þau laun sem ýmsir mega búa við. Vegna þessa slyss hefur nú komið í ljós hvernig farið er með peninga sem teknir eru að láni í bönkum þjóðarinnar og hvernig með þá er braskað og spilað fjárhættuspil og lifað í Hollywood-lúxus. Þannig að ferðagarpurinn Steingrímur Hermannsson, sjálfur forsætisráðherra þjóðarinnar, hefur lifað nánast eins og beiningamaður í New York-borg þegar hann var þar á hátíðarfundi Sameinuðu þjóðanna á dögunum borið saman við Hafskipshirðina. Eða skúffufyrirtækin og dótturfyrirtækin og undirfyrirtækin, Georgia Export Import, Reykvísk endurtrygging, Staðarstaður og hvað þau nú heita öll þessi fyrirtæki sem gullrassar íhaldsins stofnuðu til að skipta við sjálfa sig og aftur við sjálfa sig og enn við sjálfa sig. Það hefur áreiðanlega ekki verið ætlunin, herra forseti, að almenningur á Íslandi fengi að skoða þessa svikamyllu of náið.

Ein af fjölmörgum spurningum sem þetta mál vekur er um eftirlit í slíkum tilfellum. Hér á þinginu liggur fyrir beiðni frá mér og átta öðrum hv. þm. um skýrslu frá viðskrh. um afskipti bankaeftirlitsins af málefnum Útvegsbankans og einnig hvað snertir Hafskip og aðra stóra viðskiptavini bankans sérstaklega. Það er nauðsynlegt að fá fram hver þáttur bankaeftirlitsins er í að vara við en ekki er síður nauðsynlegt að fá fram hvernig ábendingar eða tillögur bankaeftirlitsins voru meðhöndlaðar af bankastjórn Seðlabankans, Útvegsbankans og af viðskrh. á hverjum tíma. Niðurstaða þessa máls hlýtur að verða sú að stórefla þarf eftirlit á þessu sviði og gera það eftirlit óháð og sterkt. Þess vegna höfum við Alþb. menn einnig flutt frv. um það hér í Nd. Alþingis að bankaeftirlitið verði sjálfstæð stofnun og gert betur kleift að sinna sínu hlutverki.

Guðmundur Einarsson, sem malaði áðan fyrir BJ, en sá flokkur hefur skipt sér upp hér í deildinni, sennilega til að fá meiri ræðutíma, útskýrði fyrir þjóðinni hvernig það sem eftir er af Bandalaginu vill láta skipa í bankaráð. Og við skulum aðeins líta á það. Þeir Bandalagsmenn vilja að viðskrh. skipi bankaráðin, og ekki aðeins bankaráð Útvegsbankans heldur öll bankaráð, bankaráð Búnaðarbankans og Landsbankans og Seðlabankans. Þannig væri það t.a.m. að ef Albert nokkur Guðmundsson hefði fengið þeim vilja sínum framgengt að verða viðskrh. í þessari ríkisstj. hefði hann, þ.e. Albert Guðmundsson, sem viðskrh. og reyndar einnig þm., skipað alla bankaráðsmenn Útvegsbankans, Landsbankans og Búnaðarbankans - og Seðlabankans sem síðan á að hafa eftirlit með hinum bönkunum.

Nei, vont er þetta kerfi sem við búum við og gallað að mörgu leyti, en margfalt, margfalt verra og vitlausara er það kerfi sem þeir BJ-menn ætla sér að koma á og megi gæfan forða okkur frá því að fá slíkt.

Guðmundur taldi alla flokka og alla þm. samseka í einu allsherjarsamsæri - nema auðvitað sjálfan sig. Honum einum var treystandi. Og þannig hlýtur það þá að vera að hann verður að verða næsti viðskrh. þjóðarinnar til þess að skipa öll bankaráðin eigin hendi. Honum einum er treystandi.

Fyrir Guðmundi Einarssyni vil ég í lokin útskýra það hvers vegna Alþb. er ekki og gæti aldrei verið í þeirri stöðu eða svipaðri stöðu og íhaldið er í þessu máli. Það er vegna þess að Alþb. er með öllu laust við þau persónulegu, hagsmunalegu og hugsjónalegu tengsl við Hafskip sem vefjast utan um Sjálfstfl. eins og blaut lína í þessu máli.

