13.12.1985
Sameinað þing: 29. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1538 í B-deild Alþingistíðinda. (1192)

1. mál, fjárlög 1986

Frsm. meiri hl. (Pálmi Jónsson):

Herra forseti. Á liðnu hausti kom fjvn. saman hinn 7. október til þess að hefja starf sitt með viðræðum við fulltrúa frá yfir 50 sveitarfélögum fyrir þingbyrjun. Þetta var gert, eins og stundum áður, vegna þess að reynsla hefur sýnt að það starf sem nefndinni er ætlað að ljúka er svo viðamikið og tímafrekt að því verður tæplega lokið með góðu móti á þeim starfstíma sem nefndinni er í raun ætlaður.

Nefndin var ekki kjörin á Alþingi fyrr en 24. október og var þá liðinn hálfur mánuður af starfstíma þingsins. Þetta stafaði af því að ákveðið var að breyta nýsettum þingskapalögum á þann máta að á þessu þingi gætu starfað tíu alþingismenn í fjvn., svo sem verið hafði tvö fyrstu ár kjörtímabilsins, og að allir þingflokkar gætu þannig átt fulltrúa í nefndinni. Slíkar tafir á kosningu fjvn. í upphafi Alþingis eru óheppilegar og ekki til eftirbreytni. Að þessu sinni kom það þó ekki að sök því að þeir þm. sem ákveðið var að tækju sæti í nefndinni voru sammála um nauðsyn þess að hefja starfið eigi að síður. Þeir störfuðu því óformlega við athugun á fjárlagafrumvarpinu og aðra undirbúningsvinnu sem eins konar áhugahópur um fjármál ríkisins og voru þeir fundir nefndarmanna ekki bókaðir.

Frá því að nefndin var kosin hefur hún haldið 27 bókaða fundi, auk fjölmargra funda meiri hl. nefndarinnar og einstakra nefndarhluta. Á formlega fundi nefndarinnar hafa komið fulltrúar frá rúmlega 220 aðilum, ráðuneytum, stofnunun, sveitarfélögum og félagasamtökum, auk allra þeirra sem á einn eða annan hátt hafa haft samband við einstaka nefndarmenn eða nefndarhluta.

Nefndinni hafa að þessu sinni borist nokkuð á fimmta hundrað bókuð erindi sem er nokkru færra en á síðasta ári. Þessi erindi eru vitaskuld af margvíslegum toga, en yfirleitt fjalla þau um málefni sem ákjósanlegt væri að geta orðið við. Í þessum erindum er farið fram á fjárveitingar sem mundu hækka útgjöld fjárlagafrumvarpsins um samtals 1954,9 millj. kr. ef samþykkt yrðu. Þetta á þó aðeins við þau erindi sem byggjast á ákveðinni fjárhæð, en í mjög mörgum þeirra eru óskir ekki metnar í tilgreindum fjárhæðum þannig að víst er að í öllum þessum erindum er beðið um a.m.k. 21/2 milljarð og er þá varlega metið.

Allir munu sjá að það er býsna tímafrekt að vega og meta allar þær óskir sem nefndinni berast og vafalaust finnst ýmsum, sem leitað hafa til nefndarinnar, að þeirra hlutur sé rýr þegar upp er staðið. Þetta stafar auðvitað ekki af skilningsleysi eða þvergirðingi af hálfu nefndarinnar heldur má öllum ljóst vera að staðan í fjármálum ríkisins er með þeim hætti að ekki er hægt að greiða úr jafnvel hinum þörfustu málum. Nefndin hefur því haldið sparlegar á málum en nokkru sinni svo ég muni til, svo sem sést á þeim breytingartillögum sem fyrir liggja.

Í öllu starfi sínu hefur nefndin notið mikilsverðrar og mjög góðrar aðstoðar Magnúsar Péturssonar hagsýslustjóra og starfsliðs hans og einnig frá starfsmanni nefndarinnar, .lóni Rúnari Pálssyni. Fyrir hönd nefndarinnar vil ég flytja þessum aðilum sérstakar þakkir fyrir ágæt störf. Ég flyt einnig meðnefndarmönnum mínum þakkir fyrir mikil og tímafrek störf. Ég flyt þeim öllum, bæði stjórnarsinnum og stjórnarandstæðingum, þakkir fyrir sérlega ánægjulegt samstarf, lipurð í störfum og umburðarlyndi í minn garð.

Það má öllum ljóst vera að við þær kringumstæður sem nú eru ríkjandi í ríkisfjármálum og óvenjulegar þrengingar í meðferð fjárlagafrumvarpsins reynir meira en ella á þetta samstarf innan nefndarinnar. Ég er mjög þakklátur fyrir að á því hefur enginn brestur orðið.

Það fjárlagafrumvarp sem hér kemur til 2. umr. er að ýmsu leyti óvenjulega vel úr garði gert. Í nokkrum atriðum markar það í raun þáttaskil hvað framsetningu varðar.

Í fyrsta lagi er uppsetningu þess breytt í samræmi við lög nr. 84/1985, um breyting á lögum um ríkisbókhald, gerð ríkisreiknings og fjárlaga, þannig að framsetning er í samræmi við uppgjörshætti Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Munar þar mestu að inn í A-hluta fjárlagafrumvarpsins.eru nú tekin endurlán ríkissjóðs og almannatryggingar. Þessi breyting hefur það í för með sér að heildaryfirlit yfir afkomu ríkissjóðs er mun gleggra en áður eftir eldri uppsetningu.

Í öðru lagi er lánsfjáráætlun nú lögð fram sem hluti af greinargerð fjárlagafrumvarpsins og frv. til lánsfjárlaga er flutt samhliða frv. til fjárlaga. Að því hefur oft verið fundið og það með réttu að lánsfjáráætlun hafi verið kynnt Alþingi óhæfilega seint og að frv. til lánsfjárlaga hafi verið flutt löngu seinna en fjárlagafrv. og dæmi eru um að það hafi verið til meðferðar og afgreiðslu Alþingis mörgum mánuðum eftir að fjárlög hafa verið afgreidd. Þetta vinnulag hefur haft það í för með sér að iðulega hafa menn hefnt þess í lánsfjárlögum sem tapaðist í fjárlögum, þ.e. að útgjaldaáform sem fjvn. og Alþingi vildu ekki samþykkja fyrir jól voru með einhverjum hætti knúin í gegn með afgreiðslu lánsfjárlaga á útmánuðum eða jafnvel á vordögum.

Nú er ætlunin að afgreiðsla þessara mikilvægu lagabálka fari fram sem næst samtímis og að ekki verði misræmi í útgjaldaáformum þeirra í milli. Það er ákaflega mikilvægt að fá þá breytingu fram, sem hér er á orðin, að lánsfjáráætlun liggi fyrir þegar er fjvn. hefur sína vinnu við undirbúning afgreiðslu fjárlaga. Með því eina móti er hægt að hafa nokkurn veginn heildaryfirlit yfir alla þætti ríkisbúskaparins og gera sér grein fyrir þeim útgjaldaáformum sem byggjast hvort tveggja á beinum ríkisframlögum og lántökum hins opinbera.

Réttara væri þó, að mínum dómi, að stíga skrefið til fulls og breyta lögum á þann máta að þessi mikilvægu mál væru öll til meðferðar hjá einni og sömu þingnefnd, þ. e. fjvn. Með því móti væri komið í veg fyrir hættu á því að misræmi gæti orðið í afgreiðslu þessara mikilvægu málaflokka, fjárlaga annars vegar og lánsfjárlaga hins vegar, af hálfu Alþingis, eins og oft hefur orðið.

Í þriðja lagi er sú nýbreytni í greinargerð fjárlagafrv. að gerð er grein fyrir horfum í fjármálum ríkisins til næstu þriggja ára. Ég tel þetta lofsvert og til eftirbreytni. Þó að við sem vinnum að undirbúningi fjárlaga vikum og mánuðum saman á ári hverju, kannske ár eftir ár, gerum okkur að verulegu leyti grein fyrir því hvert stefnir í fjármálum ríkisins er að minni hyggju afar mikilvægt að skýra þessar horfur fyrir Alþingi í heild á þann máta sem nú er gert í fjárlagafrv.

