14.12.1985
Efri deild: 30. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 1623 í B-deild Alþingistíðinda. (1236)
194. mál, nefnd til að kanna viðskipti Útvegsbanka Íslands og Hafskips hf.
Eyjólfur Konráð Jónsson:
Hæstvirtur forseti. Ég sagði áðan að það orkaði tvímælis til hvaða nefndar þetta mál ætti að fara. Mér er kunnugt um að hæstv. ráðh. hefur rætt við ýmsa lögfræðinga um það og þeir bent honum á að eðlilegt væri að málið færi til hv. fjh.og viðskn. og ég styð þá till. Ég tel það ekkert meginmál, en ég held að það geti varla verið rétt þingsköp að gera brtt. í þessu efni. Það er um tvær nefndir að ræða sem stungið er upp á. Forseti hlýtur að ákveða hvora till. hann ber upp fyrr, en það er auðvitað á valdi forseta. - En mér finnst það einkennileg þingsköp að flytja brtt. um slíka till. Ég held að það séu ekki rétt þingsköp.