Góðir áheyrendur. Það sem nú skiptir máli, þegar þjóðin situr uppi með stórfellt tjón vegna þessa máls, er að spilin verði lögð á borðið, að þáttur einstaklinga innan fyrirtækisins, í bankakerfinu og í stjórnmálaheiminum komi fram lið fyrir lið og þar verði ekkert undan dregið. Siðferðisþrek íslensku þjóðarinnar þolir ekki að soranum í þessu máli verði sópað undir teppið. Það gengur einfaldlega ekki hjá fámennri þjóð í litlu landi að á sama tíma og almenningur tekur á sig þungbæra kjaraskerðingu og fjöldinn allur lifir við fátæktarmörk skuli forstjórar og frammámenn stórfyrirtækja leyfa sér að eyða tvö- til þreföldum mánaðarlaunum verkafólks á einni nóttu í hótelreikninga erlendis.

En það fer auðvitað ekki hjá því að menn velti því fyrir sér af þessu tilefni hvort ekki sé ástæða til að rannsaka ýmislegt fleira, hótelreikninga ýmissa annarra burgeisa sem enn fljóta utar skerjum. Það er óþolandi og ólíðandi að ákveðinn hópur manna í landinu skuli skammta sjálfum sér risnu, laun og eyðslueyri með svo óhófslegum hætti. Það er ekkert einkamál einhverrar forstjóra- og bankastjórahirðar hvernig stórfyrirtækin í landinu eða þá bankastofnanirnar eru reknar. Það er sameiginlegur afli landsmanna allra sem þar er verið að ráðskast með og dæmin sanna að það er einmitt litli maðurinn, þessi frægi og elskaði litli maður, sem er látinn borga brúsann ef illa fer, hvað sem öllum vinum hans líður. Þess vegna á litli maðurinn og öll íslenska þjóðin heimtingu á því að þessi mál verði rannsökuð ofan í kjölinn og upplýst. Það verður að skrúfa svikamyllu Hafskipshirðarinnar sundur, stykki fyrir stykki. Það heitir víst á máli flugvirkjanna C-skoðun.

Í ljósi alls þessa valda viðbrögð ríkisstj. vonbrigðum. Hvers vegna þiggur ekki stjórnin með þökkum tilboð Alþingis um opinbera rannsókn að frumkvæði og undir forustu æðstu stofnunar þjóðarinnar? Ríkisstj. býður heim tortryggni og vantrú almennings í landinu með undanbrögðum sínum og má hún þó síst við því af öllum, þessi hæstv. ríkisstj. Það ber einnig vott um algert skilningsleysi á stærð og eðli þessa máls og reyndar einnig dæmafáa pólitíska heimsku að ríkisstj. skyldi ekki sjálf og þegar í upphafi leita samstarfs við Alþingi og stjórnarandstöðuna um opinbera rannsókn, hvað þá að hafna tilboði um hið sama. Og málsvörn forsrh. og fjmrh. fyrir tríóinu sem þeir ætla að skipa og loka svo inni var satt best að segja heldur rotinboruleg. Forsrh. Steingrímur Hermannsson taldi höfuðnauðsyn að farið yrði með alla rannsókn málsins sem algert leyndarmál, ríkisleyndarmál, og trúnaði sjö alþm. yrði þar ekki treystandi. Þá aðferð sem alvanaleg er í nálægum löndum, að skipa rannsóknarnefnd, taldi forsrh. ekki mikils virði og nefndi McCarthy-nefndina illræmdu í Bandaríkjunum í því sambandi. Forsrh. hefði getað tekið annað dæmi. Hann hefði getað nefnt Watergate-nefndina sem hafði áhrif í þá átt að opna rannsóknir og koma meiri upplýsingum til almennings úti um allan heim. En þetta Valhallar-gate, þetta Valhallarhneyksli Sjálfstfl. og ríkisstj., verður að rannsaka með ýtrustu leynd fyrir luktum dyrum að mati hæstv. ríkisstj.

Herra forseti. Ég læt þá senn lokið máli mínu. Ég er bjartsýnismaður og því leyfi ég mér enn að vona að ríkisstj. vitkist og sjái að sér í þessu máli eða fari að veita sjálfri sér nábjargirnar ella. - Ég óska svo landsmönnum öllum árs og friðar.