14.12.1985
Efri deild: 30. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1621 í B-deild Alþingistíðinda. (1234)

194. mál, nefnd til að kanna viðskipti Útvegsbanka Íslands og Hafskips hf.

Samgrh. (Matthías Bjarnason):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm., sem hér hafa tekið til máls, fyrir að hafa rætt þetta mál efnislega þó að okkur greini á um leiðir og tiltekin atvik.

Ég vil út af þeirri umræðu sem fram hefur farið varðandi þá nefnd sem ætti að vísa þessu frv. til segja að ég ræddi það við nokkra menn áður en frv. var lagt hér fram til hvaða nefndar væri eðlilegast að vísa því. Menn voru sammála um að þar sem frv. fjallar um viðskipti banka við fyrirtæki ætti það heima í fjh.- og viðskn. Ef það nær aftur til gjaldþrota starfseminnar og er henni skylt hefði allshn. mjög komið til greina. Það er eingöngu af þessari ástæðu sem ég legg til að frv. sé vísað til fjh.- og viðskn. Hins vegar má alltaf um það deila. En ég held að þetta sé ekki stórt atriði úr af fyrir sig. Það er þó í beinum tengslum við ráðuneytið hvað snertir tengsl Alþingis og nefndar. Það er með tilliti til þess sem ég flutti þá tillögu.

Ég held að rétt sé að taka fram að þegar ég fékk skýrsluna um Útvegsbankann í hendur 22. október, það er nú ekki lengra liðið síðan, og ég sá hvað málið var alvarlegt og hvað bankaeftirlitið og Seðlabankinn töldu málið alvarlegt, þó að breytingarnar hafi orðið gífurlega miklar á tiltölulega skömmum tíma, bjóst ég við því að það ætti að geta gengið fljótt fyrir sig að taka ákvörðun um hvort fyrirtækið yrði gjaldþrota eða ekki. Hins vegar töfðust þau mál mikið og ég held að æsifréttaskrif hafi orðið til að tefja eðlilega ákvarðanatöku. Ég tel líka að umræða utan dagskrár hefði gjarnan mátt bíða í örfáa daga. Þá hefði málið tekið aðra stefnu.

Það kom líka til að þegar búið er að taka þá ákvörðun, eða næstum því, að þessu sé lokið hefjast nýir samningar við Sambandið og aðila Hafskips. Ég gat ekki sem viðskrh. fyrirskipað bankastjórn eða bankaráði Útvegsbankans að tala ekki við Sambandið eða Hafskip af því að það væri farið að tala við Sambandið. Það hefði verið litið á það sem pólitískt ofstæki ef slíkt hefði verið gert. Það vita allir hvernig það fór, að stjórn Sambandsins felldi svo að hefja þessar viðræður. En þetta gerði það að verkum að málið dróst á langinn.

Svo kom aftur það erfiða hlutverk hvenær á að ganga til slíkra verka og hvenær ekki. Skip voru í hafi, skip voru að hefja ferðir og það var fyrst og fremst reynt að huga að því að þessi ákvarðanataka ylli sem minnstum óþægindum. Síðan kom að þessu og ég þarf ekki að fara frekar út í það mál.

Hv. 11. þm. Reykv. sagði að það væri ekki í lagagreinum hvenær nefndin ætti að skila af sér og ekki heldur hvert hún ætti að skila af sér. Ég held að það sé alveg óþarfi að setja það inn í lagagrein að nefnd skili störfum til viðkomandi ráðuneytis. Þá liggur í hlutarins eðli að Alþingi hefur það í sinni hendi að krefjast framlagningar þeirrar skýrslu, enda er því lýst yfir í athugasemdum með frv. að skýrslu sé skilað til viðskrh. Ég hygg að enginn þm. mundi treysta sér til að setja inn í lagagrein ákveðna dagsetningu, hvenær slík nefnd eigi að vera búin að skila af sér. Hér er um það viðamikið mál að ræða, sem nær til fleiri landa, að það væri útilokað að gera slíkt. Mér dettur ekki í hug að halda að nokkur þm. leggi til að setja einhverja ákveðna dagsetningu.

Tveir hv. þm. sem hér hafa tekið til máls hafa haldið því fram að ég hefði verið á móti rannsóknarnefnd. Ég lýsti því yfir strax í upphafi að ég teldi að mál þetta hlyti fyrst og fremst að vera í höndum skiptaráðanda og lögum samkvæmt bæri honum ítarleg rannsókn málsins. Hins vegar tók ég strax fram við 1. umr. málsins að vitaskuld þyrfti þetta mál að fá ítarlega rannsókn og þar ætti ekkert að fela þegar þeirri rannsókn væri lokið. Ég taldi rétt að lýsa ekki yfir neinu um nefnd eða starf utan skiptaréttar, láta málið fara þann veg að það yrði tekið til skiptameðferðar. Það lá ekki fyrir fyrr en í þessum mánuði, ekki endanlega þó við höfum reiknað með því fyrr. Þess vegna var mín skoðun sú. En ég minni þm. á að þetta tók ég fram þegar í upphafi þessa máls.

Ég segi enn: Ég tel að það eigi ekkert að fela í þessu máli. Vítin eru til varnaðar. Við eigum að taka á þessu máli eins og öllum öðrum málum, rannsaka það ofan í kjölinn til að koma í veg fyrir endurtekningu.