Auk þeirra þriggja meginatriða sem ég hef hér drepið á og marka viss þáttaskil í framsetningu þessa fjárlagafrv. er óhætt að fullyrða að greinargerð þess er óvenjulega vel unnin og felur í sér ítarlegar upplýsingar um stöðu ríkisfjármála.

Væntanlega dylst engum að á síðustu árum hafa erfiðleikar farið vaxandi við það að ná saman endum við afgreiðslu fjárlaga og í ríkisbúskapnum. Þessi staðreynd haggast ekki við það þó vel hafi tekist til um afkomu ríkissjóðs á árinu 1984. Þá var vissulega mjög sparsamlega haldið á málum varðandi ríkisútgjöld, en það gerðist líka að óraunsæjar, erlendar lántökur ullu þenslu í efnahagskerfinu sem átti verulegan þátt í að auka tekjur ríkissjóðs umfram það sem gert hafði verið ráð fyrir.

Það frv., sem hér er til 2. umr., og öll vinna fjvn. við undirbúning að afgreiðslu fjárlaga bera merki þessara erfiðleika í ríkari mæli en nokkru sinni fyrr. Sumir láta svo sem orsakir þessara erfiðleika séu tiltölulega einfaldar og þeirra sé að leita hjá núverandi hæstv. ríkisstj. og jafnvel hjá einstökum ráðherrum. Aðrir tala um einfalda lausn á þessum málum öllum og standa á götuhornum og hrópa á niðurskurð ríkisútgjalda.

Ég ætla mér ekki þá dul að greiða í sundur alla þá þætti sem sameiginlega hafa orðið til þess að valda þeim miklu erfiðleikum sem nú er við að fást í fjármálum ríkisins. Að minni hyggju eiga þeir sér þó einkum þrenns konar rætur. Í fyrsta lagi áföll þjóðarbúsins sem hófust á miðju ári 1982 með minnkandi þjóðarframleiðslu og þjóðartekjum. Í öðru lagi útgjöld ríkisins og þjóðarbúsins umfram efni á ýmsum tímum sem leitt hafa til sívaxandi greiðslubyrði vegna vaxta og afborgana. Í þriðja lagi sú pólitíska stefna okkar Íslendinga, sem borin hefur verið uppi af ýmsum ríkisstjórnum og Alþingi í langan tíma, að koma hér upp þjónustukerfi á vegum hins opinbera, velferðarkerfi, sem líkist því sem best gerist hjá hinum auðugustu þjóðum.

Þessir þrír þættir eru að mínum dómi veigamestir af ýmsum fleiri sem eru undirrót þeirra miklu erfiðleika sem við stöndum frammi fyrir í fjármálum ríkisins um þessar mundir.

Ég mun þá fara örfáum orðum um hvern þessara þriggja þátta fyrir sig.

Við 2. umr. fjárlaga fyrir ári gerði ég grein fyrir því í samræmi við upplýsingar frá starfsmönnum Þjóðhagsstofnunar á hvern hátt áföllin í þjóðarbúskapnum, sem hófust á miðju ári 1982, hefðu komið fram í tekjutapi ríkissjóðs. Niðurstaða þeirra athugana var að ríkissjóður hefði að sínum hluta tekið á sig þessi áföll þjóðarbúsins eða sem svaraði 2800 millj. kr. tekjurýrnun, en jafnframt hefði verið gefið eftir af skatttekjum ríkissjóðs samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnarinnar um 1200 millj. kr. þannig að í heild var þessi tala nálægt 4 milljörðum kr.

Þess er naumast að vænta að á þessum niðurstöðum hafi orðið miklar breytingar á því ári sem síðan hefur liðið. Þótt vissulega hafi nokkuð greiðst úr með þjóðarframleiðslu og þjóðartekjur er það litlu meira en svo að þessar magntölur hafi staðið í stað milli ára miðað við mannfjölda. Þetta er hér rifjað upp til þess að minna á það tekjutap sem ríkissjóður hefur orðið fyrir af þessum sökum.

Varðandi annan liðinn þykir mér rétt að vekja athygli á því hversu vaxta- og afborganagreiðslur ríkissjóðs aukast ár frá ári og eiga veigamikinn þátt í þeim erfiðleikum sem nú er við að fást í ríkisfjármálum. Rétt er að minna á að hér er um greiðslur að ræða sem ekki er hægt að fresta. Breytt framsetning fjárlagafrv. fyrir árið 1986 gerir samanburð við fyrri ár erfiðari. Hins vegar liggja þessar tölur ljóst fyrir miðað við eldri framsetningu A-hluta ríkissjóðs. Samkvæmt því mundu vextir og afborganir nema 4595 millj. kr. árið 1986, en í ár eru þessar greiðslur áætlaðar 3490 millj. kr. Aukningin stafar að verulegum hluta að því að áætlun um sölu Kröfluvirkjunar er miðuð við að ríkissjóður yfirtaki allar skuldir hennar og eru endurgreiðslur af þeim áætlaðar alls 969 millj. kr. á árinu 1986. Rétt er að geta þess að gert er ráð fyrir að selja Kröfluvirkjun fyrir 1170 millj. kr. með útgáfu skuldabréfs sem ríkissjóður fær fyrstu greiðslu af á árinu 1986 og er hún áætluð 95 millj. kr.

Árið 1981 voru vextir og afborganir ríkissjóðs alls 434 millj. kr., árið 1983 var þessi tala komin upp í 2075 millj. kr. og reiknað er með á sambærilegri uppsetningu að á næsta ári verði þessi tala komin upp í 4595 millj. kr. eins og áður sagði. Raungildishækkun þessara gjalda nemur u.þ.b. 102% á tímabilinu 1981 til áætlunar 1986.

Rétt er að vekja athygli á að hér er ekki eingöngu um greiðslur af skuldum ríkissjóðs að ræða, sem teknar hafa verið til að mæta fjárþörf hans, því hann hefur á undanförnum árum yfirtekið skuldir af framkvæmdum, til að mynda við byggðalínur og virkjanarannsóknir, auk Kröflu sem áður er getið.

Þá þykir mér rétt að vekja athygli á því að samkvæmt þeirri uppsetningu sem nú er á fjárlagafrv. eru brúttóútgjöld ríkissjóðs vegna vaxta og afborgana á næsta ári áætluð 7184 millj. kr. Að vísu er áætlað að á móti komi innheimtir vextir og afborganir sem nema 4,7 milljörðum kr. Eigi að síður er ljóst að fjármagnsútgjöld eiga nú orðið veigamikinn þátt í þeim erfiðleikum sem við er að fást þegar ná skal endum saman í ríkisbúskapnum.

Þá kem ég að þriðja og síðasta meginþætti þessara mála.

Á undanförnum árum og áratugum höfum við Íslendingar verið að byggja upp félagslega þjónustu á vegum ríkisins í líkingu við það sem gerist hjá þeim þjóðum sem hvað auðugastar eru og gera mestar kröfur í þessum efnum. Einu nafni má nefna þetta velferðarkerfi. Okkur hefur orðið vel ágengt í þessum efnum og á ýmsum sviðum njóta Íslendingar mikils félagslegs öryggis og góðrar heilbrigðisþjónustu og menntunar. Svo dæmi sé tekið er heilbrigðisþjónustan í því horfi hér á landi að við Íslendingar lifum nú orðið hvað lengst allra í heiminum.

Allt er gott um þetta að segja í sjálfu sér og ákjósanlegt að geta búið sem allra best að borgurunum hvað þessi atriði snertir. Hér hafa allir flokkar að unnið og margar ríkisstjórnir á liðnum árum.

Á síðustu árum hafa útgjöld til svokallaðra velferðarmála farið enn vaxandi sem hlutfall af útgjöldum ríkissjóðs. Þannig hefur hlutdeild þeirra vaxið í ríkisútgjöldunum til að mynda frá árinu 1983 til 1985 um 3,6% á sama tíma sem til að mynda vaxta- og afborganagreiðslur hafa einnig þyngst mjög. Er þá átt við menntamál, menningarmál og kirkjumál, heilbrigðismál, tryggingamál og félagsmál sem ég hef leyft mér að kalla hér einu nafni velferðarmál.

