14.12.1985
Sameinað þing: 30. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1600 í B-deild Alþingistíðinda. (1210)
1. mál, fjárlög 1986
Sighvatur Björgvinsson:
Herra forseti. Eins og alkunna er af fregnum frá síðari árum eru þess mörg dæmi að stór og smærri byggðarlög hafi orðið fyrir miklu tjóni af völdum snjóflóða þar sem bæði hefur verið um að ræða eignatjón og tjón á mannslífum. Tillögur hafa verið gerðar um nauðsynlegar aðgerðir til að koma í veg fyrir að slíkir hlutir geti endurtekið sig. Auðvitað kostar það fé. Ein af till. hæstv. ríkisstj., sem nú er verið að greiða atkvæði um, fjallar um að lækka framlag á fjárlögum til þessara framkvæmda um 50%. Það get ég ekki samþykkt og segi því nei.