12.12.1985
Neðri deild: 28. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1535 í B-deild Alþingistíðinda. (1188)

173. mál, rannsóknarnefnd til að kanna viðskipti Hafskips hf.

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Ég er sannfærður um það að miklu varðar að íslenska þjóðin treysti þeirri rannsókn sem fer fram og það varðar miklu að Alþingi Íslendinga dragi réttar ályktanir af þeim niðurstöðum sem þá liggja fyrir. Enn ber það við að menn taka þær ákvarðanir hér að ætla að fara að draga ályktanirnar fyrir fram af niðurstöðunni og vekur það undrun mína á hvaða forsendum þeir aðilar vilja láta rannsaka málið.

Það hefur komið fram sem aðalniðurstaða hjá sumum að nú beri að breyta ríkisbönkunum í hlutafjárbanka. Ég vil minna á það að það var borinn drengur norður á Ísafirði, sonur stjórnmálamanns sem vildi veg þessa unga drengs sem mestan, og hann ákvað, til þess að auðvelda honum leiðina til mannvirðinga, að skíra hann í höfuðið á þeim manni sem hann mat mest, bankastjóra þjóðbanka Íslands og leiðtoga Alþfl. Þessi maður hafði haft þann siðferðilega traustleika til að bera að enginn bar það á hann að þar hefði verið um hagsmunaárekstra að ræða á milli.

Mig undrar það að núna skuli helsta niðurstaðan vera sú, eftir að Alþýðubanki Íslands lenti í erfiðleikum á sínum tíma, að nú beri að breyta öllum bönkum aftur í hlutafjárbanka. Útvegsbankinn var hlutafjárbanki. Honum var breytt í ríkisbanka og nú er lausnin að breyta honum aftur í hlutafjárbanka. En hver var reynslan af hlutafjárbönkunum á sínum tíma í Þýskalandi?

Í hlutafjárbanka taka eigendurnir lán hjá sjálfum sér. Sömu aðilarnir og eiga bankana eru aðallántakendurnir. Þetta er meginregla. En þeir spila aftur á móti með innlánsféð frá alþýðunni, og í heimskreppunni miklu hrundu hlutafjárbankarnir og eigendur bankanna urðu ríkari en nokkurn tíma áður en alþýðan tapaði öllu sínu. Eigendurnir höfðu komið öllu fyrir í gegnum útlánin í eignum en alþýðan tapaði öllu sínu. Værum við einhverju bættari í dag þó að fjölmargar alþýðufjölskyldur þessa lands hefðu tapað öllu sínu sparifé í Útvegsbankanum? Væruð þið einhverju bættari? Ég segi nei.

Ég mótmæli því að menn láti sér detta í hug að byrja á því áður en rannsókn hefur farið fram að draga ályktanir um hver eigi að vera lærdómurinn af rannsókninni. En það vona ég að hver og einn einasti sem er í eðli sínu lýðræðissinni geri sér grein fyrir því að sagan á eftir að skoða þessa atburði og hún á eftir að meta þá fyrst og fremst eftir því hverjir báru gæfu til að líta á þetta í því ljósi að það mætti verða til lærdóms fyrir framtíðina.

Ég ætla ekki að kveða upp neinn dóm yfir Hafskipi. Ég hygg að þyngsta höggið sem þeim var greitt hafi verið gert af bandarískum einokunarlögum og e.t.v. hafi það kostað þá fallið. Ég ætla ekki að gerast neinn dómari um það hversu hæfir þeir menn voru sem stóðu að því að stjórna þessu fyrirtæki. Ég hef ekki hugmynd um hve há laun þeir hafa haft eða hvernig þeir lifðu í New York. En hitt er mér ljóst að ekki getur staðist að skipafélag sem hefur starfað í 27 ár og átt þann skipaflota sem þarna var um að ræða hafi verið stjórnað af hreinum ævintýramönnum allan tímann. Það eru glórulausar blekkingar að halda slíku fram.

Ég vona að þegar mesti hitinn hefur farið úr mönnum og þessi umræða komist niður á eðlilegt plan sameinist menn um það eitt að leita sannleikans í þessu máli.