Það er tiltölulega sjaldan sem stjórnmálamenn leyfa sér að láta uppi áhyggjur sínar yfir því hvert stefni í þessum efnum, hvort þær undirstöður sem þjóðfélagið hvílir á geti risið undir sívaxandi útþenslu þessa félagslega kerfis. Augljóst ætti þó að vera að haldi þetta kerfi áfram að auka hlutdeild sína í ríkisútgjöldum ásamt vaxtagreiðslum og afborganagreiðslum verður eitthvað annað að þoka. Þetta sjáum við gerast á síðustu árum. Að minnsta kosti er það svo, að þessi mál valda mér nokkurri umhugsun og ekkert síður fyrir það þó að ég heyri iðulega virta alþm. halda fram nauðsyn þess að verja velferðarkerfið og hrósa sér af því að það hafi ekki verið skert.

Til eru þó fleiri en ég sem hafa nokkrar áhyggjur af mikilli útþenslu velferðarkerfisins og hafa látið það koma fram opinberlega. Þessu til staðfestingar langar mig til þess að vitna í þann alþm. sem lengst allra núlifandi þm. hefur sýslað um fjármál ríkisins af hálfu Alþingis án þess þó nokkru sinni að setjast á ráðherrastól. Hér á ég við hv. 5. þm. Reykn. Geir Gunnarsson, en hann hefur nú senn setið 23 ár í fjvn. Í ræðu sem þessi ágæti samstarfsmaður minn í fjvn. flutti fyrir fjórum árum við afgreiðslu fjárlaga fyrir árið 1982 sagði hann m. a., með leyfi hæstv. forseta:

„En skyldi samt sem áður ekki vera orðið tímabært að huga að því hver er stefnan í þjóðfélaginu með rekstrarútgjöldum ríkissjóðs og lesa þann mæli sem fjárlög eru í þeim efnum? Við höfum á undanförnum árum í mjög ríkum mæli notað verulegan hluta af afrakstri þjóðarbúsins til að byggja upp þjónustustofnanir og efla hvers kyns þjónustu og félagsleg réttindi. Í þeim efnum hefur markið verið sett hátt og fyrirmyndir sóttar til þeirra þjóða sem ríkastar eru og gera mestar kröfur.“

Enn.sagði hv. þm. í sömu ræðu:

„Undirstaða allrar getu til að standa undir félagslegri þjónustu í landinu, hvort heldur er í skólamálum, heilbrigðismálum eða öðrum efnum, er verðmætasköpunin í þjóðfélaginu, undirstöðuframleiðslan, og því aðeins er unnt að auka sífellt við þjónustuþættina að verðmætaöflunin aukist að sama skapi eða í einhverju sé dregið úr þeirri sóun sem kann að eiga sér stað á ákveðnum sviðum, t. d. í verslun hér á höfuðborgarsvæðinu. Ef við leggjum fjármagnið fyrst og fremst í þjónustustofnanir án þess að efla grundvallarframleiðsluna veltur þessi sístækkandi yfirbygging fyrr eða síðar, hversu nauðsynlega og óhjákvæmilega sem menn telja hana. Hún stendur ekki ein sér.“

Eftir að hv. þm. hafði drepið á útþenslu nokkurra slíkra félagslegra liða segir hann enn, með leyfi forseta: „Allt þetta, sem hér hefur verið nefnt, eru bætt lífskjör, en á hvern veg reiknast það þegar borinn er saman kaupmáttur launa frá einu tímabili til annars? Ég er ekki að benda á þessa rekstrarliði sérstaklega vegna þess að ég telji þá ekki eiga rétt á sér, heldur nefni ég þá til að mönnum sé ljóst að það eru takmörk fyrir því hversu skip verður hlaðið án þess að menn stækki það og það eru takmörk fyrir því hve stóran hlut þjóðarteknanna við getum notað ár eftir ár til að auka þjónustuþáttinn og þá um leið þjónustuútgjöldin í framtíðinni án þess að raunverulegur verðmætisauki sé fyrir hendi. Ef við höldum áfram að hlaða lífsgæðapinklum á skipið án þess að stækka það og bæta gæti svo farið, ef gáraði sjó, að við yrðum að kasta einhverju af þessum farmi útbyrðis eins og þær þjóðir eru farnar að gera sem við tókum okkur helst til eftirdæmis þegar leitað var fyrirmynda um þær ströngustu kröfur sem fundust um þjónustugæði.“

Mér þykir efni til að vitna í þessa ræðu hv. þm. Geirs Gunnarssonar, ekki síst vegna þess að reynsla hans og þekking á þessum málum er ótvíræð. Svo var ekki síst á þeim tíma sem þessi ræða var flutt vegna þess að þá var hann formaður fjvn. Alþingis.

Það er athyglisvert að ræðan er flutt í lok eins lengsta hagvaxtarskeiðs okkar Íslendinga. Þá var ekki tekið að kræla á þeim áföllum sem síðar dundu yfir þjóðarbúið og hófust á miðju ári 1982. Þrátt fyrir það leyna sér ekki áhyggjur hv. þm. Hann bendir réttilega á að verðmætasköpunin, undirstöðuframleiðslan, verði sífellt að aukast til þess að hægt sé að halda í við þjónustuútgjöldin. Hann bendir á að svo gæti farið að eitthvað gáraði sjó og þá gætum við ekki sífellt haldið áfram að hlaða lífsgæðapinklum á skipið, þjóðarskútuna, og svo kynni þá að fara, og væri raunar óhjákvæmilegt, að við yrðum að kasta einhverju af farminum útbyrðis eins og þær þjóðir væru þegar farnar að gera sem við hefðum tekið okkur helst til fyrirmyndar um ströngustu kröfur sem fundust um þjónustugæði.

Ég bið hv. alþm. að hugleiða með mér hvað síðan hefur gerst. Hefur undirstöðuframleiðslan, verðmætasköpunin í þjóðfélaginu, aukist? Nei, svo er því miður ekki. Síðan þetta var talað hafa þjóðarframleiðsla og þjóðartekjur líklega minnkað sem svarar 8-10% á mann. Það hefur sem sagt gárað í sjó, það hefur orðið öldugangur.

En höfum við alið þann kost, eins og hv. þm. taldi að yrði óhjákvæmilegt, að kasta einhverju af lífsgæðafarminum útbyrðis? Nei, það höfum við ekki gert. Þvert á móti höfum við haldið áfram að hlaða lífsgæðapinklunum á skipið, jafnvel í sumum greinum með meiri hraða en fyrr. Það þarf því engan að undra þó að nú sé veltingur og að þessir þættir segi til sín með vaxandi þunga þegar við stöndum frammi fyrir þeim vanda að ná saman endum í ríkisrekstri eða afgreiða fjárlög á hinu háa Alþingi.

Hv. þm. Geir Gunnarsson nefndi í þessari ræðu sinni nokkur dæmi um útgjöld til félagslegra þátta sem væru mjög að aukast. Hann nefndi t.a.m. greiðslur til tannlækninga og fæðingarorlofs, hann nefndi vissa þætti heilbrigðismála og hann nefndi Lánasjóð íslenskra námsmanna.

Ég mun ekki rekja mörg dæmi um hvað síðan hefur gerst. Ég tek þó tvö dæmi, fyrst um málefni fatlaðra, kannske vegna þess að hér er um ákaflega mikilvæga félagslega þjónustu að ræða. Þau mál eru viðkvæm og framlögum á vegum þessa málaflokks er ætlað að bæta úr brýnni þörf og oft og tíðum miklum sársauka. Frá og með 1981 til 1985 hafa framlög til þessa málaflokks nálega þrefaldast að raungildi og í fjárlagafrv. nú, sem hér er til umræðu, er gert ráð fyrir að þau vaxi enn um 20% að raungildi miðað við verðlagsforsendur frv.

Ég ítreka að hér er um eitt hið brýnasta mál að tefla. Eigi að síður tel ég rétt að staldra við og athuga hvert við viljum stefna. Viljum við t. d. auka útgjöld til þessa málaflokks á næstu fimm árum þannig að þau þrefaldist að raungildi, eins og gerst hefur síðustu fimm árin? Og hvað á þá annað að víkja eða hvar ætlum við að afla tekna? Er t.a.m. ástæða til að endurskoða þessi lög og gæta að því hvort eitthvað megi betur fara?

