12.12.1985
Neðri deild: 28. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1529 í B-deild Alþingistíðinda. (1184)
173. mál, rannsóknarnefnd til að kanna viðskipti Hafskips hf.
Kristín Halldórsdóttir:
Góðir hlustendur. Sú staðreynd blasir við að 27 ára ferli Hafskips hf. er lokið. Það er nú í þann mund að hverfa ofan í kokið á aðalkeppinaut sínum, Eimskipafélagi Íslands, óskabarni þjóðarinnar. Önnur staðreynd er sú að Útvegsbanki Íslands tapar a.m.k. 2/3 af eigin fé á viðskiptunum við Hafskip hf., fé sem tekið verður úr sameiginlegum sjóði landsmanna allra.
Við slíkar aðstæður þarf engan að undra þótt spurt sé hvernig þetta gat gerst. Hvers vegna hélt bankinn áfram að veita fé í rekstur sem var fyrir löngu orðinn vonlaus? Var um misnotkun aðstöðu að ræða? Var vísvitandi blekkingum beitt? Eða voru menn einfaldlega ekki færir um að axla þá ábyrgð sem þeim bar? Hvar er bresturinn í kerfinu?
Við þessum spurningum vill fólk fá hrein og klár svör og enga útúrsnúninga, ekki til þess eins að fá einhvern eða einhverja sakfellda eða dregna til ábyrgðar, heldur fyrst og fremst til þess að atburðir af þessu tagi endurtaki sig ekki. Það er meginmálið úr því sem komið er.
Fyrir liggur og til umræðu er tillaga um að Alþingi kjósi sjö manna rannsóknarnefnd til að rannsaka og upplýsa alla þætti þessa máls, viðskipti Hafskips hf. og Útvegsbanka Íslands svo og uppgjör og yfirtöku eigna Hafskips hf. Slík rannsókn er ekki aðeins eðlileg og réttmæt. Hún er blátt áfram nauðsynleg til þess að hreinsa andrúmsloftið og til þess að rétta hlut þeirra sem að ósekju hafa verið sakfelldir. Hún er nauðsynleg til þess að leiða í ljós með ótvíræðum hætti hvar ábyrgðin liggur og til þess að finna veilurnar í kerfinu. Hún er nauðsynlegur grundvöllur endurbóta á kerfinu jafnt í einkarekstrinum sem í bankakerfinu og í hinu opinbera eftirliti.
Skaðinn er skeður. Gjaldþrotið er staðreynd. Skellur Útvegsbankans er staðreynd. Reikningurinn sem þjóðin á að greiða er staðreynd þótt við vitum ekki upphæðina enn þá nákvæmlega. Hún veltur m.a. á því hvernig staðið er að uppgjöri og sölu eigna Hafskips hf. og á því hvernig staðið verður að endurskipulagningu bankakerfisins.
Um nauðsyn rannsóknar eru allir í rauninni sammála, enda þótt ýmsir efist um að allt verði upplýst til fullnustu, svo flóknir sem þræðir þessa máls eru. Menn eru hins vegar ekki á einu máli um það hvernig að rannsókninni skuli staðið, þ.e. hverjir annist hana og á hvers vegum. Það kann að virðast aukaatriði og vissulega hefur orðið vart óþolinmæði meðal fólks sem finnst þm. eyða of miklum tíma og orku í umræðu um getsakir og í karp um formsatriði þegar fjölmörg önnur stórmál bíða úrlausnar.
Sú leið sem hér er til umræðu er tvímælalaust sú réttasta að mati okkar Kvennalistakvenna. Við erum aðilar að þeirri tillögu og styðjum hana heils hugar. Alþingi ber ákveðna ábyrgð í þessu máli og því ber skylda til að láta upplýsa það. Nefnd á vegum Alþingis er rétta leiðin. Andstaða gegn þeirri skipan mála er illskiljanleg. Hún verður vart skýrð með öðru en því að ríkisstj. líti á slíka nefnd sem einhvers konar óvirðingu við sig, hugsanlega einfaldlega vegna þess að óbreyttir þm. úr stjórnarandstöðu urðu fyrri til með hugmyndina. Slík afstaða er bæði hégómleg og ábyrgðarlaus. Í því máli sem svo mörgum öðrum virðast því miður persónur og flokkshagsmunir vega þyngra en málið sjálft.
