23.10.1985
Neðri deild: 7. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 149 í B-deild Alþingistíðinda. (119)
70. mál, kjaradómur í deilu Flugfreyjufélags Íslands og Flugleiða hf.
Forseti (Ingvar Gíslason):
Það er hugmynd forseta að atkvæðagreiðslur fari nú fram um þetta mál og síðan gefist tóm til þess að samgn. komi saman. Þegar samgn. hefur lokið störfum sínum, og það er ekki á valdi forseta að segja til um það hvenær þeim lýkur, yrði hér fundur þar sem þetta mál yrði tekið fyrir til 2. umr.