Lánasjóður ísl. námsmanna bíður afgreiðslu fjvn. til 3. umr. Eigi að síður vil ég rifja upp að við umræður um fjárlagafrv. fyrir ári gat ég þess að það væri gott að geta búið vel að námsmönnum, en ég benti jafnframt á nauðsyn þess að staldra við og hugleiða hversu langt skyldi ganga og hvort ekki væri tímabært að endurskoða lög sjóðsins og reglur um lánveitingar. Nú er ég enn sannfærðari en fyrr um að orð mín fyrir ári voru tímabær.

Árið 1982 námu lánveitingar sjóðsins um 200 millj. kr. Sú tala hækkaði um 236 millj. kr. eða 118% á árinu 1983 og varð því 436 millj. kr. Árið 1984 námu lánveitingar 635 millj. kr. og hækkuðu því um 45,6%. Á þessu ári segja áreiðanlegar heimildir að til lánveitinga muni renna 1 milljarður og 98 millj. kr. - Ég endurtek: 1 milljarður og 98 millj. kr. Er það hækkun um 463 millj. kr. eða 72,9% á milli ára. Á árunum 1982 til 1985 hækka því lánveitingar sjóðsins um 450%, en á sama tíma hækkar framfærsluvísitala u.þ.b. um 215%. Lánveitingar sjóðsins hafa því hækkað um 75% að raungildi á undanförnum fjórum árum. Því miður höfum við ekki getað boðið okkar fólki hækkanir í líkingu við þetta fyrir vinnu sína.

Skyldi hv. fyrrv. formann fjvn. hafa órað fyrir þessari framvindu þegar hann tók Lánasjóð ísl. námsmanna sem dæmi í umræðum um fjárlagafrv. fyrir fjórum árum? Hér skal ekki um það spáð né krafist svara. Hitt erum við sammála um, við þessir tveir fjárveitinganefndarmenn, að þegar harðnar í ári í þjóðarbúskapnum og fyrir framleiðsluatvinnuvegunum og þjóðarframleiðslan hefur dregist saman, eins og gerst hefur síðan 1981, verður ekki endalaust bætt lífsgæðapinklum um borð í skipið og þá stöndum við frammi fyrir þeirri nöpru spurningu hvort ekki sé komið að því að við eigum ekki annars úrkosta en að ryðja einhverju af farminum fyrir borð.

Hér væri ekki síður ástæða til að drepa á fleiri þætti hins félagslega kerfis og hvernig þeir hafa þróast á síðustu árum en þá tvo sem nefndir hafa verið. Þar mætti t.a.m. nefna til sögu ýmsa þætti heilbrigðismála, ekki síst á sviði sjúkratrygginga og þó einkum lyfjakostnað og jafnvel læknishjálp. Í þessum greinum eru býsna háar tölur á kreiki. Ég mun þó ekki gera þau mál að umtalsefni fyrr en e.t.v. við 3. umr. eftir að málefni Tryggingastofnunar ríkisins og ríkisspítala hafa verið tekin til afgreiðslu í fjvn.

Meginatriði þessa máls míns er að vekja á því athygli, líkt og fyrrverandi formaður fjvn. gerði fyrir fjórum árum, að við getum ekki í sífellu haldið áfram að auka þetta þjónustukerfi ríkisins án þess að á bak við það standi vaxandi þjóðartekjur eða stóraukinn sparnaður í einhverjum greinum öðrum. En þegar harðnað hefur í ári, eins og nú hefur gerst með áföllum í þjóðarbúskapnum og stórfelldum þrengingum í ríkisbúskapnum, er það víst að við verðum að staldra við og hugsa okkar ráð. Á hvern máta getum við hindrað áframhaldandi hraðfara vöxt þessa þjónustukerfis og á hvern hátt getum við sparað í einstökum greinum þess? Þetta tel ég að hljóti ásamt öðru að verða viðfangsefni okkar að móta tillögur um á næsta ári.

Ríkisfjármálin eru margslungin. Þar er mörg matarholan og þar þarf í sífellu að beita aðhaldi og festu við stjórnun. Ég hef hér lýst áhyggjum mínum af útþenslu hins félagslega kerfis á vegum ríkisins. Ef við viljum vernda þetta kerfi, vöxt þess og viðgang með líkum hætti og gerst hefur á síðustu árum verðum við að gera okkur grein fyrir því að eitthvað annað verður að þoka í útgjöldum ríkisins. Það er einmitt það sem gerst hefur síðustu árin.

Við höfum nú dregið saman útgjöld ríkisins til flestra greina verklegra framkvæmda svo mjög að þar verður ekki lengra gengið. Það er einnig skoðun mín að við getum ekki gengið til fjárlagaafgreiðslu að ári liðnu undir sambærilegum kringumstæðum hvað þessa málaflokka snertir eins og við höfum neyðst til að gera nú. Það getur ekki gengið ár eftir ár.

Við höfum einnig dregið saman fjárveitingar til flestra greina atvinnuvega, einkum þó orkumála, sem eðlilegt má telja með tilliti til þess orkuforða sem nú er í orkukerfi landsmanna. Við höfum þó aukið verulega fjárveitingar til einnar greinar atvinnulífsins sem er sjávarútvegurinn. Í fjárlögum fyrir þetta ár var tekin upp svokölluð endurgreiðsla á söluskatti í sjávarútvegi sem í frv. til fjárlaga fyrir næsta ár er 600 millj. kr.

Það hefur einnig dregið verulega úr framlögum ríkisins til niðurgreiðslna bæði á vöruverði og húshitunarkostnaði. Í ágústmánuði 1982 höfðu niðurgreiðslur á vöruverði áhrif á framfærsluvísitöluna til lækkunar um 8,54 stig, en í ágústmánuði s.l. var þetta hlutfall komið niður í 0,98 stig.

Allar þær aðgerðir til samdráttar í útgjöldum ríkisins sem hæstv. fjmrh., bæði núverandi og fyrrverandi, ásamt hæstv. ríkisstj. og stjórnarflokkum hafa gripið til hafa verið nauðsynlegar. Kröpp staða ríkisfjármála gerir það óhjákvæmilegt að taka fast á málum og þess vegna er nú gripið til ýmissa þeirra óþægilegu úrræða sem kynnt hafa verið á síðustu vikum. Einnig þess vegna höfum við haldið svo fast á málum í fjvn. sem raun ber vitni um.

En ég tel enga ástæðu til að leyna þeirri skoðun minni að þrátt fyrir mikla vinnu við undirbúning þessa fjárlagafrv. og væntanlega afgreiðslu þess hér á hinu háa Alþingi höfum við enn ekki höndlað framtíðarlausn þessara mála. Að slíkum breytingum hefur margt verið vel unnið, bæði af hálfu fyrrverandi og núverandi hæstv. fjmrh., en það hefur einfaldlega þurft meira tóm til þess að koma þeim málum í höfn en svo að það væri mögulegt við afgreiðslu þessara fjárlaga. Þær breytingar munu taka hvort tveggja til tekjuöflunarkerfis ríkisins og gjaldahliðar ríkisfjármálanna.

Hæstv. fjmrh. lýsti við 1. umr. þessa máls nauðsyn þess að gerbreyta tekjuöflunarkerfi ríkisins. Ég er honum sammála um knýjandi nauðsyn slíkra breytinga.

Ég tel ekki tilefni til þess að ég ræði þessi mál mikið frekar nú, vil aðeins leggja áherslu á það, sem fyrr hefur komið fram í máli mínu, að ef okkur tekst ekki að draga úr umfangi ríkisumsvifanna, minnka eða a.m.k. hægja verulega á útþenslu þjónustukerfisins, verður engin framtíðarlausn fundin, hvort sem okkur líkar betur eða verr, nema því aðeins að til komi stóraukin skattheimta eða nýjar og stórfelldar tekjur í þjóðarbúið.