Að lokinni þeirri rannsókn sem óhjákvæmilega verður að fara fram á öllum þáttum þessa máls gefst tækifæri til að ræða það í ljósi þeirra staðreynda sem dregnar verða fram og staðfestar. Einn þáttur málsins verður þó tæpast rannsakaður en er engu að síður umhugsunar verður og það er hin siðferðilega hlið þess. Á þeirri hlið eru margir brestir sem almenningur á bágt með að skilja og enn þá erfiðara með að sætta sig við.
Ótrúlegar sögur eru sagðar af óhófseyðslu og gálausri meðferð fjármuna, millifærslum og misnotkun. Slíkt háttalag er gjörsamlega ofvaxið skilningi venjulegs fólks með óbrenglaða siðgæðisvitund. Í huga þess bergmálar ákall stjórnvalda til landsmanna allra að leggja sitt af mörkum til endurreisnar efnahagslífsins. Þetta fólk minnist allra fórnanna sem færðar hafa verið, aukavinnunnar, sparnaðaraðgerðanna, baráttunnar við að standa í skilum, halda íbúðinni, eiga fyrir brýnustu nauðsynjum og þrauka uns rofaði til. Þetta er fólkið sem kann að axla ábyrgð. Þetta fólk sér nú fram á að fá reikninginn fyrir óhófseyðslu og vanrækslusyndir manna sem ekki kunnu fótum sínum forráð, sem kunnu ekki að fara með það fé sem þeim var trúað fyrir. Slíkar fregnir verka sem svipuhögg á almennt launafólk sem berst við að ná saman endum frá einum mánuði til annars. Það er fyrst og fremst þetta fólk sem á rétt á sannleikanum í þessu máli öllu. Það á rétt á því að fá að vita hvort um misnotkun aðstöðu var að ræða eða hvort einhverjir hafi gert sig seka um vísvitandi blekkingar og refsiverða meðferð fjármuna. Og það á heimtingu á því að við uppgjör þrotabús Hafskips hf. og sölu eigna þess sé valinn hagkvæmasti kosturinn með tilliti til hagsmuna Útvegsbanka Íslands og ríkissjóðs, með tilliti til samkeppni í flutningi til og frá landinu og með tilliti til atvinnuöryggis þeirra sem starfa við flutninga íslenskra skipafélaga. Þetta er það sem við viljum láta leiða í ljós með rannsókn þeirrar nefndar sem Alþingi skal skipa samkvæmt þeirri tillögu sem er til umræðu.
Góðir hlustendur. Það er auðvelt að vera vitur eftir á. En menn eiga að láta sér Hafskipsmálið að kenningu verða svo að hægt sé að vera vitur fyrir fram. Eðlileg afleiðing hlýtur að vera víðtæk varnaraðgerð alls staðar í bankakerfinu, að kanna til hins ýtrasta stöðu allra stærstu viðskiptaaðila bankanna og gera varúðarráðstafanir í tæka tíð. Það er sá lærdómur sem við eigum að draga af Hafskipsmálinu.
Að lokum vil ég segja þetta. Svo sem Guðrún Agnarsdóttir, þm. Kvennalistans, minnti á fyrr í kvöld á Kvennalistinn ekki aðild að bankaráðum ríkisbankanna. Það er enn fremur staðreynd að engin kona situr sem aðalfulltrúi í bankaráðum ríkisbankanna. Ein kona er varamaður í bankaráði Búnaðarbankans. Á sýningu Kvennasmiðjunnar í Seðlabankahöllinni í október gafst gestum kostur á að taka þátt í getraun um það hvenær fyrsta konan mundi setjast í stól bankastjóra hér á landi. Verðlaunaveiting hefur af eðlilegum ástæðum ekki farið fram. Við umfjöllun og eftirgrennslan í Hafskipsmálinu höfum við rækilega verið minnt á að hér er um harðlokaðan karlaheim að ræða. Svipað má segja um viðskiptaheiminn allan. Ekki skal ég segja hvern lærdóm ber að draga af þeirri staðreynd en hún hlýtur að vera kvenfrelsiskonum umhugsunarefni.
Ég þakka þeim sem hlýddu. - Góða nótt.