Skiptaráðendur eru tveir í þessu máli og skipaðir hafa verið þrír svokallaðir bústjórar sem eru lögmenn hér í borginni. Þetta mál er afar flókið og erfitt og þegar er annar skiptaráðandinn farinn vestur til Bandaríkjanna. Ég geri ekki ráð fyrir að þm. mundu ferðast vítt og breitt um heiminn og kalla inn aðra. Ég held að þetta sé nú meira í höndum fagmanna, lögfræðinga og annarra slíkra. Mér finnst ferðalög þm. vera alveg nóg fyrir þó að ekki verði bætt við þessu ferðafélagi.

Ég vil taka það líka fram að ég óskaði eftir því í byrjun nóvember, ég hef ekki alveg dagsetninguna, við Seðlabankann og þar með bankaeftirlitið að skýrsla verði samin um aðra ríkisbanka, um viðskipti og stöðu þeirra ríkisbanka. Það er vitaskuld, eins og þm. vita, mikið starf, en ég sé það og finn að allir verða þessir aðilar að leggja sín mál fram í dagsljósið. Það er erfitt mál og erfið ákvarðanataka hvað snertir Útvegsbankann með alla þá viðskiptamenn sem þar eru, sérstaklega á sviði atvinnulífsins og þá ekki síst á sviði sjávarútvegs vítt og breitt um landið. Þeir eru nú á þriðja hundrað. Jafnvel þó heil stjórnmálasamtök eða unglingadeildir þeirra samþykki að leggja niður einn banka á slaginu megum við, sem erum orðnir fullorðnir, ekki láta slíkar samþykktir sveifla okkur til og frá og stöðva atvinnulífið á fjölmörgum stöðum. Ég er hræddur um að lítið yrði um útgerð t.d. frá stórum útgerðarstað eins og Vestmannaeyjum ef við hefðum lokað Útvegsbankanum um leið og ályktunin birtist eða eitthvað því svipað.

Ég verð að segja það og biðja hv. alþm. hugleiða að þó að Hæstiréttur tilnefni menn í slíka nefnd ber Hæstiréttur enga ábyrgð á störfum þeirrar nefndar. Hæstiréttur hefur algjörlega óbundnar hendur ef í einhverju máli er dæmt í undirrétti og því áfrýjað til Hæstaréttar. En ég spyr: Er Alþingi hlutlaus dómstóll yfir bankaráðum? Alþingi kýs bankaráð. Í bankaráðum eru og hafa verið margir alþm. Þeir eiga því að fara að rannsaka sjálfa sig. Er það betra? Ég spyr. Ég held að menn komist líka að þeirri niðurstöðu að það verði ákaflega erfitt verk og erfitt að sannfæra sig og aðra um að Alþingi sé hið eina óháða vald.

Einn af þm., sem kannske hefur haft hæst í þessu máli, sagði að það væri til fyrirmyndar rannsóknarnefnd þingmanna Bandaríkjaþings og hældi Bandaríkjunum mikið. Hann hefur nú ekki hælt þeim, sá hinn sami þm., fyrir allt. Ég held að það sé nú töluvert annað, framkvæmdavald í Bandaríkjunum og löggjafarvald. Þar er það svo gjörsamlega aðskilið að ráðherrar þurfa ekki að standa frammi fyrir þingmönnum og upplýsa þá í hverju máli eins og er í þessu þingræðislandi. Þar var þessi háttur tekinn upp. Hér geta þingmenn spurt ráðherra hverju sinni og gera það alveg óspart. Það er kominn allmikill bunki af fyrirspurnum núna fram til jóla sem hefur verið svarað. En slíkt er ekki gert í Bandaríkjunum. Vilja menn kannske taka upp svipað og Bandaríkin gerðu með gamla McCarthy? Hvernig gekk það? Þar voru menn sem vildu láta mikið bera á sér, vildu auglýsa sig í fjölmiðlum, þingmenn, og menn voru teknir til yfirheyrslu eins og sakamenn. Það gekk svo langt að menn voru farnir að flýja land. Þeir voru ásakaðir um kommúnisma og óþjóðhollustu og fleira og fleira. Hvað varð um gamla Chaplin? Hann flýði Bandaríkin. Hann kom að vísu aftur eftir mörg, mörg ár. Ég gæti nefnt fleiri og fleiri. Vilja menn kannske innleiða það hér í þessu þjóðfélagi? Ég held ekki.

Og menn tala um að það hafi ekki verið reynt að ná samkomulagi milli stjórnar og stjórnarandstöðu. Ég óskaði eftir því að utandagskrárumræðan færi ekki fram svo snemma. Ég vildi gjarnan að það hefði náðst samkomulag, ekki samkomulag um hvað ætti að vinna heldur samkomulag um hvernig ætti að haga því. En það var svo mikill hamagangurinn að komast í fjölmiðla með umræðuna að menn gátu ekki stöðvað sig á hlaupunum. Stjórnarandstaðan náði ekki einu sinni saman. Hér eru tillögur og skýrslur eins og allir vita.

Ég ætla ekki að ræða þetta mál öllu lengur þó að þörf hafi verið á vegna þessara umræðna, en ég endurtek þakkir mínar til þm. í þessari hv. þingdeild fyrir að hafa tekið málefnalega á þessu máli við þessa umræðu.