Herra forseti. Þær brtt. sem ég mæli fyrir við þessa umræðu eru af þrennum toga: Í fyrsta lagi eru það brtt. sem fjvn. stendur öll að. Hér er um að ræða ýmsar breytingar á gjaldahlið frv., ýmist til hækkunar eða lækkunar. Samtals valda þessar breytingar, ef samþykktar verða, liðlega 85 millj. kr. hækkun gjalda sem er aðeins um 0,25% af útgjöldum frv. eins og það var lagt fram. Man ég ekki eftir að í annan tíma hafi verið haldið svo sparlega á með útgjaldatillögur fjvn. fyrir 2. umr. fjárlaga. Oft hafa tillögur nefndarinnar fyrir þessa umræðu leitt til hækkunar á gjaldahlið frv. um 2-3%.

Flestar eru þessar brtt., eftir venju, við ýmsa liði menntmrn. Fjölmargir styrkir til félagasamtaka og menningarmála standa óbreyttir í frv. frá fjárlögum þessa árs. Það er í raun ekki nýlunda. Ýmsa slíka liði hefur nefndin gert tillögu um að hækka um 20-25%. Aðrar brtt. eru vegna hreinna leiðréttinga á rekstrarliðum, t.d. þar sem húsaleiga er vanmetin eða launagreiðslur ekki í samræmi við staðreyndir. Enn aðrar brtt. byggjast á mati nefndarinnar, yfirleitt eftir mjög vandlega yfirvegun. Sjálfsagt er að taka fram að eftir venju hafa fulltrúar stjórnarandstöðunnar í fjvn., sem standa að þessum tillögum, fyrirvara um afgreiðslu þeirra og áskilja sér rétt til að flytja eða fylgja brtt. sem fram kunna að koma.

Ég sé hér í niðurlagi nál. frá minni hl. fjvn. að minni hl. hefur flutt tillögu til rökstuddrar dagskrár. Ég hlýt að líta svo á að hér sé einvörðungu um pólitískar æfingar að ræða sem ekki er ástæða til þess að taka alvarlega. Ég vil fyrir mitt leyti hafna þeirri tillögu að vísa þessu máli aftur til fjvn. Ég tel að tilefni sé til þess að afgreiða fjárlög fyrir jól svo sem venja hefur verið. Ég mun því leggja til að þessi rökstudda dagskrá verði felld.

Í öðru lagi mæli ég fyrir brtt. sem meiri hl. nefndarinnar stendur að. Hér er um að ræða hækkun gjalda um liðlega 10 millj. kr. og er þar um að ræða skiptingu á ýmsum fjárfestingarliðum frv.

Í síðasta lagi flytur meiri hl. nefndarinnar ýmsar brtt. að beiðni ríkisstjórnarinnar. Verði þær samþykktar lækkar gjaldatala frv. um 222 millj. kr. þeirra vegna.

Við 1. umr. þessa máls kynnti hæstv. fjmrh. ýmsar breytingar sem ríkisstjórnin og stjórnarflokkarnir höfðu orðið ásátt um að leggja til við Alþingi að gerðar yrðu á frv. Í þessum tillögum fólst m.a. lækkun áætlaðra tekna um 300 millj. kr. og lækkun áætlaðra gjalda um 574 millj. kr. Með þessu vill hæstv. ríkisstj. bæta rekstrarafkomu ríkissjóðs frá því sem var í fjárlagafrv. og draga þar með úr lánsfjárþörf ríkissjóðs. Samkvæmt ákvörðun hæstv. ríkisstj. mun 574 millj. kr. lækkun gjalda nást þannig að sparnaður í rekstrarútgjöldum verður 300 millj. kr., lækkun fjárfestingar 145 millj., lækkun framlaga til sjóða 34 millj., lækkun framlags til Pósts og síma 65 millj. og lækkun fjárfestingaráforma áhaldahúss Vegagerðar um 30 millj. kr. Enn fremur hafa ríkisstjórnin og stjórnarflokkar orðið ásátt um að fresta ýmsum breytingum á tollum og vörugjaldi sem gert var ráð fyrir í fjárlagafrv. Þessi breyting leiðir til 100 millj. kr. lækkunar á áætluðum tekjum frv.

Ákveðið hefur verið að fresta öllum breytingum á tekjuhlið frv. til 3. umr. Þá verða m.a. fluttar brtt. í samræmi við þær ákvarðanir ríkisstj. sem raktar hafa verið hér að framan. Til 3. umr. bíða einnig allar breytingar á verðlags- og launaforsendum frv. Enn fremur breytingar er varða B-hluta stofnanir, Tryggingastofnun ríkisins, Atvinnuleysistryggingasjóð, ríkisspítala, heimildir skv. 6. gr. og nokkur fleiri atriði.

Verði brtt. fjvn. og brtt. meiri hl. nefndarinnar samþykktar við þessa umræðu mun það leiða til lækkunar á útgjöldum fjárlagafrv. um 126,4 millj. kr. og tekjur umfram gjöld á rekstraryfirliti frv. aukast því úr 122 millj. í 248,7 millj. kr.

Á þessari stundu verður á hinn bóginn ekkert um það sagt hver verða muni niðurstaða á rekstraryfirliti fjárlagafrv. eftir að samþykktar hafa verið þær brtt. sem nauðsynlegt kann að þykja að flytja við 3. umr. málsins.

Ég tel hins vegar ástæðu til að láta það koma fram sem eindregna skoðun mína að miðað við þær aðstæður sem nú eru ríkjandi í þjóðarbúskapnum sé afar mikilvægt að það markmið ríkisstj. fái staðist að fjárlög verði afgreidd án rekstrarhalla.

Ég mun þá gera grein fyrir þeim brtt. sem fluttar eru af nefndinni í heild.

Embætti forseta Íslands: Lagt er til að önnur gjöld hækki um 2 millj. 400 þús. kr. vegna þess að tekið verði upp nýtt stofnkostnaðarverkefni, Öryggiskerfi fyrir forsetasetrið. Fjvn. telur ekki fært að standa gegn þeim óskum forsrn. að taka nú upp fjárframlag til öryggisgæslu á forsetasetrinu.

Þá er till. er varðar forsrn., þ.e. þjóðgarðurinn, Þingvöllum og Þingvallanefnd. Lagt er til að önnur gjöld hækki um 500 þús. kr. og verði 5 millj. 638 þús. vegna hækkunar á viðfangsefninu Líffræðirannsóknir sem hækki úr 500 þús. í 1 millj. Mikil framlög eru lögð fram frá erlendum aðilum til þeirra líffræðirannsókna sem nú fara fram á Þingvallavatni undir forustu dr. Péturs M. Jónassonar prófessors í Kaupmannahöfn. Þess er þó tæpast að vænta að erlendir aðilar geti lagt fram fé til launagreiðslna handa Íslendingum við þessar rannsóknir, en till. nefndarinnar miðast við að unnt sé að standa undir þeim þætti mála af hálfu okkar Íslendinga.

Þá eru till. er varða menntmrn.: Raunvísindastofnun Háskólans: Tekið verði upp nýtt stofnkostnaðarviðfangsefni, Vindmylla í Grímsey 200 þús. kr. Þær tilraunir sem fram hafa farið með vindmyllu í Grímsey lofa nú mjög góðu og það væri sannarlega mikils um vert ef tækist með þeim hætti að leysa orkumál í Grímsey.

Menntaskólinn í Kópavogi, fjölbraut: Tekið er upp nýtt viðfangsefni 6 millj. og 400 þús. kr. Þetta er gert vegna yfirtöku menntaskólans á grunnskólahúsnæði og er þáttur í því að standa við samning sem gerður var af fulltrúum bæjarins á sínum tíma við menntmrh. og fjmrh. Með þessari fjárveitingu ásamt því sem fram kemur í yfirliti um grunnskólaframkvæmdir er staðið að fullu við þennan samning.

Kennaraháskóli Íslands: Laun hækka um 250 þús. kr. vegna þess að tekin er inn staða tækjavarðar við skólann.

Rannsóknastofnun uppeldismála: Lagt er til að önnur gjöld hækki um 130 þús. og verði 1 millj. og 11 þús. vegna þess að húsaleiga stofnunarinnar er vanmetin.

Verkmenntaskólinn á Akureyri: Lagt er til að stofnkostnaður hækki um 1200 þús. og verði 11 millj. og 200 þús. Er það gert vegna þess að tekið verði inn nýtt stofnkostnaðarviðfangsefni, Vélhermir, en fyrsta fjárveiting til þessa tækis var á fjárlögum þessa árs.

