14.12.1985
Efri deild: 30. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1601 í B-deild Alþingistíðinda. (1216)

175. mál, almannatryggingar

Frsm. (Davíð Aðalsteinsson):

Hæstvirtur forseti. Heilbr.- og trn. Ed. hefur haft þetta mál til meðferðar.

Á nefndarfund kom fulltrúi fjmrn. Lárus Ögmundsson.

Þetta frv. fjallar raunar um sjúkratryggingagjaldið. Það verður áfram 2%. Skattfrelsismörkin verða, eins og frv. greinir frá, 403 þús. kr.

Þess er getið í athugasemdum með frv. að þær breytingar sem hér eru gerðar á tölum og tekjuáætlun í sambandi við sjúkratryggingagjaldið eru miðaðar við áætlaðar tekjubreytingar á milli áranna 1984 og 1985.

Þegar nefndin hafði málið til umfjöllunar lágu ekki fyrir óyggjandi upplýsingar um hver skattvísitalan mundi verða á árinu. Nú hafa borist upplýsingar um að skattvísitalan verði 136. Þá sýnist mér að þessar breytingar, sem hér eru lagðar til, hljóti að vera réttar.

Það kom fram í nefndinni að málið þyrfti e.t.v. frekari skoðunar við og vafalaust hefði svo orðið hefðu breytingar á skattvísitölunni orðið aðrar en ég hef hér greint frá.

Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt óbreytt.