Vélskóli Íslands: Lagt er til að stofnkostnaður hækki um 1200 þús. kr. og verði 3,6 millj. kr. vegna kaupa á lithografiskum vélhermi. Það er sömu sögu að segja um þetta tæki og tæki Verkmenntaskólans á Akureyri að fyrsta fjárveiting til þessara tækjakaupa kom inn við afgreiðslu fjárl. fyrir ári.

Iðnskólinn í Reykjavík: Lagt er til að laun lækki um 1,5 millj. kr. og verði 73 millj. og 919 þús. kr., en tekið verði upp nýtt stofnkostnaðarviðfangsefni, Tækjakaup, upp á sömu fjárhæð, 1,5 millj. kr.

Iðnskólar almennt: Lagt er til að stofnkostnaður hækki um 1 millj. kr. og verði 5 millj. og 900 þús. kr. Skipting sést á sérstöku yfirliti sem birtist í brtt. nefndarinnar. Gert er ráð fyrir áð þessi hækkun komi til góða fyrir Iðnskólann í Reykjavík sem hefur mikla þörf fyrir slík tækjakaup.

Fiskvinnsluskólinn: Lagt er til að önnur gjöld hækki um 500 þús. kr. og verði 18 millj. 727 þús. kr. Þetta er vegna húsaleigusamnings sem ekki er áætlað fyrir í frv. og er því leiðrétting.

Tónlistarfræðsla: Lagt er til að laun hækki um 400 þús. kr. og verði 80 millj. 558 þús. kr. sem er vegna hækkunar á viðfangsefninu Aðrir tónlistarskólar. Þetta er gert til að taka inn í þessa áætlun framlag til tónlistarskóla á Kirkjubæjarklaustri sem ekki hafði verið tekið inn þegar áætlun var gerð sem liggur fyrir í fjárlagafrv. Þá er gert ráð fyrir að stofnkostnaðarstyrkir hækki um 400 þús. kr. og verður því skipt sumpart með bréfi nefndarinnar til menntmrn., en inni á þessum lið hefur um nokkurt skeið verið Tónskóli Sigursveins D. Kristinssonar.

Náms- og fræðimenn, framlög: Gert er ráð fyrir að tilfærslur hækki um 450 þús. kr. og verði 14 millj. 149 þús. kr. vegna hækkunar á viðfangsefninu Styrkur til útgáfustarfa. Sá safnliður verður tekinn til meðferðar af fjvn. og skipt með bréfi, a.m.k. að hluta, sem sent verður menntmrn.

Fullorðinsfræðsla: Tilfærslur hækki um 75 þús. kr. sem skiptist þannig að viðfangsefnið Bréfaskóli hækki um 50 þús. kr. og Félagsmálanámskeið um 25 þús. kr.

Landsbókasafn Íslands: Lagt er til að önnur gjöld hækki um 180 þús. kr. og verði 4 millj. 968 þús. kr. og er það til að taka upp nýtt viðfangsefni, Til viðhalds á Landsbókasafninu.

Þjóðskjalasafn: Lagt er til að önnur gjöld hækki um 1,6 millj. kr. og verði 4 millj. 450 þús. kr. sem skiptist þannig að viðfangsefnið Almennur rekstur hækki um 500 þús. kr. vegna aukins leigukostnaðar og tekið verði upp nýtt stofnkostnaðarviðfangsefni, Innréttingar, sem verði 1,1 millj. kr. Þetta er gert vegna þess að stofnunin er að flytja í nýtt leiguhúsnæði og kostar það bæði aukin leigugjöld og eins vegna innréttinga í þessu húsnæði.

Listasafn Einars Jónssonar: Lagt er til að önnur gjöld hækki um 1 millj. sem verði viðhaldsverkefni, en mjög brýnt er talið að leggja í allkostnaðarsamar viðhaldsaðgerðir við þetta hús. Er þetta byrjunin á því verkefni.

Blindrabókasafn Íslands: Lagt er til að önnur gjöld hækki um 500 þús. kr. og er það vegna þess að tekið verði þar upp nýtt stofnkostnaðarviðfangsefni, Tækjabúnaður.

Listir, framlög: Tilfærslur hækka alls um 6 millj. 765 þús. kr. sem skiptist á einstök viðfangsefni sem koma fram í brtt. nefndarinnar. Ég sé ekki ástæðu til að rekja það nákvæmlega hér, en safnlið verður síðan skipt með bréfi til menntmrn.

Vísindalegt samstarf, styrkir: Tilfærslur hækki um 400 þús. kr. sem skiptist þannig að tekið er upp nýtt viðfangsefni, Surtseyjarfélagið, byggingarstyrkur, lokagreiðsla 150 þús. kr. og viðfangsefnið Vísinda- og fræðistörf hækki um 250 þús.

Norræn samvinna: Viðfangsefnið Norræna félagið hækki um 15 þús. kr. og verði 125 þús. kr.

Liðurinn Æskulýðsmál: Lagt er til að tilfærslur hækki um 770 þús. kr. og verði 10 millj. 530 þús. kr. og skiptist þannig á viðfangsefni: Ungmennafélag Íslands hækki um 550 þús. kr. Bandalag íslenskra skáta vegna Úlfljótsvatns hækki um 150 þús. og verði 300 þús. kr., en það er byggingarstyrkur vegna þeirrar starfsemi. Íslenskir ungtemplarar hækki um 20 þús. og verði 200 þús. kr.

Liðurinn Ýmis íþróttamál: Tilfærslur hækki um 135 þús. kr. sem skiptist á farkennslu í íþróttum 15 þús. kr., liðurinn Alþjóðaskákmót, styrkir, falli niður, en tekið verði upp nýtt viðfangsefni, Skákmót, styrkir, sem verði 300 þús. kr.

Húsfriðun: Tilfærslur hækki um 3,2 millj. og verði 13 millj. 253 þús. kr. Viðfangsefnið Byggða- og minjasöfn hækki um 1 millj. kr. og verði 6 millj. og 500 þús. kr. Viðfangsefnið Viðeyjar- og Nesstofa hækki um 1750 þús. kr. Og tekið verði upp nýtt viðfangsefni, Húsið, Eyrarbakka 450 þús. kr.

Liðurinn Ýmislegt 999: Lagt er til að einstök viðfangsefni hækki sem hér segir: Amtsbókasafn vegna skilaskyldu 30 þús., Reykholtsstaður um 50 þús., Landssamband hjálparsveita skáta um 200 þús., Hlíðardalsskóli, almennur rekstur, um 400 þús. kr., Söfn, styrkir, um 200 þús. kr. og Félög, styrkir, um 50 þús. kr., Kvenfélagasamband Íslands um 150 þús. Einnig er lagt til að taka upp tvö ný viðfangsefni, þ.e. Hlíðardalsskóli, viðhald, 300 þús. kr., sem er sama tala og er í fjárlögum yfirstandandi árs, og Náttúrugripasafn Vestmannaeyja, sædýrasafn, 125 þús. kr.

Þá eru till. er varða landbrn.:

Búnaðarfélag Íslands. Lagt er til að tilfærslur hækki um 40 þús. kr. sem skipt er í undirliði á viðfangsefnin Landþurrkun.

Rannsóknastofnun landbúnaðarins: Lagt er til að önnur gjöld hækki um 1300 þús. kr. og að hækkunin skiptist þannig á einstök viðfangsefni: Stóra-Ármót 500 þús. kr. sem er stofnkostnaður, Möðruvellir 500 þús. sem einnig er stofnkostnaður, á báðum stöðum eru verulegar skuldir, og í þriðja lagi hús Gunnars Gunnarssonar á Skriðuklaustri 300 þús. kr. sem er viðhald. Ekki þarf orðum að eyða að því að þetta hús er hið merkasta og ekki hjá því komist að halda því við með sómasamlegum hætti.

Skógrækt ríkisins: Lagt er til að tilfærslur hækki um 1350 þús. kr. Með skiptingu á einstaka liðum er vísað til brtt. nefndarinnar, en þar segir að liðurinn Nytjaskógar hækki um 1 millj., Fljótsdalsáætlun hækki um 50 þús. kr. og upp verði tekinn nýr liður, Skógrækt einstaklinga, styrkir, 300 þús. kr.

Yfirdýralæknir: Lagt er til að önnur gjöld hækki um 500 þús. kr. og er einum undirlið hjá yfirdýralækni skipt þannig að tekið er upp nýtt viðfangsefni, Dýralæknir fisksjúkdóma.

Landgræðslu- og landverndaráætlun: Lagt er til að gjöld hækki alls um 11 millj. og 76 þús. kr. og verði 51 millj. 718 þús. kr. Skipting á þessum lið kemur fram í brtt. nefndarinnar ásamt undirliðum og vísast til þess.

Landbúnaðarmál, ýmis starfsemi: Lagt er til að framlög hækki um 100 þús. og verði 1300 þús. kr.

Bændaskólinn á Hólum: Lagt er til að laun hækki um 1381 þús. kr. sem sumpart er vegna þess að mistök urðu við framlagningu frv. Það gleymdist ein staða, auk þess sem vanáætlað var fyrir álagsgreiðslum. En til viðbótar er tekin inn ein ný staða, eitt stöðugildi sem er kennari í fiskeldi og fiskrækt. Þá er lagt til að stofnkostnaður hækki um 2,5 millj. sem er viðbygging við anddyri skólans. Enn fremur er till. um að sértekjur lækki um 500 þús. kr. og verði 6 millj. 845 þús. kr.

Sjávarútvegsráðuneyti.

Hafrannsóknastofnun: Lagt er til að gjöld hækki um 990 þús. vegna þess að tekin eru upp tvö ný viðfangsefni, Útibú í Vestmannaeyjum, almennur rekstur, 150 þús. kr., og undir sama lið, Útibú í Vestmannaeyjum, stofnkostnaður 840 þús. kr. Reiknað er með að þetta útibú geti tekið til starfa frá og með 1. október n.k.

Dómsmálaráðuneyti:

Almannavarnir ríkisins: Lagt er til að gjöld hækki um 344 þús. alls þannig að tekið verði upp nýtt viðvörunarkerfi og til þess varið 744 þús. kr., en niður falli tilfærslur til sveitarfélaga sem nemur 400 þús. kr.

Dómsmál, ýmis starfsemi: Lagt er til að önnur gjöld hækki um 325 þús. kr. sem er vegna hækkunar á viðfangsefninu Aðgerðir gegn fíkniefnum.

Félagsmálaráðuneyti:

Málefni fatlaðra á Reykjanesi: Lagt er til að tilfærslur hækki um 260 þús. kr. og verði 400 þús. vegna viðfangsefnisins Atvinnuleit.

Málefni fatlaðra á Vesturlandi: Lagt er til að laun hækki um 395 þús. kr. vegna hækkunar á viðfangsefninu Dagvistun Akranesi. Þar var um misreikning að ræða við framlagningu fjárlagafrv.

Málefni fatlaðra á Norðurlandi vestra: Lagt er til að gjöld hækki um 580 þús. kr. þannig að tekið verði upp nýtt viðfangsefni, Sambýli Sauðárkróki.

Málefni fatlaðra á Norðurlandi eystra: Lagt er til að gjöld hækki alls um 2 millj. 352 þús. kr. sem skiptist þannig á einstök viðfangsefni: Rekstrargjöld á svæðisstjórn hækki um 400 þús. kr. sem var vanreiknuð húsaleiga. Sambýlið Byggðavegi 1 hækki um 122 þús. kr. sem eru vanreiknaðar álagsgreiðslur, sambýlið Vanabyggð um 230 þús. kr. þar sem einnig er um vanreiknaðar álagsgreiðslur að ræða og vistheimilið Sólborg um 1600 þús. kr. sem eru þrjú stöðugildi sem þar hafa verið í starfi um árabil, en þær stöður eru nú teknar inn í fjárlagafrv. verði þetta samþykkt. Rétt er að geta þess að greiðslur til þessara stöðugilda hefur þurft að leysa ár frá ári með aukafjárveitingum þannig að þær leiðréttingar sem hér eru gerðar eru til þess að fjárlögin verði raunhæfari en ella.

Málefni fatlaðra á Austurlandi: Lagt er til að gjöld hækki alls um 350 þús. kr. sem er eitt stöðugildi, laun sem skiptast á milli viðfangsefnisins Svæðisstjórn og viðfangsefnisins Leiktækjasafn.

Málefni fatlaðra á Suðurlandi: Lagt er til að gjöld hækki alls um 2 millj. 111 þús. kr. sem skiptist þannig á viðfangsefni að Sambýli á Lambhaga hækki um 611 þús. kr. vegna leiðréttinga, lagt er til að veittur sé byggingarstyrkur til Sólheima í Grímsnesi sem er 1 millj. kr. og að leiðrétting verði gerð varðandi verndaðan vinnustað í Vestmannaeyjum um 600 þús. kr.

Vinnumál: Lagt er til að viðfangsefnið Orlofsheimili launþegasamtaka lækki um 1280 þús. kr., en viðfangsefnið Ýmislegt hækki um sömu tölu eða 1280 þús. kr. sem skiptist á ýmsa liði sem tilheyra aðilum launþegasamtakanna.

Félagsmál, ýmis starfsemi: Lagt er til að einstök viðfangsefni hækki sem hér segir: Slysavarnafélag Íslands 444 þús. kr., Sjómannastofur 44 þús. kr., Félagasamtök, styrkir, um 500 þús. kr., Kvennaathvarf í Reykjavík um 452 þús. kr. en Kvennaathvarfið á Akureyri lækki um sömu tölu og falli brott.

Tekið er upp nýtt viðfangsefni, Varnargarðar við Höfðabrekkujökul, 600 þús. kr. gegn jafnháu framlagi frá Viðlagatryggingu Íslands.

Er þá komið að till. er varða heilbrrn.:

Málefni fatlaðra: Lagt er til að gjöld hækki um 1200 þús. kr. vegna hækkunar á viðfangsefninu Endurhæfingarstöð Sjálfsbjargar á Akureyri.

Sjúkrahús og læknabústaðir: Tekið er upp nýtt viðfangsefni, Sjúkrahús St. Franciscusarsystra, Stykkishólmi, 7 millj. kr. styrkur. Hér er sami háttur á hafður og verið hefur í fjárlögum að undanförnu að fjvn. gerir till. um sérstakan framkvæmdastyrk til þessa mannvirkis. Þess er að geta að St. Franciscusarreglan hefur ákveðið að leggja fé erlendis frá í byggingu sjúkrahúss í Stykkishólmi sem nemur 18 millj. kr., en þetta framlag erlendis frá er bundið því skilyrði að íslenska ríkið eða Íslendingar leggi fram 14 millj. kr. á móti á tveimur árum og er þetta til þess að fullnægja því ákvæði.

Heilbrigðismál, ýmis starfsemi: Lagt er til að tilfærslur hækki um 6,4 millj. kr. sem skiptist þannig á einstök viðfangsefni: Krabbameinsfélag Íslands hækki um 3 millj. kr., Hjartavernd hækki um 900 þús. kr., reykingavarnir um 1200 þús. kr., sjúkraflug um 300 þús. kr. og tekið verði upp nýtt viðfangsefni, Samnorrænt átak gegn krabbameini, 1 millj. kr. Með þeirri till. er komið til móts við sérstakar samþykktir Norðurlandaráðs í þessu skyni.

Liðurinn Bindindisstarfsemi, tilfærslur: Lagt er til að tilfærslur hækki um 180 þús. kr. og verði 580 þús. kr. sem er til Stórstúku Íslands og sérstaks norræns bindindisþings.

Þroskaþjálfaskóli Íslands: Lagt er til að önnur gjöld hækki um 470 þús. kr. sem er vegna þess að húsaleigugreiðslur eru vanmetnar í fjárlagafrv.

Samgönguráðuneyti:

Hafnamál: Viðfangsefnið Hafnarannsóknir og mælingar hækki um 4 millj. kr. og er það talið óhjákvæmilegt til þess að hægt sé að halda áfram dreifðum öldumælingum og rannsóknum víðs vegar við landið sem nú eru í gangi á vegum Hafnamálastofnunar. Áður var sá háttur á að slíkt fé til rannsókna var tekið af fjárveitingum til þessarar stofnunar og einstakra verkefna. Nú eru þær fjárveitingar svo skornar við nögl að ekki er unnt að ná þar fé til að standa undir þessari starfsemi. Því er þessi till. flutt.

Þá eru tekin upp þrjú ný viðfangsefni.

Landshöfnin í Þorlákshöfn. Lagt er til að tekin verði upp 4 millj. kr. fjárveiting sem er vegna dýpkunar í höfninni. Sandburður í höfnina er með þeim hætti að hún er talin vera hættuleg fyrir þá miklu umferð sem þar er nú.

Þá er lagt til að landshöfnin á Rifi fái 900 þús. kr. fjárveitingu og landshöfnin í Keflavík - Njarðvík 600 þús. kr., en hvort tveggja er vegna skulda sem á þessum höfnum hvíla.

Sjóslysanefnd: Lagt er til að taka upp nýtt viðfangsefni, Björgunarbúnaður Sigmunds, 100 þús. kr. til hönnunar.

Ýmis framlög: Lagt er til að tilfærslur hækki um 834 þús. kr. og verði 4 millj. 845 þús. kr. sem skiptist á einstök viðfangsefni Fræðsluefni um öryggismál sjómanna 100 þús. kr., Flugbjörgunarsveitir 72 þús. kr. og Tilkynningarskylda sjómanna 62 þús. kr.

Þá hef ég lokið, herra forseti, við að gera grein fyrir þeim brtt. sem fluttar eru af hálfu fjvn., en þá tek ég til við að lýsa þeim brtt. sem fluttar eru af meiri hl. n.

Fyrst er varðandi forsrn.:

Aðalskrifstofa. Lagt er til að gjöld lækki um 400 þús. kr.

Húsameistari ríkisins: Lagt er til að önnur gjöld lækki um 300 þús. kr. og sértekjur hækki um 300 þús. kr.

Menntamálaráðuneyti:

Háskóli Íslands, stofukostnaður: Lagt er til að þessi liður hækki um 5 millj. kr. og verði 95 millj. kr.

Raunvísindastofnun Háskólans: Lagt er til að stofnkostnaður lækki um 6 millj. kr. vegna stofnkostnaðarviðfangsefnis, þ.e. að þá væri frestað endurbyggingu á þakhæð húss fyrir Raunvísindastofnun Háskólans.

Bygging grunnskóla og íbúða fyrir kennara: Stofnkostnaður hækkar um 345 þús. kr. og verður 120 millj. 345 þús. kr. Skipting á þessum lið birtist á sérstöku yfirliti.

Listasafn Íslands: Lagt er til að önnur gjöld lækki um 14 millj. kr. og verði 28 millj. 160 þús. kr. Er þetta lækkun á stofnkostnaði á viðfangsefninu Fríkirkjuvegur 7.

Þjóðarbókhlaða: Lagt er til að stofnkostnaður lækki um 5 millj. kr. og viðfangsefnið falli brott.

Kvikmyndasjóður: Lagt er til að önnur gjöld lækki um 16 millj. kr. og verði 16 millj. kr. Er þá þessi sjóður skertur eins og ýmsir aðrir sjóðir.

Félagsheimilasjóður: Lagt er til að fjármagnstilfærslur lækki um 6 millj. kr. og verði 12 millj. kr.

Íþróttasjóður: Lagt er til að fjármagnstilfærslur lækki um 6 millj. kr. og verði 33 millj. 650 þús. kr. Skipting er birt á sérstöku yfirliti í till. meiri hl. fjvn.

Ýmislegt: Tekið er upp nýtt viðfangsefni, Iðnsaga Íslands, 2 millj. og 16 þús. kr. sem færist yfir til menntmrn. frá iðnrn. og fellur þá jafnframt þar niður.

Utanríkisráðuneyti:

Aðalskrifstofa: Lagt er til að önnur gjöld lækki um 2 millj. kr. vegna lækkunar á viðfangsefninu Kjörræðismenn, en áætlað var að halda sérstaka ráðstefnu fyrir þessa starfsmenn.

Önnur utanríkismál: Tilfærslur lækki um 7 millj. kr. vegna lækkunar á viðfangsefninu Matvæla- og neyðaraðstoð samkvæmt nánari ákvörðun ríkisstjórnarinnar.

Sjávarútvegsráðuneyti:

Ríkismat sjávarafurða: Lagt er til að rekstrargjöld lækki um 1 millj. kr. og að sértekjur hækki um 1 millj. og verði 7 millj. 780 þús. kr.

Dómsmálaráðuneyti:

Prestaköll og prófastsdæmi: Lagt er til að laun lækki um 600 þús. kr. á viðfangsefninu Prestar og prófastar og að viðhald embættisbústaða lækki um 1400 þús. kr. Um skiptingu vísast til brtt. meiri hl. nefndarinnar.

Félagsmálaráðuneyti:

Félagsmál, ýmis starfsemi: Lagt er til að viðfangsefnið Snjóflóðavarnir og skriðuvarnir lækki um 2 millj. kr.

Heilbrigðisráðuneyti:

Hollustuvernd ríkisins: Lagt er til að stofnkostnaður lækki um 10 millj. kr. og verði 300 þús. kr.

Sjúkrahús og læknisbústaðir: Lagt er til að viðfangsefnið Bygging sjúkrahúsa, heilsugæslustöðva og læknisbústaða lækki um 14 millj. kr. sem skýrist á sérstöku yfirliti í brtt. meiri hl. nefndarinnar. Þar er m.a. um tilfærslu að ræða, 14 millj. kr., frá Framkvæmdasjóði aldraðra sem færist yfir á þennan lið og er skipt í till. meiri hl. nefndarinnar. Enn fremur er um tilfærslu að ræða, 1 millj. kr., af liðnum Héraðslæknar og heilsugæslustöðvar, viðhald, og kemur það fram í skiptingu í fjárfestingarlið sjúkrahúsa og læknisbústaða. Að öðru leyti vísast í það yfirlit sem birtist með till. meiri hl. fjvn. á þskj. 244.

Fjármálaráðuneyti:

Ýmsar fasteignir ríkissjóðs: Viðfangsefnið Laugavegur 166 lækkar um 34 millj. og fellur brott. Hér er um Víðishúsið að ræða, en fallið er frá áætlunum um aðgerðir til endurbyggingar á því húsnæði á næsta ári.

Ýmislegt: Viðfangsefnið Símstöð fyrir stjórnarráðið lækkar um 10 millj. kr. og fellur brott.

Samgönguráðuneytið:

Vegagerð ríkisins: Lagt er til að gjöld lækki um 30 millj. kr. og verði 2 milljarðar og 7 millj. kr. og kemur þessi lækkun fram á áhaldahúsi Vegagerðar ríkisins.

Hafnamál: Viðfangsefnið Hafnarmannvirki og lendingarbætur hækki um 4 millj. kr. og verði 74 millj. Sundurliðun birtist á sérstöku yfirliti í till. meiri hl. nefndarinnar.

Flugmálastjórn: Lagt er til að önnur gjöld lækki um 1500 þús. kr. og að sértekjur hækki um 1500 þús. og verði 40 millj. 614 þús. kr.

Iðnaðarráðuneyti:

Lánasjóðir iðnaðarins: Lagt er til að tilfærslur lækki um 12 millj. kr. og verði 28 millj. Hér er um að ræða skerðingu á framlagi til Iðnlánasjóðs.

Iðnaðarrannsóknir: Lagt er til að tilfærslur lækki um 3 millj. kr. og verði 13 millj. kr.

Iðja og iðnaður: Viðfangsefnið Iðnaðarsaga fellur brott í þessu ráðuneyti eins og ég hef þegar frá greint.

Orkusjóður: Viðfangsefnið Styrking dreifikerfis í sveitum lækki um 10 millj. kr. og verði 30 millj. kr. í stað 40 millj. eins og var í frv.

Herra forseti. Þá hef ég lokið við að skýra þær brtt. sem fluttar eru af fjvn. og meiri hl. fjvn. Ég legg til, herra forseti, að frv. verði samþykkt með þeim brtt. sem ég hef hér lýst, en jafnframt að till. minni hl. um rökstudda dagskrá verði felld.